Fréttablaðið - 25.04.2001, Side 4

Fréttablaðið - 25.04.2001, Side 4
4 FRETTABLAÐIÐ 25. apríl 2001 MIÐVIKUDAGUR SVONA ERUM VIÐ VAXANDI NEYSLA FUGLAKJÖTS Þótt sú tíð sé lið- in að (slendingar borði eingöngu fisk og lambakjöt heldur lambakjöt- ið ótrúlega velli þegar skoðaðar eru fram- leiðslutölur. Framleiðsla alifuglakjöts er hins vegar á hraðri uppleið. 1.520 9.454 1.952 8.690 Alifuglakiöt Lambakjöt HEIMILD: HAGSTOFA ISLANDS Skip víkja fyrir hvölum Sléttbakur í út- rýmingarhættu pýravernp Alþjóðlegi dýraverndunar- sjóöurinn (IFAW) hefur af því áhyggjur að hvalategundin sléttbak- ur sem lifir í Norður-Atlantshafi sé að deyja út um þessar mundir. Sjóð- urinn telur að það sem helst hamli því að stofninn geti nái sér á strik séu árekstrar við skip ásamt því að hval- urinn flækist oft í netum. Sjóðurinn setti því nýlega í gang verkefni sem ætti að geta hjálpað stofninum við að fjölgað sér aftur. Það fer þannig fram að baujur sem taka við hljóðum frá dýrunum hafa verið settar á ýmsa staði á Norð- ur-Atlantshafi til að hægt verði að kortleggja ferðir þeirra. Upplýsing- arnar verða svo notaðar til að bægja skipum frá helstu leiðum þeirra um hafið. Talið er að færri en 350 hvalir séu nú eftir en hann var veiddur í miklu magni fyrr á öldum við ís- landsstrendur og hefur verið alfrið- aður frá því um 1915. ■ EKKI BÆÐI SLEPPT OG HALDIÐ Sólvamaráburður gegnir mikilvægu hlut- verki við að verja húðina gegn óæskilegum áhrifum sólarinnar. Hins vegar geta ákveð- in efni í áburðinum verið skaðleg horm- ónajafnvægi líkamans. Sólvarnaráburður: Getur raskað hormónum neytenpur Umhverfisráð Danmerkur hefur mælst til að verslunareigendur hætti að selja sólvarnaráburð sem grunur leikur á að innihaldi efni sem raskað geta hormónajafnvægi. Ákvörðunin kemur vegna nýrra rannsóknarniðurstaðna frá háskólan- um í Zúrich. Rannsakaðir voru sex algengir UV-filtrar með það fyrir augum að leita að hormónatruflandi áhrifum. Fimm þeirra reyndust hafa truflandi áhrif á hormóna í tilraunaglasi og í ljós kom að þrir þeirra reyndust ein- nig hafa áhrif á hormónajafnvægi þegar prófað var á dýrum. Efnin sem um ræðir eru: 4-methyl-benzylidene camphor, Octyl-methoxycinnamate og Benzophenone-3. Tekin verður afstaði til þess innan tíðar hvort banna eigi sölu á vörum sem innihalda efnin. ■ Gin- og klaufaveiki í Bretlandi: Maður talinn smitaður LONDQN.AP. Breska heilbrigðisráðu- neytið er að kanna hvort slátrari bú- settur í héraðinu Cumbria á Englandi hafi smitast af gin- og klaufaveiki. Frá þessu er skýrt á vefsíðum BBC-fréttastofunnar. Reynist þessi grunur réttur er það í annað skiptið svo vitað sé sem maður smitast af gin- og klaufaveiki á Bretlandi, en fyrra tilvikið greind- ist árið 1966. Sjúkdómurinn leggst ekki þungt á fólk og er ekki vitað til þess að smit hafi nokkru sinni borist á milli manna. Hins vegar smitast dýr auðveldlega af fólki sem gengur með veiruna. Fréttin hefur aukið á ótta Breta um heilsufarsleg áhrif gin- og klaufaveiki faraldursins á fólk en talsverðar áhyggjur hafa vaknað vegna mengunar af völdum brennslu á dýrahræjum. Maðurinn sem um ræðir hefur tekið mikinn þátt í urðun hræja í héraðinu undanfarið og smitaðist, fyrir slysni, við þá vinnu. Tveimur vikum síðar var hann komin með svipuð einkenni og dýrin fá, sár í munni og, í tilfelli mannsins, á hönd- um. ■ MAÐUR VEIKTIST AF DÝRASJÚKDÓMI Breskur maður hefur greinst með gin og klaufaveiki. Þetta er fyrsta tilfellið þess eðlis í áratugi. Neyðarpilla hjá skólahjúkrun- arfr æðingnum ? Landlæknir vill greiðari aðgengi að neyðargetnaðartöfl- um. Engar rannsóknir benda til að það auki lauslæti. Góð- ur árangur í baráttu við klamýdíu og lekanda horfinn. hejlsucæsla Á fundi sem Landlæknis- embættið hélt í gær um klíniskar leiðbeiningar til handa fólki í heil- VITNESKJU ÁBÓTAVANT Reynir Tómas Geirsson, prófessor, segir að aimennri vitneskju um neyðargetnaðar- varnir sé ábótavant. en nota mætti þær til að koma í veg fyrir óvelkomnar þunganir, sem voru um 1000 talsins í fyrra. brigðisstétt kom fram að áhersla væri lögð á greiðari aðgengi fólks að neyðargetnaðavörnum. Þá kom ein- nig fram að mælt væri með að skóla- hjúkrunarfræðingar í skólum hefðu heimild til að úthluta neyðargetn- aðarvörnum í samráði við lækna. Reynir Tómas Geirsson, prófessor í kvensjúkdómalækningum, sagði marga sjálfsagt velta fyrir sér hvort lauslæti ykist ekki við svona auðvelt aðgengi að neyðargetnaðarvörnum en sagði engar rannsóknir benda til þess. Þess ber að geta á ný neyðar- getnaðartafla kemur á markaðinn seinni hluta þessa árs sem hefur mun minni aukaverkanir í för með sér en þær sem fyrir eru. Fram kom að neyðargetnaðarvörn væri nauðsynlegur valkostur til að koma í veg fyrir þungun og væri æti- uð konum á öllum aldri en þó sérstak- lega unglingsstúlkum sem væru oft ekki byrjaðar að nota öruggar getn- aðarvarnir. Að sögn Reynis Tómasar er al- mennri vitneskju um þessar varnir ábótavant en með aukinni notkun mætti koma í veg fyrir óvelkomnar þunganir en þær voru um 1000 tals- ins í fyrra sem er meira en verið hef- ur. Á fundinum kom fram að tíðni fæðinga væri sú hæsta í Vestur-Evr- ópu meðal unglingsstúlkna. Bent var á að auk þess að geta fengið töfluna gegn lyfseðli frá lækni væri til ákvæði um að lyfjafræðingar í apótekum hefðu heimild til afhend- ingar neyðargetnaðarvarnataflna án lyfseðils. Klínisk leiðbeining liggur nú fyrir um meðferð við klamýdíu en á fund- inum kom fram að góður árangur væri í útrýmingu þessa kynsjúkdóms og að tíðni þess hafi minnkað úr 14% niður í 8%. Einnig kom fram að lek- andi er með öllu horfinn á íslandi og á Norðurlöndunum en fyrirfinnst enn í Bandaríkjunum og í Asíuiöndunum. Klínískar leiðbeiningar eru ætl- aðar heilbrigðisstarfsmönnum til upplýsinga og að sögn landlæknis ætlaðar til að stuðla að sem mestum SIGURÐUR GUÐMUNDSSON, LANDLÆKNIR Rannsóknir á Klamýdíu hafa farið fram á íslandi sl. 20 ár og hafa konur sem farið hafa í fóstureyðingar sérstaklega verið rannsakaðar. gæðum í heilbrigðimálum hverju sinni. Ari Jóhannesson, læknir og formaður fagráðs Læknafélags ís- lands, sagði misræmis gæta á nálg- un lækna á hinum ýmsu læknisatrið- um og því væru leiðbeiningar sem þessar mjög mikilvægar. Fyrir ligg- ja m.a upplýsingar um lifrabólgu C, hjarta- og æðasjúkdóma og höfuðá- verka en verið að vinna í um 20 þátt- um í viðbót. kolbrun@frettabladid.is Upphafsdagur skóla á komandi hausti: Grunnskólar heíjast í ágúst skólamAl Grunnskólabörn koma fyrr til starfa í skólum í haust en verið hefur og er algengast að skóli verði settur föstudaginn 24. ágúst eða mánudaginn 27. ágúst á höfuðborgar- svæðinu. Samráðshópur skólastjóra í Reykjavík hefur lagt til að skólahald hefjist 24. ágúst í grunnskólum borg- arinnar en skólastjórar í Reykjavík geta ákveðið sjálfir upphafsdag skóla. Að sögn Ellerts Borgars Þor- valdssonar formanns Skólastjórafé- lags Reykjavíkur bendir allt til að upphafsdagur skóla verði sá sami í SKÓLI í ÁGÚST Á komandi hausti mun kennsla í grunn- skólum víðast hvar hefjast í ágúst og allt bendir til að þessar stelpur verði komnar í skólann síðustu vikuna í ágúst í haust. öllum grunnskólum borgarinnar. Hins vegar er misjafnt hvort vetrar- frí verða í skólum og því verða skóla- slit vorið 2002 ekki samræmd. í Hafnarfirði er verið að kalla eft- ir skóladagatölum frá grunnskólun- um og samkvæmt upplýsingum frá skólaskrifstofu munu skólastjórar vera að ráðfæra sig innbyrðis unt upphaf skólaárs. Líklegt er að fyrsti skóladagur í Hafnarfirði verði 27. ágúst. í Kópavogi liggur fyrir að skóla- setning verður í grunnskólunum 24. ágúst og fyrsti kennsludagur þann 27. og í Garðabæ liggur fyrir að skólasetning verður mánudaginn 27. ágúst í öllum grunnskólum bæjarins. Að sögn grunnskólafulltrúa Sel- tjatjarnarness liggur upphafsdagur grunnskólanna ekki fyrir þar en ver- ið er að vinna að frágangi skóladaga- tals. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.