Fréttablaðið - 30.04.2001, Page 2
FRÉTTABLAÐIÐ
KIÖRKASSINN
SÓLVEIG
PÉTURSDÓTTIR
Tveir af hverjum þrem-
ur netverjum vilja þyn-
gri refsingar við fíkni-
efnabrotum.
Á að þyngja refsingar
við fíkniefnabrotum?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
Spurning dagsins í dag:
Er góðæri undanfarinna ára
Davíð Oddsyni að þakka?
Farðu inn é vísi.is og segðu I
þfna skoðun I
flísy*
HERMAÐUR SYRGÐUR
Ættingjar Robert Petrovski í kirkju í gær
Hermenn létu lífið í
Makedóníu
Arásin fordæmd
skopie. Brussel (AP> Atlantshafsbanda-
lagið (NATO) og Evrópusambandið
(ESB) gagnrýndu í gær harðlega árás
skæruliða á öryggissveitir
makedóníska hersins. Átta hermenn
féllu í árásinni við landamæri
Kosovo á laugardag. Átökin voru þau
fyrstu í nokkrar vikur á landamær-
unum. Makedóníuher sendi liðstyrk
að landamærunum í gær. Skærulið-
arnir krefjast þess að ríkisstjórn
Makedóníu gefi Albönum búsettum í
Makedóníu meiri réttindi. Því hafa
stjórnvöld hafnað og enn sem komið
er njóta skæruliðar lítils stuðnings
meðal albanska þjóðarbrotsins. En
óttast er að átök haldi áfram og muni
jafnvel breiðast frekar út. ■
—♦—
Bjartsýni í háskóladeilu
Góður gangur
Samninganefndir háskólakennara
og ríkisins unnu sitt í hvoru lagi
mestan part gærdagsins. Mörg atriði
voru uppi á borðum nefndarmanna
og unnu þeir að því að koma vel und-
irbúnir til fundar. Ríkissáttasemjari
kallaði nefndarmenn á fund f gær-
kvöld en ekkert hefur komið fram
um hvort samningsaðilar nái saman.
Samkvæmt Geir Gunnarssyni
vararíkissáttasemjara er þó líklegra
aö nefndirnar nái saman nú eftir
mikla undirbúningsvinnu alla helg-
ina. Menn voru því bjartsýnir á að
deilan ieystist. ■
2
30. april 2001 IVIÁNUPAGUR
Verðmæti fyrir milljarða er hent í hafið á ári:
Ekki hægt að kenna
kvótanum um
KÖNNUN A BROTTKASTI
Nefnd undir forystu Gunnars I. Birgissonar alþingisimanns lét Gallup gera könnun á brott-
kasti þar sem fram kemur að um 15.000 tonnum af þorski og 5.000 tonnum af ýsu sé
hent hér við land árlega.
og vitum hversu alvarlegt þetta er.“ Auk skoðanakönnunarinnar birti
Kemur til greina að sjómenn geti ráðherra niðurstöðu brottkastnefnd-
landað meðaflanum? ar. Þar kemur meðal annars fram að
„Það kemur allt til greina sem á árinu 1997 er talið að sjómenn á
minnkar brottkast svo fremur að við dragnótabátum hafi hent í sjóinn sex
náum öðrum markmiðum fiskveiði- af hverjum tíu botnfiskum sem þeir
stjórnunarinnar. Ég útiloka því ekki drógu.
neftt- sme@frettabladis.is
FUNDUR REYKVÍSKRA SJÓMANNA
„ískalt mat mitt er að það sé beðið eftir lögum og sú staðreynd að það er ekkert að gerast eflir mig í þeirri trú," segir formaður Sjó-
mannafélags Reykjavíkur.
Sjávarútvegsráðherra segir deilendur verða að ljúka sjómannaverkfallinu:
Ráðherra segist
ekki undirbúa lög
brottkast „Ef takmarkanir eru á veiði
er freisting til að velja úr það sem er
verðmætast. Það kemur kvótakerf-
inu í sjálfu sér ekkert við. Kerfi sem
takmarkar veiðar getur haft þessi
áhrif. Nánast allir þeir sjávarútvegs-
ráöherrar, sem ég tala við, tala um
brottkast sem vandamál - þó svo fisk-
veiðistjórnarkerfin séu mismun-
andi,“ sagði Árni Mathisen sjávarút-
vegsráðherra þegar hann var inntur
eftir hvort hið mikla brottkast sem er
á íslandsmiðum megi ekki skýra með
kvótakerfinu.
SJómannaverkfall „Það er engin leið að
ég afsali mér rétti um lagasetningu,
hvorki í þessu máli né öðru. Aðalatrið-
ið er að við viijum ekki losa samnings-
aðilana undan þeirri ábyrgð að ná
samningum og niðurstöðu. Það er
þeirra verkefni en ekki okkar,“ sagði
Árni Mathiesen sjávarútvegsráð-
herra.
í gær voru deilendur boðaðir í
Karphúsið þar sem þeir sátu í tvo tíma
án þess að ræðast við. Annar fundur
verður í dag. Lítið virðist þokast í
samningaviðræðum sjómanna og út-
vegsmanna og í ljósi þess var ráðherr-
Samkvæmt skoðanakönnun sem
Gallup vann fyrir sjávarútvegsráðu-
neytið er fiski hent í hafið í stórum
stíl og er verðmæti þess afla um
fimm milljarðar á ári. Nánast allir
sjómenn kannast við brottkast á
fiski. Um 90 prósent sjómannanna
sögðust hafa stundað brottkast vegna
verðmætis, þröngrar kvótastöðu eða
hversu hátt verð væri á leigukvóta.
„Það skiptir ekki máli hvort þetta
er meira eða minna en ég átti von.
Það sem skiptir máli er að við getum
sagt að við höfum náð utan um þetta
ann spurður hvort ríkisstjórnin væri
byrjuð að undirbúa lagasetningu.
„Nei, það höfum við ekki gert.
Samningsaðilarnir hafa nægan tíma
til að semja. Það eru engin lög í undir-
búningi."
Fjölmennur fundur reykvískra
sjómanna var á laugardag. Þar kom
fram að flestir fundarmenn óttast að
lagasetning sé' yfirvofandi. Jónas
Garðarsson, formaður Sjómannafé-
lags Reykjavíkur, segir að útvegs-
menn fáist ekki til að ræða eitt einasta
atriði. „Ef þeir ætluðu aó semja við
okkur væru þeir að takast á við okkur
um einstök atriði, svo er ekki,“ sagði
Jónas.
„Staðreyndin er sú að forystumenn
sjómanna virðast óttast að þeir nái
minna fram með samningum en þeir
gætu hugsanlega fengið með laga-
setningu. Ef það væri ekki myndu
þeir gefa eitthvað eftir af sínum
ströngustu kröfum. Það eru allir hætt-
ir að hlusta á að við séum að bíða eft-
ir lögum. Við þurfum að semja við
okkur ágætu starfsmenn," sagði Frið-
rik J. Arngrímsson framkvæmda-
stjóri LÍÚ.
sme@frettabladis.is
VALDAMENN TAKAST í HENDUR
Meðan Kínverjar og Bandaríkjamenn deila
takast valdsmenn í Moskvu og Peking í
hendur og bæta samskiptí sín.
Samskipti Rússlands og
Kína styrkjast:
Tang Jiaxuan
hittir Pútín
moskva. ap. Forseti Rússlands, Vla-
dimir Pútín, bauð í gærmorgun utan-
ríkisráðherra Kína, Tang Jiaxuan,
velkominn til Rússlands, en fundur
þeirra var liður í að styrkja böndin á
milli Moskvu og Peking. Tang var í
Moskvu vegna utanríkisráðherra-
fundar Rússlands, Kína og þriggja
annarra Asíuríkja.
Tang skilaði Pútín kveðjum frá Ji-
ang Zemin, forseta Kína, og staðfesti
boð Pútíns til Sjanghæ í júní næst-
komandi þar sem hann mun ræða við
forsetann. Talið er víst að leiðtogarn-
ir muni meðal annars ræða hvernig
ríkin geti haldið áfram að byggja upp
mótvægi við vald Bandaríkjanna á
heimsvísu.
Pútín sagði við tilefnið að við-
skipti milli ríkjanna hefðu aukist um
40% á síðasta ári og numið um þrem-
ur milljörðum dollara. Samskipti
ríkjanna væri með besta móti um
þessar mundir og að „engin vanda-
mál“ væru í sjónmáli. ■
TYRKLAND
Bulent Ecevit, forsætisráðherra
Tyrklands, sagði í gær að Tyrkir
myndu finna fyrir slæmu efnahagsá-
standi áfram en að landið myndi ná
sér eftir kreppuna innan tíðar. Þetta
kom fram á þingi flokks forsætis-
ráðherra, Lýðræðisbandalagsins,
nokkrum dögum eftir að Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn tilkynnti að
samkomulag um tíu milljarða doll-
ara lán til Tyrklands væri nánast í
höfn. Sú yfirlýsing hafði jákvæð
áhrif á fjármálamarkaði í Tyrklandi
sem hafa verið í mikilli lægð síðan í
febrúar.
Islensk Auðlind
L æ k j a r t o r g i
Hafnarstræti 20. 2h
101 Reykjavík
www.audlind.is
íslensk Auðlind óskar landsmönnum og
starfsmönnum Fréttablaðsins til
hamingju með útgáfuna.
Megi framtíð beggja vera björt.
Fylgist með auglýsingum, frá okkur, hér á mánudögum.
Fyrirtækjasala I Fasteignasala I Leigumiðlun I Lögfræðiþjónusta
Þýskir stjórnmálamenn fagna tillögum Schröders
Vill ríkisstjórn Evrópu
Btriín (ap) Gerhard Schröder, kanslari
Þýskalands, hefur tekið hugmyndina
um ríkisstjórn Evrópu upp á arma
sína sögðu talsmenn flokks Jafnaðar-
manna, flokks Schröder í gær.
Talsmaður flokksins sagði í sam-
tali við vikuritið Der Spiegel að í drög-
unum sé lagt til að framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins (ESB)
verði breytt í ríkisstjórn og að Evr-
ópuþinginu verði gefið vald yfir sam-
eiginlegum fjárlögum ríkjanna 15
sem nú eru í ESB. Nær helmingur
fjárlaganna fer nú í styrki til landbún-
aðarins. Einnig er lagt til að sett verði
á fót önnur deild Evrópuþingsins þar
sem ráðherrar aðildarríkja myndu
sitja. Schröder leggur hins vegar til
að á sumum sviðum verði ákvörðunar-
vald fært frá Brussel ríkja eða héraða
í Evrópu.
Stefnumótun í Evrópumálum í
Þýskalandi hefur hingað til að mestu
verið í höndum Joschka Fischer, utan-
ríkisráðherra, sem einnig er hlynntur
því að ríkisstjórn Evrópu verði sett á
laggirnar. Þýskir stjórnmálamenn
fögnuðu tiliögum Schröders í gær. Á
Ítalíu hefur einnig verið víðtækur
stuðningur fyrir sterkara ESB en nú
er en Frakkar og sérstaklega Bretar
vilja fara hægar í sakirnar. Þeir kjósa
heldur bandalag sjálfstæðra ríkja en
evrópskt „ofurríki". ■
EKKI ERU ALLIR JAFN HRIFNIR AF ESB
Sænskir sósíalistar mótmæltu í gær hinu
„kapitaliska ESB" og Hvöttu til „þjóðlegrar
samstöðu" i Lundi i gær