Fréttablaðið - 23.04.2001, Síða 7
MÁNUPAGUR 23. apríl
ITVI. 1 1 AULAL/1 LV
7
Eigendur Hótels Valhallar:
I stríð um
snyrtinguna
deilur Eigendur Hótels Valhallar hafa
leitað til Héraðsdóms Suðurlands til
að fá afmáð úr þinglýsingabókum yf-
irlýsingu þar sem segir að íslenska
ríkið eigi viðbyggingu við hótelið -
það er þann hluta hússins sem hýsir
snyrtingarnar.
„Fari svo að Héraðsdómur telji að
eigi ekki að afmá þessa yfirlýsingu er
málinu ekki lokið, þar sem við mun-
um þá eiga aðrar leiðir. Það er hins-
vegar nauðsynlegt að láta reyna á
þetta með þessum hætti,“ sagði Har-
aldur Blöndal lögmaður eigenda hót-
elsins. Hann segir aðrar leiðir dýrari
og tímafrekari.
Haraldur segir að vissulega verði
meiri möguleikar með sölu hótelsins
ef yfirlýsingin verði afmáð - þó svo
hann segi ekki að hún hafi haft úr-
HVER Á KLÓSETTIN?
Eigendur hótelsins vilja fá kvöð afnumda
úr þinglýsingarbókum
slitaáhrif um að Hótel Valhöll var
ekki seld til enska aukýfingsins Kru-
ger á síðasta ári. ■
ert kappsmál að stofnunin
eigi mikinn meirihluta
heldur fyrst og fremst að
auka verðmæti hlutabréf-
anna og gera þau eftir-
sóknaverð.
Efasemdir beinast
fyrst og fremst að því
hvað sjálfseignarstofnanir
munu verða fyrirferða-
miklar í rekstri sparisjóð-
anna og stöðu stofnfjár-
eigenda innan þeirra.
Starfsmenn fjármálafyrir-
tækja, sem Fréttablaðið
ræddi við, telja frumvarp-
ið ekki breyta stöðu stofnfjáreig-
enda en færa þeim hins vegar völd-
in. Þeir segja að það verði að skýra
eigendaábyrgðina því hún sé mjög
óljós og stofnfjáreigendur fari með
mikið vald miðað við hvað
lítið fé er bundið í rekstr-
inum. „Það mun reyna
mjög á siðferðisþrek þeir-
ra sem fara með stjórnar-
taumana,“ sagði einn við-
mælandi Fréttablaðsins.
Skoðun manna er sú að
fjárfestingarákvarðanir
eru teknar með öðrum
hætti þegar stjórnendur
eiga lítinn hlut í fjármála-
fyritæki en fara með eign-
arhaldslausan meirihluta.
Spurningin sem menn
velta nú fyrir sér er hver-
su fljótt það taki stofnfjáreigendur
að afsala sér völdum í sjálfseignar-
stofnunum, slíta rekstri þeirra og
finna eigendalausu fé eiganda.
bjorgvin@frettabladid.is
SPARISJÓÐIR í BRENNIDEPLI
Frumvarp viðskiptaráðherra gerir m.a. ráð
fyrir að sjálfseignarstofnanirnar, sem ráða
munu sparisjóðunum, verji hagnaði sínum
til mannúðarmála, hver í sínu byggðarlagi.
| HVERJIR EIGA SJÓÐINA? |
Heildarskipting milli stofnfjáreig-
enda og sjálfseignarstofnana
Aætlað heildar markaðsvirði
sparisióðanna
19.175.400.000
Eignarhlutur stofnfiáreigenda
2.707.660.800 (85,9%)
Eignarhlutur siálfseignarstofnunar
16.467.739.200 (14,1%)
Fiöldi stofnfiáreigenda i okt 2000
4.133
PÉTUR BLÖNDAL
Gagnrýnir að fólk
sem hefur ekki prívat-
hagsmuni ráðskist
með sparisjóðina.
NÝSTÁRLEGAR HUGMYNDIR UM ENDURNÝTINGU HÚSA.
Gamla ölgerðarverksmiðjan við Njálsgötu kann að breytast í listamannanýlendu.
gamla hús og nágrenni ef þessar hug-
myndir verða að veruleika. Það er
talið vænlegri kostur en að rífa það.
Víða erlendis er góð reynsla af breyt-
ingum sem þessum á gömlum húsum
auk þess sem þetta mundi gjörbreyta
aðstöðu margra listamanna til hins
betra.
Þrátt fyrir að þessi hugmynd þyki
mjög spennandi er talið að það mjög
vandmeðfarið að hrinda henni í fram-
kvæmd. Sérstaklega með tilliti til ná-
granna og hversu byggðin þarna er
þétt og gróin. Af þeim sökum eru all-
ar slíkar breytingar í rótgróinum
hverfum sagðar mjög viðkvæmar
enda geta komið þar við sögu bæði
hagsmunir og tilfinningar nærliggj-
andi íbúa.
í þessari skipulagsvinnu hefur sá
kostur þó ekki verið útilokaður að ná-
grannar verksmiðjunnar fái tæki-
færi til að stækka lóðir sínar í tengsl-
um við þessar áformuðu breytingar á
verksmiðjuhúsinu.
I
Skip með ólöglegum innflytjendum strandar við Italíu
Um 600 farþegar
róm (apj Skip með um 600 ólöglegum
innflytjendum, þ.á.m. mörgum börn-
um, var dregið til hafnar í Suður-ítal-
íu í gær eftir að hafa strandað í
Adríahafi. Barn og ófrísk kona voru
flutt á sjúkrahús eftir að skipið kom
til hafnar en skipið var yfirfullt. Talið
er að skipið sé tyrkneskt og flestir
um borð Kúrdar. Tyrknesk yfirvöld
hafa heitið Evrópuríkjum að reyna að
stöðva straum ólöglegra innflytjenda
þaöan.
ítalska lögreglan rannsakar hvort
að þeir sem skipulögðu flutningana
hafi tekist að yfirgefa skipið í
fyrrinótt rétt áður en neyðarkall var
sent út og hvort að áhöfnin feli sig
meðal farþeganna. ■
MÖRG BÖRN UM BORÐ
Lögreglan bar grimur af ótta við sjúkdóma.
Ég kærði níðskrif
í mínu nafni
- segir Stefán Dan Óskarsson á ísafirði
kærumál „Eftir að hafa leitað til þess
sem er með netþjónustu fyrir þann
sem sendi níðskrif í mínu nafni - og
án þess að þeir vildu segja mér hver
það var ákvað ég að kæra málið til
lögreglu," sagði Stefán Dan Óskars-
son á ísafirði, en á spjallþræði Bæj-
arins besta birtist bréf þar sem höf-
undurinn kallaði sig Stebba Dan.
„Það er bara einn Stebbi Dan á
isafirði og sennilega á íslandi. Það
var vegið að mínu ágæta vini, Guð-
jóni Þorsteinssyni. Það vita þeir sem
þekkja aó Guðjón átti þessi skrif ekki
skilin. í lok níðskrifanna sagði að vin-
áttu okkar væri lokið. Eftir að þetta
birtist var nokkuð um að fólk tjáði sig
um að ég hefði verið ósanngjarn í
garð Guðjóns - en ég skrifaði þetta
ekki og vil fá að vita hver misnotaði
nafnið mitt,“ sagði Stefán.
Sýslumaðurinn á ísafirði reynir
nú að fá með dómi lista yfir við-
skiptavini Margmiðlunar, en níðpóst-
urinn var sendur með netþjóni þess
fyrirtækis. Málið verður tekið fyrir
hjá Héraðsdómi Vestfjarða.
„Við förum bara að lögum, en
munum ekki leggja ofurkapp á að
verja viðskiptavini okkar,“ sagði tals-
maður Margmiðlunar í samtali við
Fréttablaðið. ■
FORSETINN GREIÐIR ATKVÆÐI
Forseti Svartfjallalands og leiðtogi fylkingarinnar sem berst fyrir sjálfstæði landsins, Milo
Djukanovic, á kjörstað. 1 fylgd með honum er kona hans Lidija.
Kosið til þings í Svartfjallalandi:
Sjálfstæðisfylkingu spáð sigri
podgorica (ap) Kosið var til þings í
Svartfjallalandi í gær. Tvær fylking-
ar tókust á, önnur berst fyrir sjálf-
stæði Svartfjallalands og hin fyrir
áframhaldi ríkjasambandsins
Júgóslavíu en Serbía og Svartfjalla-
land eru einu ríkin sem eftir eru í
ríkjasambandinu.
Um 200 erlendir fulltrúar unnu
við kosningaeftirlit í landinu, þar á
meðal Jónína Bjartmarz þingmaður
Framsóknarflokksins í Reykjavík.
Spáð er að sjálfstæðisfylkingin fái
47% atkvæða en Júgóslavíufylkingin
36%. Endanlegar niðurstöður kosn-
inganna liggja fyrir á morgun. ■
Rannsókn á áfengisáhrifum:
Konur verða drukknari
new york Skýring er nú komin á því
hvers vegna sumar konur eru fljót-
ari að finna á sér sökum áfengis-
drykkju en karlar. Niðurstöður nýrr-
ar bandarískrar rannsóknar benda
til þess að minna sé af efni sem
hjálpar maganum við að melta áfen-
gi í konum en í körlum. Því eigi
áfengið greiðari Ieið inn í blóð kven-
na. Líkami karla sé duglegri við aó
brenna áfenginu og nota þaó sem
orku. Konurnar geta að vísu búist
við sömu áhrifum og karlarnir af
bjór, sem að jafnaði hefur 5% alkó-
hólinnihald, en munurinn kemur í
ljós varðandi vín og brennda drykki.
Vísindamennirnir segja niður-
stöðuna útskýra það sem vitað var
fyrir að konum er hættara við ýms-
um sjúkdómum tengdum áfengis-
drykkju en körlum. „Konur verða að
fara varlegar í drykkju en karlar,"
sagði Dr. Steven Schenker, prófess-
or við Texas-háskóla. ■