Fréttablaðið - 30.04.2001, Qupperneq 17
T
MÁNUPAGUR 30. apríl 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
17
iniiiM.iniimmim.minimiiiiimioXfi
KRINGLU
J11 p t I A\V
losi rlt I II NNI N
ENEMY^GAŒSl
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 vrr226
jPflY H FORWARD Id 5.4Q, 8 og lQ.2o|[YjI|
TRAFFIC
M. 5,8 og 10.4Ö|goí|
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 vrr 22«
[SAVETHE LflST DflNCE 3.40,5.50.8 og 10.151 iYisj
ImISSCONCENIALITY kl. 5.45,8 og IQ.lsjr
| NÝl STILUNN KEISflRANS (isl. tal) M.3.5Ö|gÍI|
[T02 DflLIVIflTÍUHUNDUR (isl tal) M. ms||
LAUCAVECI 94. SIMI 551 6500
falls
Sýnd kl. 6, 8, og 10
[THE WEDDING PLANNER kl. 5.50,8 og 10.10
HVERFISCOTU SIMI 551 9000
www.skifan.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10
[men of honör
M. 5.30, o Og 10.30
CROUCHING TICER...
M. 8 og 10.30
ALMOST FAMOUS
[WHflT WOMÉN WANT
M. 5.45 og 10.15
M.8
EMPERORS NEW GROOVE
M.6
lindar
f sumar munu svo streyma hing-
að til lands fjöldinn allur af mis-
frægu fólki úr tónlistargeiranum
s.s. Blonde Redhead, Fuck, Sigur-
rós, Alex Gifford úr Propellerheads
og Will Oldham, sem hélt frábæra
tónleika hér á landi fyrir stuttu.
Einnig munu íslenskar hljómsveitir
koma fram en sú sveit sem á senni-
lega eftir að laða hvað mest að er
hinir ógleymanlegu Hljómar. Hver
veit nema landinn fái að upplifa aft-
ur gömlu góðu tímana með gömlu
góðu hetjunum. ■
verulegt líf. Nicolai Lie Kaas leikur
þennan bróður og hefur fengið gríð-
arlega góða dóma fyrir leik sinn.
Irska hljómsveitin Ash sem heim-
sótti eitt sinn ísland og er þekkt
fyrir sitt harða rokk hefur nú ákveð-
ið að taka þátt í
Eurovision skemmt-
un á skemmtistaðn-
um G-A-Y í London
þann 12. maí n.k.
sama dag og
söngvakeppnin sjálf
fer fram. A tónleik-
unum munu þeir
einungis spila göm-
ul Abba lög s.s. Waterloo, Dancing
Queen, Money Money Money, Fern-
ando og fleiri klassíska slagara.
Abba sigraði í Eurovision árið 1974
og eftir það lá leiðin bara uppá við.
Litlu skosku lopapeysustrákarnir í
Mogwai halda áfram að stríða
söngvara hljómsveitarinnar Blur og
besta vini íslands,
Damon Albarn.
Fyrir nokkru létu
þeir útbúa boli sem
á var letrað „Blur
er skí**r.“ Nú hafa
þeir rætt um að út-
búa annarskonar
bol sem á stendur
„Gorillaz: Jafnvel
verri“. Hljómsveitin Gorillaz hefur
náð töluverðum vinsældum með lagi
sínu Clint Eastwood en þar er
Damon einmitt í aðalhlutverki.
Mogwai liðar eru samt ekki alveg
vissir um hvort bolirnir fari í fram-
leiðslu en guggni þeir á því hefur
tónlistarsíðan nme.com ákveðió að
hefja framleiðsla á þeim.
George Bush, forseti Bandaríkj-
anna, hefur óskað eftir að kynlíf
og ofbeldi í bíómyndum, sem sýndar
eru um borð í fiug-
vél forsetans, verið
klippt í burtu. Þetta
kom fram á breskri
vefsíðu, Ananova,
síðastliðinn þriðju-
dag. Ekki kom fram
í fréttinni hvaða lín-
ur hafa verið lagðar
varðandi klippingu
myndanna um borð. Þá sagði á
fréttavefnum að Clinton hefði ávallt
horft á allar bíómyndir óklipptar,
bæði um borð í flugvélinni og í
Hvíta húsinu, og það þrátt fyrir að
hann í stefnu sinni í fjölskyldumál-
um, fordæmdi harðlega allt sem
hugsanlega gæti kynt undir ofbeldi.
Loksins hefur þokkagyðjan Jenni-
fer Lopez ákveðið að leyfa al-
menningi að heyra hvaða tilfinning-
ar hún ber til Puff
Daddy. Lopez og
Puffy voru saman í
mörg ár en fyrr á
þessu ári slitnaði
upp úr hjá þeim. í
sjónvarpsþættinum
Access Hollywodd
sagðist stúlkan vera
farin að hanna sína
eigin tískulínu í samvinnu við Andy
Hillfiger's, bróður Tommy. Hún
þakkar fyrrum elskuhuga sínum
fyrir innblásturinn. „Puffy kenndi
mér hvernig á að klæða sig. Hann
gaf mér innblástur til að gera ýmis-
legt sem mig hafði dreymt um“ út-
skýrði hún í sjónvarpsþættinum.
Lopez sagðist hafa orðið fegin þegar
hann var sýknaður af ákæru um að
hafa tekið þátt í skotárás fyrir
tveimur árum. „Hann er virkilega
góð manneskja" sagði Lopez að lok-
um.
Myndir valdar á Cannes:
Nicole Kidman og Ewan
McGregor í opnunarmyndinni
Undirbúningur stendur nú sem
hæst fyrir kvikmyndahátíðina í
Cannes sem haldin verður dagana 7.
til 20. maí nk., en þær 23 kvikmynd-
ir sem sýndar verða á hátíðinni hafa
verið valdar. Bandaríkjamenn eiga
þar fimm kvikmyndir, Frakkar fjór-
ar, ítalir tvær og Japanir þrjár.
Bosníumenn eru nú í fyrsta sinn
meðal þeirra sem kynna framleiðslu
sína á hátíðinni en þeir mæta til
leiks með kvikmyndina No Man’s
Land, eftir Davis Tanovic. Tólf þjóð-
ir eiga kvikmyndir á hátíðinni en at-
hygli vekur að Bretar eru fjarri
góðu gamni í þetta sinn.
Breska leikkonan Charlotte
Ramping mun þó setja hátíðina
sem hefst 9. maí og kynna verð-
launahafa á lokaathöfninni 20.
maí.
Hátíðin verður opnuð með
áströlsku kvikmyndinni Moulin
Rouge, eftir Astralann Baz
Luhrmann, sem skartar leikurum
á borð við Nicole Kidman og Ewan
McGregor.
Bræðurnir Ethan og Joel Coen,
sem fóru heim með Gullpálmann
fyrir Barton Fink árið 1991, sýna í
ár The Man Who Wasn’t There
með Frances McDormand og Billy
Bob Thornton í aðalhlutverkum.
Þeir höfðu ekki erindi sem erfiði á
síðasta ári þegar mynd þeirra 0
Brother, Where Art Thou? fékk
ekki náð fyrir augum dómnefndar,
en sjarmörinn George Clooney,
sem fór með eitt hlutverka í mynd-
inni, átti hug og hjörtu áhorfenda
og hlaut síðar Golden Globe-verð-
launin fyrir hlutverkið.
Stjörnurnar munu að sjálf-
sögðu flykkjast á hátíðina og vitað
er að Catherine Deneuve, Antonio
Banderas, Gerard Debardieu,
John Malcovich og Melanie
Griffith verða meðlal gesta. ■
Carol hætt í Bráðavaktinni:
Hafnaði kostaboði
Leikkonan geðþekka Julianna
Marguiles sem hefur leikið hina vin-
sælu hjúkrunarkonu Carol Hat-
haway í Bráðavaktinni hafnaði boði
um gull og græna skóga sem hún átti
að fá fyrir að leika áfram í þáttun-
um. Ástæðurnar voru margar en
handrit þáttanna hafði mikið að
segja.
Marguiles segir þættina hafa
verið farna að snúast um dyr að opn-
ast og lokast og fólk að fara inn og út
um þessar dyr og heldur helst að
handritshöfundarnir hafi ekki al-
mennilega vitað hvað þeir ættu að
gera við allt þetta fólk.
Hin 33 ára gamla leikkona hafn-
aði boði um 2,5 milljarða króna fyrir
að halda áfram að leika yfirhjúkrun-
arkonuna Carol Hathaway. Síðan
hefur Marguiles bæði unnið í kvik-
myndum og á sviði og virðist una
hag sínum vel. ■
HÆTT EFTIR 13 ÞÁTTARAÐIR
Julianna Marguiles var ekki tilbúin til að
halda áfram að leika í Bráðavaktinní þrátt
fyrir kostaboð. Hér er hún að taka á móti
verðlaunum fyrir leik sinn í þáttunum í Los
Angeles 1999.
FRAMBOÐSFRESTUR
Ákveðið hefur verið aó viðhafa allsherjaratkvæóagreiðslu í
Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur við kjör fulltrúa á ársfund
Alþýðusambands íslands 2001. Kjörnir verða 40 fulltrúar og
jafnmargir til vara.
Framboðslistar ásamt meðmælum 100 fullgildra félagsmanna
VR þurfa aó hafa borist kjörstjórn á skrifstofu Verzlunarmanna-
félags Reykjavíkur, Húsi verslunarinnar fyrir kl. 12:00 á hádegi
mánudaginn 7. maí nk.
Kjörstjórn
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur