Fréttablaðið - 21.06.2001, Blaðsíða 13
FIMIVITUPAGUR 21. júni 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
13
Lögreglan í Borgarnesi:
Níu hundruð ökumenn
teknir fyrir of hraðan akstur
umferðarmál Lögreglan í Borgarfirði
hefur sektað ríflega 900 manns fyrir
að aka of hratt í umdæminu það sem
af er árinu, en það er svipaður fjöldi
og var sektaður allt árið í fyrra. Að
sögn lögreglunnar í Borgarnesi er
aukin hraðagæsla og ekki síst sam-
vinna lögreglunnar á Vesturlandi því
að þakka að tekist hefur að stöðva
þetta marga. Stefnt er að því að auka
ennfremur samvinnu lögreglunnar á
Vesturlandi hvað varðar hraðagæslu
og einnig í almennri löggæslu.
Talsmaður lögreglunnar sagði ölv-
un við akstur mun meira áberandi nú
en áður og hingað til sé búið að taka
27 manns sem sé mun fleiri en á
sama tíma í fyrra. Það sem einnig
vekur athygli lögreglunnar er hve
fólk sé illa að sér um hegðun dýra og
því til stuðnings sagði hann 15 kindur
hafa drepist á tímabilinu maí/júní
vegna áreksturs við bíla og þar af sé
lömb í meirihluta. „Það er eins og
fólk sé búið að missa tengslin við
sveitina. Fólk verður að gæta betur
að sér þegar það sér kind við vega-
brúnina því lambið er sjálfsagt ekki
langt undan.“ ■
BORGFIRSKA LÖGREGLAN
SETUR HRAÐAGÆSLUMET
Stefnt er að því að auka ennfremur
samvinnu lögreglunnar á Vesturlandi
hvað varðar hraðagæslu og einnig
í almennri löggæslu.
ÞJÓÐARÁTAKIÐ KYNNT
Ásgeir Baldursson, markaðsstjóri VÍS, Axel
Gíslason, forstjóri Vl’S og Ragnheiður Dav-
íðsdóttir, forvarnarfulltrúi Vl’S, kynntu átak-
ið og þau 10 heit sem þjóðin er beðin að
skrifa undir til handa bættri umferðar-
menningu.
Þjóðarátak
gegn umferðarslysum:
Of mörg
banaslys
umferðarmál Vátryggingarfélagð VÍS
hefur hrundið af stað svokölluðu
þjóðarátaki gegn umferðarslysum.
Að sögn Ragnheiðar Davíðsdóttur,
forvarnarfulltrúa VÍS, er herferð
þessari hrundið af stað vegna þeirra
tíðu umferðarslysa sem verið hafa að
undanförnu en á síðasta ári létust 32
einstaklingar og er tala látinna orðin
sjö það sem af er þessu ári.
Þjóðarátakið felst í undirritun tíu
umferðarheita sem öll miða að bættu
umferðaröryggi. „Það er auðvitað
djarft að ætla sér að virkja alla ís-
lensku þjóðina í jafn stóru máli og
umferðaröryggismál eru. En tilfinn-
ing okkar er sú að fólk sé farið að
taka fregnum af umferðarslysum
sem hverju öðru hundsbiti og er jafn-
vel farið að líta á þetta sem náttúru-
lögmál," sagði Ragnheiður.
Heitin er hægt að nálgast á bens-
ínstöðum Esso út um allt land og
þeim á að skila undirrituðum til sama
fyrirtækis. Nöfnin fara síðan í verð-
launapott sem dregið verður úr
hvern laugardag frá og með 7. júlí. ■
Gleðilegt sumar hjá Rafiðnaðarsambandi íslands
Fótbolti, gleði,
varðeldur og ball!
....bla bla bla
ÞJÓNUSTAN
BETRI VINIR
VERÐUR VIRK
1. JÚLÍ
Fjölskyldultútíd RSÍ
22.-24. júní á orlofs-
svteðinu við Apavatn
Dagskrá á laugardag:
Fótboltamót, með tUbrigðum og skemmtiskokk.
Veiði er í vatnmu og stutt í goifvöTlinn.
Gríll í boði FÍR. í tilefni að 75 ára afmœli
Féiags íslenskra rafvirkja verður boðið til grillveislu
um kvöidið. Áríðandi er að féiagar skrái sig svo
að nœgur matur verði iianda öllum.
Fjötekylduskemmtun wm kvöidið, varðeldw og ball
fram á nótt.
Félagsmenn, látið skrá ykkur sem fyrst
í sínia: 580 5200 eða með tölvpósti:
isleifur@rafis.is
RAFIÐNAÐARSAMBAND
ÍSLANDS
brýtur straum fyrir framförum
Nánari upplýsingar: WWW.raf.iS
www.firmaskra.is
wmmmmmmmmmmmmmmmmm
Frelsi til samskipta
með handfrjálsum búnaði frá Plantronics
smpíAmnoMtcf
^ frjáls eins og fuglinn
><
AMBAMD