Alþýðublaðið - 19.02.1960, Page 11
Ritstjóri: Örn Eiðsson
3 heimsmet sett
í köstunum ‘59
ÞAÐ náðist frábær árangur '
kastgreinunum í fyrrasumai’: í
þrem þeirra voru sett heims-
met, kúluvarpi, kringlukasti og
spjótkasti og í sleggjukasti
Evrópumet.
Árangur bandarísku kúlu-
varparanna á s. 1. ári er frá-
bær og nú er aðeins spurning-
in, hver þeirra nær fyrst tak-
markinu 20 metrar! Quercetani
tekur afrek Dallas Long, 19,33,
með' á skrána, en í fyrra var
álitið, að sá árangur myndi ekki
fá staðfesti'ngu se mheimsmet,
en þegar O’Brien varpaði 19,30
m. mun allt hafa verið í góðu
lagi. O’Brien er öruggastur af
19 m. kösturunum,- en hann
hefur sett sér það takmark að
Parry O’Brien,
verða Olympíumeistari í þriðja
sinn í röð, en hann sigraði bæði
í Helsingfors 1952 og Mel-
bourne 1956. — Bill Nieder er
misjafn, en hann náði 19,67 m.
á sýningu. Það er víst lítill
vafi á því, að Bandaríkjamenn
fá öll verðlaun í kúluvarpinu
í Róm.
★
í kringlukastlnu eru Evrópu-
búar alltaf að sækja sig og nú
fór heimsmetið yfir Atlants-
hafið,' alla leið til Póllands.
Piatkowski, sem varð Evrópu-
meistari í Stokkhólmi er nokk-
uð misjafn. Szécsényi, sem er
annar á skránni, sigraði hann
nokkrum s'nnum. A1 Oerter,
OL-meistarinn frá Melbourne
er beztur Bandaríkjamanna og
þriðji á skránni. Hann hefur
haft stór orð um það, að hann
muni kasta langt yfir 60 m.
næsta sumar, en flestir hafa
meira álit á Babka, þ. á. m. Ung
verjinn Széczéynyi, sem álítur
hann líklegan til að kasta allt
að 63 m.
★
Það kom hálfgerður sputnik
fram í spjótkastinu — er sá
bandarískur og heitir A1 Can-
tello. Hann kastaði e’gn sinni
á heimsmetið og kastaði 86,04
m. Cantello þessi er ekki ör-
uggur og var þetta hans lang-
bezta afrek á árinu. Sidlo setti
pólskt met og hans árangur
85,56 m. er þriðji bezti, sem
náðst hefur í heiminum. —
Sidlo er sá af beztu spjótköst-
urum heimsins, sem sýnt hefur
mest öryggi og kastar yfirleitt
vfir 80 m., ef þess gerist þörf.
Svíinn Fredriksson er þriðji
bezti. Hann er stór og sterkur,
og fullur af sjálfsöryggi, en
bað dugar honum ekki á stór-
mótum, þar hefur hann yfir-
leitt verið linur. Alls köstuðu
8 yfir 80 m. í fyrra, sem er
mjög gott og í áttunda sæti er
Klaus Frost, sem hingað kom
1957. '
★
Rússar eiga rúmlega 20
sleggjukastara, sem köstuðu
lengra en 60 m. s. 1. ár, en af
þem er Rudenkov beztur, hann
setti s. 1. sumar nýtt Evrópu-
met, 67,92 m. Gamla metið átti
fvrrverandi heimsmethafi, Kri-
vonosov. Conolly er í öðru
1 sæti, en náði kasti sem var
Al Cantello — nýi lieimsmethafinn í spjótkasti.
lengra en árangur Rudenkov,
þar sem aðstæður voru ekki
löglegar. — Svíinn Asplund
tók geysimiklum framförum
og margbætti sænska metið.
Asplund er lágvaxinn, sterkur
og snöggur. Nú höfum við birt
beztu afrekin í öllum greinum
frjálsíþrótta s. 1. sumar nema
tugþraut, sem kemur einhvern
næstu daga.
Dallas Long, USA, 19,38
Parry O’Brien, USA, 19,30
Bill Nieder, USA, 19,12
Dave Davis, USA, 18,87
Arthur Rowe, Engl., 18,59
C. Butt-Roberts, USA, 18,53
Mecconi, Ítalíu, 18,48
Varju, Ungvl., 18,20
Nagy, Ungverja., 18,16
Skobla, Tékk., 18,11
Lipsnis, Sovétr., 18,08
Ovsepjan, Sovétr., 17,99
Varanauskas, Sov., 17,92
S ý n i n g :
Bill Nieder, USA, 19,67
Dallas Long, USÁ, 19,64
O’Brien, USA, 19,52
Skobla, Tékk., 18,30
Kringlukast:
Piatkowski, Póll., 59,91
Szécsényi, Ungv., 59,03
Oerter, USA, 58,12
Babka, USA, 57,96
Gordien, USA, 56,75
O’Brien, USA, 56,43
Du Plessis, S.-Afr., 56,32
Ljaliov, Sovét., 56,27
Truenjew, Sovét., 56,25
Buhantsev, Sovét., 56,20
Silvester, USA, 56,08
Counadis, GrikkL, 56,06
Kompanejets, Sov., 56,02
Grieser, Þýzkal., 55,24
Cochran, USA, 55,08
Klics, Ungv., 55,02
Sleggjukast:
Rudénkov, Sovét., 67,92
Hal Connolly, USA, 67,88
Asplund, Svíþjóð, 65,97
Zsivótzky, Ungv., 65,72
Rut, Pólland, 65,61
Samotsvetov, Sovét., 65,22
Ellis, England, 64,95
Tkatjev, Sovét., 64,83
Cieply, Póll., 64,48
Nikulin, Sovét., 64,26
Kolodij, Sovét., 64,09
Bakarinov, Sovét., 64,05
Boltovskij, Sovét., 63,92
Thun, Austurríki, 63,89
Racic, Júgóslavíu, 63,85
Spjótkast:
A1 Cantello, USA, 86,04
Sidlo, Póll., 85,56
Fredriksson, Svíþj., 82,96
Bill Alley, USA, 82,33
Kuznjetsov, Sovét., 82,16
Maquet, Frakkl., 81,86
Lievore, Ítalíu, 80,52
Frost, Þýzkal., 80,04
Bizim, Rúmeníu, 79,96
Vallman, Sovétr., 79,74
Tsibulenko, Sovét., 79,66
Held, USA, 79,64
Kauhanen, FinnL, 79,63
Kriiger, Þýzkal., 79,61
Nikiciuk, Póll., 79,12
Olympíuleikir
Framhald af 16. síðu-
fáni VIII leikanna og Ólympíu-
fáninn voru lýstir upp með Ijós
kösturum. Á meðan fánar þátt-
tökuríkjanna voru dregnir að
hún voru bumbur barðar, en þeg
ar þeir voru upp komnir lék
hljómsveitin Ólympíumarsinn,
en 2500 manna kór söng versið.
Nú beindust allra augu að’ að-
aldyrunum, þar sem Ólympíulið
þjóðanna tóku að streyma inn.
Var öllum vel fagnað af áhorf-
endum, sem aðeins voru um
5000 vegna hins slæma veðurs.
íþróttamennirnir gengu fram
hjá heiðursstúkunni og tóku sér
stöðu gegnt henni, þegar allir
voru komnir.
Brundage og Hale gengu síð-
an fram og í stuttri ræðu bauð
Hale þátttakendur velkomna til
Squaw Valley. Hann bað síðan
Brundage og Nixon varaforseta
um að lýsa leikina setta. Flutti
Nixon þá stutta ræðu úr stúku
sinni og endaði með þessum orð-
um: „Eg lýsi þessa áttundu Ól-
ympisku vetrarleiki setta.“
Þegar ieikarnir höfðu þan-^ig
verið settir, söng kórinn Ólymp-
íuóðinn, á meðan Ólympíufán-
inn var dreginn hægt að hún.
Jafnfram var 2000 „friðarduf-
um“ sleppt lausum og skotið átta
fallbyssuskotum.
ÓLYMPÍUELÐURINN
Þegar bergmál skotanna var
dáið út, tók þulur að rkja sögu
Ólympíuleikanna. Þegar hann
hafði sagt frá Ólympíukyndiin-
um, beindust allra augu upp á
Papcose-tind, þar sem Andrea
Mead Lawrence, sem hlaut
tvenn gullverðlaun í Osló 1952,
stóð tilbúi'n með kyndilinn til
að koma með hann síðasta á-
fangann frá Morgedal. í fylgd
með 8 öðrum skíðamönnum
brunaði hún niður fjallshlíðina
til leikvangsins. Þar afhenti
hún kyndilinn a.meríska skauta
hlauparanum Ken Henry, sem
vann gulli'ð í Osló 1952. Hann
bar kyndilinn síðan hátt á letfti
einn hring um skautasvæðið,
heilsaði heiðursstúkunni og
gekk að „Turni' þjóðanna11, þær
sem hann kveikti Ólympíueld-
inn, er brenna skal á meðan á
leikunum stendur.
HEISS VANN j
ÓLYMPÍUEIÐINN
Þá var Ólympíubænin sungin
og loks gekk ameríska stúlkan
Caroj Heiss, sem er heimsmeist
ari í li'sthlaupi á skautum, fraxn
fyrir heiðursstúkuna. Með am-
eríska fánann í vinstri hendi
vann hún síðan Ólympíueiðinn
fyrir hönd hinna 989 skíða- og
skautamanna frá 31 þjóð, sem
á næstu tíu dögum munu £ fri'ð-
samlegri keppni sækjast eftir
27 gullverðlaunum, æðstu heið-
ursmerkjum áhugamanna í í-
þróttum. Setningarathöfninni
lauk með því, að hljómsveitin
lék aftur Ólympíumarsinn.
Blöðrunum var sleppt og í».
þróttamenni'rnir gengu út sf
vellinum.
AlþýðublaSið — 19. febr. 1960