Fréttablaðið - 26.04.2001, Síða 2
FRÉTTABLAÐIÐ
26 april. 2001 fllVIMTDACUR
KJÖRKASSINN
NÝBÚAR í MIÐBÆ
REYKJAVÍKUR
Drjúgur meirihluti telur
ástæðu til að hafa
áhyggjur af kynþátta-
fordómum.
72%
28%
Spurning dagsins í dag:
Er greiðari aðgangur að neyðarpillunni
af hinu góða?
Farðu inn á vísi.is og segðu I
þína skoðun I
LÆKNARANNSÓKNIR
Eru kynþáttafordómar
á íslandi áhygguefni?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
Kynjamunur skiptir máli
Vísindi
washington Karlar og konur eru ólík
og það skiptir máli þegar kemur að
læknisrannsóknum. Þetta kemur
fram í niðurstöðum nefndar banda-
rískra vísindamanna. í niðurstöðum
segir að kynferði sé mikilvæg breyta
sem ætti að hafa í huga þegar rann-
sóknir í læknisfræði og heilbrigðis-
málum eru skipulagðar, Hingað til
hafa vísindamenn gert ráð fyrir að
karlar og konur bregðist nokkurn
veginn eins við lyfjum. Það er hins
vegar ekki rétt. Efnaskipti kynjanna
eru ólík, þau bregðast við lyfjum á
mismunandi hátt. Einnig kemur fram
að lífsmynstur karla og kvenna er
ólíkt og sjúkdómsmynstur einnig og
sjúkdómar hafa ólík áhrif á kynin.í
rannsókninni er hvatt til þess að
þessi munur verði rannsakaður frek-
ar auk þess sem vísindamenn eru
hvattir til að hafa hann í huga þegar
drög eru lögð að nýjum rannsóknum.
Nefndin leggur til að rannsóknir
verði skipulagðar þannig að hægt sé
að sundurliða niðurstöður eftir kyn-
ferði, kynferði þeirra sem taki þátt í
rannsókninni komi fram og einnig
komi fram hvar konur eru staddar í
tíðahringnum. ■
ERLENT
Fiskveiðar eru hættulegasta starf í
heimi samkvæmt skýrslu Sam-
einuðu þjóðanna. Samkvæmt opin-
berum tölum deyja 24.000 sjómenn
árlega eða nær 70 dag hvern. Talið
er að þeir séu þó mun fleiri en ein-
ungis hluti ríkja heimsins hefur ná-
kvæmar skrár yfir dauðsföll meðal
starfandi sjómanna. Yfir 90% sjó-
manna vinnur á skipum sem eru
styttri en 24 m á lengd. Það þýðir að
öryggisreglur og eftirlit nær ekki til
mikils hluta sjómanna.
VIÐSKIPTlJ
Allar helstu markaðsvísitölur í
Bandaríkjunum hækkuðu í gær
eftir lækkun þrjá undanfarna daga.
Nasdaq hækkaði um rúmlega 2%,
Dow Jones um tæplega hálft prósent
og S&P um 1,5%. Bjartsýnir fjár-
festar telja að markaðurinn hafi
haldið áfram þar sem frá var horfið
upp á við eftir eðlilegt bakslag dag-
ana þar á undan, Aðrir benda á að
enn sé e’rfTtt áð meta það hvort efna-
hagsbati sé á leiðinni eftir fremur
slakar hagnaðartölur fyrirtækja í
vikunni.
2
| INNLENT |
A' hættusamur björgunarleiðangur
á Suðurskautið hefur nú staðið
yfir í nokkra daga. Ekki er ljóst
hvenær lagt verður af stað með fár-
sjúkan lækni frá Amundsen-Scott
stöðinni en mjög erfið flugskilyrði
eru á þessum slóðum núna, 68 stiga
frost og jafnvel enn kaldara þegar
vindur blæs. Venjulega liggur flug
niðri frá febrúar til nóvember en þá
tekur að vora á ný þar.
; —❖.-
Vegna þeirra flutninga, sem ísa-
foldarprentsmiðja hefur staðið í
mun útgáfu Sjónvarpshandbókar
DV, verða frestað um eina viku.
Næsta tölublað af Sjónvarpshand-
bókinn kemur því út þann 3. maí n.k.
Grænmetið smámál
miðað við fiskverð
Guðjón Armann Einarsson í samninganefnd sjómanna segir að með sölukerfi á ferskfiski
hafi þjóðin tapað mun meiru en á grænmeti.
eískverð „Ég ætla ekki að gera lítíð úr
háu verði á grænmeti og get svo sem’
skilið að menn hafi áhyggjur af því
og get tekið undir að réttast er að
hafa uppboðsmarkað," sagði Guðjón
Ármann Einarsson, framkvæmda-
sjóri skipstjórafélagsins Öldunnar og
samninganefndarmaður sjómanna í
kjaradeilunni við útvegsmenn.
„Með því sölukerfi sem er á fersk-
um fiski, er hægt að segja með sömu
rökum og notuð eru í grænmetisum-
ræðunni, að þjóðin hafi tapað marg-
falt á við það sem hefur gerst í græn-
metinu. Ríkissjóður, sveitarfélög,
hafnasjóðir, allur almnenningur, sjó-
menn og raunar allir íslendingar
tapa með þessu fyrirkomulag marg-
falt hærri fjárhæðum en hafa tapast
á matvörumarkaði. Ég yrði fyrstur
manna til að fagna samskonar úttekt
Samkeppnisstofnunar á fisksöhi og
gerð var á grænmetissölu. Slík úttket
hlyti að leiða til lausnar á höfuðá-
greiningi sjómanna og útvegsmanna
síðasta árataug," sagði Guðjón Ár-
mann Einarsson.
Botnfisksverð tveggja togskipa í
Reykjavík, Freyju RE 38, annars veg-
ar og Ásbjörns RE 50 hins vegar, var
borið saman á árunum 1998 og 1999.
Þá kemur í ljós að árinu 1998 var
meðalverð til Freyju RE 131 króna en
til Ásbjörns 45 krónur. Á árinu 1999
var meðalverð til Freyju 159 krónur
fyrir hvert kíló af botnfiski en aðeins
49 krónur hjá Ásbirni. Freyja selur á
markaði en Ásbjörn, sem er einn af
togurum Granda, selur beinni sölu.
Vissulega er þessi samanburður ekki
nákvæmur og hafa ber í huga að
þorskur er um 25 prósent af kvóta
Ásbjörns en um 45 prósent af kvóta
Freyju og því er víst að aflasamsetn-
FISKMARKAÐUR
Gífurlegur verðmunur getur verið á fiski sem er seldur beinni sölu og á mörkuðum
ing er ekki sú sama og eins var afli
Ásbjörns mun meiri. En miðað við
þann verðmun sem er sést að heildar-
vermætamunur er mjög mikill. Ef
meðalverð Freyju er fært yfir á Ás-
björn hefði verðmæti hans hækkað
um 1.300 milljónir króna á árunum
1998 og 1999.
sme@frettabladid.is
SAMANBURÐUR A FISKVERÐI
1998 1999
■ Freyja RE 38 Meðalverð kr. 131 ■ Frevia RE 38 Meðalverð kr. 159
Botnfiskafli 1.548 tonn Botnfiskafli 1.080 tonn
■ Ásbjörn RE 50 Meðalverð kr. 45 ■ Ásbiörn RE 50 Meðalverð kr. 49
Botnfiskafli 6.965 tonn Botnfiskafli 6.498 tonn
Hvalfjarðargöngin og of háir bílar
Sumir keyrt á oftar en einu sinni
hvalfjarðargöngin Búið er að setja
upp stálbita við munna Hvalfjarðar-
ganganna og er það gert til að koma í
veg fyrir að varúðarskiltin verði ekin
niður, en það eru bílstjórar á háum
bílum eða með háa farma sem hafa
ekið skiltin niður eða skemmt þau.
Alls hefur það verið gert 15 sinnum
frá því göngin voru opnuð í júlí 1998.
Einu sinni hefur bílstóri ekið inn í
göngin með ofháan farm og ollið
tjóni. Samkvæmt upplýsingum frá
Speli hafa tjón vegna þessara mis-
taka bílstjóranna kostað fjórar til
fimm milljónir króna.
Eitthvað mun verá úm.að bílstjór-
ar hafi ekið niður skilti oftar en einu hvalfjarðargöngin
sinni. Búið er að setja upp stálbita sem tryggja að skiltin verða ekki framar ekin niður
Bush gefur Kina skýra aðvörun
Hernaðaríhlutun ídeilu
Kína og T ævan möguleiki
George W. Bush, forseti Bandaríkj-
anna, sagði í gær að hann útilokaði
ekki bein hernaðarafskipti af deilu
Tævan og Kína. Yfirlýsing forsetans
kemur í kjölfar kröfu Kínverja um að
Bandaríkin dragi til baka ákvörðun
sína um vopnasölu til Tævan.
Aðstoðar-utanríkisráðherra Kína
kallaði til sín sendiherra Bandaríkj-
anna og gaf honum þau skilaboð að
fyrirhuguð sala muni hafa alvarlegar
afleiðingar fyrir samskipti ríkjanna.
Með yfirlýsingu sinni tekur Bush
hinsvegar af öll tvímæli um fyrirætl-
anir Bandaríkjanna varðandi eyríkið.
Kom fram að hvergi muni verða vik-
ið frá þeirri stefnu að vernda Tævan
gegn Kína, jafnvel þó sú stefna geti
kostað beina hernaðaríhlutun.
Bush var ekki á þeirri skoðun að
Tævan ætti að lýsa yfir sjálfstæði.
„Ég vona að Tævan geri það ekki ...
Okkar stefna byggist á því að ríkin
leysi deilu sína friðsamlega ... Við
þurfum að vinna með Tævan til að
tryggja slíka niðurstöðu," sagði
Bush.
Síðast beittu Bandaríkin hervaldi
við Tævan árið 1996 þegar Bill Clint-
on sendi orrustuskip þangað eftir að
Kína hóf að beina eldflaugum að eyj-
unni.
BANDARÍKJAFORSETI
Bush útskýrir afstöðu Bandaríkjanna
gagnvart Tævan
Rannsókn á uppruna
fugla
Var forfaðir-
inn kjötæta?
new york. ap Steingervingur af risa-
eðluættinni „dromaeosaur“sem
fannst nýlega í Kína gæti kollvarpað
hugmyndum manna um uppruna
fugla. Vísindamenn telja víst að eðl-
an, sem var á stærð við önd, hafi ver-
ið kjötæta með heitt blóð og vísi af
fjöðrum. „Það eru sterkar sannanir
fyrir því að tilgangur fjaðranna hafi
upphaflega verið að halda hita á
blóðheitum risaeðlum og aðeins
seinna verið nýttar til flugs,“ segir
Mark Norell, steingerfingafræðing-
ur við Ameríska náttúrusögusafnið í
New Yói-k. Telur hann einnig að eðl-
an litla hafi verið skyld hinni stóru
ráneðlu „velociraptor." Norell telur
nægar vísbendingár til að ætla að
fuglar ffa'ff því þróast frá kjötætu-
eðlum. ■