Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1990, Blaðsíða 85
FALLBYSSUBROT FRÁ BESSASTÖÐUM
89
til landvarna eða til að sýna veldi höfuðsmannsins gagnvart þegnunum.
Þær gætu í sama tilgangi verið keyptar úr farskipum hcr við land.
Ef skip var tekið herfangi, gat góss í þeim orðið konungs eign.
Vogrek gat einnig komist í eigu konungs10 og mögulegt er, að kon-
ungur hafi þannig eignast fallbyssur hér á landi. Á Alþingi var til dæmis 1.
júlí 1667 lýst vogreki í Barðastrandarsýslu, þar sem meðal annars „eitt
fallstykki hefði á land komizt".11
Fallbyssur á Bessastöðum gætu því hafa verið upp runnar í ýmsum
löndum og hafa borist þangað með skipum allra þjóða, sem sigldu til
íslands eða á íslandsmið.
Varla hefur jafn-afskekktur hluti Danaveldis og Bessastaðir fengið
nýjustu og dýrustu tegundir vopna og er því líklegt, að fornar byssur hafi
lengur staðið í Bessastaðaskansi en í þeim virkjum, sem nær voru kon-
ungi. Byssurnar geta hafa verið notaðar til að skjóta púðurskotum við há-
tíðleg tækifæri, eftir að þær voru orðnar lítls virði sem vopn.
Ályktun
Safngripirnir tveir, sem voru röntgenmyndaðir, eru brot úr tveim
frekar litlum fallbyssum. Byssurnar voru smíðaðar úr járni, en ekki
steyptar. Við smíði þeirra hefur verið notuð tækni, sem þekkt er aföðrum
fallbyssum. Byssurnar eru líklega frá 15. eða 16. öld. Þær gætu hafa verið
til varna á Bessastöðum fram á 17. öld eða jafnvel lengur.
Þakkir
Ég vil þakka Stefáni Jóhanni Björnssyni, tæknifræðingi hjá Iðntækni-
stofnun íslands, fyrir hjálp við röntgenskoðunina. Einnig ber að þakka
Björn A. Nielsen, museumsinspektör við Týhússafnið í Kaupmannahöfn,
fyrir veitta aðstoð og sérstaklega fyrir að leyfa að nota mynd nr. 7.
TILVITNANIR:
1. ReisubókJóns Ólafssonar Indíafara II, Rvk. 1946, s. 251-252.
2. Lovbogfor Island, Kbh 1853, bls. 314. Aabent Brev ang. Landets Defension.
3. Helgi P. Briem: Sjálfstæði íslands 1809. Rvk. 1936, s. 298-299.
4. íslandshandbókin, 1989, fyrra bindi, s. 71.
5. Pjóðminjasafn íslands. Safnskrá 1882-1888.
6. Reisubók Jóns Ólafssonar Indíafara I, Rvk. 1946, s. 119.
7. Ian V. Hogg: A History of Artillery, 1974.
8. Fldden i Nordatlanten. Inspektionsskibseskadren 5. juni 1987.
9. Lovsamlingfor Island, Kbh. 1853, bls. 322-323. Bevilling og Pas for Otte Axelsen, at fiske
og kapre under Island.