Alþýðublaðið - 18.02.1960, Síða 10

Alþýðublaðið - 18.02.1960, Síða 10
VMMWWWWWWWWIWWWWW ÍVelkominn! ÞAÐ var glæsileg mót- tökunefnd, sem tók á móti sænska skíðakórignum Sixten Jernberg, er hann kom til Squaw Valley. — Talið frá vinstri: Davy Crockett, Hvíta f jöðrin og Sparks Núgget. Allir virð ast í góðu skip, ekki sízt skíðakóngurinn. Ritstjóri: Örn Eiðsson DAG hefjast 8. vetrar-OIymp- íuleikirnir í Squaw Valley, í Kaliforníu. — Setningarhátíðin verður með stórkostlegu sniði og ekkert til sparað. Walt Dis- ney og allir hans aðstoðar- menn hafa nýlokið við unðirbún inginn. Þegar setningin hefst mun fjallahringur Kerlingaðals bergmála af fallbyssuskotum og lúðrablæstri. Stórkostleg flug- eldasýning verður og sam- kvæmt því sem framkvæmda- nefndin segir, mun bjarminn af henni sjást alla Ieið til San Fran- cisco! Að öðru leyti verður at- höfnin með svipuðu sniði og áð- ur hefur tíðkast, þátttakendur ganga inn á Olympíuleikvanginn i stafrófsröð undir þjóðfánum sínum, nema að Bandaríkja- mennirnir fara síðastir. XXX Fyrstu Olympíuleiki'rvetr aríþrótta voru háðir í Chamon- ix, Frakklandi 1924. Áður hafði Skautaleikvangurinu í Squaw Valley. — Stökkbrautin í baksýn. verið keppt í vetraríþróttum í sambandi við sumarleiki'na í London 1908 og Antwerpen 1920, en fyrstu opinberu vetrar- leikirnir voru í Chamonix, eins og fyrr segit. Leikirnir fóru fram 25. janú- ar til 4. febrúar og sendu 16 þjóðir 293 þátttakendur. Flest stig þjóða hlaut Noregur, 32,5 — Finnland kom næst með 20,5 og Austurríki meQ 8. Næst voru Vetrarleiki'r háðir í St. Moritz í Sviss 11.—19. febrúar 1928. Alls sendu25 þjóð ir 492 þátttakendur. — Ennþá hlutu Norðmenn flest stig eða 29 5/6 st., Svíar fengu 11 og Finnar 7 5/6. Lake Placid, Bandaríkjunum varð fyrir valinu 1932 og það sem vakti mestan spenni'ng í sambandi við þessa leiki var, að ailan janúarmánuð 1932, kom enginn snjór í Lake Placid, en það Ihafði ekki skeð í 75 ár! En um mánaðarmótin jan.-febr. byrjaði' að snjóa og allt gekk vel. í þessum leikjum tóku þátt 307 íþróttamenn og konur frá 17 þjóðum. Bandaríkjamenn hlutu flest sti-g eða 28, Norð- menn 20 og Nanada 10. Þjóðverjar sáu um Ieikina 1936, en þeir fór.u fram í Garm- isch Parténkirchen dagana 6. til 16. febrúar. Metþátttaka Vár í leikjunum ti'l þess tíma, eða 756 frá 28 þjóðum. Nú hlutu NÓrð- men aftur flest stig eða 34, — Þjóðverjar 15 og Svíþjóð 13. Leikirnir féllu niður stríðs- árin 1940 og 1944, en 1948 voru þeir aftur háðir í St. Mori'tz. 932 þátttakendur vorU frá 29 þjóðum. Leikirnir fóru fram 30. janúar til 8. febrúar. Svíar hlutu nú flest stig, 70 alls, eftir geysiharða keppni við Svisslendingaj sem fengu 68, — Bandaríkjamenn voru þri'ðju með 64 Vt og Nörðmenn fjórðu með 573/á. íslendingar sendu nú í fyrsta sinn þátttakendur í Vetrar-Olympíuleiki. Oslo varð fyrir valinu 1952, en leiki'rnir fóru fram dagana 14.-26. febr. Þátttakendur voru 1178 frá 30 þjóðum. Flest stig hlutu Norðmenn 104,5, Banda- ríkin 77,5 og Finnland 63. Þátttaka í Vetrar leikjum náði hámarki í Cortina 1956, en þar mættu 1282 keppendur frá 32 þjóðum. Rússar voru nú í fyrsta sinn með. Leikirnir stóðu frá 27. janúar til 6. febrúar.- Rússa hlutu flest sti'g eða .... Rússar hlutú flest stig eða 32, Austurríki 22, Svíþjóð 18, Finn land \6, USA 14, Sviss 14 og Noregur aðei'ns 9. .MUMMtMWWMMMWUMU Dagskráin í dag og á morgun DAGSKRÁ Olympíu- leikjanna í Squaw Valley í dag er sem hér segir: . 1. Setningarathöfn. 2. Skíðastökk (sýning). 3. fsknattleikur. Á morgun verður keþpt í eftirtöldum greinum: 1. Listhlaupi á skautum (parakeppni). 2. 30 km. skíðaganga. 3. Brun karla. 4V fsknattleikur. íslendingar koma því fyrst við sögu 8. Vetrar- leikjanna á morgun, en þá keppa þremehningarnir Éystéinn Þórðarson, Jó- hann Vilbergsson og Krist inn Benediktsson í bruni. MWWWMWW 10 18. fébr. 1960 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.