Fréttablaðið - 26.04.2001, Page 10
10
FRÉTTABLAÐIÐ
26. apríl 200: FIMMTUPAGUR
SPURNINC DACSINS
Munu netverjar kaupa netað-
gang um raflínur af Linu.net?
Ég hlýt eins og aðrír neytendur að fagna
fieiri valkostum og harðnandi samkeppni í
fjarskiptaheiminum. Það er sama hvaðan
gott kemur í þessum efnum. Nógu helvíti
hátt verð borgar maður fyrir þetta.
Stefán Hrafn Hagalín er einn helsti netspekúlant
landsins. Hann hefur við ráðgjafarstörf og fyrir-
tækjauppbyggingu á sviði upplýsingatækni frá
1999 og er pistlahöfundur um tölvumál á Þjóð-
braut Bylgjunnar. Svo heldur hann út þjóðmála-
vefritinu Kreml.is.
LAUSNAR KRAFIST
Crátið fyrir „Panchen Lama" í Nýju Delí
12 ára trúarleiðtogi Tí-
beta í haldi Kinverja:
Ekki sést opin-
berlega í 5 ár
NÝiA-DELltAPi Skólabörn báru fána og
veifuðu kröfuspjöldum við indverska
þingið í gær á 12 ára afmælisdegi
Gendun Choekyi Nyima. Tíbetar hafa
krafist lausnar drengsins frá Kína,
en þeir telja hann Búdda endurholdg-
aðan. Dalai Lama nefndi drenginn
„Panchen Lama,“ sem þýðir Hinn
mikli trúarlegi kennari, árið 1995 og
síðan þá hafa Kínverjar neitað að láta
hann af hendi. Dalai Lama hefur ver-
ið í útlegð frá heimalandi sínu síðan
1959 þegar Tíbet mistókst að brjótast
undan valdi Kína. Hefur hann síðan
dvalið í fjallaþorpi í norðurhluta Ind-
lands. ■
-.♦—
Læknisrannsóknir
Kynjamunur
skiptir máli
washincton Karlar og konur eru ólík
og það skiptir máli þegar kemur að
læknisrannsóknum. Þetta kemur
fram í niðurstöðum nefndar banda-
rískra vísindamanna. f niðurstöðum
segir að kynferði sé mikilvæg breyta
sem ætti að hafa í huga þegar rann-
sóknir í læknisfræði og heilbrigðis-
málum eru skipulagðar. Hingað til
hafa vísindamenn gert ráð fyrir að
karlar og konur bregðist nokkurn
veginn eins við lyfjum. Það er hins
vegar ekki rétt. Efnaskipti kynjanna
eru ólík, þau bregðast við lyfjum á
mismunandi hátt. Einnig kemur fram
að lífsmynstur karla og kvenna er
ólíkt og sjúkdómsmynstur einnig og
sjúkdómar hafa ólík áhrif á kynin.I
rannsókninni er hvatt til þess að
þessi munur verði rannsakaður frek-
ar auk þess sem vísindamenn eru
hvattir til að hafa hann í huga þegar
drög eru lögð að nýjum rannsóknum.
Nefndin leggur til að rannsóknir
verði skipulagðar þannig að hægt sé
að sundurliða niðurstöður eftir kyn-
ferði, kynferði þeirra sem taki þátt í
rannsókninni komi fram og einnig
komi fram hvar konur eru staddar í
tíðahringnum. ■
Gamall nasisti:
Nógu heilsu-
góður fyrir
réttarhöldin
munchen ap Anton Malloth, 89 ára
gamall maður, sem kærður hefur
verið fyrir morð sem áttu sér stað
meðan hann gegndi herþjónustu í út-
rýmingarbúðum nasista í Theresi-
enstadt rétt utan við Prag, er að dómi
þýskra lækni nægilega heilsuhraust-
ur til þess að koma fyrir rétt þrátt
fyrir að hann sé bundinn hjólastól
auk þess að vera blindur og þjást af
krabbameini í vélinda.
Vitni segjast m.a. hafa séð
Malloth skjóta til bana Gyðing sem
hafði hnuplað blómkáli í Theresi-
Verð drykkja á veitingahúsum kannað:
Allt að 120% verðmunur
ANTON MALLOTH
Kærður fyrir stríðsglæpi í Þýskalandi.
enstadt árið 1943, en sjálfur neitar
hann öllum sakargiftum. ■
neytenpur Samkeppnisstofnun komst
að því að allt upp í 120% verðmunur
getur verið á drykkjarföngum á veit-
ingahúsum borgarinnar. í könnun
stofnunarinnar, sem gerð var í byrj-
un apríl, kemur jafnframt fram að
meiri verðbreyting hefur að meðal-
tali orðið á áfengi á veitingastöðum
frá því í apríl 1999 heldur en nemur
verðbreytingum ÁTVR á þessu sama
tímabili.
Verðhækkun veitingastaðanna á
þessu tímabili var oft á bilinu 12-
16%, en frá ÁTVR nam hækkunin
oftast 0-2%.
Veitingahúsum ber skylda til þess
að hafa verðskrá á áberandi stað, en
aðeins 46% þeirra sinna þeirri skyldu
VERÐ A VEITINGASIÖDUM
HÆSTA VERÐ LÆCSTA VERÐ
Gos 33d 300 100
Erl. flöskubjór 650 300
Tvöfaldur vodki í gosi 1.150 650
Bristol Cream sérrý 600 270
og einungis 32% tilgreina magn
drykkjarfanga, eins og þeim er líka
skylt að gera því annars getur verið
erfitt að bera saman verð milli veit-
ingahúsa.
Samkeppnisstofnun kannaði verð
á nokkrum tegundum af áfengi, gos-
drykkjum og bjór í 141 veitingahúsi á
höfuborgarsvæðinu. Svipaðar kann-
anir hafa áður verið gerðar, síðast í
apríl 1999. ■
Ég græt heilu næturnar
Segir móðir sem á mikið veikan son. Annar sonur hennar tók sitt eigið líf og hún segist ekki geta umborið það
ef veiki sonur hennar gerir það líka. Stundum hugsar hún samt hvað sé honum fyrir bestu. „Þetta er ekkert líf.“
ceðhiálp „Sonur minn hefur verið á
geðdeild síðustu vikur og þar líður
honum vel. Honum leið vel hjá Geð-
hjálp en eftir breytingar á starfs-
fólki fór þetta á verri veg,“ segir
móðir manns sem var lengi hjá Geð-
hjálp. Hún segist hafa kvartað und-
an aðstæðum sonar síns og í fram-
haldi af því hafi henni verið sýndur
einstakur dónaskapur. Sonur hennar
bað hana að koma ekki fram undir
nafni.
Þegar móðirin
er beðin að lýsa að-
stæðum sonar síns
hjá Geðhjálp betur,
segir hún: „Það var
ekki fylgst með
hvort hann tæki
lyfin sín og ef hann
er lyfjalaus verður
allt vitlaust. Hann
er feginn að vera
kominn frá Geð-
hjálp, hann svaf
kannski allan dag-
inn og reykti enda-
laust og herbergið
hans var eftir því.
Hann skar sig ít-
rekað á púls og er
öróttur á báðum handleggjum. Það
er óviðunandi að ein manneskja hafi
helgarvakt á öllum þessum sambýl-
um.“
Hvernig var líðan þín þegar
ástandið var sem verst?
„Ömurleg. Ég verð alltaf að halda
áfram mínu lífi, hvernig sem á
stendur. Ég græt heilu og hálfu næt-
urnar og oft hefur hann hótað mér.
Þessi veikindi hafa staðið í sautján
ár og þau hafa mikil áhrif á alla að-
standendur."
Móðirin segir son sinn stundum
sjálfan hafa farið frá Geðhjálp inn á
geðdeild. „Einu sinni var mér sagt
að hann væri á Landspítalanum en í
—*—
„Einu sinni var
mér sagt að
hann væri á
Landspítalanum
en í Ijós kom
að hann var
sofandi inni á
herbergi. Hann
hefur sagt mér
að á sig hafi
verið ráðist en
ég veit ekki
hvort það er
rétt."
—♦—
ljós kom að hann var sofandi inni á
herbergi. Hann hefur sagt mér að á
sig hafi verið ráðist en ég veit ekki
hvort það er rétt. Einu sinni mætti
hann of seint í mat og var þá refsað
með að fá ekki að borða í eina helgi.
Ég sagðist koma með mat handa
honum en var tilkynnt að ég yrði
dregin út á rassgatinu ef ég léti sjá
mig. Ég fór nú samt, en ekki ein, ég
þorði það ekki.“
Móðirin segir að hún hafi misst
mann sinn fyrir mörgum árum og
annar sonur hennar hafi tekið líf sitt
fyrir fjórum árum. Þessi dauðsföll
hafi haft slæm áhrif á veika soninn:
En þegar honum líður hvað verst,
kemur þá fyrir að þú hugsir hvort
hann sé betur kominn dáinn en lif-
andi?
BÁRUGATA 19
í þessu húsi var sonurinn. Nú er hann á
geðdeild þar sem honum líður vel
„Já, ég geri það. Ég get bara ekki
hugsað mér að missa tvo syni fyrir
eigin hendi. Auðvitað hef ég hugsað
það. Þetta er ekkert líf en hann hef-
ur það gott þar sem hann er núna.“ ■
Akærður fyrir spillingu í embætti
Joseph Estrada, fyrrverandi forseti Filippseyja, var handtekinn í gær.
manila. ap Joseph Estrada var hand-
tekinn í gær og ákærður fyrir spill-
ingu í embætti forseta. Forsetinn
fyrrverandi, sem var hrakinn frá
völdum í janúar, er grunaður um að
hafa þegið mútugreiðslur að upphæð
82 milljónum dollara (rúmlega 7
milljörðum íslenskra króna). Stuðn-
ingsmenn hans efndu til óeirða við
heimili hans í Manila þegar handtak-
an fór fram.
Verði Estrada fundinn sekur um
stuld á almannafé gæti það haft
dauðarefsingu í för með sér. Ólíklegt
er þó talið að til þess komi þar sem
hann á enn stuðning stórs hluta þjóð-
arinnar.
Estrada ásakaði yfirvöld á Fil-
ippseyjum um ofsóknir á hendur sér
og fjölskyldu sinni. „Ég mun svara
öllum ákærum á hendur mér. Ég trúi
því að sannleikurinn muni koma
fram að lokum og stjórnarskrá okkar
hafa sigur," sagði Estrada. „Ég stend
fastur á þeirri skoðum að völd núver-
andi stjórnar samræmist ekki stjórn- forsetinn fyrrverandi
arskránni," sagði hann einnig. ■ Segist ekki enn hafa sagt af sér
BORGARASTRÍÐ
Hermaður á Sri Lanka í gær
Sri Lanka
Vopnahléi lokið
bec Land- og flugher Sri Lanka réðst
á höfuðstöðvar skæruliða í gær,
nokkrum klukkustundum eftir að
fjögurra mánaða vopnahléi aðskiln-
aðarsinna Tamíla lauk. Að sögn tals-
manns hersins féllu 26 hermenn og
78 særðust. Ekki var vitað hversu
margir uppreisnarmenn féllu. Borg-
arastríð hefur geisað á Sri Lanka
síðan 1983. Tamílar krefjast þess að
norður-og austurhluti Sri Lanka verði
sjálfstætt ríki undir stjórn þeirra.
Chandrika Kumaratunga, forseti Sri
Lanka, segir í viðtali í gær að ríkis-
stjórnin sé tilbúin til friðarviðræðna
sem Norðmenn hafa boðist til að hafa
milligöngu um. ■