Fréttablaðið - 25.04.2001, Page 19
MIÐVIKUPAGUR 25. apríl 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
19
Með fulla vasa af grjóti:
Innrásin frá Holly wood
leiklist Þeir Hilmir Snær Guðnason
og Stefán Karl Stefánsson flytja leik-
ritið Með fulla vasa af grjóti eftir
Marie Jones á Smíðaverkstæði Þjóð-
leikhúsins í kvöld. Verkið fjallar um
tvo írska náunga sem taka að sér að
leika í alþjóðlegri stórmynd.
Leikararnir tveir fara á kostum
og fara með samtals vel á annan tug
hlutverka í sýningunni, því þeir
þurfa að leika bæði kvikmyndaleik-
stjórann og aðstoðarmann hans,
dyntóttu Hollywoodstjörnuna, tor-
tryggna og forvitna þorpsbúana sem
og alla aðra sem koma nálægt kvik-
myndatökunni.
Til margvíslegra árekstra kemur
milli írsku þorpsbúanna og innrásar-
liðsins frá Hollyvvood. Leikritið var
frumsýnt á Smíðaverkstæðinu 30.
desember og hefur fengið frábærar
viðtökur, enda er farið að sýna það
einnig á stóra sviði Þjóðleikhússins.
Leikstjóri er Ian McElhinney, en
hann er einnig leikari og eiginmaður
höfundarins. McElhinney leikstýrði
einnig fyrstu uppfærslu leikritsins á
írlandi og hefur sett hana upp víðar.
Hvarvetna hefur þetta leikrit fengið
afbragðs viðtökur og hefur meðal
annars fengið leiklistarverðlaun. ■
HILMIR SNÆR GUÐNASON
OG STEFÁN KARL STEFÁNSSON
Þeír gera sér lítið fyrir og leika vel
á annan tug persóna í einu leikriti.
ÞRJÁR ÚRVALS LEIKKONUR
Halldóra Geirharðsdóttir, Sóley Elíasdóttir og Jóhanna Vigdís Arnardóttir.
Píkusögur í Borgarleikliúsinu:
Þeirra leyndustu
líkamspartar
„Here, there and everywhere". Á sýn-
ingunni leika þau Erla og Bo sér að því
að breyta Reykjavík I fjölþjóðlega borg
með aðstoð stafrænt breyttra Ijós-
mynda. Opið 14-18.
Á Kjarvalsstöðum
stendur yfir sýning
norska listmálarans
Odds Nerdrums,
sem baðst nýverið
afsökunar á því að
hafa siglt undir föl-
sku flaggi með því
að kalla sig lista-
mann. Sýningin er
opin kl. 10-17.
„Heimskautalöndin unaðslegu" er heiti
sýningar sem lýsir með myndrænum
hætti lífi, starfi og hugsjónum Vestur-ís-
lendingsins Vilhjálms Stefánssonar.
Sýningin er um leið kynning á um-
hverfi, menningarheimum og málefn-
um norðurslóða, en hún er í Listasafni
Reykjavíkur - Hafnarhúsinu og er opin
kl. 10-17.
„Á meðan eitthvað er að gerast hér, er
eitthvað annað að gerast þar" nefnist
sýning á vekum Bandaríkjamannsins
John Baldessari sem stendur yfir í
Listasafni Reykjavikur - Hafnarhúsi.
Hann er eitt af stóru nöfnunum I sam-
tímalistasögunni og hefur verið nefnd-
ur Ijóðskáld hinnar öfugsnúnu fagur-
fræði og húmoristi hversdagsleikans.
Sýningin er opin kl. 10-17.
„Eruð þið enn reið við mig?" nefnist
sýning á verkum eftir breska listamann-
inn John Isaacs i Listasafní Reykjavíkur
- Hafnarhúsi þar sem gefur m.a. að líta
sláandi nákvæma sjálfsmynd lista-
mannsins, sem þar skyggnist undir eig-
ið yfirborð í orðsins fyllstu merkingu.
Viðbrögð áhorfenda við verkum hans
ýmist hlátur eða hrollur, en víst er að
listamaðurinn leggur mikið upp úr þvi
að hreyfa við fólki, á hvorn veginn sem
er. Safnið er opið kl. 10-17.
í Hafnarborg sýnir Steinunn Helga-
dóttir sýnir Ijósmyndir og myndbands-
verk og Sveinn Lúðvík Björnsson
hljóðverk. Sýning þeírra er í Sverrissal
og eru stelpur og stelpnaraddir við-
fangsefnið. Alice Olivia Clarke sýnir
mósaíkverk. Mitt í eilífðar útsæ nefnist
sýning í Aðalsal. Þar sýna fimm fær-
eyskir listamenn: Sigrun Gunnarsdóttir
Niclasen, Amariel. Norðoy, Eyðun av
Reyni, Kári Svensson og Astri Luihn.
Sænska listakonan Anna Hallin sýnir
málverk og teikningar f Gryfju Lista-
safns ASÍ og heitir sýning hennar „Soft
Plumbing". Olga Bergmann sýnir í Ás-
mundarsal safn verka sem unnin eru
með blandaðri tækni.
Sesselja Tómasdóttir sýnir „portrait" af
dóttur sinni og vinum hennar, sem öll
eru á fjórða ári í Listhúsi Ófeigs, Skóla-
vörðustíg. Hún hefur fylgst með þess-
um börnum frá fæðingu og reynir að
láta persónutöfra þeirra njóta sín í
myndunum.
leiklist Nú er verið að leggja loka-
hönd á æfingar leikritsins Píkusögur
í Borgarleikhúsinu, sem frumsýnt
verður á sunnudaginn. Leikritið, sem
er eftir bandaríska leikskáldið Eve
Ensler, á þó meira skylt við uppi-
stand en hefðbundnar leiksýningar.
Leikstjórnin er í höndum Sigrúnar
Eddu Björnsdóttur, en leikkonurnar
eru þær Halldóra Geirharðsdóttir,
Sóley Elíasdóttir og Jóhanna Vigdís
Arnardóttir.
Viðfangsefni leikritsins verður að
teljast harla óvenjulegt. Eve Ensler
tók viðtöl við fjölda kvenna um
þeirra leyndustu líkamsparta og
bækur Sýning um þróun námsefnis á
20. öld var opnuð í Þjóðarbókhlöð-
unni í síðustu viku og stendur til 31.
maí. Á sýningunni getur að líta sýnis-
horn námsbóka í nokkrum greinum
frá því um og eftir aldamótin 1900,
frá miðri öldinni og loks frá síðustu
árum. Athyglinni er sérstaklega
beint að bókum fyrir móðurmálsnám,
náttúrufræðinám og nám í sögu og
henni tekst að setja hugsanir viðmæl-
enda sinna fram með bráðfyndnum
og dramatískum hætti og lýsa með
því lífi og lífsviðhorfum ólíkra kven-
na á einstakan hátt.
Píkusögur voru fyrst settar á svið
árið 1996 og hafa síðan verið sýndar
um öll Bandaríkin, í London, Berlín,
Aþenu, Jerúsalem og víðar.
Eve Ensler er margverðlaunað
leikskáld. Árið 1999 flutti hún verk
sitt sjálf á Broadway, og hlaut mikið
lof gagnrýnenda fyrir. Enn ganga
Píkusögur á Broadway, nú í útfærslu
fyrir þrjár leikkonur, í stað einnar
áður. ■
samfélagsgreinum. Sýnt er hvernig
efnisval, efnistök, framsetning og
umbúnaður hefur breyst í áranna
rás, m.a. þannig að námsefni er birt
bæði á blaðsíðum, á myndböndum og
vefsíðum í seinni tíð. Skýringartext-
ar greina frá höfundum og efni
bókanna, hvenær þær voru notaðar
og ýmsu sem telja má athyglisvert
við þær hverja um sig. ■
Sýning í Þjóðarbókhlöðu
Gamlar og nýjar námsbækur
Sögur á tjaldi:
Islenska kvikmynda-
hátíðin heldur áfram
kvikmyndir Filmundur sýnir í dag
fleiri myndir sem gerðar eru eftir ís-
lenskum bókum á kvikmyndahátíð-
inni Sögur á tjaldi, sem stendur fram
á mánudag. Mynd Guðnýjar Hall-
dórsdóttur Kristnihald undir Jökli
verður sýnd klukkan 18.00, en hún er
gerð árið 1989 eftir sögu IJalidórs
Laxness.
Klukkan 22.00 gefst svo annað
tækifæri til þess að sjá 79 af stöðinni
á hvíta tjaldinu í Háskólabíói. Danski
leikstjórinn Eric Balling gerði mynd-
ina árið 1962 eftir sögu Indriða G.
Þorsteinssonar með þeim Krist-
björgu Kjeld og Gunnari Eyjólfssyni
í aðalhlutverkum. Róbert G. Arn-
finnsson er einnig í stóru hlutverki
og lag Sigfúsar Halldórssonar „Vegir
liggja til allra átta“ f flutningi Ellýjar
Vilhjálms setur sterkan svip á mynd-
ina. Þetta er hörku bíómynd sem allir
ættu að þekkja.
Kvikmyndahátíðin er haldin í til-
efni af viku bókarinnar og á henni
eru alls sýndar 14 myndir, þar á með-
al bæði 79 af stöðinni og Salka Valka
eftir Arne Mattson frá 1954 ■
ÚR 79 AF STÖÐINNI
Gunnar Eyjólfsson og Kristbjörg Kjeld í
hlutverkum sínum.
Skálholtskórinn í Fossvogskirkju
Flytja nokkrar af helstu
períum kirkjutónlistar
tónleikar Skálholtskórinn er tónlis-
tarunnendum að góðu kunnur, en
hann leggur leið sína til borgarinnar í
dag til þess að halda tónleika í kvöld
kl. 20 í Fossvogskirkju. Kórinn
kemur ekki fram einn síns liðs heldur
hefur hann fengið hljómsveit og ein-
söngvara í lið með sér og verða flut-
tar nokkrar af helstu perlum kirkju-
tónlistarinnar í Fossvogskirkju. Þar á
meðal verður flutt tónverkið Gloria
eftir Vivaldi.
SIGRÚN HJÁLMTÝSDÓTTIR
Syngur einsöng
með Skálholtskómum í kvöld.
Einsöngvarar á tónleikunum eru
ekki af lakari endanum, þær Sigrún
Hjálmtýsdóttir og Anna Sigríður
Helgadóttir. Konsertmeistari
hljómsveitarinnar er Greta Guðna-
dóttir og stjórnandi kórsins verður
sem fyrr Hilmar Örn Agnarsson tón-
listarmaður.
Aðgangseyrir á tónleikanna er
1.500 kr. en miðana getur fólk nálgast
bæði í Kirkjuhúsinu Laugavegi 31 og
við innganginn að Fossvogskirkju. ■
ANNA SIGRÍÐUR HELGADÓTTIR
Hún ætlar líka
að láta í sér heyra á tónleikunum.
Okkur vantar enn nokkra duglega ábyraa einstaklinga
sem vilja vinna sér inn aukapening með mátulegri
morgungöngu. Um er að ræða útburð á hinu nýja
Fréttablaði sem borið verður út til allra heimila á
höfuðborgarsvæðinu fyrir klukkan sjö alla virka morgna.
Starfið hentar bæði fullorðnum og unglingum og í boði
eru góð laun fyrir þægilega vinna.
Enn eru laus störf í eftirtöldum hverfum til afleysinga,
fastra starfa og á biðlista:
101 Miðbær
107 Vesturbær
104 Vogar
220 Hafnarfjörður
210 Garðabæ
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við:
POSTFLUTNINGAR
Brautarholti 1 simi 5100 300