Fréttablaðið - 23.04.2001, Síða 24
FRÉTT
SfMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS Aðalsími: 515 75 00 Ritstjórn 515 7500
- simbréf 515 75 06 - rafpóstur ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsingasími: 515 75 15 - símbréf 515 15 15 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 510 0 300
hp Laserjet 1 200
Þráinn Bertelsson
Hetju söngvar
á hættustund
Það hefur verið regla hjá bók-
sölum og bókaútgefendum í mörg
Herrans ár að barma sér aldrei út
af lélegri bókavertíð af ótta við að
barlómurinn flæmi burt síðustu
bókabéusana. Eins og sannir
hetjutenórar hafa útgefendur
einatt sungið kröftuglega um bjar-
ta framtíð í bókaútgáfu, fyrst var
þetta voldugur kór, nú má telja þá
sem eftir eru á fingrum annarrar
handar.
Þótt útgefendur séu ævinlega
brattir og telji það fyrir neðan
sína virðingu að kvarta þá er ég
sem lesandi ekki jafnkvíðalaus og
þeir um framtíð bókarinnar.
Hvernig á að ráða í þau teikn sem
eru á lofti? Hvað hefur orðið um
allar fornbókasölurnar? Fyrir
nokkrum árum fylltu þær tuginn.
Nú eru þær tvær. Og bókabúðirn-
ar, hvar eru þær nú? Hefur heim-
urinn snúið baki við Halldóri Lax-
ness og Shakespeare og Val Vest-
an og Guðrúnu frá Lundi og Einari
Má og öllum þeirra sögupersón-
um, hraustum sem heilsutæpum,
og svifið inn í glysið í tölvugeim
ellegar á vit glaðbeittra ljósvaka-
miðla.
DAGUR BÓKARINNAR er
haldinn hátíðlegur í dag og þá er
skylt að reyna að vera bjartsýnn
að hætti útgefenda þó aldrei
nema framtíð bókarinnar hangi á
einum graðhvannarnjóla utan í
þverhníptu Hornbjargi eins og
sögupersóna í frægri bók.
JÁKVÆTT? Hvað getur maður
talið upp jákvætt á þessum degi
sem maður er skíthræddur um að
muni snúast upp í líkvöku? Sagt er
að skáldsögur seljist nú í stærra
upplagi heldur en nokkru sinni
fyrr í sögu heimsins og flestöll
börn á Vesturlöndum ku hafa
mölvað Play Station-tölvurnar sín-
ar og lagst í ævintýrabækurnar
um Harry Potter. Sú nýjasta í
þeirri ritröð heitir Harry Potter
og eldbikarinn og er 636 blaðsíður
með lúsarletri en einhvern tímann
hefði svo langt lesmál verið talið í
lengsta lagi fyrir börn svo að
kannski má vænta mikilla bók-
menntaafreka af Potterkynslóð-
inni í framtíðinni.
Þetta eru erfiðir tímar fyrir hið
ritaða orð. Það dó hér dagblað í
síðasta mánuði en Drottinn leggur
líkn með þraut og í morgun kom
þetta nýja blað FRÉTTABLAÐIÐ í
heiminn. Ég vona að það sé rétt-
skapað og lífvænlegt. Það er gott
að fæðast á vori og það sem ekki
drepur mann gerir mann sterkari.
ÞRAUTREYNT VERKJALYF
Notkunarsvið: Paratabs inniheldur parasetamól og er verkjastillandi sem og hitalækkandi lyf. Það er notað við höfuðverk, tannpínu,
tíðaverkjum o.fl. Einnig við sótthita af völdum inflúensu og annarra umgangspesta eins og kvefs. Varúðarreglur: Fólk sem hefur ofnæmi
fyrir parasetamóli eða er með lifrarsjúkdóma má ekki nota lyfiö. Nýrna- og lifrarsjúklingum er bent á að ráðfæra sig við lækni áður en þeir
taka lyfið. Of stór skammtur getur valdið lifrarbólgu. Aukaverkanir: Parasetamól veldur sjaldan aukaverkunum og þolist yfirleitt vel í maga.
Langvarandi notkun lyfsins getur valdið nýrnaskemmdum. Skömmtun: Nákvæmar leiðbeiningar um skömmtun fylgja lyfinu. Ekki má taka
stærri skammta en mælt er með. Lesiö vandlega leiöbeiningarsem fylgja lyfinu.
LYFJAÞRÓUN • HUGVIT • GÆÐI
ð ar ekkí
Meðan verið er að eyða hnökrum á dreifingu
Fréttablaðið liggur FRAMMI Fréttablaðsins verður hægt að nálgast blaðið á öllum bensínstöðvum Esso á höfuðborgar- svæðinu.
Á BENSÍNSTÖÐVU M Esso
í framtíðinni mun blaðið liggja frammi á fyrstu
bensinstöð Esso eftir að komið er inn á höfuð-
borgarsvæðið, hvaðan sem komið er.