Fréttablaðið - 26.04.2001, Side 17
FIMMTUDAGUR 26. april 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
17
PFCMonrjMM
HVERFISGOTU SIMI 551 9000
www.skifan.is
kvikmymfir.
* -iK Sagarrmr s-krrfuö af
„ :W ■ 'þfc-im sem brjóta
. J - “ regkimar.
MEKof -
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
CROUCHING TIGER... Id. 5.30.8og 10J0
[NÝI STÍLLINN (m/isl. tali)
[WHflT WOMEN WANT kl. 5.30 og 10.30
BOUNCE
kl. 8 og 10.15
CHOCOLATE
HANNIBAL
kl. 10.10
KRINGLU
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
[THE WEDDING PL... kl. 3.45, 5.50,8 og ío.isl
SUGAR AND SPICE kl. 4,6, 8 og IQ.Íoj
[15 MINUTES ~ Id. 5.50 og 8j
[JÐDJ
51 6B
Aður óbirtar myndir af leikkon-
unni Marilyn Monroe og fleiri
þekktum Hollywood leikurum verða
boðnar upp í Pól-
landi. Myndirnar
eru eign pólska rík-
isins og skipta þær
þúsundum. Meðal
þekktra leikarar
auk Monroe eru
Elizabeth Taylor,
Frank Sinatra o.fl.
Myndirnar, sem
teknar voru af Milton Greene sem
m.a. tók myndir fyrir Vouge og Life-
límaritið og lést árið 1985, komust í
eigu pólska ríkisins árið 1995 en þær
voru áður í einkaeign. Talsmaður
pólska ríkisins sagðist bjartsýnn á
að fá gott verð fyrir myndirnar
þrátt fyrir léleg viðbrögð á fimm
nektarmyndum af Monroe á uppboði
í Bandaríkjunum í síðasta mánuði.
Prakkararapparinn Eminem ætlar
að sitja fyrir nakinn í júní-hefti
breska kvennatímaritsins Cosmo-
politan. Eminem,
sem er þekktur
fyrir kvenfyrirlitn-
ingu og homma-
fælni í textum, ætl-
ar að birtast les-
endum blaðsins í
öngvri spjör nema
hvað hann mun
hylja stolt sitt með
dínamíthylki.
Eminem verður í góðum félags-
skap því sextán breskar sápu- og
popstjörnur munu skreyta síður
blaðsins ásamt rapparanum í júní.
Irska rokksveitin U2 hefur tekið að
sér, að beiðni írskra yfirvalda, að
sannfæra Bandaríkjamenn um að
óhætt sé að sækja
íra heim. Fréttir
um gin- og klaufa-
veikifaraldur hafa
skekið heimsbyggð-
ina og vilja írsk
stjórnvöld fá Bono
og félaga til liðs við
sig í baráttunni um
ferðamennina.
„Við erum hissa á bóninni," sagði
Bono, „en leiðréttum auðvitað með
ánægju þann leiða misskilning að ír-
land sé ekki öruggur áfangastaður."
Hljómsveitin, sem er á tónleika-
ferðalagi um Bandaríkin um þessar
mundir, kom fyrstu skilaboðunum
um öruggt írland til tónleikagesta í
Los Angeles á mánudagskvöld.
Leikarinn Robert Downey Jr. var
handtekinn af lögreglu í Los Ang-
eles sl. þriðjudagskvöld, grunaður
um að vera undir
áhrifum fíkniefna.
Lögregia yfirheyrði
Downey í nokkrar
klukkustundir en
sleppti honum að
því búnu. Leikaran-
um var gert að
mæta fyrir rétti 4.
maí. Downey hefur
þegar afplánað ár í fangelsi vegna
fíkniefnabrota. Þá var leikarinn
handtekinn og ákærður í Palm Spring
í nóvember, þegar lögregla fann
kókaín og valíum á hótelherbergi
hans, og á yfir höfði sér allt að fimm
ára fangelsisvist. Umboðsmaður leik-
arans, Alan Nierob, vildi lítið láta
hafa eftir sér vegna málsins. í gær
var Downey rekinn úr Ally McBeal-
þáttunum, sem sýndir eru á Stöð 2.
oldplay með þrjú ný lög
- tónlcikaferðalag þeirra hafið
s
'Wtf
k
Hljómsveitin Coldplay hóf tón-
leikaferðalag sitt um Bret-
land í fyrradag og var fyrsti
viðkomustaðurinn Aberdeen í
Skotlandi. Coldplay frumflutti þrjú
glæný lög á tónleikunum og svo
virðist sem söngvarinn, Chris Mart-
in, hafi náð sér að fullu eftir háls-
meinin sem hann hefur átt við að
stríða. Hljómsveitin þurfti að fresta
nokkrum tónleikum í kjölfar meiðsl-
anna.
Tónleikarnir í Aberdeen voru
ákaflega vel heppnaðir og ætlaði allt
um koll að keyra eftir órafmagnað-
an flutning Martins á laginu Don't
Panic, sem rokið hefur upp vinsæld-
arlista hér á landi sem ytra. Hann
kastaði kassagítar sínum út í salinn
og litlu munaði að illa færi þegar
æstir aðdáendur börðust um gítar-
inn við dyraverði staðarins.
Ferill Coldplay verður að teljast
ævintýralegur því skóladrengirnir
fjórir úr University College í
London voru algjörlega óþekktir í
byrjun árs 2000. En þá kom plata
þeirra Parachutes út og nú er svo
orðið að þeir eru með vinsælustu
hljómsveitum heims.
Svo virðist sem frægðin sé jafn-
vel að stíga þeim til höfuðs en á tón-
leikunum í Aberdeen sagði Martin
við áhorfendur „Við komum aftur
eftir 20 ár, þegar hvert einasta lag
frá okkur hefur náð toppsætinu á
smáskífulistanum“.
Fyrirhugaðir eru tónleikar með
Coldplay á Islandi þann 16. júní n.k.
og megum við íslendingar búast við
ansi mögnuðum tónleikum frá þess-
ari tregafullu sveit. Og hver veit
nema þeir taki jafnvel eins og tvö til
þrjú ný lög fyrir okkur.
Vinir Melanie Griffith telja að
allt bendi til að hún eigi von á
barni. Leikkonan hefur að undan-
förnu ekki dregið
dul á að hana langi
að eiga fleiri börn
með sínum heittel-
skaða, Antonio
Banderas. Einn
vinur Melanie seg-
ist hafa séð til
hennar fyrir sköm-
mu borða á við tvo.
Talsmaður leikkonunnar tekur
engu að síður fyrir að fjölgunar sé
von í Griffith-Banderas fjölskyld-
unni en vinirnir telja það eingöngu
stafa af því að hjúin vilji geyma
gleðifregnina um hríð. Fyrir eiga
þau eina dóttur auk þess sem Mel-
anie á son og dóttur úr fyrri hjóna-
böndum. Alec Baldwin þykir standa
sig allvel í hlutverki hins einstæða
föður. Á dögunum sást til leikarans,
sem áður var giftur Kim Basinger,
í Central Park leiðbeina dóttur
sinni og fleiri börnum sem voru að
renna sér á hjólabretti.
Liam Gallagher úr Oasis hefur
beðið kærustu sína, Nicole App-
leton, um að syngja bakraddir í
nýjasta lagi hljóm-
sveitarinnar, Song-
bird. Lagið verður
að öllum líkindum
fyrsta smáskífa
Oasis á nýrri plötu
þeirra, sem jafn-
framt er sú fimmta
í röðinni. Ástæða
stúlkuna um að
syngja er sú að hann er víst ást-
fanginn uppfyrir haus og samdi
lagið um hana sjálfa. Að sögn kunn-
ugra er Noel víst ekki of ánægður
með nýjasta uppátæki litla bróðurs.
Hann hafi ekkert á móti mágkonu
sínni en þetta sé farið að minna of
mikið á sambandið hjá John heitn-
um Lennon og Yoko Ono. Sumir
vilja meina að Yoko hafi eyðilagt
Bítlana á sínum tíma þegar hún og
Lennon fóru að semja tónlist sam-
an. Jafnvel Noel sé áhyggjufullur
yfir að Nicole eigi eftir að eyði-
leggja samstarf þeirra bræðra.
Þjónn Díönu prinsessu
ákærður fyrir þjófnað
Harold Brown, 48 ára gamall
þjónn sem lengi var í þjónustu
Díönu prinsessu, var á þriðjudaginn
ákærður fyrir þjófnað úr einni af
íbúðum prinsessunnar. Þjófnaðurinn
er talinn hafa verið framinn á tíma-
bilinu janúar 1987 fram í nóvember
árið 2000.
Lögregla komst á snoðir um
þjófnaðinn þegar munir í eigu Díönu
voru boðnir listaverkasölum í
London til kaups á síðasta ári.
Lögreglan vill ekki gefa upp
hvaðan mununum var stolið en með-
al þess sem er saknað eru skartgrip-
ir og arabískt módel-skip að verð-
mæti ein milljón punda.
PRINSESSAN ATTI EKKI ALLTAF
SJÖ DAGANA SÆLA.
Þjónninn sem Díana leit á sem klettinn I
lífi slnu er nú grunaður um aðild að stór-
felldum þjófnaði frá kóngafjölskyldunni.
Á síðastliðnum sex mánuðum
hafa fjórir menn að Brown meðtöld-
um verið handteknir í tengslum við
þjófnaðinn. Einn þeirra var Paul
Burrell sem Díana kallaði „klettinn
sinn“ vegna tryggðar hans og þag-
mælsku. Burell, sem einnig var í
forsvari fyrir stofnun minningar-
sjóðs um prinsessuna, kveðst sak-
laus.
Harold Brown er fyrstur fjór-
menningana til að verða ákærður,
hinum þremur var sleppt gegn
tryggingu en eru enn undir eftirliti
lögreglu.
Þjófnaðir úr konunglegum vist-
arverum eru ekki nýir af nálinni,
árið 1994 var fyrrverandi starfs-
maður í Buckhingham-höll ákærður
fyrir stuld á málverki, silfurmunum
og 19. aldar skál sem tilheyrði Elísa-
betu drottningu II. ■