Fréttablaðið - 25.04.2001, Side 24
JOSÉ CARRERAS Stjórnandi: David Gimenez.
^ WaááS Diddú. Sinfoniuhljómsveit Islands, og Kór islensku Óperunnar.
Tónleikar í Laugardalshöll 17. september.
Miðasala á midasala.is og í símum 800-MIDI & 595-7999
midasala.is
Gleðiiest suinar
Nyr Opel r
Corsa^
og þú nýtur lífsins
1 sumar
Bakþankar
ÞRÁINS BERTELSSONAR
Einelti
Fólk skiptist í tvo mismunandi
hópa. í öörum hópnum eru þeir
sem kenna sjálfum sér um allt sem
misheppnast og fer úrskeiðis. Þeir
sem eru í þessum hópi eru þung-
lyndir og taugaveiklaðir. í hinum
hópnum eru þeir sem kenna öðrum
um allt sem misheppnast og fer úr-
skeiðis. Þeir sem eru í þessum hópi
eru psýkópatar."
Þessa prýðilegu kenningu hef ég eft-
ir vini mínum sem er læknir og vís-
indalega þenkjandi. Sjálfur er ég
ekki vísindalega þenkjandi nema í
hófi og missti meira að segja áhug-
ann á sálfræði þegar ég komst að
því að frumkvöðlar þeirrar vísinda-
greinar eyddu ævi sinni ýmist í að
fylgjast með rottum rápa gegnum
völundarhús eða í að finna aðferðir
til að framkalla slefrennsli hjá hund-
um.
En það má skipta þjóðinni í hópa
með öðrum hætti. Allir vita að ís-
lendingar skiptast í framsóknar-
menn og ekki-framsóknarmenn.
Þetta eru mjög misstórir hópar. Við
síðustu talningu kom í ljós að fram-
sóknarmenn eru innan við fimmt-
ungur og ekki-framsóknarmenn eru
því fjórir af hverjum fimm. Allt
væri þetta í góðu lagi, ef hinn stóri
meirihluti gæti í þessu tilviki um-
gengist hinn smáa minnihluta af
virðingu og nærgætni, en það er
öðru nær.
-—4—
EKKI-FRAMSÓKNARMENN,
þ.e. meirihlutinn leggur minnihlut-
ann, þ.e. framsóknarmennina í ein-
elti við öll hugsanleg og óhugsanleg
tækifæri. Kjaftaskúmar hvarvetna
leggja sérstakan hreim í orðið
„framsóknarmaður'1 og kíma og flis-
sa eins og þeir hafi sagt Molbúi eða
Bakkabróðir.
Vissulega grunar marga að fram-
sóknarmenn eigi stundum erfiða vist
í ríkisstjórn með hinum volduga
Sjálfstæðisflokki og jafnvel heyrist
hvíslað um pólitíska misnotkun. En
hvort sem um misnotkun er að ræða
eða ekki þá er ekki fallegt að kenna
þolandandum um misnotkunina; slíkt
heitir einelti.
Pólitísk umræða á því plani er lítil-
lækkandi fyrir alla.
—.
FRAMSÓKNARMENN eru dapr-
ir yfir því einelti sem þeir mega
sæta og hafa lagst í naflaskoðun og
spyrja sjálfa sig hvað þeir hafi gert
vitlaust. Samkvæmt því tilheyra
þeir fyrrnefnda hópnum í kenningu
læknisins sem vitnað var til í upp-
hafi. Á sama hátt tilheyra þeir sem
kenna Framsóknarflokknum um allt
sem aflaga fer seinni hópnum.
EASYTRONIC sjálfskipting • ABS-hemlakerfi • geislaspilari
• öryggispúðar • rafdrifnar rúður • rafstýrðir útispeglar
• fjarstýrðar samlæsingar • velti- og aflstýri • 5 höfuðpúðar
• 5 þriggja punkta bílbelti • 14” felgur • og margt fleira.
6
Bílheimar
Sævarhöföa 2a - 112 Reykjavík
sími 525 9000 - www.bilheimar.is
FRETTABLAÐIÐ
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjom@frettabladid.is
Augiýsinga- og markaðsdeiid: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20
VlÐ SEGJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á VÍSÍRVÍS Fyrstur með fréttirnar
Officelsuperstore Öf f ice 1 Superstore
OPH> VI8KA DAOA KL 8-19 • LAUGARDAGA KL 10-16 OPfÐ VIRKA DAGA KL8-19 • LAUGARDAGA KL 10-16
Skeifunni 17, 108 Reykiavík | Sími 550 4100 Furuvöllum 5, 600 Akureyri | Skeifunni 17, 108 Reykiavík i Sími 550 4100 Furuvollum S, 600 Akureyri |
Tæknival , Tæknival