Fréttablaðið - 23.08.2001, Side 4

Fréttablaðið - 23.08.2001, Side 4
4 FRÉTTABLAÐIÐ 23. ágúst 2001 FIMIVITUDAGUR SVONA ERUM VIÐ Átök á Vesturbakkanum: Fjórir Palestínumenn skotnir til bana TILKYNNTUM SLYSUM Á SJÓ FÆKK- AÐ FRÁ 1993 Slysum á sjó sem tilkynnt voru til Trygging- arstofnunar fækkaði nokkuð á síðasta ára- tug. Markmið laga um rannsókn slysa sem sett voru í fyrra er að halda þeirri þróun áfram. Þau eiga að efla sjálfstæðar rann- sóknir og vinna að eflingu forvarna og ör- yggis á íslenskum skipum. Heimild: Siglingastofnun íslands 2001 NABLUS. VESTURBAKKANUM. AP. Að minnsta kosti fjórir Palestínu- menn létust eftir skotárás við her- sveit ísraela við Vesturbakkann í gær. Að sögn Palestínumanna voru þrír þeirra sem létust óbreyttir borgarar en ísraelsher sagði hins vegar að allir þeir sem létust hafi verið vopnaðir. Sögðu talsmenn hersins að hópur palest- ínskra byssumanna hefði reynt að koma sprengju fyrir meðfram vegi sem liggur til hverfis gyð- inga, Shavei Shomron, skammt frá palestínsku borginni Nablus. Joschka Fischer, utanríkisráð- herra Þýskalands, er um þessar mundir staddur í Jerúsalem. Sagði hann að viðræður, sem eiga að fara fram í Berlín, um vopna- hlé í Mið-Austurlöndum þurfi að vera vel undirbúnar eigi einhver árangur að nást. Viðræðurnar myndu fara fram á milli Shimon Peres, utanríkisráðherra ísraels, og Yasser Arafat, leiðtoga Palest- ínumanna og lýstu þeir í gær yfir vilja sínum til að hittast og ræða málin. Fischer hefur á undanförn- um tveimur dögum rætt við leið- toga ísraela og Palestínumanna í því skyni að koma af stað viðræð- JOSCHKA FISCHER Joschka Fischer, utanríkisráðherra Þýska- lands, ræddi við fréttamenn í gær eftir að hafa heimsótt minnisvarða í Jerúsalem um þá gyðinga sem létust í helförinni í síðari heimstyrjöldinni. um um vopnahlé. í gær hittust ut- anríkisráðherrar Arabaríkja á neyðarfundi í Kaíró í Egyptalandi til að ræða með hvaða hætti Arabar geti stutt Palestínumenn í deilunum við ísraela. ■ Skandinavísk rannsókn: Börn lengur á brjósti gáfaðari heilsa. Ungabörn sem eru höfð skemur á bi’jósti en þrjá mánuði eru líklegri til að hafa minni and- lega hæfileika við 13 mánaða ald- ur og lægri greindarvísitölu við 5 ára aldur. Þetta kemur fram í rannsókn norskra og danskra vís- indamanna sem skoðuðu 345 börn á aldrinum 13 mánaða til 5 ára og hversu lengi þau höfðu verið á brjósti. Þrátt fyrir að tekinn væri með í reikninginn aldur móður- innar, gáfnafar hennar, menntun eða hvort hún reykti, breytti það engu um niðurstöðurnar, að því er kom fram á fréttavef BBC. ■ SPRENGJULEIT Israelska lögreglukonan Avishag Garufi at- hugaði hvort sprengja leynist í tösku þessa manns í ísrael í síðustu viku, en sivaxandi ótti er við sjálfsmorðárásir Palestínumanna þar I borg. Leiðtogi Hamas-samtak- anna: Þúsundir vilja fórna lífinu MADRID. SPÁNI. ap Sheikh Abdullah Shami, pólitískur leiðtogi ís- lömsku hryðjuverkasamtakanna Jihad, sem þýðir Heilagt stríð, sagði í viðtali við dagblað á Spáni að samtökin hefðu á sínum snær- um þúsundir sjálfboðaliða sem væru reiðubúnir til að láta lífið í sjálfsmorðsáras gegn ísrael. „Við eigum engra annarra kosta völ. Við höfum hvorki yfir sprengjum að ráða, herbifreið- um, né flugskeytum, né flugvél- um, né þyrlurn," sagði hann í við- talið við spænska dagblaðið ABC, sem birtist í gær, þriðjudag. „Allt sem við höfum yfir að ráða eru létt vopn og svo sjálfsmorðin okkar, og við höldum áfram að beita þeim vegna þess að þau eru eini valkosturinn sem við eigum eftir. Þau hafa sannað sig í gegn- um tíu ára misheppnaðar friðar- viðræður." ■ —♦— Samkynhneigð í Banda- ríkjunum: 600 þúsund í sambúð washington.ap. Tæplega 600 þús- und samkynhneigðir einstakling- ar eru í sambúð í Bandaríkjun- um. Flestir þeirra búa í Kaliforn- íu, en þar eru 16% þeirra sem eru í skráðri sambúð samkynhneigð- ir. Næstflestir eru í New York, eða um 8%, en tölurnar eru sam- antekt frá síðasta ári. Að sögn baráttuhópa fyrir kjörum sam- kynhneigðra sýna þessar tölur að viðhorf bandarísks samfélags gangvart samkynhneigð eru smám saman að breytast til hins betra. ■ Fjórir nýir grunnskólar taka til starfa í haust Rúmlega 370 nemendur heQa nám í fjórum nýjum skólum á höfuðborgarsvæðinu. Unnið er hörðum höndum við að ljúka við skólahúsnæði áður en skólarnir taka til starfa. skólar Fjórir nýir skólar taka til starfa á höfuðborgarsvæðinu í næstu viku. Rúmlega 370 nem- endur eru samanlagt í skólunum. Enn er talsvert verk óunnið í byggingum skólanna en for- svarsmenn þeirra eru bjartsýnir á að það hafist allt saman áður en hringt verður inn í fyrsta tím- ann. Fyrsta skólasetning haustsins átti sér stað í Sajaskóla í Kópa- vogi í fyrradag. Ástæða snemm- búinnar skólasetningar var sú að ákveðið var að slá saman kynn- ingarfundi um skólann og skóla- setningu, viku áður en skólinn tekur til starfa og fór hvoru- tveggja fram í Lindaskóla í Kópavogi, vegna þess að hús- næði Salaskóla er ekki tilbúið. Skólastjóri Salaskóla, Haf- steinn Karlsson, var í gær bjart- sýnn á að það næðist að Ijúka verkinu í tæka tíð, enda unnið nótt við dag í byggingunni. 80 nemendur, á aldrinum sex til niu ára, hefja nám í Salaskóla í næstu viku. „Þetta er ekki nema brot af þeim nemendafjölda sem síðar verður,“ segir Hafsteinn. 15-20 starfsmenn munu vinna í skólanum í vetur og segir Haf- steinn að tekið verði mið að því nýjasta í rannsóknum er kemur að skólastarfi. Skólastjórar skólanna fjög- urra láta vel af undirbúningi skólastarfsins og eru búnir að ráða í allar kennarastöður. Að sögn Guðlaugar Sturlaugsdóttur, skólastjóra Ingunnarskóla, telst það til nýjunga að kennsla hefj- ist í skóla um leið og fyrstu íbú- ar flytja inn í hverfi. Kennt verður í bráðabirgðahúsnæði til að byrja með. Árný Inga Pálsdóttir, skóla- stjóri Víkurskóla, segir að í vet- ur verði kennt í 1.-8. bekk í Vík- SKÓLASETNING I SALASKÓLA Hafsteinn Karlsson, skólastjóri, segir að þar verði m.a. tekið mið af muni á kynjum í skóla- starfinu. urskóla sem á að vera tilbúinn að hluta til í næstu viku þegar kennsla hefst. Verið er að móta stefnu skólans og segir Árný að lögð verði mikil áhersla á sam- starf við foreldra. Skólastjórar Ingunnarskóla, Salaskóla og Ás- landsskóla taka undir þetta sjón- armið. í þeim síðastnefnda er einnig verið að leggja lokahönd á skóla- bygginguna og ráðningar starfs- manna. Að sögn Sunitu Ganghi, framkvæmdastjóra skólans, hef- ur verið haft samband við for- Nýir skólar: Fjöldi nemenda Bekkir Salaskóli í Kópav. 80 1.-4. Áslandsskóli í Haf.. 120 1.-8. Ingunnarskóli í Rvk. 35 1.-8. Víkurskóli í Rvk. 142 1.-8. eldra og þeim kynnt skipulag skólans, sem er nokkuð öðruvísi en tíðkast annars staðar. Hún segist vonast til þess að það falli vel í kramið, þegar foreldrar hafa kynnt sér það. sigridur@frettabladid.is GUÐLAUG STURLAUGSDÓTTIR „Geri ráð fyrir að fjölgi jafnt og þétt í skól- anum í vetur." Áburðarverksmiðjan: Dapurleg þróun efling Rétt rúmlega helmingur þeirra 40 starfsmanna Áburðar- verksmiðjunnar sem sagt hefur verið upp störfum eru félags- menn í Eflingu, stéttarfélagi. Sigurður Bessason formaður fé- lagsins segir að það sé mjög dapurlegur hlutur þegar breyt- ingar á rekstri verksmiðjunnar hafi í för með sér jafn mikla fækkun á starfsmönnum og raun ber vitni. Hann telur æski- legt að breytingarnar hefðu ver- ið með þeim hætti að ekki hefði þurft að grípa til þessara upp- sagna. Hann segir að margir þessara starfsmanna séu búnir að vinna í verksmiðjunni í marga áratugi. Aftur á móti sé ljóst að þarna sé verið að bregðast við aukinni samkeppni í innfluttum áburði. Þá sé það einnig frekar dapurt að horfa upp á það að jafn stórt og öflugt fyrirtæki og Áburðar- verksmiðjan hefur verið sé hægt og bítandi að „síga svona saman“ eins og hann orðar það.Hins veg- ar séu allar líkur á því að starfs- mennirnir muni geta fengið aðra vinnu, enda næga atvinnu að hafa á vinnumarkaðnum. ■ SIGURÐUR BESSASON FORMAÐUR EFLINGAR Uppsagnir valda róti á daglegum högum þess fólks sem fyrir þeim verða. Argentína: Fær 1.132 milljarða lán WASHINGTON.AP. Eftir langar samn- ingaviðræður hefur Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn samþykkt að veita Árgentínu auka 8 milljarða dollara lán, til viðbótar við þá 14 milljarða dollara sem landið hafði þegar fengið í lán vegna alvar- legrar efnhagsstöðu sinnar. Fjár- veitingunni fylgja fjölmörg skil- yrði sem Bandaríkin settu svo peningarnir ættu meiri möguleika á að bjarga efnahaginum, sem verið hefur í mikilli lægð undan- farin þrjú ár. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.