Alþýðublaðið - 10.04.1960, Qupperneq 2
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ingólfur Kristjánsson.
— Ritstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fulltrúar
ritstjórnar: Sigvaldi Hjálmarsson og Indriöi G. Þorsteinsson. — Fréttastjóri:
Björgvin Guömundsson. — Símar: 14900 —14902 —14 903. Auglýsingasími:
14906. — AÖsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfis-
gata 8—10. — Áskriftargjald: kr. 45,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint.
Viðskiptamálin
| RÍKISSTJÓRNIN hefur nú lagt fram á al-
\ ’þingi frumvarp um þá nýju skipan gjaldeyris- og
. innflutningsmála, sem hún vill lögfesta. Er þar
; igert ráð fyrir, að verzlunin verði að verulegu
■ leyti frjálsari en áður, en skriffinnska við útgáfu
j leyfa og annað slíkt minni.
Innflutningsskrifstofan við Skólavörðustíg
: hefur annast margþætt hlutverk. Hún hefur út-
, hlutað innflutnings- og gjaldeyrisleyfum, farið
. rneð ákvörðunarvald í verðlagsmálum og veitt
• leyfi til fjárfestingar. Þarna hafa setið hver stofn-
j 'unin á fætur annarri, oft skipt um nöfn, en gegnt
. *einhverju þessara hlutverka eða öllum. Þarna hef-
; iir fólk starfað í „bráðabirgðastörfum“ hálfan ann
j an áratug. Yfir stofnuninni eru fjórir forstjórar,
, einn frá hverjum stjórnmálaflokki.
j : Nú verður þessi stofnun lögð niður. í stað
j ^þáss að sækja til hennar um gjaldeyris- og inn-
j fliutningsleyfi, fara síðan í bankana og berjast við
j að fá gjaldeyri út á leyfin, eiga menn í framtíð-
i irjni að snúa sér beint til bankanna með hvort
; t\ieggja — þegar leyfa er yfirleitt þörf. Sennilegt
að þrír menn, tveir bankastarfsmenn og einn
j fúlltrúi frá stjórnarrfðinu, ákveði útgáfu leyfa
j fyrir þá vöru, sem leyfisveitingum verður háð.
j Verðlagsskrifstofan mun starfa áfram, þótt
vafalaust verði gerðar einhverjar breytingar á
ihenni. í stað þess að hún áður heyrði undir for-
ístjórana fjóra við Skólavörðustíg, mun ný stjórn
. verða yfir verðlagsmálum, þó ekki menn í fullu
etarfi við það. Fjárfestingaeftirlit verður afnumið,
í enda hefur það verið skoðun margra kunnugra, að
af því væri harla lítið gagn undanfarin ár, enda
hróðurpartur bygginga, íbúðir, undanskildar.
Við allt þetta falla niður störf 30—40 manns
við Skó|avörðustíg, og fleiri nefndir falla úr sög-
! *unni en rísa upp. Bankarnir þurfa án efa eitthvað
1 að fjölga starfsliði, en það verður ekki sambæri-
■ legt við þann hóp af stöðum, sem niður eru felld-
ar. Út úr þessu dæmi kemur því án efa sparnaður
i í opinberum rekstri.
Rétt er að gera sér fulla grein fyrir því, að
slíkar skipulagsbreytingar einar tryggja ekki ís-
lendingum frjálsari verzlun. Það frelsi fáum við
ekki, nema efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar
Tberi fullan árangur, samræmi haldist í verðlagi hér
<0g erlendis, gengi verði rétt skráð, greiðsluhalíi
vferði ekki óeðlilegur og ný peningaþensla skapi
ekki óraunhæfa eftirspurn hér heima.
I
Auglýsingasími blaðsins er 14906
jg 10. apríl 1960 — Alþýðublaðið
Hannes
á
Páskavika er ekki til
hlökkunarefni hjá
fjölda mörgum.
jír Ástæðan: Tapaðar
vinnustundir.
jíf Enn um lögreglu-
málin í niðurlægingu.
& Tildur og stjórnleysi.
PÁSKAVIKAN er að hefjast.
Þrír hátjðisdagar í þesari viku
og tveir í þeirri næstu. Þetta er
tilhlökkunarefni fyrir alla þá,
sem eru á fiistu kaupi, en sann-
arlega ekk} fyrir alla þá mörgu,
sem lifa á daglaunavinnu. Páska
vikan, eða réttara sagt næstu
þrjár vikurnar á eftir, eru þeim
hið mesta áhyggjuefni. Svo lágt
er kaup daglaunamanna, að þeir
mega engan tíma missa, svo ná-
kvæmlega hefur verið reiknað
út hvað hver maður þurfi til
fæðis og klæða, að aldrei má
falla úr dagur.
ÉG HEF ÞRÁFALDLEGA orð
ið var við það, að ýmsir sæmi-
lega launaðir menn trúa þessu
ekki — og hef ég aldrei getað
skilið þetta skilningsleysi á kjör
um annarra, en skýringin er ein
faldlega sú, að þó að þessir
„sæmilega launuðu“ menn hafi
hærra kaup en daglaunamenn-
irnir, þá eiga þeir sjálfir erfitt
með að láta endana ná saman
hjá sér, — og þess vegna skilja
þeir það ekki hvernig þeir, sem
lægst eru launaðir — og til dæm
is tapa á hverjum hátíðisdegi,
skuli geta skrölt áfram á sínum
launum. Nóg um þetta í dag.
h o r n i n u
vinnu. Yfirstjórn lögreglumála
þarf einnig að taka til rækilegr-
ar endurskoðunar. Fangelsismál
in eru í megnasta ólestri svo
sem kunnugt er og þurfa ræki-
legrar endurskoðunar og um-
bóta við.
EINN AF STJÓRNMÁLA-
LEIÐTOGUM þjóðarinnar var
nýlega að rasQa um Sinfóníu-
hljómsveitina og taldi sjálfsagt
að verja til hennar nægilegu fé
(nokkrum milljónum?) svo hún
gæti starfað. í því sambandi
kvaðst hann vilja spyrja þá, sem
teldu hljómsveitina of dýra og
óþarfa, því við hefðum ekki ráð
á að halda henni uppi, hvort við
hefðum ráð á að vera íslending-
ar.
ÞESSU ER AUÐVELT AÐ
SVARA: Við getum vel verið ís-
lendingar, og það góðir íslend-
ingar, þó við höfum enga sinfón
íuhljómsveit, og þó við drægjum
til muna úr ýmsu tildri, svo sem
sendiráðum hjá erlendum þjóð-
um, þýðingarlausri þátttöku í
ýmsum alþjóðasamtökum, fjöl-
mennum sendinefndum til út-
landa og ýmsum öðrum flottræf-
ilshætti — þar á meðal 200
manna kokktailboði íslendinga
suður í Genf.
EN VI® VERÐUM ekki lengi
íslendingar ef við vanrækjum
löggæzlu og réttarfarsmál svq
sem gert hefur verið undanfar-
ið. Þau mál þarfnast skjótra og
rækilegra umbóta.“
Hannes á horninu.
Eftir kröfu Sjúkrasamlags Hafnarfjarðar úrskurð-
ast hér með lögtak fyrir ógreiddum iðgjöldum til
Sjúkrasamlags Hafnarfjarðar, sem fallin voru í gjald-
daga í árslok 1959, auk dráttarvaxta og kostnaðar.
Fer lögtakið fram að 8 dögum liðnum frá birtingu
þessa úrskurðar án frekari fyrirvara, ef ekki verða
gerð ski-I fyrir þann tíma. j
Skrifstofu bæjarfógetans í Ilafnarfiröi, 6/4 1960.
Jóhann Þórðarson
ftr
2ja herbergja íbúðir til sölu
á gamla kosfnaðarverðinu.
Laugarás s.f. tilkynnir:
PÁLL SKRIFAK: „Nú þegar
sögul.egir atburðir eru að gerast
í lögregluliði landsmanna, vakn-
ar sú hugsun. sjálfsagt hjá fleir-
um en mér, hvort við sinnum
lögreglu- og lögverndarmálum
þjóðarinnar sem skyldi. Mikil-
hæfur útlendingur, sem dvaldi 2
eða 3 ár hérlendis á stríðsárun-
um, og víða hafði farið, lét svo
ummælt þegar hann fór, að ís-
lendingar væru ágætisþjóð, en
hér ríkti í rauninni algert stjórn
leysi, þó það hefðj ekki komið
verulega að sök ennþá. Slíkt
,,sjórnleysi“ eða „sjálfstjórn“
gæti gengið áfallalítið hjá bænda
þjóð, en þetta mundi reynast var
hugavert, þegar meirihluti lands
manna færi að búa í borgum og
öðru tilsvarandi héttbýli.
Ég HELD að ummæli þessa
manns hafi verið rétt og reynsl-
an sé þegar búin að leiða í ljós,
að ekki verði lengur við það un-
að, að fámennir hópar ærsla-
gjarnra unglinga og drukkinna
manna geti valdið óspektum á
almannafæri, sem hin fámenna
lögregla fær ekki við ráðið.
Nokkrar 2ia herbergja íbúðir til sölu í húsinu Austur-
brún 4. Sömiuleiðis ein íbúð á 10. hæð að Austurbrún
2. — Allar upplýsingar á staðnum og í síma 34471
alla virka daga.
ier iram ira Jb'rilsirkjunni þriðjudaginn 12. apríl kl. 2. Þeim, sem
vilja minnast hinnar látnu, er ibent á líknarstofnanir.
Börn og tengdabörn.
Hjartans þakklæti fvrir auðsýnda samúð, ómetanlega að-
stoð og vinarhug við andlát og jarðarför systur okkar og fóstur-<
systur, • I
HÖLLU RAGNHEIÐAR JÓNSDÓTTUR
frá Smiðjuhóli.
Sigríður, Petrína, Jórunn, Ólöf.
Þorsteinn Sveinsson og fjölskylda.
ÞAÐ ER BRÝN NAUÐSYN að
fjölga í lögregluliði landsins
mjög verulega. Þyrfti sennilega
að vera hér alls allt að 1000 lög-
reglumenn. Þessa menn verður
að launa vel, en jafnframt að
j vanda val þeirra varðandi mennt
I un og manndóm, og kref jast
jafnframt af þeim niikillar
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við
fráfall og jarðarför móður okkar og tengdamóður,
GUÐRÚNAR ÞÓRÐARDÓTTUR, !
Kirkjuvegi 15, Hafnarfirði. ” ;
Börn og tengdabörn. j