Fréttablaðið - 30.04.2001, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 30. apríl 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
n
Búist við því að þing ávíti Wahid í dag
Fjöldasamkoma stuðn-
ingsmanna í Djakarta
diakarta. ap 30.000 stuðningsmenn
Abdurrahman Wahid, forseta
Indónesíu, komu saman til bæna-
stundar í Djakarta, höfuðborg
Indónesíu, í gær. Samkoman fór að
mestu leyti friðsamlega fram. Búist
er við því að þing Indónesíu sam-
þykki vítur á forsetann í dag, fyrir
meintan fjárdrátt og misferli. Vít-
urnar munu opna leið að því að Wa-
hid verði sviptur embætti sínu.
Að sögn lögreglu særðust a.m.k.
sjö manns þegar tvær sprengjur
sprungu með skömmu millibili rétt
fyrir utan svæðið þar sem stuðn-
ingsmennirnir komu saman. Skipu-
leggjendur samkomunnar höfðu bú-
ist við allt að 150.000 manns, og voru
10.000 lögreglumenn í viðbragðs-
stöðu, ef atburðurinn skyldi fara úr
böndunum.
Fyrr um daginn hvatti Wahid
stuðningsmenn sína til að grípa ekki
til ofbeldis. í tilfinningaþrunginni
ræðu vitnaði hann í Kóraninn og
sakaði andstæðinga sína um að
reyna að koma honum frá völdum
með ólöglegum hætti. Wahid hefur
hafnað því að nokkuð sé hæft í
ákærum á hendur honum. ■
FJÖLDAMÓTMÆLI
Meðlimur í Banser, herdeild Nahdlatul Umlama, stærsta flokki músiima í Indósesíu
og flokki Wahid róar annan stuðningsmann flokksins.
INNLENT
Nemendafélag Verslunarskólans
gaf Nemendafélagi Menntaskól-
ans í Hamrahlíð 10 krónur fyrir
hvern þeirar 282 hringja sem Birgir
ísleifur Gunnarsson, formaður MH-
inga hljóp í kringum skólahúsið í
síðustu viku. í fréttatilkynningu frá
Nemendafélagi Verslunarskólans
segir að um 3 milljóna hagnaður hafi
verið af rekstri félagsins og hafi
Verslingar því ákveðið að koma til
móts við MH-inga, sem hafi tapað á
rekstri síns félags.
Hálfdan Auðunsson, bóndi á Ytra-
Seljalandi, Vestur-Eyjafjalla-
hreppi, er 90 ára í dag. í tilefni af-
mælisins tekur hann á móti gestum í
félagsheimilinu Heimalandi í sinni
sveit milli kl. 19-23.
SAMKEPPNISSTAÐA
SPARISJÓÐA
Stærri sparisjóðir eru líklegri til
að rjúfa samstarf sparisjóða ef
það styrkir stöðu þeirra.
Límið í samstarfi sparisjóðanna
veikist verði frumvarpið að lögum.
stærstur og þar hef-
ur Guðmundur
Hauksson alla
þræði í hendi sér.
SPRON er stærsti
eigandinn í Kaup-
þingi og Sparisjóð-
ur Keflavíkur hefur
haldið öllum sínum
hlut í því félagi þeg-
ar aðrir hafa selt.
SPRON og Spari-
sjóður Keflavíkur
spila því saman í
þessu tafli og hefur
Sparisjóður Kópa-
vogs fylgt þeim eft-
ir.
Stjórnendur Sparisjóðs vélstjóra
og Hafnarfjarðar hafa ekki lýst yfir
áhuga á að breyta rekstrarforminu.
„Ég sé ekki þörf á að sparisjóðirnir
breyti sér í hlutafélög," segir Þór
Gunnarsson, sparisjóðsstjóri í Hafn-
arfirði. Sömu sögu er að segja frá
Norðfirði en Sveinn Árnason, spari-
sjóðsstjóri þar, segir ekkert uppi á
borðinu sem gerir ráð fyrir að breyta
rekstri sjóðsins í hlutafélag.
Sparisjóður Keflavíkur og
Reykjavíkur hafa verið nokkuð sam-
PÓR
GUNNARSSON
Sér ekki þörfina
fyrir að spari-
sjóðimir breyti
rekstri sínum í
hlutafélög.
Sala SPH í Kaup-
þingi hefur styrkt
eigín fjár stöðu
sjóðsins.
Ljusi u! ao spansjoossijorar nara
mikil áhrif á stefnu síns sparisjóðs.
Áherslur sparisjóðanna endurspegl-
ast mikið í gegnum þær persónur
sem stjórna þeim.
Kaupþingsarmur:
Þeir aðilar sem eru hliðhollir breyting-
um
Guðmundur Hauksson,
Sp. Reykjavíkur
Geirmundur Kristinsson,
Sp. Keflavíkur
Halldór J. Árnason, Sp. Kópavogs
Gísli Kjartansson, Sp. Mýrarsýslu
Eiríkur Finnsson, Sp. Vestfjarðar
Sparisjóðsmennirnir:
Þeir sem eru vantrúaðir á breytingar
Þór Gunnarsson, Sp. Hafnarfjarðar
Haligrímur Jónsson, Sp. vélstjóra
Sveinn Árnason, Sp. Norðfjarðar
Sparisjóður Reykjavíkur og Keflavíkur
skipta með sér formennsku í tveimur
stærstu dótturfélögum sparisjóðanna,
sem máli skipta eftir breytíngu á
rekstrarformi sparisjóðanna; Kaup-
þingi og Sparisjóðabankanum.
Geirmundur Kristinsson er formaður
bankastjórnar Sparisjóðabankans og
situr í stjórn Kaupþings. Guðmundur
Hauksson er formaður stjórnar Kaup-
þings og situr í stjórn Sparisjóðabank-
stíga undanfarið og
hafa bæði Geir-
mundur Kristins-
son og Guðmundur
Hauksson lýst því
yfir að þeir íhugi
breytingar á rek-
stri sparisjóðsins
að fengnu sam-
þykki stofnfjáreig-
enda.
Eiríkur Finns-
son, hjá Sparisjóði
Önundarf jarðar,
segir það sína
bjargföstu skoðun
að sparisjóðirnir
mun ganga hluta-
fjárleið í framtíðinni hver á fætur
öði'um. „Gamla stofnfjárformið er
barn síns tíma og er að líða undir
lok.“ Það er því ekki bundið við höf-
uðborgarsvæðið annars vegar og
landsbyggðina hins vegar hvora
leiðina skuli fara. Frekar virðist
þetta skýrast af mönnum, samstarfi
þeirra og afstöðu til breytinganna.
Einstaka sparisjóðsstjórar og spari-
sjóðir geta haft mikið að segja
hvernig samstarfið fer.
bjorgvin@frettabladid.is
GEIRMUNDUR
KRISTINSSON
Tók við for-
mennsku í banka-
ráði Sparisjóða-
bankans í stað
Hallgríms Jóns-
sonar í Sparisjóða
vélstjóra og situr í
stjórn Kaupþings.
Mýs verða
ekki háðar
kókaíni
Vísindamenn minnkuðu
áhrif efnisins á mýsnar.
fíkniefni Vísindamönnum hefur nú
tekist að koma í veg fyrir kókaín-
vímu hjá músum. Gefa.niðurstöðurn-
ar von um að hægt verði að útbúa lyf
sem virkar eins á menn.
„Niðurstöðurnar eni mikilvægar
vegna þess að engin góð meðferðar-
úrræði eru til fyrir kókaínsjúklinga,"
sagði Dr. George Uhl, yfirmaður
rannsókarinnai'.
Vísindamönnunum tókst að hafa
áhrif á efnaskipti serótóníns og
dópamíns í heila nagdýranna og
minnkuðu þannig áhrif fíkniefnisins.
Mýsnar urðu ekki háðar kókaíninu og
sóttu ekki sérstaklega í þann hluta
búrs slns sem geymdi efnið. ■
DAGUR I VINNUNNl
Mýsnar hjálpa til við rannsókn á áhrifum
fíkniefna.
Fyrirfór sér
eftir dóm
Dæmdur fyrir útbreiðslu HIV
dóivisiviál Danskur listmálari, John
Lindsay Little, sem sl. föstudag var
dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir að
hafa vísvitandi smitað bólfélaga sína
með HlV-veirunni, fyrirfór sér að-
faranótt laugardags að sögn danska
dagblaðsins Berlingske Tidende.
Little fyrirfór sér í fangelsi í Svíþjóð
en þar féll dómurinn í málinu. Hann
er fæddur í Englandi en uppalinn í
Danmörku, þar sem unnusta hans og
sonur búa. Little var sakfelldur fyrir
að hafa stundað óábyrgt kynlíf með
fjölda sænskra kvenna, þrátt fyrir að
hann hafi í mörg ár vitað að hann var
smitaður af IlIV-veirunni. Tvær
kvennanna smituðust af manninum.
Margoft hefur verið lögð fram kæra
á hendur Little í Danmörku en dönsk
löggjöf nær ekki yfir athæfi hans en
sænsk gerir það hins vegar. ■
Veiðifélag Elliðavatns
Stangaveiði á vatnasvæði Elliðavatns
hefst 1 maí.
Veiðileyfi eru seld á Vatnsenda og
Elliðavatni.
Á sömu stöðum geta félagar úr Sjálfsbjörgu,
unglingar (innan 16 ára aldurs)
og ellilífeyrisþegar úr Reykjavík og Kópavogi,
fengið afhent veiðileyfi án greiðslu.
Veíðifélag Elliðavatns
BQRGARSKIPULAG REYKJAVIKUR
BORGARTÚN 3-105 REYKJAVÍK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um afgreiðslu
borgarráðs á auglýstri deili-
skipulagstillögu fyrir lóðir við
Skógarhlíð og Eskihlíð 24 - 28.
( samræmi við 1. mgr. 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er
hér með auglýst afgreiðsla borgarráðs Reykjavíkur á
tillögu að deiliskipulagí lóða við Skógarhlíð og
Eskihlíö 24 - 28.
Þann 13. febrúar sl. samþykkti borgarráð Reykjavíkur
að auglýsa deiliskipulag fyrir lóðir við Skógarhlíð og
lóðirnar nr. 24-28 við Eskihlíð. Deiliskipulagstillagan
var augiýst til kynningar frá 16. febrúar til 16. mars
með athugasemdafresti til 30. mars 2001. Sex
athugasemdabréf bárust við tillöguna innan tilskilins
frests. Tillagan var samþykkt í borgarráði Reykjavíkur
þann 10. apríl sl. með óverulegum breytingum.
Umsögn um athugasemdirnar hefur verið send þeim
er athugasemdir gerðu og þeim tilkynnt um afgreiðslu
borgarráðs. Skipulagsstofnun var sent deiliskipulagið
til skoðunar og gerði stofnunin ekki athugasemd við
að auglýsing um gildistöku þess yrði birt í B-deild
Stjórnartíðinda.
Nánari upplýsingar eða gögn um framangreinda
deiliskipulagsáætlun og afgreiðslu hennar er hægt að
nálgast á skrifstofu Borgarskipulags Reykjavíkur að
Borgartúni 3, Reykjavík.
Borgarskipulag Reykjavíkur.