Fréttablaðið - 26.04.2001, Blaðsíða 4
SVONA ERUM VIÐ
FRÉTTABLAÐIÐ
ÍSLENSKAN í SÓKN Samræmdum próf-
um lýkur i dag í grunnskólum landsins.
Síðasta prófið er stærðfræði en kunnátta
unglinga í þeirri grein virðist hafa farið
hrakandi meðan íslenskukunnáttan hefur
batnað ef marka má meðaltöl einkunna á
samræmdum prófum í þessum greinum
síðastliðin fimm ár. Forvitnilegt verður að
sjá hvernig krökkunum gengur i ár.
P
íslenska
Stærðfræði
1996 1997 1998 1999 2000
„AMERÍSKI DRAUMURINN"
í minningu fórnarlambs lögreglumistaka,
6x10,5 metrar
New York
Umdeilt
götulistaverk
New York, ap. Fyrir tveimur árum
skutu fjórir lögregluþjónar 41skoti á
Amadou Diallo þar sem hann var að
koma út úr húsi í Bronx-hverfi New
York borgar. Diallo var óvopnaður en
lögregla sagði að um slys hafi verið
að ræða. Fórnarlambið hafi gripið
um veski sitt og þeir haldið að um
byssu væri að ræða. Minnihlutahóp-
ar litu á örlög Diallo sem táknræn
fyrir þann raunveruleika sem getur
beðið innflytjenda í Bandaríkjunum.
Listamaðurinn Hulbert Waldroup
málaði myndina á einn af veggjum
hússins þar sem atburðurinn átti sér
stað. Á henni sést Frelsisstyttan með
skotvopn í hendi. Deilt hefur verið
um hvort borgin eigi að leyfa verkinu
að vera eða mála yfir það. „Stundum
er best að hreyfa ekki við svona mál-
um vegna þess að það eykur einungis
umræðuna," sagði talsmaður sam-
taka lögregluþjóna. ■
INNLENT
Stúdentaráð krefst þess að unnið
verði hratt og örugglega að samn-
ingi við háskólakennara svo að sátt
náist áður en til verkfalls kemur.
Mikilvægt sé að tryggja kennurum
og starfsfólki Háskólans samkeppn-
ishæf laun í samræmi við menntun
og ábyrgð í starfi.
Nýleg yfirlýsing rektors staðfesti
að algjör óvissa ríki um hvernig próf
verða lögð fyrir komi til verkfalls.
„Stúdentaráð heitir því á deiluaðila
að gera allt í sínu valdi til að afstýra
afdrifaríku verkfalli," segir í frétta-
tilkynningu.
Friðartillögur arabaríkjanna
Peres til viðræðna í Kaíró
Mio-flusTURLöNP. Forsætisráðheira
ísraels, Ariel Sharon, segir friðartil-
lögur Egypta og Jórdana skref í rétta
átt en breytinga þurfi við. Utanríkis-
ráðherra landsins, Shimon Peres, mun
fara til Kaíró á föstudaginn til að ræða
nánar þau atriði, að því er fjölmiðlar í
ísrael greindu frá. Palestínumenn
hafa hinsvegar gefið út að þeir séu
andsnúnir öllum breytingum á tillög-
unum.
Meginatriði friðartiliagnanna eru
að sjö mánaða stríðsástand taki enda
og lsrael hætti tímabundið landámi
sínu á Vesturbakkanum og Gaza-
svæðinu.
Aðstoðarmenn forsætisráðherrans
gáfu í skyn að óásættanlegt væri fyr-
ir fsraela að stöðva framkvæmdir
sem miða að landnámi á Vesturbakk-
anum og Gaza-svæðinu. Peres fer ein-
nig til Washington í næstu viku þar
sem hann mun skýra ráðamönnum frá
stöðu mála.
Palestínumönnum hefur ekki verið
hleypt inn í ísrael síðan ófriðurinn
brast á fyrir um sjö mánuðum fyrir
utan um 2000 manns sem fengið hafa
að snúa aftur til vinnu sinnar á undan-
förnum vikum. ■
FORSÆTISRÁÐHERRANN
Ariel Sharon forsætisráðherra
hefur sent utanríkisráðherrann
til viðræðna við Palestínumen..
SMÁBÁTAR:
Mikil uppgrip eru hjá smábátum á meðan þeir eru einir um hituna I sjómannaverkfallinu.
Bítur í afkomu launa-
fólks og fyrirtækja
Áhyggjur af réttindum útlendinga til ríkisborgararéttar sem fá framfærslustyrki
frá sveitarfélögum.
siÁvflRÚTVEGUR Sjómannaverkfallið er
farið að bíta hressilega í afkomu
þúsunda fiskvinnslufólks. Hætt er
við að versnandi afkoma geti haft
þau áhrif að fólk hafi ekki efni á því
að taka sér sumarfrí til ferðalaga
innanlands svo ekki sé minnst áætl-
uð ferðalög til útlanda. Þá er áhrifa
verkfallsins einnig farið að gæta í
rekstri margra fyrirtækja sem
þjónusta fiskvinnslu- og útgerðar-
fyrirtæki. Verkefni þeirra hafa
dregist saman eftir því sem verk;
fallið hefur dregist á langinn. í
mörgum sjómannafélögum er farið
að greiða út verkfallsbætur til sjó-
manna.
Aðalsteinn Á. Baldursson for-
maður matvælasviðs Starfsgreina-
sambands íslands segir að ástandið
hjá fiskvinnslufólki sé orðið mjög
alvarlegt. Hann segir að mörg fyrir-
tæki sé enn með sitt fólk á launaskrá
en en önnur ekki. Starfsmenn þeirra
hafa því orðið að skrá sig á atvinnu-
leysiskrá. Atvinnuleysibætur geta
að hámarki numið um 67 þúsund
krónur og kauptrygging frá 82-86
þúsund krónur á mánuði fyrir skat-
ta. Hann segir verkalýðshreyfing-
una einnig hafa áhyggjur af því ef
það hefur einhver áhrif á rétt er-
lendra fiskvinnslufólks til að sækja
um ríkisborgararétt hérlendis ef
það hefur fengiö framfærslustyrk
frá sveitarfélagi. Hann segir þetta
mál til skoðunar hjá verkalýðs-
hreyfingunni.
Á Húsavík er farið að greiða út
verkfallsbætur til sjómanna í verk-
falli og svo er einnig víðar um landið.
Þar nyðra fá sjómenn 3 þúsund krón-
ur á dag og 200 krónur til viðbótar
með hverju barni. Engar samræmd-
ar reglur eru um þessar greiðslur
meðal félaga sjómanna heldur fer
það eftir getu hvers og eins félags
hvað félagsmenn fá mikið í bætur. í
flestum tilvikum eru bætur greiddar
út hálfsmánaðarlega.
Á sama tíma og flotinn er bund-
inn og fiskvinnslur lokaðar er líf og
fjör hjá smábátum. Um 600-700 bát-
ar hafa verið á sjó á degi hverjum.
Aflinn hefur mikið farið í flug, salt-
fiskvinnslur og fiskbúðir.
-grh@frettabladid
Greiðsluþjónusta íslandsbanka
Sérhvert spor
verður léttara!
Jafnar greiðslur í hverjum mánuði
Engin vanskilagjöld
Betri yfirsýn yfir útgjöldin
ÍSLA N D'SBÁNKI
Umhverfi Hallgrímskirkju endurnýjað
Bergbrot fær verkið
BQRGftRMÁLTiIboð vegna endurnýjun-
ar umhverfis Hallgrímskirkju á
Skólavörðuholti voru opnuð 4. apríl
sl. en alls bárust átta tilboð. Stjórn
Innkaupastofnunar samþykkti að
leggja til við borgarráð að tilboði
Bergbrots ehf. yrði samþykkt þrátt
fyrir að þeir hafi átt þriðja lægsta
tilboðið að upphæð 45.052.975 sem
er 97,7% af kostnaðaráætlun.
í frétt frá gatnamálastjóra kem-
ur fram að ekki sé hægt að mæla
með fyirirtækinu Windsor hf., sem
þó átti lægsta tilboðið, vegna um-
talsverða skulda og lítilla umsvifa
og að tilboði Arctic verktaka hf.
verði hafnað þvf, þrátt fyrir ítrekuð
tilmæli, hafi það ekki skilað gögnum
um fjárhagsstöðu. ■
Þriðja lægsta tilboði var tekið vegna van-
goldinna skulda tveggja fyrirtækja sem
buðu i verkið.
26 apríl. 2001 FIMMTUDAGUR
ERLENT
Bandarísk og evrópsk fyrirtæki
hafa ákveðið að taka upp sam-
starf um þróun staðla fyrir vefsíður
til að koma á móts við áhyggjur neyt-
enda um öryggi viðskipta á Netinu.
Fyrirtækin segja að þau muni sam-
ræma viðskiptaaðferðir sínar og sé
það framiag í átt að samræmdum að-
ferðum fyrir viðskipti á Netinu.
Fiskveiðar eru hættulegasta starf í
heimi samkvæmt skýrslu Samein-
uðu þjóðanna. Samkvæmt opinberum
tölum deyja 24.000 sjómenn árlega
eða nær 70 dag hvern. Talið er að
þeir séu þó mun fleiri en einungis
hluti ríkja heimsins heldur nákvæm-
ar skrár yfir dauðsföllin. Öryggis-
reglur og eftirlit ná ekki til mikils
hluta sjómanna vegna þess að flestir
vinna á skipum styttri en 24 m.
Kynferðisbrotamál:
Sleppur við
refsingu vegna
gamalla laga
dómsmál Karlmaður hefur verið
sýknaður í Héraðsdómi Vestfjarða
þrátt fyrir að hafa játað að hafa brot-
ið margsinnis og gróflega á ungum
dreng á sex ára tímabili. Maðurinn
játaði mest allt það sem honum var
gefið að sök.
Þrátt fyrir játningar var maður-
inn sýknaður þar sem kæra var iögð
fram það seint að sök var fyrnd og
eins var ekki tekið tillit til fimm
milljóna króna skaðabótakröfu af
sömu ástæðum.
Brotin voru framin á árunum 1980
til 1986. Rannsókn málsins hófst ekki
fyrr en í desember 1999. Dæmt var
samkvæmt þeim lögum sem giltu
þegar brotin voru framin, en þar seg-
ir að hámarksrefsing fyrir kynferðis-
mök við börn af sama kyni, það er og
gerandi, sé 6 ár, en 14 ár ef þolandi er
ekki af sama kyni og gerandi.
Fyrningarfrestur var 10 ár og var
hann liðinn. Af þeim sökum var mað-
urinn sýknaður. ■
ÖFLUG VÉL í AFSKEKKTRI BYGGÐ
Flugfélag (slands sparaði ekki til við
Strandamenn í gær.
Gjögur
Aldrei stærri vél
árneshreppur. Aldrei hefur stærri
flugvél lent á Gjögurflugvelli en á
þriðjudag þegar ATR-vél Flugfélags
lslands kom þangað. Vélin tekur 46
farþega auk þriggja manna áhafnar.
Skýringin á þessari miklu afkasta-
getu í innanlandsflugi norður á
Strandir er sú að þennan dag var flug
þangað sameinað ferðinni til Bíldu-
dals. Flugfélag íslands hefur nýlega
yfirtekið áætlunarflug á Gjögur í
kjölfar riftunar á samningi við
Leiguflug ísleifs Ottesen.
ATR-vélin færði Strandamönnum
póst og vörur. ■
Þýskaiand
Nasistar mega
fara í göngu
Berlin (flpl Öfgaflokkur, sem líkt hefur
verið við Nasistaflokk Hitlers, er
frjálst að fara í göngu um Berlín 1.
maí. Dómstóll í Berlín komst að þess-
ari niðurstöðu í gær og hafnaði kröfu
embættismanna um að gangan verði
bönnuð. Þeir óttast átök í kjölfar
göngunnar. Innanríkisráðherra
Berlínar, Eckart Werthebach, ítrekaði
í gær bón sína til vinstrimanna um að
þeir láti hin árlegu l.maí mótmæli
niður falla en þau hafa endað í óeirð-
um sl. ár. Werthebach hafði áður neit-
að öfgaflokknum, um leyfi til að fara
í göngu, sagði hana vera ögrandi þeg-
ar litið væri til þess að Hitler bannaði
verkalýðsfélög á sínum tíma. ■