Alþýðublaðið - 14.04.1960, Síða 2
Útgefandi: Alþyðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ingólfur Kristjánsson.
— Ritstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fulltrúar
ritstjórnar: Sigvaldi Hjálmarsson og Indriði G. Þorsteinsson. — Fréttastjóri:
Björgvin Guðmundsson. — Símar: 14900 — 14902 — 14 903. Auglýsingasími:
14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfis-
gata 8—10. — Áskriftargjald: kr. 45,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint.
I
!•
ÍSLENDINGAR hlakka til páskanna. Enda
þótt þjóðin sé ekki talin kirkjurækin, hefur hér
á landi skapazt sú hefð að gera þessa öndvegis
hátíð kristninnar að nær viku hvíld frá störfum.
Þetta stafar án efa að nokkru leyti af hinu langa
skammdegi, sem dregur lífsþrótt úr mannfólkinu.
Eftir vetrarmyrkur er gott að geta hvílzt og fagn-
að hækkandi sól.
Þó eru vaxandi vankantar á svo löngu páska-
'íeyfi í nútíma þjóðfélagi. Framleiðslutækin þurfa
að ganga sem tafaminnst og þeir einstaklingar,
sem hafa laun fyrir tímavinnu verða fyrir mjög
óréttlátu launatapi. Það er mikill munur á því að
íá vikufrí á fullum launum — eða án launa.
Vaxandi gagnrýni er á því, að skemmtanir og
hvers konar félagsleg starfsemi er lítii sem engin
joáskavikuna og allt fram á annan páskadag. í
Jpessum efnum erum við óþarflega hátíðlegir. —
Föstudagurinn langi er að sjálfsögðu og verður
dagur sorgar. En páskarnir sjálfir — hátíð uppris-
unnar, eiga að vera gleðidagur. Við þurfum ekki
að ganga með sorgarsvip á páskadag þeirra vegna.
*' Tækni og aukin framleiðni eru stöðugt að
stytta vinnutíma og fólk fær meiri frí en áður.
Þetta er hollt og gott, ef vel er með tómstundirnar
farið. Hins vegar verður ekki unnt til frambúðar
xyrir heila þjóð að taka svo marga frídaga saman.
Borgararnir verða að skiptast á, þannig að fram-
leiðsla og þjónusta stöðvist ekki. Þess vegna er
hætt við, að páskahelgin muni í framtíðinni stytt-
ast,
Hvað sem slíkum vangaveltum líður, vill Al-
jpýðublaðið óskar lesendum sínum gleðilegrar há-
tíðar og vona, að það hitti þá heila, er það fer á
stúfana á ný í næstu viku.
Sveit Einars Þor-
finnss. sigurvegari
lokaumferðirnar í
bikarkeppninni voru spilaðar í
Tígultvistinum um síðustu
hlgi. Þetta er útsláttarkeppni,
og tóku upphaflega 26 sveitir,
víðsvegar af landinu, þátt í
henni, en nú spiluðu 4 sveitir
til úrslita:
Sveit Einars Árnasonar, •—
Reykajvík.
Sveit Einars Þorfinnssonar,
Reykjavík.
Sveit Halls Símonarsonar, —
Reykjavík.
Sveit Mikaels Jónssonar, -—
Akureyri.
I undanrás kepptu fyrst sveit
ir Einars Árnasonar og Halls
Símonarsonar, en sveit Halls
vann með 110 stigum á móti 65,
og sveit Einars Þorfinnssonar
við sveit Mikaels Jónssonar, og
vann sveit Einars með 123 stig
um á móti 60.
Þá kepptu sveitir Einars Þor-
finnsonar og Halls Símonarson
ar um 1. sætið, og voru spiluð
96 spil. Sveit Einars sigraði með
146 stigum á móti 54 stigum.
í keppninni um 3. og 4. sæti
vann svit Einars Árnasonar
sveit Mikaels Jónssonar með
120 stigum móti 54, og voru spil
uð 64 spil. Bikar sá, sem keppt
var um, er farandbikar, sem
gefinn var af Stefáni Óla Stef-
ánssyni, Akureyri, og er þetta í
fyrsta sinn, sem um bikarinn er
keppt.
í sveit , sigurvegaranna eru,
auk Einars Þorfinnssonar:
Gunnar Guðmundsson, Lárus
Karlsson, Kristinn Bergþórsson
og Örn Guðmundsson.
Spænskur
styrkur
Styrkurinn nemur 3.000 pe-
setum a mánuði framangreint
tímabil, en auk þess fær stvrk
þegi greidda 1500 peseta
við komuna til Spánar. Innrit-
unargjöld þarf hann ekki að
greiða. Sé námið stundað í
Madrid, mun styrkþega, ef
hann æskir þess f tíma, útveg-
að víst á stúdentagarði gegn
venjulegu gjaldi.
Umsóknum um styrk þennan
skal komið til menntamálaráðu
neytisins fyrir 15. maí næstk.
Umsókn beri með sér, hvers
konar nám umsækjandi hyggst
stunda og fylgi staðfest afrit
af prófskírteinum, svo og með-
mæli, ef til eru. Umsóknar-
eyðublöð fást í ráðuneytinu og
hjá sendiráðum íslands er-
lendis.
Menntamálaráðuneytið,
11. apríl 1960.
E3
UM ÞESSAR mundir er D.A.S,
að hefja 7. starfsár sitt. Happ-
drættið hefur fjölgað vinning-
ura úr 20 í 50 á mánuði, en tala
útgefinna niiða helzt óbreytt.
Verð miðanna hækkar úr 20 kr,
í 30 kr.
Á þessu ári verður dregið um
24 bifreiðar í stað 12 áður, og
24 íbúða í stað 12 áður. Helm-
ingurinn af íbúðunum verða
tilbúnar, en hinn helmingurinm
tilbúnar undir tréverk. Af bif-
reiðunum verða 10 rússneskar,
2 amerískar, 5 brezkar og 7 vest
ur-þýzkar. Mánaðarlega verðá
útdregnar 2 íbúðir og tvær bif-
reiðar.
Auk fvrrnefndra vinninga
verða 4 píanó, 12 saumavélar
og 536 vinningar húsbúnaður
eftir eigin vali fyrir 5—10 þús.
krónur hver. Heildarverðmæti
vinninganna verða rúmar 13
milljónir króna.
Happdrættið hefur alltaf ver-
ið uppselt í byrjun hvers liapp-
drættisárs, og nú t.d. verða að-
eins um 2000 miðar samtalg
vfir landið til sölu, en sala
þeirra hefst strax eftir páskaj
eða þriðjudaginn 19. apríl. Er
fólki vinsamlega bent á, að eft-
ir fyrri reynslu geta þeir selzt
upp strax á fyrstu tveim dög-
unum í mörgum umboðum.
Hannes
h
o r n i n u
r
ð er vakin á því,
að skv. samþykkt nr. 90, 1957, er verzlunum
óheimil vörusala eftir lokunartíma sölubúða,
nema sérstök heimild bæjarráðs sé fyrir hendi.
Samsvarandi ákvæði gilda um veitingastaði.
Borgarstjóraskrifstofan, 13. apríl 1960.
Á réttri leið.
& Tekst afturbatinn?
ýV Afmæli Þjóðleikhúsins
'K' Kampavíns-gosbrunn-
ur á tröppum þess!
VIÐ ERUM á réttri leið í efna
hagsmálunum þegar á heildina
er litiS. Samt er nauðsynlegt að
viðurkenna það, að betur hefði
mátt fara í ýmsum greinum. —-
Meginreglan er þó rétt. Upp-
skurðurinn sjálfur hefur tekist.
Eftir er að sjá hvernig til tekst
með afturbatann og hvort þjóð-
félagið nær fullri heilsu, þannig
að það geti starfað eins og heil-
brigður einstaklingur.
ÞAÐ VELTUR á einstakling-
unum og stéttunum hve fljótt
tekst að skapa það jafnvægi sem
að er stefnt. Það miðast að því,
að allir hafi fulla atvinnu, að
tryggja öryggi einstaklinganna,
að bæta hag þjóðfélagsins og
taka óttann frá heimilunum. —
Ég veit ekkj hvort þetta tekst,
en það er á þínu valdi og mínu.
Viðskiptamálaráðherra upplýsti
í blaðinu í gær, að nú þegar
hefði gjaldeyrisafstaðan við út-
lönd batnað um 150 milljónir.
Það myndu vera talin stórtíðindi
meðal annarra þjóða. Ég veit
ekki hvor almenningur hér ger-
ir sér ljósan aðstöðumuninn, —
sem þetta veldur.
STJÓRNARVÖLDIN biðja um
hugarhvarfsbreytingu hjá al-
menningi. Mig grunar að hún
sé þegar orðin hjá mörgum —
og á leiðinni hjá öðrum. Þó virð-
ist lítið draga úr eyðslu. — Að
minnsta kosti eru upppöntuð
rúm í skipum og flugvélum til
annarra landa langt fram á sum
ar, jafnvel fram að hausti. Það
er dæmi um einstaklingana, en
ekki ríkisvaldið, því að enginn
bannar neinum að ferðast. Og
gott er að menn geti ferðast.
J7W|>
EN HUGARFARSBREYTING
AR í samræmi við það, sem að
er stefnt með efnahagsaðgerðun
um er einnig sein á öðrum svið-
um. — Þjóðleikhúsið er tíu ára
í sumar. Þegar hefur hátíð verið
undirbúin nú í apríl — og þó
sérstaklega í júní, svo að engin
dæmi eru um annað eins. Það er
eins og yerið sé að gera tilraun
til að flytja Edinborgar-hátíðina
til Reykjavíkur! Stanslausar sýn
ingar og hátíðahöld verða á aðraí
viku, ég held í 10 daga.
<i
OG EKKERT verður til spar-
að: Erlendir, rándýrir skemmti-
kraftar — og ágætir að vísu, eria
ráðný- hingað frá mörgum lönd-
um: Ameríku, Norðurlöndum og
víðar að. Þetta er aðeins ytra
borðið. Svo verða veizlurnar á
hverju kvöldi, skartklæði, —«
frumsýningar, kjólar, hvít brjósS
— og Cape. — Allt í fínasta lagi
— og mjög æskilegt hjá þjóð,
sem allt getur og ekki krefsS
neins af þegnunum. i
i
ÉG VIL láta reisa gosbrunn á
tröppum Þjóðelikhússins —-
hann á að gjósa kampavíni upp
á hamrasyllur Guðjóns Samúels-
sonar. Það verður að fara braufi
ina á enda. Ekkert má til spara.
Þjóðleikhúsið er 10 ára gamaltí
— Það er sjálfsagt að halda upp
á 10 ára afmæli Þjóðleikhúss-
ins! Það hefur unnið mikið hlufi
verk á þessum stutta tíma og
við kunnum að meta það. En
margir vilja koma til dyranna
eins og þeir eru klæddir Og
ekki öðru vísi.
~ 1
VIÐ viljum, að samræmi sé £
málefnunum. Krafist er hugar-
farsbreytingar hjá þjóðinni. Á
því veltur hvort afturbatinn ver3
ur hjá þjóðfélaginu. — Hvera
vegna allt þetta tilgangslausa
tildur og þessi ógeðfellda sýnd-
armennska?
Hannes á horninu. 1
■w ssí:i
14. apríl 1960 —• Alþýðublaðið
if íG;'I ÁG ÖiðfiWup'H’A