Fréttablaðið - 25.04.2001, Qupperneq 2
FRÉTTABLAÐIÐ
KJÖRKASSINN
25. apríl 2001 MIÐVIKUPAGUR
CUÐNI ÁGÚSTSSON
LANDBÚNAÐAR-
RÁÐHERRA
Yfirgnæfandi meirihluti
netverja er andvígur
tollum á innflutt græn-
meti
Ertu fylgjandi þvi að settir séu
tollar á erlent grænmeti til að
vernda innlenda framleiðslu?
Niðurstöður gærdagsins
á vwvw.vísir.i<;
n__________________________________21%
Nei
Spurning dagsins í dag:
Eru kynþáttafordómar
á íslandi áhygguefni?
Farðu inn á vísi.is og segðu
þina skoðun 1
__________________________
FUNDUR STÓRFYRIRTÆKJANNA
Forstjóri Ericsson, Kurt Hellström, er
ánægður með samninginn við Sony
Ericsson og Sony ætla að
auka samkeppni við
Nokia
Samvinna
gagnast báðum
STOKKHóuviuR. ap Ei’icsson og Sony til-
kynntu í gær viðamikið samstarf á
sviði farsímaframleiðslu. Sænska og
japanska fyrirtækið eignast sinn
hvorn helminginn í nýju fyrirtæki
sem mun kallast „Sony-Ericsson
Mobile Communication" og hefja
starfsemi næsta haust í London.
Rekstur Ericsson hefur ekki
gengió vel að undanförnu og fyrir-
tækið misst markaðshlutdeild til
finnska risans Nokia. Fyrirtækið hef-
ur brugðist við með því að fækka
starfsmönnum sínum um yfir 15.000
á árinu. Þá hefur starfsemi Sony í
Evrópu einnig dalað að undanförnu.
Tilgangur samvinnunnar er því að
blása lífi í bæði fyrirtæki."
„Við verðum að vera orðnir leið-
andi afl í farsímaviðskiptum eftir
nokkur ár,“ sagði Katsumi Ihara,
varaforseti Sony, en gaf ekki ná-
kvæmari upplýsingar um framtíðar-
takmark nýja fyrirtækisins. Sagði
hann að reynsla Sony af skemmtana-
bransanum komi að góðu gagni á
sama tíma og mikilvægi myndræns
efnis aukist á sviði farsíma. ■
Héraðsdómur Reykjavíkur
Þrír ítalir í
fangelsi
fíkniefnamál. Þrír ítalir, einn karl-
maður og tvær konur, hafa verið
dæmd til fangelsisvistar fyrir að
hafa flutt til Islands nokkuð magn
fíkniefna. í október í fyrra. Dómur-
inn var kveðinn í Héraðsdómi
Reykjavíkur. Karlmaðurinn var
dæmdur til fjögurra ára fangelsis-
vistar og konurnar til 15 mánaða
fangelsis hvor.
Sannað þykir að karlmaðurinn
hafi skipulagt glæpinn og fengið kon-
urnar til þátttöku gegn gjaldi. í dóm-
inum segir að þær iðrist gjörðir sín-
ar. ■
Þetta var einn allsherjar hryllingur
Móðir geðsjúks manns lýsir ástandi sonar síns um síðustu jól og segir að sér hafi verið hótað
velferðarþjónusta. Kolbrún Norðdahl
á son sem er veikur og er skjólstæð-
ingur Geðhjálpar. Eftir að umfjöllun
um Geðhjálp komst í fjölmiðla segist
hún ekki lengur geta orða bundist.
„Það var um síöustu jól sem gekk
fram af mér,“ segir hún. Kolbrún
hafði þá á orði innan fjölskyldunnar
að hún ætlaði að sækja son sinn og
leyfa honum að koma til sín um jólin.
„Börnin mín sögðu, mamma ekki
fara, þú munt aldrei þoia að sjá
hvernig hann býr. Ég taldi mig geta
þolað að sjá aðbúnaðinn. En ég gat
það ekki. Það sem blasti við mér þeg-
ar ég kom til hans var einn allsherjar
hryllingur. Að koma að syni sínum á
aðfangadag, skítugum, tannlausum í
efri góm og þar sem hann hafði
greinilega ekki verið baðaður í lang-
an tíma var skelfilegt. Eftir að hann
kom til mín undi hann sér ekki. Hann
var þreyttur og var alltaf að sofna.
Ég held að hann hafi verið máttfarinn
vegna lyfja. Ég er ekki fær um að
laga til í kringum hann, ég get það
ekki. Veikindi hans hafa tekið mikinn
toll af mér,“ sagði Kolbrún.
„Eins og ég sagði að þegar ég kom
á Vesturgötuna brá mér illilega við.
Eftir að ég gerði mér ljóst hvernig
ástatt var kvartaði ég - en á móti var
mér hótað af starfsmönnum að ef ég
gerði eitthvað í málinu myndi það
skaða bæði hann og mig.“
Einn þeirra sem þekkir vel til seg-
ir að vissulega sé húsnæðið á Vestur-
götu ekki gott - en hann bendir á að
borgin útvegi þetta húsnæði til þess-
ara nota og eins að þeir sem búa þar
eru erfiðir sjúklingar.
í niðurstöðum vinnuhóps sem
kynnti sér stuðningsþjónustuna segir
rneðal annars að ekki séu starfandi
eins margir starfsmenn hjá stuðn-
ingsþjónustunni og gert er ráð fyrir í
samningum og eins að fagmenntun
skorti.
Átökin innan Geðhjálpar haida
áfram og á föstudag verður umdeild-
um aðalfundi framhaldið. Búist er
við að heitt verði í kolunum. Starfs-
menn stuðningsþjónustunnar, og ein-
hverjir fleiri, ætla að freista þess að
fá úrskurð félagsmálaráðuneytis á
lögmæti aðalfundarins frá 31. mars -
en eins og kunn-
ugt eraf fréttum
leystist sá fund-
ur upp vegna
ósættis. ■
VESTURGATA 17
Kolbrún Norðdahl
segir aðbúnað
sonar sins vera
hreinan hrylling
Bandaríkj amenn selj a
T ævönum vopnabúnað
Kínverjar gagnrýna fyrirhugaða vopnasölu Bandaríkjanna til Tævan harðlega
washington. ap Kínverjar gagnrýndu
í gær harölega fyrirhugaða sölu
Bandaríkjamanna á vopnum til Tæv-.
an þrátt fyrir ákvörðun Bush að við-.
skiptin taki ekki til hinna öflugu Aeg-
is-tundursþilla sém Tævanar höfðu
sóst eftir. Ákvörðuninni um að styðja
við hernaðarupbyggingu Tævana
eykur enn spennnu í samskiptum
Bandaríkjanna og Kína.
Hvíta Húsið vildi f gær géra sem •
minnst úr málinu. „Ekkert í þessum
áformuðu viðskiptum ógnar Kína,“
var haft eftir háttsettum talsmanni
Bandarikjaforseta sem vildi ekki láta
nafns síns getið. Gaf hann það einnig
í skyn að aukning á herstyrk Kín-
verja gæti aukið líkurnar á sölu tund-
urspillanna til Tævan. Talsmaður
Hvíta Hússins, Ari Fleischer, stað-
festi þetta og sagði að þær 300 eld-
flaugar sem Kínverjar hafa nýlega
miðað á eyjuna hafi ýtt undir við-
skiptin. Líta má á ákvörðunina sem
tilraun Bandaríkjanna til að hafa
áhrif á hernaðarjafnvægi á svæðinu.
Ákvörðun Bush var misvel tekið á
Bandaríkjaþingi og lýstu nokkrir
þeirri skoðun að Bush hefði átt að
ganga lengra. Formaður utanríkis-
málanefndar öldungadeildarinnar,
Jesse Helms, lýsti því yfir að Tævan
ætti rétt á Aegis-tundurspillum
vegna mikillar hernaðaruppbygging-
ar Kínverja á svæðinu. Leiðtogi
Demókrata í Fulltrúadeildinni, Dick
Gephart, tók í sama streng og sagðist
hafa „alvarlegar efasemdir um
ákvörðun Bush“ að halda eftir tund-
urspillunum. Hvíta Ilúsið sagði her
Tævan ekki hafa tækniþekkingu sem
þyrfti til að stjórna svo flóknum
tækjabúnaði.
Kínverjar líta ennþá formlega á
eyjuna Tævan sem uppreisnarhérað
sem ekki eigi rétt á uppbyggingu
NAFNAKALL Á TORGI í TAIPEI
Tævanskir hermenn bíða bandarískra vopna
varnarmála. Hafa þeir hótað að taka
eyjuna með vopnavaldi ef Tævanar
láta verða af því að lýsa yfir fullu
sjálfstæði. Ljóst er að vopnasala
Bandaríkjanna til Tævan dregur ekki
úr spennunni sem ríkir í samskiptum
þeirra við Kínverja. Talsmaður utan-
ríkisráðuneytis Kína sagði að við-
skiptin gerðu lítið úr valdi Kínverja
yfir eigin innanríkismálum ásamt því
að raska jafnvægi á svæðinu. ■
Andvígir vínsölu í matvörubúðum
Ekki til hagsbofa fyrir neytendur né birgja vegna fákeppni á matvörumarkaði
STÓRMARKAÐIR:
Stórkaupmenn óttast að ef leyft verður að selja létt vín og bjór í matvörubúðum muni
það leiða tll verðhækkana og minni ún/als á þessum vörum vegna þeirrar fákeppni sem
ríkir í smásölu á matvörumarkaði.
verslun Samtök verslunarinnar eru
andvíg því að einvörðungu verði
heimilt að selja léttvín og bjór í mat-
vörubúðum eins og gert er ráð fyrir í
tillögu sem liggur fyrir Alþingi. Sam-
tökin telja að í ríkjandi fákeppni á
matvörumarkaði sé hætta á að slík
breyting mundi ekki verða til hags-
bóta hvorki fyrir neytendur né inn-
flytjendur áfengis. Fimm þingmenn
standa að baki þessari tillögu. Fyrsti
flutningsmaður hennar er Vilhjálmur
Egilsson þingmaður Sjálfstæðis-
flokks og framkvæmdastjóri Versl-
unarráðs íslands.
Haukur Þór Hauksson formaður
Samtaka verslunarinnar segir að það
sem veldur þeim mestum áhyggjum í
þessu máli sé sú fákeppni sem ríkir í
smásölu á matvörumarkaði. í því
ástandi séu einnig miklar líkur á því
að álagning á víni mundi hækka auk
þess sem breyting gæti orðið til hins
verra á því úrvali sem þegar sé fyrir
hendi í Ríkinu. f það minnsta geeti
orðið erfiðara fyrir birgja að koma
vörum sínum á framfæri. Það sé alla-
vega sú reynsla sem menn hafa feng-
ið með minnkandi samkeppni og auk-
inni fákeppni á matvörumarkaði.
Hann telur hinsvegar að það sé marg-
ir aðrir valkostir fyrir hendi í stað
þess að einblína aðeins á matvöru-
verslanir sem sölustaði fyrir léttvín
og bjór. í því sambandi bendir hann
m.a. á þann möguleika að verslunar-
eigendum veröi heimilt verði að selja
áfengi í sérstökum vínbúðum eins og
tíðkast víða erlendis. Formaður Sam-
taka verslunarinnar áréttar þó að
þeir séu ekki á móti því að ÁTVR
verði lagt niður, nema síður sé.
Hann vekur einnig athygli á því
að í núverandi fákeppni á matvöru-
markaðnum séu menn farnir að sjá
þjóðfélag þar sem talsmenn heilla at-
vinnugreina þora ekki að tjá sig um
hagsmuni sína. í þessum hópi séu
m.a. grænmetisbændur og matvöru-
heildsalar. Það sé því eitthvað meira
en iítið að í þjóðfélagi þar sem menn
forðast að tjá skoðanir sínar vegna
viðskiptahagsmuna. ■
-grh@frettabladid.is
j FLÓTTAMANNABÚÐUM
Ótal Afganír eru á hrakhólum
Afganistan
Flóttamenn í
eigin landi
islamabad (AE) Hálf milljón manna
er á hrakhólum í Afganistan sagði
hátt settur embættismaður Samein-
uðu þjóðanna í gær. „Ástandið verður
æ verra. Fjöldi fólks ráfar um í leit
að samastað." Átján hundruð manns
bætast við daglega í flóttamannabúð-
ir í Herat-héraði þar sem eru 120.000
manns fyrir, og önnur 100.000 lifa við
hörmulegar aðstæður í Mazar-e-
Sharif þar sem fólk hefst við í holum
sem það grefur í jörðina og klæðir
með plasti.
Afganistan er ein af fátækustu
þjóðum heims og íbúar langhrjáðir
eftir tveggja áratuga ófrið og nú síð-
ast mestu þurrka í þrjátíu ár.
AP/B.K.BANGASH