Tíminn - 20.10.1874, Síða 7
79
sveita, svo jarðlaust varð fyrir allan fjenað sum-
staðar til sveita. 11. til 17. var gott veður og
stillt, og þýða seinustu dagana, svo snjó tók lítið
eitt upp til fjalla.
í þessum illviðrakafla, sem getið er að ofan,
stóðu rjettir yfir og almenningur var í ferðalagi
og með fjárrekstra, og misstu menn meira og
minna af þeim á fjöllum uppi, helzt á Okvegi og
Kaldadal, en sjálör náðu þeir byggðum með illan
leik og urðu að yörgefa fje og hesta til að halda
líönu, er talið sjálfsagt, að fje haö fennt 100 sam-
an á afrjeltum, því eigi voru af gengnar sumstaðar
nema fyrstu leitir.
— Til eptirtektar fyrir seinni tíma menn, setj-
um vjer hjer kafla úr brjeö frá merkum bónda í
Eyjaörði, dags. 15. júní þ. á. »Veturinn og vorið
fram á sumarmál var hjer kringum Eyjafjörð í
þyngra lagi, en viðar verri, engir töpuðu samt
til muna skepnum sínum, en ekki er jeg því sam-
þykkur að líkja honum við veturinn 1802, jeg á
uppteiknun yör veðráttufar þann vetur og vor, þá
mátti ganga á hafís í íardögum yör Eyjafjörð milli
Glæsibæjar og Svalbarðsstrandar; en i vor leysti
ísinn af firðinum í 4. viku sumars eptir 18 vikna
legu, og síðan á sumarmálum hefur verið hagfeld
tíð, einir 5 kuldadagar, aldrei snjór; en þá 1802,
kom aldrei bati allt vorið, öðruvísi en sólbráð á
daginn en frost um nætur; það er sjálfsagl að í
velur var einhver hinn kaldasti vetur, 20° frost
mest .... það þókti nýlunda að fiskur væri dreg-
inn upp um hafís í vor, en það var þó töluvert;
jeg þekkti einn mann sem dró 800, en þetta var
það langmesta af því er nokkur maður fekk...........
— Velgjörðasemi. Stórkaupmaður hr. Gudmann,
sem á verzlun á Akureyri, hefur gefið Akureyri
sjúkrahús, og kostað til þess 5—6000 dölum;
sjúkrahúsið tekur sex fullorðna og tvö börn.
Étlagt úr »Berlingske Tidende».
Brennisteinsnámur á íslandi. Þar sem að
norðurálfan hefur hingað til næstum eingöngu
fengið brennistein frá Ítalíu og Spáni, hafa menn
von um að frá íslandi verði farið að flytja eigi
all-lítið. Brennisteiusnámurnar þar, sem voru svo
miklar árið 1863, að úr þeim fengust rúm 400
tons, láu nokkra hríð i gleymsku, en nú hefur
Englendingur einn fengið þær ljeðar, og nú á að
vinna að þeimmeðmeiri dugnaði. Verðið á íslenzk-
um brennisteini er31 af hundraðiminnafyrir hvert
tons, heldur en á hinum spánska og ítalska. Það
er sagt að brennisteinsmyndunin sje ævarandi, og
því þurfi ekki að óttast fyrir að þær tæmist eða
eyðist.
— Póstskipið Díana, kom að kveldi hins 15.
þ. m. eptir 19 daga ferð frá Khöfn, hafði það
legið 4 daga inni við Skotland og 6 í Færeyjum
sökum óveðra. Með því komu þessir farþegar:
Benidikt Gröndal mag. með konu sinni og dóttir,
Aagaard sýslum. frá Vestmanneyjum, Símon
Johnsen kaupmaður í Reykjavík. J. Johnsen,
verzlunarmaður og Hillebrandt.
— Kennaraembœtti við lærða skólann er veitt
skáldinu Benidikt Gröndal mag.
— Vestanpósturinn kom 14. þ. m., hafði hann
fengið illviðri, frost og hríðar á leiðinni. Frjettust
með honum mestu harðindi af vesturlandi, helzt
í Dala- Barðastrandar- og ísafjarðarsýslum, hvar
víða var jarðlaust fyrir skepnur, kýr og sauðfjenaður
I var kominn á gjöf. Fjártjón hið mesta, sem bæði
hraktist fyrir stormum og fennti, helzt í Dalasýslu,
sagt er að Indriði Gíslason á IIvoli hafi misst 130
fjár, og hefur fundist af þvi rúmur helmingur.
— Norðanpósturinn kom 15. s. m. eptir harða
útivist, sökum illviðra og snjóa. Sömu harðindi
var að frjetta úr norðurlandi og að vestan, fjár-
skaðar töluverðir.
SMÁVEGIS.
Peningamaður einn leitaði ráða til málsfærslu-
manns, sem var alþekktur að kænsku, Maðurinn
hafði lánað kunningja sínum 2000 rd, án þess að
taka nokkra kvittun fyrir því hjá honurri. f>essi
kunningi hans var nú farinn úr landi, og maður-
inn var farinn að verða hræddur um sig og pen-
inga sína. Málsfærslumaðurinn stóð nokkra stund
þegjandi þangað til hann sagði: «Setjist þjer