Fréttablaðið - 21.06.2001, Side 12
12
FRÉTTABLAÐIÐ
21. júní 2001 FIMMTUPACUR
Sveitarstjórnarkosningar
Kosið 25.
maí að ári
félacsmAuaráðuneyti Kosið verður til
sveitarstjórna laugardaginn 25. maí á
næsta ári. Þetta kemur fram í bréfi
sem félagsmálaráðuneytið hefur sent
til sveitarstjórna landsins. Þar er
sveitarstjórnum bent á að felld hefur
verið á brott heimild eldri laga til að
fresta kjördegi í dreifbýli fram til
annars laugardags í júní. Jafnframt
er vakin athygli á því ef kjörstjórnir
eru ekki fullskipaðar t.d. vegna brott-
flutnings kjörstjórnarmanna úr
sveitarfélögum, þá ber viðkomandi
sveitarfélagi að bæta úr því með því
að kjósa nýja aðal- eða varamenn. ■
JÓHANN ÓLI CUÐMUNDSSON
Sýslumaður hefur gefið grænt Ijós á að
Lyfjaverslun íslands kaupi Frumafl hf.
Sýslumaður:
Hafnaði lög-
banni á Frum-
aflskaupin
dómsmál Sýslumaðurinn í Reykjavík
hefur hafnað kröfu stærsta hiut-
hafans í Lyfjaverslun íslands um að
lögbann verði sett á að Lyfjaverslun-
in kaupi Frumafl hf. af Jóhanni Óla
Guðmundssyni og greiði fyrir það
með hlutabréfum í Lyfjaversluninni.
Sýslumaður taldi að þar sem ekki
virtist ágreiningur meðal hluthafa í
Lyfjaversluninni um að kaupa allt
hlutafé í Frumafli heldur vildu þeir
sem kröfðust lögbannsins aðeins að
viðhlítandi mat færi fram á verð-
mæti Frumafls væru ekki fyrir hendi
skilyrði til að setja lögbann á við-
skiptin. ■
—>—
Islenska ríkið:
Sýknað af
skaðabótakröfu
dómsmál Héraðsdómur Reykjavíkur
hafnaði í gær kröfu manns um að rík-
inu væri gert að greiða honum nærri
fjórar milljónir króna í skaðabætur
vegna gæsluvarðhalds sem hann var
látinn sæta meðan brot sem hann var
grunaður um að hafa framið var
rannsakað. Maðurinn var sýknaður
af ákæru vegna brotsins og krafðist í
framhaldi af því skaðabóta vegna
gæsluvarðhaldsins.
Maðurinn var grunaður um lík-
amsárás og sat í gæsluvarðhaldi í 26
daga meðan á rannsókn málsins stóð.
Maðurinn var kærður í kjölfar rann-
sóknar en sýknaður af öllum ákærum
málsins.
í dómnum frá í gær segir að rök-
studdur grunur hafi verið um að
maðurinn hefði framið refsivert at-
hæfi og óhjákvæmilegt hafi verið að
úrskurða hann í gæsluvarðhald
vegna rannsóknarhagsmuna. Þá
verði ekki séð að gæsluvarðhaldið
hafi verið framkvæmt á óþarflega
harkalegan, særandi eða móðgandi
hátt og ríkið því sýknað af kröfum
hans um bætur. Ríkinu var þó gert að
greiða honum 60.000 krónur í ferða-
kostnað vegna endurupptöku fyrra
málsins. ■
Fjarðarbyggð:
Bæjarstjórnin einhuga um álver
Alver „Mat á umhverfisáhrifum
vegna Reyðaráls er algerlega ásætt-
anlegt," segir Guðmundur Bjarna-
son, bæjarstjóri Fjarðarbyggðar.
Hann segir bæjarstjórnina vera ein-
huga í málinu og eins þorra íbúa á
svæðinu. Guðmundur segir andstöðu
meðal íbúa við Reyðarjörð við fyrir-
hugað álver vera í lágmarki. „Það var
haldinn kynningarfundur hér þann
13. júní sl. og þar kom engin andstaða
fram. Það voru á milli 80 og 90 manns
á fundinum, en á samsvarandi fundi í
Reykjavík daginn eftir mættu aðeins
20 manns. Það komu fáar spurningar
fram hérna.“
Bæjarstjórnin hefur sent ályktun
um málið til Skipulagsstofnunar. Þar
segir að fjallað hafi verið um um-
hverfismatið og mat á efnahagsleg-
um og samfélagslegum áhrifum ál-
versins. Niðurstaðan sé að allar
skýrslur séu vel unnar og að mikill
einhugur sé meðal bæjarstjórnar um
framkvæmdirnar. Skýrslurnar, sem
unnar voru fyrir Reyðarál, séu óræk-
ur vitnisburður um samfélagslegan
og efnahagslegan ávinning fyrir
sveitarfélagið. ■
VIÐ VILJUM REYÐARÁL
Bæjarstjóri Fjarðarbyggðar,
Guðmundur Bjarnason, vísar
gagnrýni á bug. Fátt mæli á
móti byggingu álvers.
Nor ðurví kingur
er ekki tímaskekkj a
Um þrjú þúsund hermenn æfa viðbrögð við hryðjuverkastarfsemi. Mikið af búnaði flutt til landsins til þess að
fullkomna æfinguna. ísland enn hernaðarlega mikilvægur staður.
heræfinc Það var mikið ys og þys á
varnarliðsmönnum og konum í gær
en æfingin Norðurvíkingur stendur
nú sem hæst. Æfingin er liður í varn-
arsamning íslands við Bandaríkin og
nú í ár voru æfð viðbrögð við árás
hryðjuverkamanna sem hugsanlega
gætu viljað lama hernaðarlega mikil-
væga staði á íslandi, með það fyrir
augum að snúa íslendingum gegn
NATO. Æfingar fara fram á suðvest-
urhluta landsins og taka tæplega
3000 manns í æfingunni, allir með-
limir varnarliðsins á íslandi og 900
dátar frá þjóðvarðliði Illinois-fylkis í
Miðvestur-Bandaríkjunum. Land-
helgisgæslan mun einnig taka þátt í
æfingunni og munu m.a. vera æfðar
landgöngur á skip þar sem mót-
spyrna er veitt. Hlutverk óvinarins
að þessu sinni er í höndum sérsveit-
armanna frá Bandaríkjunum en áður
hafa liðsmenn úr bæði norska, þýska
og bandaríska hernum sinnt því hlut-
verki. Auk herliðsins voru sendar
hingað sex Blackhawk árásarþyrlur,
þrjár Chinook flutningaþyrlur, fimm
A-10 orrustuflugvélar, fjöldinn all-
ann af Humvee-bílum og árásarriffl-
um fylltum af púðurskotum.
En eru æfingar á borð við þessar
ekki tímaskekkja?
„Nei, við teljum að svo sé ekki,“
sagði David Architzel, flotaforingi og
æðsti yfirmaður varnarliðsins á ís-
landi. Aðspurður sagði hann að fs-
land væri enn mjög hernaðarlega
mikilvægur staður og að það væri
rangt að áhersla bandaríska hersins
væri að færast frá Atlantshafssvæð-
inu til Kyrrahafssvæðisins.
„ísland er ákaflega mikilvægur
staður. ísland er brú okkar til Evrópu
og hingað getum við flutt mikið af
okkar gögnum og hér njótum við vel-
Hermenn Bandarikjahers komu sér fyrir á hernaðarlega mikilvægum svæðum og gættu þess að óprúttnir aðilar kæmust ekki að og
eyðilögðu og kæmu þannig af stað óvild hjá íslendingum í garð NATO. Herstöðvarandstæðingar létu lítið á sér kræla og sagði upplýsing-
arfulltrúi varnarliðsins, Friðþór Eydal, að það væri liðin tíð að (slendingar settu sig upp á móti veru erlends herliðs á landinu.
vildar þjóðar og ráðamanna," sagði æfa ákveðin samskiptarferli, flutn- lega stríðsárásir. Æfingin hófst 18.
Architzel. Hann bætti því við að með ing á búnaði og hvernig er hægt að júní og mun standa til 24. júní.
því að halda æfinguna væri verið að koma sér fyrir á landinu, ekki endi- omarr@frettabiadid.is
Kjaramál:
Ríkið á ósamið við 14 félög
kjarasamningar Samninganefnd ríkis-
ins á enn ólokið samningum við 14
stéttarfélög. Að sögn Elísabetar S.
Ólafsdóttur skrifstofustjóra hjá rík-
issáttasemjara hefur ekki málum
allra félaganna verið vísað til þeirra
og eru því viðræður nokkurra félag-
ana án milligöngu ríkissáttasemjara.
Eitt þessara félaga, þroskaþjálfar,
hafa boðað verkfall.
Samninganefnd ríkisins hefur nú
lokið 63 kjarasamningum af þeim 77
sem áætlað er að þeir ljúki. Samning-
ar þessir taka til 134 stéttarfélaga, 61
félags opinberra starfsmanna og 57
félaga innan landssambanda ASÍ.
Mörg stéttarfélög hafa fleiri við-
semjendur og eiga launanefnd sveit-
arfélaga og samninganefnd Reykja-
víkurborgar einnig ósamið við þó
nokkur félög. ■
STAÐA SAMNINCAMÁLA HJÁ SAMNINCANEFND RIKISINS
Boðað verkfall Hjá Ríkissáttasemjara Lausir samningar, viðræður við samninganefnd ríkisins
Hjúkrunarfræðingar X
Náttúrufræðingar X
Ljósmæður X
Röntgentæknar mmmmm
Félagsráðgjafar X
Þroskaþjálfar X X
Lögreglumenn X
Sjúkralíðar rnmámmmrn
SFR vegna háskólamanna X
Leikstjórar X
Leikskólakennarar X
Leikmynda og búningahönnuðir
Læknar X
Sálfræðingar X
ERLENT
Talsmaður stríðsglæpadómsstóls
SÞ í Haag, Florence Hartman, ít-
rekaði kröfu um framsal júgóslav-
neska ríkissins á Slobodan Milos-
evic, fyrrum forseta. Júgóslavneska
þingið vinnur nú að lagasetningu
sem auðvelda á framsal Milosevic.
Hartman sagði Iögin óþörf því
Milosevic yrði ekki framseldur til
annars ríkis, heldur alþjóðasamtaka.
Júgóslavía gæti orðið af umtals-
verðri erlendri fjárhagsaðstoð ef
ekkert verður af framsalinu.
Silvio Berlusconi, forsætisráð-
herra Ítalíu, hlaut stuðning efri
deildar ítalska þingsins í gær. Ekki
var búist við öðrum niðurstöðum
enda Berlusconi með öruggan meiri-
hluta í báðum deildum þingsins.
Berlusconi sagði í ávarpi sínu til
þingmanna að hann hyggðist breyta
ýmsum umbótum vinstri stjórnar-
innar, „rangar umbætur kalla á
gagn-umbætur,“ sagði hann.
FB-MYND: ÓMAR R.