Fréttablaðið - 25.04.2001, Side 15

Fréttablaðið - 25.04.2001, Side 15
MIÐVIKUPAGUR 25. apríl 2001 FRÉTTABLAÐIÐ 15 r Fyrri leikir Islands og Möltu 5. IÚNÍ 1982 A SIKILEY fSLAND SAMTALS UNNIÐ 6 LEIKI OG MALTA VANN 2-1 SKORAÐ 19 MÖRK. 5. JÚNÍ 1983 f REYKJAVfK MALTA SAMTALS UNNIÐ 2 LEIKI OG fSLAND VANN 1-0 SKORAÐ 6 MÖRK. 7. MAÍ 1991 f VALLETTA fSLAND VANN 4-0 BYRJUNARLIÐ ÍSLANDS f KVÖLD: 10. FEB 1992 f VALLETTA Arni Gautur Arason í markinu, Arnar MALTA VANN 1-0 Viðarsson, Eyjólfur Sverrisson, Her- 11. FEB 1996 f VALETTA mann Hreiðarsson, Rúnar Kristins- fSLAND VANN 4-1 son, Tryggvi Guðmundsson, Arnar 14. AG 1996 f REYKJAVfK Grétarsson, Brynjar Björn Gunnars- fSLAND VANN 2-1 son, Helgi Sigurðsson, Eiður 28. AP 1999 A MÖLTU Guðjohnsen og Andri Sigþórsson. fSLAND VANN 2-1 27. JÚL 2000 f REYKJAVÍK TÍUNDI LEIKURINN UNDIR STJÓRN (SLAND VANN 5-0 ATLA EÐVALDSSONAR. Aftur í teppasöluna? knattspyrna Búist er við því að þrjá- tíu þúsund manns leggi leið sína í Parken í Kaupmannahöfn í kvöld. Danir mæta Slóvönum í vináttu- landsleik, sem er jafnframt síðasti landsleikur Peters Schmeichel. Pet- er, sem er einn virtasti markvörður heimsins er búinn að vera í landslið- inu í 14 ár og hefur spilað flesta leiki með því, 129 í kvöld. Hann spilaði fyrst með liðinu árið 1987 þegar Danmörk vann Grikkland með fimm mörkum gegn engu. Fyrir leikinn í kvöld er liðið búið að vinna 63 leiki, jafna 33 sinnum og tapa 32 sinnum með Schmeichel í markinu. „Einu sinni kallaði ég landsliðið barnið mitt. Ég held að ég ætti að byrja að eyða tíma mínum í alvöru börnin mín frekar en það,“ sagði Schmeichel á dögunum. Hann og konan hans eiga son og dóttur. Sch- meichel, sem er næstum því tveggja metra hár, var einn af lykilmönnun- um í danska liðinu á HM 1998 þegar Danmörk komst í undanúrslit. Þá tapaði liðið fyrir Brasilíu, 3-2, í æsispennandi leik. Hann hefur oftar en einu sinni verið kosinn markvörður ársins í Evrópu og þrisvar sinnum leikmað- ur ársins í Danmörk. Schmeichel hefur skorað þó nokkur mörk á ferlinum. Hann varð fyrst frægur í Danmörku þegar hann lék með Hvidovre og stundaði það að hlaupa fram á völlinn til að spila með. Á síðasta ári skoraði hann úr vítaspyrnu í vináttulandsleik við Belgíu. Schmeichel starfaði í mörg ár við teppasölu en hann snýr sér varla aft- ur að henni þar sem hann keypti gamla félagið sitt, Hvidovre, fyrir tveimur árum og á nægan afgang inni á bankabókinni. ■ hönnun húseiningar íslensk gæði í áratugi Valkyrjur vestanhafs Rakel Ögmundsdóttir og Margrét Ólafsdóttir spila með Philadelphia Charge. knattspyrna Lið Rakelar Ögmunds- dóttur og Margrétar Ólafsdóttur, Philadelphia Charge, lék sinn fyrsta leik í Bandaríkjunum á sunnudag. Charge vann San Diego Spirit auð- veldlega með tveimur mörkum gegn engu. Margrét spilaði allan leikinn en Rakel sat á bekknum. Rakel og Mar- grét eru að taka þátt í fyrsta keppnis- tímabili bandarísku kvennadeildar- innar í fótbolta, WUSA, en mikill áhugi hefur kviknað í Bandaríkja- mönnum fyrir fótboltaíþróttinni. Chargers liðið er vel mannað og er til alls líklegt. WUSA-DEILDIN: ATLANTA BEAT BAY AREA CYBER RAYS BOSTON BREAKERS CAROLINA COURAGE NEW YORK POWER PHILADELPHIA CHARGE SAN DIEGO SPIRIT WASHINGTON FREEDOM FYRSTA ÁR DEILDARINNAR Bandaríkjamenn eru orðnir mjög áhugasamir um fótbolta. WUSA-deildin var sett með pompi og prakt fyrir tveimur vikum. Rakel Ögmundsdóttir, sem kallar sig Rakel Karvelsson í Bandaríkjun- um, er ekki ókunnug boltanum þar vestra. Hún lék með með liði Uni- versity of North Carolina á árunum 1995-1998, sem unnu tvö háskólamót á því tímabili. Þá kom hún hingað heim og lék með Margréti * Ólafsdóttur í Breiðablik. ÁÐUR BOÐIÐ ÚT IVIargréti Ólafs- dóttur hafði áður verið boð- ið að koma út og spila. Þá var hún að klára kerfisfræðinám. Þegar Margrét fékk tilboð um að koma út að leika fyrir tveimur vikum síðan sló hún strax til enda ekki á hverjum degi sem svona ævintýri býðst. Henni til mikilla vonbrigða var búið að taka búning sjö, sem er henn- ar númer, frá þegar hún kom út en þá skellti hún ás fyrir framan og sjö varð sautján. Þjálfari liðsins, Mark Krikorian, var mjög ánægður þegar samningarnir við Margréti voru í höfn. „Margrét er hæfileikaríkur og fjöl- hæfur leikmaður. Hún getur spilað í mismun- andi stöðum auk þess sem hún kemur með reynslu inn í liðið," sagði Krikorian. Það fer vel um þær stöllur í Philadelphiu en þær búa saman í íbúð ásamt tveim- ur leikmönnum liðsins frá Kína og Bandaríkjunum. Rakel og Margrét segja andann á heimilinu og í liðinu vera góðan og að mann- legi þátturinn sé í fyrir- rúmi. Næsti leikur Charge er á laugardag þegar þær sækja Atl- anta Beat heim. EKKERT NÝTT Rakel Ögmundsdótt- ir hefur áður spilað I Bandaríkjunum. Hún er með tvöfalt ríkis- fang, bandarískt og íslenskt, þannig að hún er vel kunnug fyrir vestan haf. J Michelin sigurvegari í formúlunni Helstu útsölustadir á höfuðborgarsvæðinu: Að ofan er mynd af vinsælasta sveitasetri okkar, ÁSU, um 70 fm auk 1 2 fm útigeymslu/gestastofu. Umhverfis er um 90 fm verönd með heitum potti. Leitið upplýsinga um verð og aðrar stærðir að: dalvegi 1 ó-b - 200 kópavogi s: 564 6161 nf: spdesign@mmedia.is Gúmmívinnustofan Réttarhálsi, Hjólbarðaverkstæöi Grafaravogs, Bæjardekk Mosfellsbæ, Hjólkó Smidjuveg 26, Dekkiö Hafnarfirði, Gúmmívinnustofan Skipholti, Barðinn Skútuvogi, Smurstöðin Sætúni, Esso Geirsgötu, Hjólbarðastöðin Bíldshöfða, Höfðadekk Tangarhöfða, Hjólbarðahöllin Fellsmúla, Smurstöðin Klöpp Vegmúla, Hjólbarðaviðgerð Vesturbæjar Kolbeinsmýri, Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns Hátúni, Hjá Krissa Skeifunni, Hjólbarðaþjónusta Hjalta Hjallahrauni.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.