Fréttablaðið - 25.04.2001, Qupperneq 18
18
FRÉTTABLAÐIÐ
25. apríl 2001 IVHÐVIKUDAGUR
HVERJU MÆLIR ÞÚ MEÐ?
Hrafnhildur Hagalín
Cuðmundsdóttir
Leikskáld
Ég er nýkomin frá New Vork og mæli með því
að fólk dri'fi sig þangað. Helst sem allra fyrst.
Petta er svo skemmtileg borg og það er svo
margt hægt að gera þar. Svo er líka svo gaman
að koma til baka frá New York. Þá verður mað-
ur svo sáttur við allt hér. Ég var mjög glöð að
koma til baka. Það er allt svo flókið og erfitt að
komast á milli þar. Maður gengur svo mikið að
ég er að hugsa um að láta aka mér um í hjóla-
stól núna í svolítinn tíma til þess að hvíla mig.
Gjörningavika
Nýlistasafnsins:
Kristinn G.
í Gryfjunni
mvnpust Gjörningavika Nýlistasafns-
ins við Vatnsstíg heldur áfram af
fullum krafti. í kvöld kl. 19.30 frem-
ur Kristinn G. Harðarson gjörning
frá árinu 1989 í'Gryfjunni, en á morg-
un verður hann
með annan gjörn-
ing á sama tíma,
einnig í Gryfjunni.
Gerla verður
einnig í dag með
sína daglegu gjörn-
inga, „hangsið" sitt
milli klukkan 16 og
18 og svo glímuna
við afmælið og forlögin í Gryfjunni
klukkan 18.15. Svanhildur Hauks-
dóttir verður einnig með sinn gjörn-
ing klukkan 16.30 eins og aðra daga
vikunnar.
Fyrir utan þau Kristin og Gerlu
verða aðrir listamenn með gjörninga
og óvæntar uppákomur í Nýlistasafn-
inu í dag sem og aðra daga gjörninga-
vikunnar.
Á annan tug listamanna taka þátt í
gjörningavikunni, þeirra á meðal þau
Magnús Pálsson, Rúrí, Þorvaldur
Þorsteinsson og Gjörningaklúbbur-
inn. Gjörningaviku Nýlistasafnsins
lýkur á laugardaginn með veglegu
lokakvöldi ■
Vortónleikar
Mosfellskórsins
Kórinn rokk-
ar í óperunni
Mosfellskórinn heldur vortón-
leika í íslensku óperunni kl. 20.30 í
kvöld. Einsöngvarar kórsins eru sem
fyrr Ann Andreasen og Kristín Run-
ólfsdóttir. Einnig kemur á tónleikun-
um fram tríó og sextett.
Dagskrá kórsins er sem fyrr létt
og rokkuð. Mosfellskórinn hefur frá
upphafi einbeitt sér að því að syngja
íslensk og erlend dægurlög, og stend-
ur ekki til að breyta því.
Stjórnandi kórsins er Páll Helga-
son og leikur hann einnig undir. ■
Hafnagönguhópurinn
Gengið
umhverfis
miðbæinn
útivist í kvöld stendur Hafnagöngu-
hópurinn fyrir gönguferð á milli
safna og sögustaða í Reykjavík. Farið
verður frá Hafnarhúsinu, gegnt
Borgarbókasafninu klukkan 20 og
gengið niður á Miðbakka. Síðan verð-
ur haldið yfir Arnarhól að Þjóðmenn-
ingarhúsinu við Hverfisgötu og um
Þingholtin að nýja Náttúrufræðihús-
inu sem er í byggingu í Vatnsmýr-
inni. Þaðan verður gengió að Þjóð-
minjasafninu og Þjóðarbókhlöðunni
og niður Suðurgötuna í Víkurgarð.
Gönguferðinni lýkur við Hafnarhús-
ið. Allir eru velkomnir í ferð meö
Hafnagönguhópnum. ■
SKIPALÓN
Þessi Ijósmynd er eftir Sigurð H. Baldursson, einn ellefu
Ijósmyndara sem eiga myndir á sýningunni
MIÐVIKUDACURINN
25. APRÍL
TÓNLIST
----------------7------------------
21.00 Norsku ungjassararnir í Urban
Connection eru í heimsókn á is-
landi og spila í Kaffileikhúsinu.
Tríóið skipa þeir Hakon M. Jo-
hansen á trommur, Steinar
Raknes á kontrabassa og Frode
Nymo á alto. Gestaleikari tríósins
á tónleikunum verður Davíð Þór
Jónsson á pianó. Á efnsskrá
hljómsveitarinnar er aðallega bí-
bop.
LEIKLIST___________________________
20.00 Félagsheimilið Stapi, Reykjanes-
bæ. Lionsklúbburinn Garður á
Suðurnesjum stendur fyrir leik-
sýningu á leikritinu Á sama tíma
síðar í kvöld.
Kl. 20.00 Þjóðleikhúsið. Stóra sviðið.
Laufin í Toskana eftir Lars
Norén. Á hverju sumri kemur
stórfjölskyldan saman til að
treysta böndin, þótt það kosti
bæði átök og árekstra.
20.00 Þjóðleikhúsið. Smíðaverkstæðið.
Með fulla vasa af grjóti eftir
Marie Jones Frábært gamanleik-
rit um tvo írska náunga sem taka
að sér að leika í alþjóðlegri stór-
mynd.
KVIKMYNPIR_________________________
18.00 Kristnihald undir jökli (1989)
eftir Halldór Laxness. Leikstjóri:
Guðný Halldórsdóttir
22.00 79 af stöðinni (1962) eftir Ind-
riða G. Þorsteinsson. Leikstjóri:
Eric Balling.
FUNDIR_____________________________
20.00 Rabbfundur hjá Foreldrafélagi
misþroska barna verður haldinn
í kvöld f húsakynnum félagsins
að Laugavegi 178 Þar hittast for-
eldrar og ræða saman um vanda
barna sinna og hvaðeina það
sem upp kemur f hugann. At-
hugið að gengið er inn bakdyra-
megin í húsið að Laugavegi 178.
20.00 í kvöld standa Evrópusamtökin
fyrir opnum fundi um stöðu ís-
lands í Evópusamstarfi á Grand
Hótel kl. 20. Heiðursgestur fund-
arins verður Gunnar Bolstad for-
maður Evrópusamtakanna í Nor-
egi, en Evrópusamtökin á íslandi
og í Noregi hyggjast á nána sam-
vinnu f framtíðinni. Auk Bolstad
flytur Unnur Gunnarsdóttir, lög-
fræðingur og fyrrverandi starfs-
maður EFTA í Brussel erindi en
hún ræðir um stöðu EES samn-
ingsins.
MYNPLIST___________________________
Karin Sander sýnir um þessar mundir í
galleríi i8, Klapparstíg 35, þrívidda-
myndir sem eru eftirmyndir unnar af
Ungdjass í
Kaffileikhúsinu
Sjóðandi
heitt norskt
bíbopp
tónlist Norska djasshljómsveitin
Urban Connection verður með tón-
leika í Kaffileikhúsinu í kvöld.
Hljómsveitin hefur starfað frá því
1996 og í henni eru þrír ungir tónlist-
armenn, þeir Frode Nymo sem blæs í
saxófón, Hákon M. Johansen sem ber
trumbur og Steinar Raknes á kontra-
bassa. Þeir hafa vakið mikla athygli í
djassheiminum og voru meðal annars
valdir ungdjassarar ársins í Noregi
árið 1998.
Urban Connection spilar nútíma-
djass sem á rætur að rekja til bí-
boppsins í New York á sjöunda ára-
tug nýliðinnar aldar. Á efnisskránni
er fyrst og fremst frumsamin tónlist.
Gestaleikari tríósins verður pí-
anóleikarinn Davíð Þór Jónsson, ung-
ur og upprennandi tóniistarmaður
sem hefur haft veg og vanda af því að
fá Urban Connection til þess að spila
hér á landi.
Þessi stórmerka hljómsveit verð-
ur einnig með tónleika í Háskóla ís-
lands á morgun og svo verða þriðju
tónleikar piltanna í Norræna húsinu
á föstudag. ■
URBAN CONNECTION
Steinar Raknes einbeíttur
á kontrabassanum.
fólki með nýjustu tölvutækni og allar í
hlutfallinu einn á móti tíu af réttri lík-
amsstærð viðkomandi en fyrirmyndir
eru vinir og vandamenn listamannsins.
Sýningin stendur til 29. apríl.
( Norræna húsinu
sýna fimm myndlist-
armenn frá Svíþjóð
Rose-Marie Huuva,
Erik Holmstedt,
Eva-Stina Sandiing,
Lena Ylipaa og
Brita Weglin. Norð-
urbotn er á sömu
norðlægu breidd-
argráðum og ísland
og að flatarmáli helmingi stærra þó
íbúar séu þar állka margir og á (slandi.
Sýningin stendur til 13. maí.
Áhugaljósmyndaraklúbbur Akureyrar
Hversdagslífið
í heimabyggðinni
uósmyndir Hópur ljósmyndara sem
allir eru búsettir á Akureyri skrásettu
mannlíf og bæjarbrag þar í eitt ár, frá
hausti 1999 til haustsins 2000. Af-
raksturinn af þeirri vinnu var gefinn
út í ljósmyndabók í lok síðasta árs og
nú er úrval þeirra ljósmynda til sýnis
í Listasafni Ákureyrar, og nefnist sýn-
ingin „Akureyri - bærinn okkar“.
Alls eiga ellefu ljósmyndarar
myndir á sýningunni, allir félagar í
Áhugaljósmyndaraklúbbi Akureyrar
(ÁLKA). Tilgangur bókarinnar og
sýningarinnar er fyrst og fremst sá
að sýna mannlíf, umhverfi, menn-
ingu, viðburði, atvinnulíf og athafna-
semi á einu ári í sögu bæjarins -
bregða upp svipmyndum úr bæjarlíf-
inu til fróðleiks og ánægju og ef til
vill til samanburðar síðar. í myndun-
um endurspeglast mismunandi efnis-
tök og áhugasvið ljósmyndaranna.
Þeir sem eiga leið til höfuðstaðar
Norðurlands á næstu dögum ættu
ekki að láta þessa sýningu fram hjá
sér fara. í leiðinni geta þeir séð ljós-
myndir Henri Cartier-Bresson, sem
er með sýningu á sama stað. ■
1' Ásmundarsafni við Sigtún I Reykjavík
stendur yfir samsýning á verkum Páls
Guðmundssonar og Asmundar Jóns-
sonar. Safnið er opið kl. 10-16.
í Listasafninu á Akureyri stendur yfir
sýning á Ijósmyndum eftir hinn þekkta
franska Ijósmyndara Henri Cartier-
Bresson, en líklega hefur enginn átt
meiri þátt ( því að gera Ijósmyndun að
viðurkenndri listgrein. Opið 14-18.
Myndir 370 barna af mömmum í
sparifötum eru á sýningu í Galleríi
Sævars Karls við Bankastræti í Reykja-
vík. Opið á verslunartíma.
I Listasafní Kópavogs - Gerðarsafni
stendur yfir sýningin Carnegie Art
Award 2000, þar sem sýnd eru verk
eftir 21 norrænan myndlistarmann, en
þar á meðal eru þeir Hreinn Friðfinns-
son og Tumi Magnússon. Opið 11-17.
„Drasl 2000" nefnir
rithöfundurinn Sjón
sýningu I Menning-
armiðstöðinni
Gerðubergi í sýning-
arröðinni „Þetta vil
ég sjá". Þar hefur
Sjón valið til sýning-
ar verk eftir Erró,
Magnús Pálsson,
Magnús Kjartans-
son, Hrein Friðfinnsson, Friðrik Þór Frið-
riksson og fleiri. Menningarmiðstöðin
er opin frá kl. 9 að morgni til kl. 21 að
kvöldi.
í gallerí@hlemmur.is stendur yfir sýning
Eriu Haraldsdóttur og Bo Melin
Flóamarkaður til styrktar
Götusmiðjunni
Fólk hvatt til
að gramsa
flóamarkaður Kringlan, Kramhúsið
og Götusmiðjan hafa opnað flóa-
markað í Kringlunni en tilgangurinn
er að safna fé fyrir eftirmeðferðar-
grúppu Götusmiðjunnar í sumar sem
vera á í Kramhúsinu.
Fyrrnefnd fyrirtæki hafa snúið
bökum saman fyrir söfnunina.
Kringlan leggur til húsnæói og bún-
að, Götusmiðjan sér um að manna
markaðinn og vera með fræðslu og
kynningu á sinni starfsemi og kenn-
arar og listamenn Kramhússins stan-
da fyrir uppákomum. Fólk á öllum
aldri er hvatt til að mæta. ■
FRÁ OPNUN FLÓAMARKAÐARINS
Nú getur fólk mætt í Kringluna, gramsað að vild á Flóamarkaði til styrktar Götusmiðjunni.