Íslendingur - 19.04.1875, Side 1
(18 arkir). Árgangurinn kostar 2 krónur 4 íslandi; í Danmörku og Englandi 2 kr. 50 aura, í Vestur-
heirni 3 kr., sem borgist fyrir síðasta júlí p. á.
19. april.
1. ár 1875.
9—10.
— Póstskipið kom að kveldi hiug 5. þ, m.,
Og hafði lagt frá Kaupmannahöfn þ. 14. f. m.
Með því komu frá Kaupmannahöfn: verzlun-
arstjórarnir J. Stephensen og M. Jóhannessen
(forstöðumaður norsku verzlunarinnar í Rvík),
frúLevinsen með syni sfnum, ogkand. Stefán
Halldórsson og Stefán Danielsson frá Grund-
arfirði; hefur hann dvalið erlendis í vetur ti|
að nema saltgjörð.
í Danmörku var veturinn fremur harður,
og þó enn harðari í Svíaríki; allar póstgöng-
ur milli Danmerkur, Svíaríkis og sumra staða
í Þvzkalandi voru stöðvaðar sökum þess, að
allt Jótlandshaf, Beltin, og nokkur hlutí Eystra-
salts var lagt isi.
Nokkru áður en póstskip fór frá Höfn,
var haldin þar hátíð í minningu þess, að
fornfræðafjelag Norðurlanda hafði þá staðið
í 50 ár; konungur var þar sjálfur viðstadd-
ur; talaði hann þar mikið um ferð sína til
íslands, og Ijet vel yfir hepni. Mælt er, að
ferð hans hingað hafi kpstað ríkið 36000 kr.
Friður er um alla Norðnrálfuna, nema
á Spáni; þar berjast menn enn af ákafa.
Stjórnarflokkurinn tók í vetur til konungs yfir
sig Alphons nokkurn, son Isabellu drottn-
ingar, en ekki er það Karlungum að skapi.
Máttur þeirra er alls ekki hrotinn á bakapt-
ur enn, .og eigi er hægt fyrir að sjá, nær
styrjöid þessi muni linna. tegar stjórnar-
menn túku Alphons til Konungs, urðu Ivarl-
ungar enn æstari en áður, og hafa þeir átt
saman margar orustur síðan, og veitir Ivarl-
ungum engu miður, en stjórnarhernum.
Eina mikla og mannskæða orustu áttu þeir
saman seint í febrúar, og veitti stjórnar-
hernum þar roiður; varð hann undan að hörfa
eptir mikið manntjón; einnig í marz áttu
þeir orustur saman, og fer ýmsum sögum
um, hverjir hafi borið hærra hlut. Meðal
nafnkendra manna, er látist hafa erlendis í
vetur, má telja Ledru Bollin, er var nafnfræg
frelsishetja; einnig er látinn bókasölumaður
Broékham, er heimsólti land vort fyrir nokkr-
um árum. Garibaldi var < vetur kosinn til
þingsetu á þingi ítala; voru menn hræddir
um í fyrstu, að þessi hin gamla frelsishetja
mundi verða hinn mesti andvígismaður stjórn-
arinnar, en það fór á aðra leið. Hann læt-
ur sig litlu skipta politikina, heldur hitt, að
efla sem mest efnahag landsmanna sinna.
Nú er komin á prent ný útgáfa af
Njálu, einkar vönduð, sem von er, því »11*
lengi hefnr staðið á þeirri útgáfu.
Einnig má geta þess f frjettaskyni, að
þeir stórkkaupmaður N. Knudfzon og kaup-
maður W. Fischer hafa keypt kaupstaðinn
Flensborg í Hafnarfirði, og ætla þeir sjer að
hafa hann fyrir aðseturstað fiskiveiðafjelags
nokkurs, er þeir ætta sjer að stofna. Yjer
höfum sjeð lög þessa fjeiags, og virðast oss
þau miður frjálsieg. Fjelag þetta á að ver»
hlutafjelag, og er íslendmgum ,gefin kostur
á, að kaupa í því hlutabrjef.
Vöruverð í Kaupmannehöfn skömmu áð-
ur en póstskip fór þaðan:
Rúgur: 7 krónur fyrir 100 pd.; bánka-
bygg: 10 kr. 30 aurar fyrir 100 pd.; rúgmjöl:
8 kr. fyrir 100 pd.; koffe, frá 85—75 aura
fyrir pd eptir gæðum; handisykur: 36—33
aura fyrir pund; hvítasykur: 30—32 aura
fyrir pund; brennivín, 25 aur. fyrjr pott.
Hvít ull, eptir því sem seinast frjettist frá
Englandi, var verðið á þessari vöru 300 kr.
fyrir 320 pund, en 320 pund af mislitri ull
voru borguð með 250 krónnm. Lýsi var í
mjög lágu verði; tunnan af ljósu og tæru
hákarlslýsi var borguð með 52—53 krónum,