Fréttablaðið - 30.04.2001, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 30.04.2001, Blaðsíða 8
FRÉTTABLAÐIÐ 30. april 2001 MÁNUPAGUR FRÉTTABLAÐIÐ Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjóri: Einar Karl Haraldsson Fréttastjóri: Pétur Gunnarsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavlk Aðalsími: 515 75 00 Sfmbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjórn@frettabladid.is Sfmbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf. Plötugerð: ÍP-prentþjónustan ehf. Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf. Dreifing: Póstflutningar ehf. Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf- uðborgatsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og (gagnabönkum án endurgjalds. BREF TIL UMHVERFIRÁÐHERRA TÓMAS GUNNARSSON Telur almenníng greiða tap á orkusölu til stóriðju Tap á orkusölu Tómas Gunnarsson lögfræðingur skrifar: „Viröulegi ráðherra Um þriggja áratuga skeiö hefur raforkusala opinberra aðila, einkum Landsvirkjunar, til stóriðjuvera, einkum álvera, verið allgildur þáttur í atvinnulífi landsmanna. Hefur hundruðum milljarða að núvirði ver- ið varið tii þessa reksturs og ætíð hefur Alþingi sett sérstök lög sem heimilað hafa fram- kvæmdir. Alt frá því um 1990 hef ég alloft sem áhugamaður um náttúruvernd og stjórnarhætti leitað eftir upplýsingum hjá opinberum aðil- um um rekstrarleg- ar forsendur orku- sölunnar, það er kostnaðarverð og söluverð orkunnar, sem um ræðir. Einnig leitað eftir opinberum gögn- um um lögmæti orkusölunnar og þeirra aðgerða sem stóriðjunni fylg- ja, svo sem lögmæti gagnvart alþjóð- legum skuldbindingum sem íslend- ingar hafa tekist á hendur til að tak- marka mengun andrúmslofts og sjáv- ar. Jafnframt gögnum um lögmæti þess að ívilna einstökum aðilum, í þessum tilvikum erlendum, gagnvart íslenskum lögum um skatta, tolla og mengunarmál og í reynd setja aðra rekstraraðila hér á landi skör lægra en þessa erlendu stóriðjurekendur. Þá hefur borið við að í löggjöf um stóriðjumál hafa verið sett sérá- kvæði um erlenda gerðardóma til þess að skera úr ágreiningi. Jafnrétt- isákvæði stjórnarskrár ættu hér að vera í brennipunkti. Hefði ég fengið efnisleg svör um framanritað væri þetta bréf óþarft, Eru hér því áréttaðar óskir um framangreind opinber gögn. Ég vil ekki leyna þig, virðulegi ráðherra, því sem ég tel mig hafa sagt áður, að ástæða þessara óska minna eru þær, að mér virðist á gögn- um manna sem um þetta hafa fjallað opinberlega, að tap hafi verið á orku- sölunni, sem almennir orkukaupend- ur hafa þurft að greiða, og mér sem lögfræðingi virðist að orkusalan feli í sér stórfelld lögbrot. Er því fróðlegt að fá gögn um annað, ef þau eru til.“B Ekki hegningarlög LEiÐRÉrriNG Rangt var í myndatexta á forsíðu í blaðinu á föstudag að verið væri að breyta hegningarlögum svo að dómsmálaráðherra gæti ákveðið endurupptöku sakamála. Um er að ræða breytingu á lögum um meðferð opinberra mála, þ.e. lögunum sem lúta að málsmeðferð í réttarkerfinu en ekki refsilöggjöfinni. ■ Islandsflug á Gjögur leiðwétting f frétt sem birtist í Frétta- blaðinu sl. þriðjudag var sagt frá stærstu flugvél sem lent hafði á Gjögri. Þar kom fram að Flugfélag íslands hefði tekið við af Leiguflugi ísleifs Ottesen en átti að vera ís- landsflug. Beðist er velvirðingar á mistökunum. ■ 8 Málfar forsœtisráðherra er til fyrirmyndar Tíu ára valdaferill Davíðs Odds- sonar sem forsætisráðherra er sannarlega verðugt rannsóknar- og umhugsunarefni. Enginn efast um að agavald hans og vígfimi hafa ver- ið burðarásarnir í sterkri stöðu Sjálfstæðisflokksins á miðju ís- lenskra stjórnmála. Ekki verður um þá hlið fjallað hér en vert er að vekja athygli á því, sem margir virða við ráðherrann, að hann talar að öllum jafnaði skýra og góða ís- lensku. Auðvitað ætti það ekki að vera tiltökumál, en leggið það á ykkur að hlusta á þing- menn upp og ofan og bera málfar þeirra saman við tungutak forsætis- —*— „Skrattinn er óskemmtilegt veggskraut"- Húsavík 23. mars sl. ráðherra. Margir þeirra eru svo óör- uggir að þeir hafa hver upp eftir öðrum fastar klisjur úr þingsölum, og enduróma sérfræðimál úr skýrsl- um og embættismannatextum. Forsætisráðherra kemst ekki hjá því að lesa upp texta um ýmis sér- fræðileg mál sem að mestu leyti eru samdir af öðrum. En það er greini- legt að hann setur sitt mark á þá og gerir sér far um að málið sé eins þjált og kostur er þótt efnið sé tyrf- ið. Hann er snjall tækifærisræðu- maður en pólitísk innlegg hans eru hvorki uppskrúfuð né ofhlaðin hnyttiyrðum sem eiga að vera eftir- minnileg. Ýmis tilsvör festast þó í minni: „Svona gera menn ekki“, þ.e.a.s. að skattleggja blaðbera. Hann segir einfaldlega það sem hon- um býr í brjósti á ljósan og vafn- Mál.manm EINAR KARL HARALDSSON ■ gluRgar I ræður Davfðs Oddssonar ingalausan hátt, laust við klisjur og orðaleppa. Það er einungis þegar ráðherrann snöggreiðist sem hann á til að missa út úr sér ógætileg orð, sem hann bakkar ekki með. Að við- urkenna mistök er ekki til í póli- tískri lífsbók Davíðs. Hann hefur hlíft okkur við lausavísum, en birt nokkra einfalda sálma í staðinn. Og óbilandi bjartsýni hans fer í taug- arnar á andstæðingum. Áttunda febrúar sl. segir hann að okkar hlut- verk sé að búa þannig í haginn fyrir nýja aldamótakynslóð að hún geti síðar litið hróðug til baka og sagt: „Þeim gömlu þótti tuttugasta öldin harla góð, en sú tuttugasta og fyrsta stakk þá tuttugustu hreinlega af.“ ■ ‘ ' - M Salome Þorkelsdóttir um Davíð Oddsson Afskaplega samningslipur viphorf Salóme Þorkelsdóttir hafði verið þingmaður Sjálfstæðisflokksins um skeið þegar Davíð Oddsson var fyrst kjörinn á þing. Hún var forseti Alþingis fyrsta kjörtímabilið sem þingið starfaði í einni deild. Salóme segist ekki minnast þess að miklar breytingar hafi orðið á starfi þingflokks Sjálf- stæðisflokksins við það að Davíð tók sæti á þingi sem for- maður flokksins og forsætisráðherra. „Það var nýtt að fá inn nýjan formann flokksins inn í þing- ið. Hann hafði sína reynslu úr borgar- stjórninni en ég __^____ minnist þess ekki að hafa orðið vör við miklar breytingar. Það hafa verið mikil viðbrigði fyrir hann að koma inn í þingið sem forsætisráðherra og for- ystumaður í ríkisstjórn eftir að hafa aldrei setið á þingi áður.“ Aðspurð hvort henni hafi þótt UMMÆLI SAM- STARFSMANNS Sterkur leiðtogi og góður stjórn- andi sem áttaði sig fljótt á munin- um á Alþingi og borgarstjórn. verða mikil breyting á starfsháttum Davíðs frá því hann settist fyrst á þing til dagsins í dag segir Salóme að sér hafi þótt verða svolítil breyting á störfum Davíðs fyrsta kjörtímabilinu. „Það eru náttúrulega aðrir stjórnar- hættir á þingi en í borgarstjórn. Hann lagaði sig mjög fljótt og vel að stjórn- arfarinu í þinginu og var fljótur að átta sig á því hver munurinn var á Al- þingi og í borgarstjórn." „Hann er mjög sterkur ieiðtogi," segir Salóme um formann sinn og fyrrum samstarfsmann. „Það er eng- inn hávaði í honum, það er svo langt í frá. Þegar ég hugsa til baka finnst mér þetta hafa gengið mjög rólega og vel fyrir sig. Hann er góður stjórn- andi en gerir það ekki með neinni hörku eða hávaða." Hún segir það sína reynslu að Davíð hafi farist vel úr hendi að ná samkomulagi við stjórnar- andstöðu þegar upp hafi komið erfið tímabil á álagstímum í þinginu. „Þá þarf oft að semja við stjórnarandstöð- una um hvernig eigi að komast áfram með málin. Mér fannst honum farnast það mjög vel. Mér fannst hann afskap- lega samningslipur og það kannski kemur mörgum á óvart.“ ■ Steingrímur Hermannsson um Davíð Oddsson Er mjög einráður í Sjálfstæðisfokknum vidhorf Steingrímur Hermannsson, naut álíka stöðu á níunda áratugnum og Davíð Oddsson hefur notið und- anfarinn áratug. Hann var forsætis- ráðherra um sjö ára skeið, fyrst þeg- ar hann leiddi stjórn Framsóknar- flokks og Sjálf- stæðisflokks og síð- ar þegar hann leid- di vinstristjórn með Alþýðubanda- lagi, Alþýðuflokki og seinna Borgara- flokki. „Ég held að Dav- íð hafi vaxið mjög í starfi,“ segir Stein- grímur. „Eins og ég sagði f ævisögu minni þótti mér hann vera dálítið óöruggur fyrst þeg- ar hann kom á þing. Hann hafði þá ekki —»— þann bakhjarl í þingflokki Sjálfstæðis- flokksins sem hann hefur núna. Það hefur gjörbreyst og hann er mjög einráður þar.“ Steingrímur segir að þrátt fyrir UMMÆLI FYRRUM FOR- SÆTISRÁÐ- HERRA (fyrstu hafði Dav- fð ekki þann bak- hjarl í þingflokki Sjálfstæðislfokks- ins sem hann hefur nú. að báðir hafi þeir setið lengi á stóli forsætisráðherra sé sennilega erfitt að bera hann og Davíð saman. „Við erum mjög ólíkir menn. Ég taldi ákaflega mikilvægt að vinna með mörgum og hlusta á marga. Heyra skoðanir sem flestra. Ég veit ekki hvort Davíð stundar það svo mikið.“ Þetta nána samband við almenn- ing segir Steingrímur að sé eitt af því sem hann telji stjórnmálamann þurfa á að halda til að verða farsæll forsætisráðherra. Steingrímur segir að í svo litlu landi sem íslandi þar sem stéttaskipting sé lítil og menn góðir vinir og kollegar sé mikilvægt að menn séu í góðu sambandi við fólk. í slíku þjóðfélagi „þarf að mínu mati forsætisráðherra að vera mjög alþýðlegur“, segir Steingrímur. „Það tel ég vera mikinn kost. Hann þarf vitanlega sjálfur að dæma það sem honum er sagt og það sem hann heyrir. Sem betur fer getur forsætisráð- herra hér verið óvarinn af f jölda líf- varða og blandast fólkinu. Þannig vil ég sjá þetta vera áfram í okkar þjóð- félagi.“ ■ IorðréttI Auðlindagjöld til lækkunar tekjuskatta „Meginreglan á alltaf að vera að gjald verði greitt fyrir nýtingu allra auðlinda sem eru sameign þjóðarinn- ar, í sjónum, í orkuframleiðslu, og fyr- ir fjarskiptarásir. Ný skýrsla OECD tekur í einu og öllu undir röksemdir Samfylkingarinnar fyrir upptöku auð- lindagjalds Okkar skattastefna á að byggja á því að nota svigrúmið sem auðlinda- gjöld gefur til að bæta velferðarkerf- ið, til dæmis kosta félagslegar fjár- festingar í menntun. En til lengri tíma litið eigum við ekki að hika við að stef- na að því að nota auðlindagjöld til að draga úr tekjusköttum einstaklinga. Það kemur meðal annars barnafólki og millitekjuhópum til góða, einmitt þeim hópum sem alltaf verða útundan þegar skattkerfinu er breytt. Við eigum sérstaklega að vinna að því að bæta skattaumhverfið hjá litl- um og meðalstórum fyrirtækum. Það gæti auðveldað mjúka lendingu úr því háskaflugi sem ríkisstjórnin hef- ur stefnt atvinnulífinu í. íslendingar liggja eftir f þeim geira atvinnulífsins sem kenndur er við nýja hagkerfið. Okkur vantar hugvit í framleiðsluna sem birtist í því að framleiðni hjá okkur er lítil og fer minnkandi og í núverandi stöðu hagsveiflunnar kreppir að litlu þekk- ingarfyrirtækjunum. Við eigum því að leggja til tafarlausar skattalækk- anir handa litlum og meðalstórum fyrirtækjum í þekkingariðnaði, og tvinna þannig saman skattkerfi og menntakerfi samfélagsins til að gefa hugvitsiðnaði framtíðarinnar byr undir vængi.“ Össur Skarphéðinsson í ræðu á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar 28. apríl 2001

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.