Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.04.2001, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 26.04.2001, Qupperneq 22
22 FRÉTTABLAÐIÐ 26. april 2001 FIIVtlVtTUDAGUR HRAÐSOÐIÐ HAUKUR ÞÓR HAUKSSON formaður Samtaka verslunarinnar Haukur Þór Hauksson er 44 ára formaður Sam- taka verslunarinnar og framkvæmdastjóri Borg- arljósa. Samtök verslunarinnar eru á móti frum- varpi á Alþingi þar sem gert er ráð fyrir að létt- vín og bjór verði selt í matvöruverslunum. Hvers vegna eruð þið á móti sölu áfengis í matvöruverslunum? „í prinsippinu erum við sammála að áfengi eigi að fara út á markaðinn og það eigi að versla með það eins og aðrar vörur. Frumvarpið gerir ráð fyr- ir að áfengi verði bara selt í matvöru- verslunum. Við óttumst fáokunina í matvörunni. Það er því hvorki til hagsbóta fyrir neytendur né birgja að áfengi verði bara seit í matvöruversl- unum. Það er málið. Þess vegna erum við hrifnari af að það verði sér vín- verslanir, til dæmis með því að versl- anir ÁTVR verði seldar, hver og ein, og þá geta menn keypt eina búð og ef- laust hefur hún þá sína viðskiptavild og annað slíkt. Sumir geta þá verið með ódýran markað á meðan aðrir gætu verið með smökkun og lagt meira í sína verslun. Við erum hrifn- ari af þeirri hugmynd, en það verða að vera strangar reglur." HVORT eru þaó í raun ykkar hags- munir eða neytenda sen -áða þeirri afstöðu ykkar? „Þeir fara oftast samar. Það eru fáir með tök á markaðnum og það hefur áhrif á alla í keðjunni; f ramleiðendur, birgja og neytendur. Þaó eru allir í sömu stöðunni. Heildsalar og birgjar veröa að standa og sitja eins og smá- salar segja. Að lokum er neytandinn látinn borga. Hagsmunir birgja og neytenda fara því oftast saman. Það er allra hagur að það ríki hörð sam- keppni." HVAÐA áhrif hefur fáokun í smásölu haft á aðrar vörur en áfengi og getur þú nefnt einhver dæmi þar um? „Við skulum bíða, það fer að koma skýrsla um ástandið á.matvörumark- aðnum, en Davíð Oddsson bað um hana fyrir um einu ári síðan. Við þurfum samt ekki annað en sjá ástandið á grænmetismarkaði og eins getum við séð það í ársreikningum Baugs. Það er ljóst að þeir eru að taka meira til sín, neytendur borga meira og birgjar fá minna. Það er eitt merkilegt, að í síð- ustu viku kom könnun á malvöruverði, þar sem borið var saman verð hér á landi og í nágrannnalönd jnum. Þar kom fram að landbúnaðarvörur og grænmeti er rándýrt hér á landi í samanburði við verð annars staðar. En verð á þurrvöru, pakkavöru, dósavöru og þannig vöru er sambærilegt hér og erlendis. Þetta eru þessar dæmigerðu vörur sem heildsal- ar eru að flytja inn.“ HVERJU mundi aukið aðgengi að áfengi breyta, auka drykkju, eða bæta drykkjusiði? „Það fer eftir hvernig þetta þróast. Við lítum á áfengi eins og aðra vöru sem þarf að koma til neytenda, þá eru óneitanlega önnur sjónarmið sem eru fullgild, eykst drykkja, eykst drykkja unglinga og svo framvegis. Ég get ekki séð að allur munurinn sé hvort það er ríkisstarfsmaður sem réttir flöskuna yfir borðið eða starfsmaður einkafyrirtækis.“ HVER er helsti ókosturínn við núver- andi fyrirkomulag? „Það er ekki hlutverk ríkisvaldsins að stunda verslunarrekstur og ég held að það sé almenn skoðun - sama hvaða stjórnmálaskoðanir menn að- hyllast. Einokun eins og ÁTVR á ekki rétt á sér.“ Styttist í stjórnarkjör hjá Geðhjálp Spennan stigmagnast CEÐmÁLP Spennan vegna væntanlegs stjórnarkjörs í Geðhjálp stigmagn- ast. Ekki er vitað betur en Kristófer Þorleifsson geðlæknir verði í fram- boð til formanns, og hefur hann reyndar staðfest framboð sitt. Meiri óvissa er um hvað Sigur- steinn Másson gerir. Hann hefur sagt að hann vilji helst draga fram- boð sitt til baka, en hefur opnað á þann möguleika að vera í framboð til formanns, að því undangengnu að lögum Geðhjálpar verði breytt á þá lund að starfsmönnum verði ekki heimilt að sitja í stjórn. Nokkrir þeirra sem Fréttablaðið hefur rætt við telja að finna megi skýringar á, hvernig komið er innan félagsins, með því að tveir starfs- menn stuðningsþjónustunnar sátu einnig í stjórn Geðhjálpar. Hvernig sem baráttan um formannssætið endar verður Sigursteinn Másson áfram í stjórn, en á aðalfundi fyrir einu ári var hann kjörinn til tveggja ára og hefur gegnt starfi varafor- manns í eitt ár. ■ SIGURSTEINN MÁSSON Hann setur skilyrði fyrir sínu framboði FRÍTTIRAF fólki I Byrjað er að velta upp hugmynd- um um hvernig skipa á vali á framboðslista Reykjavíkurlistans. Heyrst hafa nokkr- ar hugmyndir og munu menn vera að reyna að finna þá réttu. Mestu ræður hvort vinstri-græn- ir verða með eða ekki. Því ráða helst Ögmundur Jónas- son og Árni Þór Sig- urðsson, en þeir eru ekki á einu máli um hvað ber að gera. ögmundur hef- ur ekki farið dult með hversu lítt hann er hrifinn af Reykjavíkurlist- anum á meðan Árni Þór er þar í inns- ta hring. Afstaða þessara lykil- manna er því ólík, fyrsti þingmaður flokksins i Reykjavík hefur tjáð sig frjálslega um sína neikvæðu afstöðu til listans á meðan Árni Þór er allt annarrar skoðunar. Hvernig prófkjör verður viðhaft er óvíst. Samfylkingarfólk hef- ur skotið upp þeirri hugmynd að af sjö sætum sem barist verði um fái þeirra flokkur fjóra borgarfulltrúa, Framsóknarflokkur tvo og vinstri- grænir einn. Aðrir flokkar eru ekki spenntir fyrir þessu og vinstri- grænir alls ekki. Þar á bæ hafa menn nefnt sterka stöðu flokksins í skoð- anakönnunum og hafa meðal annars nefnt hugmyndir eins og þá að allir flokkanna þriggja fái tvö sæti hver og sá flokkur sem nýtur mestrar hylli í prófkjörinu fái sjöunda sætið, en að sjálfsögðu er gert ráð fyrir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir verði áfram í áttunda sæti - baráttusæt- inu. Innan Samfylkingarinnar eru raddir sem segja að taka verði mátu- lega mikið mark á fylgi vinstri- grænna, þar sem það er aðallega í skoðanakönnunum. Til að renna stoðum undir þessar hugleiðingar er ágætt að rifja upp það sem Guðmundur Oddsson, stórkrati í Kópa- vogi, sagði hér í Fréttablaðinu, en hann sagði vinstri- græna ekki vera til nema í skoðana- könnunum. Það er því víst að talsverð spenna mun verða þegar ákveðið verð- ur hvernig raðað verður á Reykja- víkurlistann. Eitt sem hefur verið rætt um er að hafa galopið prófkjör í Reykjavík, en ekki er líklegt að all- ir séu spenntir fyrir þeirri hugmynd og nokkuð víst að samstaða þar um verður ekki. Verkfall sjómanna stendur enn og ekkert bendir til að það sé að leysast. Meðal þess sem hefur verið rætt sem ástæða þess hversu illa gengur að ná fram lausn er að samn- inganefndirnar geti ekki rætt saman svo vit sé í. Þá hafa þeir sem standa í baráttunni bent á að búið sé að skipta um nánast alla forystumenn í viðræðunum. Sævar Gunnarsson, stefAn BJARKASON [þróttafulltrúi I Reykjanesbæ sætti gagnrýni fyrir að mæta á opnun hnefaleikasalar Átök um box í Reykjanesbæ Mun bærinn styrkja boxara? hnefaleikar „Ég var gagnrýnd- ur af bæjarfulltrúum minni- hlutans fyrir að hafa mætt á opnun aðstöðu Hnefaleikafé- lags Reykjaness,“ sagði Stefán Bjarkason, íþrótta- og tóm- stundafulltrúi Reykjanesbæj- ar, en mikil átök eru í bænum, og ekki síst innan bæjarstjórn- ar, vegna félagsins. Það eru fleiri en Stefán sem hafa verið gagnrýndir fyrir að mæta, en þingmennirnir Hjálmar Árna- son og Árni Johnsen mættu einnig og hafa þeir sætt sömu gagnrýni og Stefán. Sagt er að á fjórða hundrað manns hafi mætt við opnunina. Þeir sem standa að Hnefa- leikafélaginu óskuðu þess að bæjarsjóður styrkti félagið. Þeirri ósk hefur ekki verið hafnað, en sennilega verður ekkert af styrkveitingu meðan íþróttin er ólögleg. Stefán seg- ir að vissulega séu hnefaleikar drjúgur þáttur í forvörnum - þar sem þeir sem eru í félag- inu gangast undir að misbeiti þeir bardagakunnáttu sinni verði þeim vikið úr félaginu, rétt eins og gert er í öðrum bardagaíþróttum. En hvað var það sem olli þessum misskilningi og hvað var sagt við opnunina? „Ég tilkynnti þar að það yrði tekið fyrir á fundi hvort styrkja ætti félagið - en þá var staðan sú að hugsanlega væri búið að 1 ö g 1 e i ð hnefaleika í fyrstu 1 e i t u ð u þeir til m í n v e g n a húsnæð- ismála og við vild- um at- h u g a hvort eitt- hvað væri hægt að gera fyrir þá. Við eig- um eftir að ræða við for- s varsmenn félagsins um hvernig þeir geta starfrækt félagið meðan íþróttin er ekki lögleg." ■ formaður Sjó- mannasambands- ins, er til þess að gera nýr í foryst- unni, Grétar Mar Jónsson, forseti Farmanna- og fiski- mannasambands- ins, er nýr í emb- ætti og sama er að segja um Friðrik J. Arngrímsson framkvæmdastjóra LÍÚ. Þegar þetta var rætt á blaða- mannafundi sjómanna í síðustu viku, brostu menn og bentu á Helga Lax- dal formann Vélstjórafélag Islands og göntuðust með hvort það væri þá hann sem bæri alla ábyrgðina, hann er jú sá eini sem eftir er af forystu- mönnum síðustu ára. að hafa verið miklar bollalegg- ingar um hvers vegna ísólfur Gylfi Pálmason alþingismaður þáði ekki formennsku í fjárlaganefnd Al- þingis. Fréttablaðið telur sig vita hvers vegna þingmaður- inn tók þessa af- stöðu. Hann mun vera sáttur með þau nefndarstörf sem hann gegnir og var víst ekki fús til að hætta þeim störfum eða breyta miklu. Eins mun hafa skipt hann miklu máli hversu vel honum líkar að búa á Hvolsvelli og hann var engann veginn þess þenkjandi að flytja al- farið til Reykjavíkur. að eru fleiri að undirbúa framboð í Reykjavík en Reykjavíkurlist- inn. Sjálfstæðismenn eru byrjaðir að gera sig klára og eru komnir mis- langt. Nokkur ný nöfn hafa heyrst og veit Fréttablaðið um tvo nýliða sem sagðir eru vera að meta stöðuna, en það eru þeir Gísli Marteinn Baldurs- son Kastljósstjórnandi og Birgir Ár- mannsson lögfræðingur. Þó litlar fréttir séu af framboðsmálum Sjálf- stæðismanna í Reykjavík er ekki þar með sagt að þar ríki ró og friður. Frekari frétta er að vænta og meðal annars um hverjir munu berjast um fyrsta sæti listans. Þar eru nefndir til borgarfulltrúarnir Inga Jóna Þórðardóttir og Júlíus Vífill Ingvars- son. Svo er að sjálfsögðu beðið eftir ákvörðun Björns Bjarnasonar. Mikil spenningur var vegna prófkjörs sjálfstæðismanna fyrir fjórum árum og þá komu margir nýir menn inn. Einn þeirra var Júlíus Vífill sem undirbýr atlögu að fyrsta sætinu. Af hverju felur hún sig v ekki undir rúmi eins og aðrir hundar?!

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.