Fréttablaðið - 30.04.2001, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 30.04.2001, Blaðsíða 18
HVERJU MÆLIR ÞÚ MEÐ? Bergþór Pálsson Söngvari Ég mæli með þvi að opna öll skynfæri upp á gátt til að fylgjast með því hvað náttúran tekur stórkostlegum breytingum á hverjum degi nú þegar sumarið er að breiðast út. Það er mikils- vert að upplifa sterkt alla hluti í tilverunni, allt þetta sem er að gerast allt í kringum mann og er meira virði en allt sem kostar peninga. Það gleymist svo oft. Ailt í einu er sumarið komið og maður hefur ekki tekíð eftir því. Vorsýning Myndlistar- skóla Kópavogs: Yfir 300 verk á sýningunni vorsýning Myndlistarskóla Kópavogs verður haldin þriðjudaginn 1. maí og helgina 5. og 6. maí í húsnæði skólans að Fannborg 6, 3. hæð. Opið verður frá kl 13-17 alla dagana. Sýnd verða verk nemenda frá liðnum vetri en fjöldi verka er um þrjú hundruð. Nemendur í vetur voru um þrjú hundruð talsins í þrettán barna- og unglingadeildum og einnig í þrettán deildum fyrir fullorðna. Þeir voru á aldrinum frá 6-15 ára í yngri deildun- um og elstu nemendur í fullorðins- deildunum voru yfir sjötugu. Meðal þess sem kennt er og sýnt verður má nefna teiknum, módelteiknun, málun, portrettmálun, vatnslitamálun, leir- mótun. ■ Jón Gunnarsson í Hafnarborg: Sækir efnivið sinn í íslenskt landslag mvndlist Jón Gunnarsson, listmál- ari, hefur opnað sýningu á olíu- og vatnslitamyndum í Hafnarborg í Hafnarfirði. Jón er þekktur fyrir sjávarmyndir sínar þar sem hann sýnir störf við fiskveiðar og - vinnslu. Á undanförnum árum hefur Jón í auknum mæli sótt efnivið sinn í íslenskt landslag, ekki síst í uppland Hafnarfjarðar. Sýningin er opin milli kl. 11 og 17 alla daga nema þriðjudaga og lýkur 14. maí nk. ■ Urslit úr smásagna- samkeppni: íslendingar skrifa og skrifa smásögur íslendingar eru býsna dug- legir við að skrifa, og það má m.a. merkja á því að hvorki meira né minna en 350 smásögur bárust í smá- sagnasamkeppni Striksins. Úrslit samkeppninnar verða tilkynnt í dag við athöfn í Iðnó, en verðlaunín fyrir bestu smásöguna eru 250.000 krónur. Til keppninnar var efnt i tilefni af ár- safmæli vefútgáfu Striksins, en í dómnefndinni sátu þau Hrafn Jökuls- son ritstjóri, Brynhildur Þórarinsdótt- ir ritstjóri og Auður Jónsdóttir rithöf- undur. Mörg hundruð tilnefningar bárust auk þess í heimasíðukeppnina, og verða úrslit hennar jafnframt til- kynnt á mánudag. ■ 18 FRÉTTABLAÐIÐ 30. apríl 2001 MÁNUDAGUR Buena Vista Soc ial Glub Tónlistar- menn á áít- ræðisaldri tónleikar Kúbverska hljómsveitin Buena Vista Social Ciub heldur tón- leika í Laugardalshöll í kvöld og á morgun, þriðjudaginn l.maí. Hljóm- sveitin nýtur mikilla hylli víða um heim en listamennirnir eru flestir á áttræðis- og níræðisaldri. Vinsældir Buena Vista Social Club kviknuðu fyrir rúmum þremur árum þegar út kom samnefnd plata með þeim. Það var tónlistarmaðurinn Ry Cooder sem fyrst vakti athygli á hljómsveitinni og hefur skífan nú selst selst í milljónum eintaka. ■ MÁNUDACURINN 30. APRÍL FUNDIR_______________________________ 12.15 Valgerður Bjarnadóttir, félags- ráðgjafi og framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, fjallar um félags- ráðgjöf á nýrri öld í erindi sem hún flytur í dag og nefnir "Ráð- gjöf og þróunarstarf með lög og tölur í hendi - mikilvægi fé- lagsráðgjafar í jafnréttisstarfi 21 .aldarinnar." Málstofan verður haldin í fundarherbergi á 1. hæð í Odda og er hún opin öllu áhugafólki um þróun félagsráð- gjafar innan Háskólans sem utan. Kennarar og nemendur á 4. ári eru sérstaklega hvattir til að mæta. 12.15 í dag flytur Sóley S. Bender, lekt- or og doktorsnemi, fyrirlesturinn: Tíðni fæðinga, fóstur- eyðinga og þung- ana meðaí ís- lenskra unglings- stúlkna í aldar- fjórðung, borið saman við Norður- lönd. Málstofan er á vegum Rannsóknar- stofnunar í hjúkrunarfræði og verður haldin stofu 6 á 1. hæð í Eirbergi, Eiríksgötu 34 og er öll- um opin. 16.00 í dag verður málstofa um um- hverfisvænt umhverfí haldin í umhverfis- og byggingarverk- fræðiskor verkfræðideildar Há- skóla íslands í húsi verkfræði- deildar Hjarðarhaga 2-6, stofu 158. Fyrirlesarinn er Jón Krist- ínsson, arkitekt og prófessor í umhverfistækni við Tækniháskól- ann í Delft í Hollandi. Jón hefur fengið margar viðurkenningar, m.a. Konunglegu Shell vísinda- verðlaunin fyrir orkusparnað í byggingum og umhverfismálum árið 1998. Allir velkomnir. FERÐALÖG_____________________________ 19.00 Aukaferð verður farin í kvöld um fyrsta áfanga gönguleiðarinnar um Reykjavegínn, 10 ferða rað- göngu Útivistar um Reykja- nesskagann frá Reykjanesvita að Þingvöllum er hófst 22. apríl. Þetta er um 3 klst. ganga frá Reykjanesvita með ströndinni yfir að Stóru Sandvík. Nánari upplýs- ingar má finna á heimasíðu Úti- vistar: www.utivist.is. Brottför er frá BSÍ, en stansað verður við kirkjug. Hafnarfirði og Fitjum Njarðvíkum. TÓNLIST______________________________ 20.00 Kúbverska hljómsveitin Buena Vista Social Club heldur tónleika i Laugardalshöll í kvöld og á morgun, þriðjudaginn l.maí. Gerrit Schuil ráðinn listrænn stjórnandi Ýmis: Óþrjótandi möguleikar tónlist Á morgun og miðvikudag verða tónleikar í Tónlistarhúsinu Ými við Skógarhlíð þar sem Rann- veig Fríða Bragadóttir syngur, Gerrit Schuil leikur á píanó og Guðný Guð- mundsdóttir á víólu. Jafnframt verð- ur opið hús í Ými á morgun þar sem fjöldi þekktra tónlistarmanna kemur fram, þar á meðal Tríó Reykjavíkur og söngkonurnar Elín Ósk ðskars- dóttir og Signý Sæmundsdóttir. Gerrit Schuil hefur verið ráðinn ljstrænn stjórnandi Tónlistarhússins Ýmis, og það er hann sem hefur skipulagt þessa dagskrá til þess að kynna þá fjölmörgu kosti sem Ýmir hefur upp á að bjóða sem tónlistar- hús. Á efnisskrá tónleikanna verða margar af perlum tónbókmenntanna í frábærum flutningi. Þeir hefjast kl.20.30 báða dagana og miðaverð er krónur 1500. Aðgangur er hins vegar frír að opna húsinu sem haldið verð- ur á morgun, l.maí frá kl. 13.30 til 16.00. Óhætt er að segja að tímamót séu orðin í rekstri á Tónlistarhúsinu Ými með ráðningu Gerrits Schuil. Hann hefur aldeilis ekki setið auðum hönd- um, því hann er nú þegar búinn að skipuleggja dagskrá næsta vetrar. „Ég er búinn að setja saman heila tón- leikaröð frá september og fram í maí á næsta ári,“ segir Gerrit og horfir björtum augum til framtíðarinnar: „Nú get ég farið að skipuleggja vet- urinn 2002 til 2003.“ Húsið er í eigu Karlakórs Reykja- víkur og hentar vel til flutnings kammertónlistar. „Þetta er eina húsið í Reykjavík sem byggt er sérstaklega sem tónleikahús," segir Gerrit Schuil. Þótt stærri hljómsveitir kom- ist ekki fyrir í húsinu, eru möguleik- arnir engu að síður óþrjótandi. ■ NÝR LISTRÆNN STJÓRNANDI ÝMIS Fjöldi úrvals tónlistarmanna kemur fram á opnu húsi og tónleikum á morgun til þess að kynna Tónlistarhúsið Ými. Hljómsveitin nýtur mikilla hylli víða um heim en listamennirnir eru flestir á áttræðis- og níræðis- aldri. Vinsældir Buena Vista Soei- al Club kviknuðu fyrir rúmum þremur árum þegar út kom sam- nefnd plata með þeim. Það var tónlistarmaðurinn Ry Cooder sem unnið hefur þrekvirki í að vekja athygli á þessum tónlistar- mönnum sem einangruðust á Kúbu er Castro tók völdin. Breið- skífan hefur selst í milljónum eintaka og hiotið aragrúa verð- launa. 22.00 Á Kaffi Reykjavík ætla að mæta tónlistarmenn úr ýmsum áttum. Þetta eru hljómsveitirnar Jagúar, Húfa og Lúdó sextett. 22.30 hefst partý fyrir tónleikagesti Bu- ena Vista Socíal Club á Skugga- barnum. Leikin verður alvöru kúbönsk salsatónlist a\\a nóttina en það er dj. Margeir sér stjórnar því. Gyllti salurinn verður opinn til kl. 4. 23.00 Hljómsveitin Stuðmenn halda uppi fjörinu á Broadway í kvöld. MYNDLIST____________________________ Jón Gunnarsson, listmálari, hefur opnað sýningu á olíu- og vatnslita- myndum í Hafnarborg í Hafnarfirði. Jón er þekktur fyrir sjávarmyndir sínar þar sem hann sýnir störf við fisk- veiðar og - vinnslu. Á undanförnum árum hefur Jón í auknum mæli sótt efnivið sinn í íslenskt landslag, ekki síst í uppland Hafnarfjarðar. Sýningin er opin milli kl. 11 og 17 alla daga nema þriðjudaga og lýkur 14. maí nk. í Norræna húsinu sýna fimm myndlist- armenn frá Svíþjóð Rose-Marie Huuvh, Erik Holmstedt, Eva-Stina Sandling, Lena Ylipaa og Brita Wegl- in. Norðurbotn er á sömu norðlægu breiddargráðum og ísland og að flatar- máli helmingi stærra þó íbúar séu þar álíka margir og á íslandi. Sýningin stendur til 13. maí. í Stöðlakoti við Bókhlöðustíg hefur Kristján Jónsson opnað sína 6. einka- sýningu. Öll verkin á sýningunni eru unnin á þessu ári og sérstaklega með rými Stöðlakots í huga. Sýningin er opin alla virka daga nema mánudaga kl. 14-18 og lýkur 13. maí. Gunella sýnir olíumálverk í Galleri Fold, Rauðarárstíg. Sýning- in nefnist Kellur og er efniviðurinn ís- lenska bóndakonan úti í náttúrunni við leik og störf. Trúin á álfa og huldufólk kemur þar líka við sögu. Sýningin stendur til 6. maí. Höskuldur Skagfjörð hefur opnað myndlistarsýningu í Ráðhúsi Reykja- víkur. Höskuldur er sjálfmenntaður listamaður og málar aðallega akrýl- og pastelmyndir. Sýningin stendur til 2. maí. Jassballettskóli Báru 35 ára Fjölmennasta nemendasýn- ingin sem haldin hefur verið panssýning Jassballettskóli Báru fagnar 35 ára afmæli skólans með há- tíðarsýningu í Borgarleikhúsinu á morgun, 1. maí, kl. 14,16 og 18. Nem- endur sem taka þátt í sýningunni eru um 400 talsins og er þetta fjölmenn- asta nemendasýningin sem skólinn hefur haldið. Við opnun sýningarinnar verður dansverkið Þrá eftir Irmu Gunnars- dóttur flutt af yngri kennurum skól- ans en síðan munu nemendur taka við. Sýningunni er skipt í þrjú megin- þema: Regnboginn sem er verkefni 7- 12 ára nemenda, Salsa í flutningi 13- 20 nemenda og Show Jazz en þrír að- aldansarar eru í því verki þau Ásgeir Magnússon, Ásta Bærings og Ylfa Thordarson. Segja má að sýningin sé augnakonfekt því skólinn fékk Dóru Einarsdóttur, búningahönnuð, til lið- sinnis og var búningahönnun og ráð- gjöf í hennar höndum. Miðar verða seldir við innganginn í dag og á morgun. SHOW JAZZ ER HEITI Á EINU DANSVERKANNA Verkið fjallar um stórdansleik á fræg- asta næturklúbbi New York borgar. Tónlistin er frá stríðsárunum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.