Fréttablaðið - 26.04.2001, Side 13

Fréttablaðið - 26.04.2001, Side 13
FIMMTUPAGUR 26. april 2001 FRÉTTABLAÐIÐ 13 Þróun miðborgar Mörg hús í niðurrif skipulagsmál. Gert er ráð fyrir að það þurfi að fjarlægja töluvert af húsum í miðborginni í tengslum við þróunaráætlun miðborgarinnar og gerð nýs deiluskipulags á svæðinu. I frumáætlun um niðurrif er áætlað að fjarlægja þurfi húsnæði sem nemur um þriðjungi af því sem fyr- ir er. Það er því viðbúið að ásýnd miðborgarinnar muni breytast mik- ið á næstu árum ef þessar hugmynd- ir ná fram að ganga um verndun og uppbyggingu svæðisins. í þeim efn- um er einnig gert ráð fyrir umtals- verðri þéttingu byggðar með til- heyrandi viðbótarhúsnæði, þ.e. sam- bland af verslunar- og íbúðarhús- næði. Af einstökum svæðum er áætlað að fjarlægja þurfi einna mest af hús- um í Skuggahverfi en minnst í Grjótaþorpi. Þau skipulagssvæði sem þarna eiga í hlut er Barónsreitur, Grófartorg, Bankastrætisreitur, Laugavegur - Skólavörðustígur, aust- ur- og miðsvæði Laugavegar og Stjórnarráðsreiturinn. Þessu til við- bótar má gera ráð fyrir að einhverjar breytingar geti orðið á ásýnd Borgar- túns og einnig á skipulagsreitnum sem afmarkast af Einholti og Þver- holti. ■ MIKLAR BREYHTINGAR Rífa þarf mörg hús í tengslum þróunaráætlun miðborgarinnar. INNLENT Dagur umhverfisins er haldinn hátíðlegur í þriðja sinn á íslandi í dag. í tilefni þess veitti Siv Frið- leifsdóttir umhverfisráðherra Selás- skóla, Birni Jónssyni skógræktar- frömuði og ISAL viðurkenningu um- hverfisráðuneytisins í gærmorgun. —♦— Eldur kom upp í bátnum Goðatindi SU 57 í skipasmíðastöðinni í Njarðvík í gær. Starfsmenn voru að rafsjóða í lest skipsins þegar neisti komst í plastfæriband. Starfsmaður hafði náð að slökkva eldinn þegar slökkvilið kom á staðinn en mikill reykur myndaðist. Einn var fluttur á sjúkrahús með vott af reykeitrun. Litlu mátti muna að illa færi þar sem tjón hefði getað orðið mikið og mikil hætta gat skapast af. BORG I ÞRÓUN. Skipulagsyfirvöld standa i stórræðum vegna bréfaskipta við húseigendur. Miðborg Bréf til um 1 *200 íbúðar- og húseigenda skipulagsmál Borgaryfirvöld hafa sent tæplega 1200 bréf til hagsmuna- aðila í tengslum við gerð nýs deiliskipulags fyrir miðborgina. Þessi bréf voru send til þeirra sem eru eigendur fasteigna og eignar- hluta á svæðinu. í þessum bréfum sem voru fyrst send út í mars í fyrra var viðkomandi tilkynnt að vinna við endurskipulagningu svæðisins væri að hefjast hjá borginni. Nokkrum mánuðum síðar, eða sl. sumar fengu þeir hinir sömu annað bréf frá borg- inni um hvaða framkomnar hug- myndir lægju fyrir í þeim skipulags- treitum sem væru í vinnslu frá Lækj- argötu að Snorrabraut. í flestum svarbréfum eigenda var lögð áhersla á að þeir mundu gæta réttar síns og hagsmuna í þessari skipulagsvinnu borgarinnar. í þeim efnum kenndi ýmissa grasa eins og t.d. að minna á umferðarétt um lóð nágrannans, útsýni til Esjunnar, rétt til bílastæðis á gangstétt og annarra hefðbundinna og áunna réttinda sem fólk telur sig eiga. ■ Verkfall háskólakennara DÚX í KANADA Góður námsárangur í föðurlandinu nægir Vestur-íslendingnum ekki til að fá viðurkenningu á vinnumarkaði á gamla íslandi. „Óþolandi að fá námið ekki metið“ Peter Peterson er 44 ára gamall Vestur-Islendingur sem fluttist hingað til lands fyrir tíu árum. Hann er lærður þroskaþjálfi en hefur ekki fengið menntun sína metna hérlendis. mannauður Peter er fæddur og upp- alinn í Kanada en á ættir að rekja til íslands og á ættingja hér á landi í þriðja og fjórða lið. Hann segir að fólk hafi fljótt sýnt sér áhuga þegar í ljós kom að hann væri Vestur-ís- lendingur. Þó hafi sumum þótt erfitt að tala við hann á ensku en hann kunni ekki íslensku þegar hann flut- ti hingað. Áður en Peter flutti hingað til lands hafði Peter starfað sem þroska- þjálfi eftir að hafa dúxað í námi við virtan skóla í Kanada. Þegar Peter kom hingað sótti hann um að fá nám sitt metið og fá þannig leyfi til að starfa hér á landi sem þroskaþjálfi. Honum var neitað og var sagt að hann yrði að fara aftur í skóla ætlaði hann sér að starfa sem þroskaþjálfi. Þetta var Peter ósáttur við enda bjó hann að mikilli starfsreynslu og full- gildri háskólamenntun í Kanada. Pet- er segist aldrei hafa fengið fullnægj- andi skýringar á því hvers vegna nám hans var ekki metið og margir aðrir séu í sömu sporum, nýbúar jafnt sem íslendingar. „Það gengur ekki að fólk sem hefur lagt á sig mik- ið nám fái það ekki metið. Svo fær maður ekki skýringar á því hvers vegna námið fæst ekki metið, hvort íslenskir skólar séu svona miklu betri en erlendir eða matskerfið svona slæmt.“ Eftir að hafa verið neitað um lög- gildingu starfaði Peter í fjögur og hálft ár sem meðferðarfulltrúi á mun lægri launum en hann hefði haft sem þroskaþjálfi. Á því tímabili hafi hann stundum ráðlagt öðrum þroskaþjálf- um en á endanum gefist upp og hald- ið til annarra starfa þar sem mennt- un hans nýtist hvorki honum né öðr- um. Þessa stundina tekur Peter þátt í því ásamt nokkrum öðrum kanadísk- um íslendingum að skipuleggja mót- töku kanadísks drengs sem kemur hingað. Drengurinn þjáist af hvít- blæði og kemur hingað fyrir tilstuðl- an kanadísku Make-a-Wish samtak- anna sem leitast við að létta líf lang- veikra barna með því að uppfylla óskir þeirra. Á laugardag mun fjöldi Kanadamanna og fjölskyldna þeirra koma saman til kvöldverðar í Mið- stöð nýbúa þar sem drengurinn verð- ur heiðursgestur. ■ binni@frettabladid.is Torveldar rekstur spítal- anna hákóli Jón Magnússon, prófessor í skurðlækningum, telur að verkfall háskólakennara og frestun á útskrift læknanema trufli skipulag á vinnu þeirra á spítölunum. „Ef læknanemar útskrifast ekki í vor mun það gera allan rekstur á spítölunum í sumar torveldari. Þá á ég við að stúdentar eiga eftir að eyða tíma í prófin og geta ekki unnið á meðan. Það truflar starfsemina og í stað þess að við get- um ráóið læknakandidata þá þurfum við ef til vill að ráða læknastúdenta," segir Jón. ■ Robin Cook, utanríkisráðherra Breta Svartfellingar fari sér hægt popgorica (ap> Utanríkisráðherra Breta, Robin Cook, hvatti leiðtoga Svartf jallalands í gær til að sýna var- kárni í sjálfstæðisáformum sínum og semja við Serbíu. Cook, sem er í opin- berri heimsókn í Svartfjallalandi, átti fund með forseta Svartfjallalands, Milo Djukanovic en hann fer fyrir þeim öflum í Svartfjallalandi sem vilja sjálfstæði ríkisins úr ríkjasam- bandi Júgóslavíu. Djukanovic var varfærnari í ummælum um framtíð Svartfjallalands en áður og sagði að tekið yrði tillit til þeirra ólíku hópa sem byggja Svartfjallaland. Sjálfstæðissinnar hlutu nauman sigur í kosningunum í Svartfjalla- landi á mánudag og sagði Djukanovic í framhaldi að hann myndi efna til þjóðaratkvæðis um sjálfstæði lands- ins í sumar. Evrópusambandið hefur sagt að það kjósi „einingu frekar en sundrungu" á svæðinu. Cook sagði í gær að loknum viðræðunum við Djukanovic að Vesturveldin myndu ekki skipti sér af lausn mála í sam- skiptum Serbiu og Svartfjallalands. „Það sem við förum fram á er að stjórnarskrárbreytingar verði með evrópskum hætti. Það þýðir að stjórnarskrárbreytingar verða að eiga sér stað eftir viðræður sem byggjast á samkomulagi beggja að- ila.“ ■ COOK OG DJUKANOVIC Vesturveldin ætla sér ekki Ihlutun. AP/ RISTO BOZOVIC

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.