Fréttablaðið - 21.06.2001, Side 1
FRETTABLAÐIÐ
41. tölublað - 1. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Fimmtudagurinn 21. júní 2001
FIMMTUDAGUR
Lengsti dagur
ársins
sólargangur Sumarsólstöður eru í
dag og lengsti dagur ársins. Sólris
var kl. 2.S4 í nótt og sólarlag verð-
ur kl. 24.05. Þetta er 10. vika sum-
ars og nýtt tungl á himni.
Kirkjudagar
á Jónsmessu
kirkian Presta-
stefna hefst í dag
í tengslum við
kirkjudaga, sem
haldnir verða um
helgina, með þátt-
töku þjóðkirkju-
safnaða hvaðan-
æva að af landinu.
VEÐRIÐ í DAG [
REYKJAVÍK Hæg suðlæg átt og
skýjað. Hiti 7 til 13 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
fsafjörður O 5-8 Skýjað Q10
Akureyri © 1-2 Léttskýjað Q 12
Egilsstaðir O 1-2 Léttskýjað Q 12
Vestmannaeyjar O 1-2 Skýjað O"
Sumarhátíð
leikskólabarna
börn Leikskólar
Kópavogs fara í
skrúðgöngu frá
Fannborg niður í
Hlíðagarð kl. 9.30.
Þar mun hópur
leikskólabarna
skemmta sér sam-
an ásamt starfs-
fólki.
Nýttlíf
tónleikar Hópur ungmenna, sem
kallast Lítiil heimur, heldur tón-
leika á Gauk á Stöng í kvöld kl. 22
til styrktar för sinni frá lífsgæða-
kapphlaupinu á íslandi.
Fylkir gegn KR
fótbolti Fylkir mætir KR í Frosta-
skjóli kl. 20. Þór Akureyri mun hins
vegar mæta Tindastóli á sínum
heimavelli kl. 20 í 1. deildinni.
KVÖLPIÐ I KVÖLP[
Tíu sinnum gjald-
þr ota á fj órum árum
Dæmi eru um menn sem hafa gert tíu fyrirtæki gjaldþrota á örfáum árum. Þessir menn eru nánast með prókúru
á ríkissjóðs, segir fjármálaráðuneytið. Ekkert því til fyrirstöðu að vanskilamenn stofni ný og ný fyrirtæki.
gialpprot „Ég hef séð menn sem hafa
tekið þátt í tíu félögum sem hafa
orðið gjaldþrota á fjögurra ára tíma-
bili,“ segir Reynir Grétarsson fram-
kvæmdastjóri Lánstrausts. „Engar
reglur eru hér á landi sem stöðva þá
sem stofna mörg hlutafélög sem síð-
an fara á hausinn. Víða í löndunum í
kringum okkur geta menn sem hafa
stýrt fleiri en tveimur hlutafélögum
sem hafa orðið gjaldþrota ekki
stofnað ný fyrirtæki. Hér er haldin
skrá um slíkt sem getur orðið til
þess að hlutafélög njóti ekki
trausts.“ í Þýskalandi er reglan sú
að taki menn þátt í því að reka tvö
fyrirtæki sem verða gjaldþrota fá
þeir ekki framar að taka þátt í at-
vinnurekstri. í Danmörku hins veg-
ar er slíkum aðilum meinað að fá
virðisaukaskattsnúmer.
Reynir segir að árangurslausum
fjárnámum sem eru undanfari gjald-
þrota hafi fjölgað mikið á síðustu
mánuðum. Hann óttast að fyrirtæki
séu að tapa verulegum fjárhæðum í
kröfum sem ekki fást greiddar. Slík
dómínóáhrif eru vel þekkt og geta
orðið til þess að kröfuhafar lendi í
vandræðum. Reynir segist hafa
áhyggjur af því að slíkt tap leiti út í
verðlagið og auki á verðbólguna.
Gjaldþrot eru dýr fyrir samfélagið
og leiki menn þann leik að setja fyr-
irtæki á hausinn, fylgir þvl veruleg-
ur kostnaður fyrir aðra.
Hjá fjármálaráðuneytinu fengust
þær upplýsingar að þar á bæ hefði
oft verið rætt um að það þyrfti að
setja slíkar reglur. „Þetta hefur sér-
staklega verið rætt hér vegna virðis-
aukaskattsins, því menn skrifa út
RÁÐUM RÁÐIÐ Á NORÐURVÍKINGI Hernaðaræfingin Norðurvíkingur hélt áfram í gær. Maðurinn í hettuúlpunni er
fulltrúi íslenskra stjórnvalda, Gunnar Gunnarsson, skrifstofustjóri varnarmálskrifstofu utanríkisráðuneytisins. Sjá bls. 12.
reikninga og eru því nánast með pró-
kúru á ríkissjóð með virðisauka-
skattinum sem þeir innheimta," seg-
ir Ragnheiður Snorradóttir lögfræð-
ingur í fjármálaráðuneytinu. Hún
segir að það sé auðvitað algjörlega
óviðunandi að menn sem eru með ít-
rekuð vanskil stofni röð af fyrir-
tækjum og skilji síðan allt eftir í
skuldum. Þess séu þó dæmi að menn
hafi sætt refsingu fyrir að skila ekki
vörslusköttum, en sú refsing sé oft-
ast skilorðsbundinn.
haflidi@frettabladid.ís
OLfUBORNAR mörcæsir
Mörgæsunum var bjargað eftir olíuleka.
Eitt ár frá umhverfisslysi:
Mörgæsir ná
heilsu á ný
höfðaborg. ap, Afrískar mörgæsir
sem bjargað var úr olíumengun fyrir
tæpu ári síðan hafa braggast vel og
fjölga sér hraðar nú en áður en þær
lentu í olíunni. Gripið var til stór-
tækra aðgerða til að bjarga fuglunum
en 1.963 fuglar drápust vegna olíu-
lekans í sjónum. „Eftir þá hrikalegu
reynslu að hafa lent í olíu ... verið
teknar út sinu rétta umhverfi og
hreinsaður, hafa 16.300 mörgæsir
verið fluttar í sitt náttúrulega um-
hverfi á ný,“ sagði Dieter Oschadleus
frá háskólanum í Höfðaborg. ■
Tónlist 18 Bíó 16
Leikhús 18 íþróttir 14
Myndlist 18 Sjónvarp 20
Skemmtanir 19 Útvarp 2t
69,2% IBUA H0FUÐBORGARSVÆÐISINS A ALDRINUM I
18 TIL 80 ARA IFSA FRÉTTABLAÐIÐ ALLTAF EÐA OFT !
SAMKVÆMT KðNNUN GALLUP FRA MAl 2001,
Landbúnaðarráðuneytið í Eiðamálinu:
Trassaði samninga
eignasala Salan á
eignum Alþýðu-
skólans á Eiðum
var í gær enn eina
ferðina til umræðu
í bæjarstjórn
Austur-Héraðs. Til
stendur að selja
eignirnar þeim
Sigurði Gísla
Pálmasyni og Sig-
urjóni Sighvats-
syni en meðal þess
sem enn er ófrágengið munu vera
lóðasamningar við eigendur íbúð-
arhúsa og orlofsbústaða á landar-
eigninni. Nokkuð mun hafa verið
um að hús hafi verið byggð á Eið-
um meðan staðurinn var enn í eigu
ríkisins og umsjón
landbúnaðarráðu-
neytisins án þess
að gengið væri frá
tilhlýðilegum lóða-
samningum.
Að sögn Björns
Hafþórs Guð-
mundssonar bæj-
arstjóra Austur-
Héraðs eru þeir
Sigurjón og Sig-
urður Gísli vænt-
anlegir austur 20. júlí nk. en þá á
að ganga endanlega frá kaupsamn-
ingi. Björn segir hins vegar að til-
teknir þættir samkomulagsins
vegna kaupanna verði opinberaðir
fyrir þann tíma. ■
SIGURJÓN
SICHVATSSON.
FÓLK
Heimsfrumsýning
á Dr. Dolittle
ÍÞRÓTTIR
Eyjamenn
kafsigldir í
Grindavík
| ÞETTA HELST
Utgjöld ríkissjóðs hækkuðu um
tæpa 17 milljarða miðað við
fyrstu fimm mánuði í fyrra. bls. 10
—4..—
Rannsókn er hafin á gögnum og
aðferðafræði Hafrannsóknar-
stofnunar. bls. 6
—♦—
Yfirmaður varnarliðsins segir
heræfingar ekki tímaskekkju.
bls. 12
■ —♦— ' .
Verðsprenging hefur orðið á
sjúkraflugi eftir að Leiguflug ís-
leifs Ottesen hætti og íslandsflug
tók við þjónustunni. bls. 2
—♦—
Hraðasektir í Borgarnesi eru
orðnar níu hundruð á þessu ári.
bls. 13