Fréttablaðið - 23.08.2001, Síða 14

Fréttablaðið - 23.08.2001, Síða 14
14 F RETTABLAÐIÐ 23. ágúst 2001 FIMMTUPAGUR Sir Geoff Hurst: Seldi verðlauna- peninginn verðlaun Sir Geoff Hurst hefur selt West Ham verðlaunapening- inn sem hann fékk fyrir sigur með Englandi í Heims- meistarakeppninni árið 1966. Sir Geoff, sem enn er þekktur fyrir þrennuna sem hann skoraði í úr- slitaleiknum, þáði 21 milljón króna fyrir peninginn. Verðlaunapeningurinn á að vera einn aðalsýningargripa í nýju safni félagsins en það keypti pen- ingasafn Bobby Moore fyrir sköm- mu. ■ Símadeildin: Loks sigruðu KR-ingar knattspyrna KR-ingar sigruðu Grindavík 2-0 á KR-vellinum í gær og skoraði Einar Þór Daníelsson bæði mörkin. Allt annað var að sjá til KR liðs- ins í gær en í undanförnum leikj- um. KR-ingar komust í 1-0 á 40. mínútu þegar Einar Þór skoraði eftir góðan samleik við Guðmund Benediktsson. Einar Þór bætti við öðru marki í byrjun síðar hálfleiks. Með sigrinum fengu KR-ingar þrjú dýrmæt stig í botnbaráttunni, en liðið er nú komið með 14 stig og er tveimur stigum á eftir Fram og þremur stigum á eftir Val. Ennþá TVÖ MÖRK Einar Þór Daníelsson skoraði baeði mörk KR í 2-0 sigri liðsins á Grindavík. eru fjórar umferðir eftir af Síma- deildinni og er næsti leikur KR gegn Val á KR-vellinum á sunnu- daginn. Grindavík situr enn í 6. sæti deildarinnar með 18 stig. ■ Enska Úrvalsdeildin: Sjálfsmark hjá Beckham JAFNAÐI LEIKINN Beckham jafnaði leikinn tvisvar. Fyrst fyrir Blackburn og síðan fyrir Man. Utd. knattspyrna Blackburn, sem kom upp úr 1. deildinni í vor, kom mjög á óvart í gær þeg- ar liðið náði jafntefli gegn ensku meisturunum í Man. Utd. Meistararnir komust í 1-0 með marki frá Ryan Giggs, en David Beckham jafnaði fyrir Blackburn með sjálfsmarki. Keith Gillespie, kom Blackburn síðan í 2-1 á 68. mínútu, en Beckham jafnaði fyrir United skömmu seinna. Fulham, sem veitti Man. Utd. verðuga keppni í fyrsta leik liðanna í Úrvalsdeildinni á sunnu- daginn sigraði Sunderland 2-0 á heimavelli. Barry Hayles kom Ful- ham í 1-0 á 70. mínútu og Frakkinn Louis Saha, sem skoraði tvö mörk gegn Man. Utd., bætti öðru marki við um 5 mínútum fyrir leikslok. ■ * Fyrirtæki til sölu, t.d • Mjög falleg blómabúð í Grafarvogi. Mikil velta og góður rekstur. Ein sú besta í borginni. • Heildverslun með þekkta vöru. 60 MKR ársvelta og miklir vaxta möguleikar. • Lítið iðnfyrirtæki í plastframleiðslu. 12 MKR ársvelta sem hægt er að þrefalda. • Lítil krá í miðbænum. Lítil velta - lágt verð. • Gott veitingahús á þekktum ferða- mannastað nálægt Reykjavík. Góð velta allt árið. • Rótgróin videoleiga og söluturn í Breiðholti. 50 MKR ársvelta og góður hagnaður. Auðveld kaup. • Þekktur pizzastaður með mjög mikla veltu. • Lítið verktakafyrirtæki í föstum verkefnum á sumrin. Mikill hagnað ur - hagstætt verð. • Einn af vinsælustu veitingastöðum borgarinnar. • Meðeigandi óskast að litlu mat vælafyrirtæki með mikla vaxta möguleika. Viðkomandi þarf helst að hafa vit á markaðsmálum. Fyrirtæki til leigu, t.d.: • Lítil blómabúð i stóru hverfi. Leiga eða sala. • Vinsæll bar/skemmtistaður nálægt Reykjavik. Fyrirtæki óskast, t.d.: • Lítil og stór iðnfyrirtæki. • Vélsmiðja á Reykjavíkursvæðinu. • Heildverslun. • Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin) • Sími 533 4300 • Gsm 895 8248 Stýrimaður óskast á 140 tonna drag- nótarbát. Upplýsingar í síma: 892 1854 og 852 2743 VW1303 árgerð 1973 til sölu, verð 250.000. í mjög góðu standi. Fornbíll, engin bifreiðagjöld. Góðar græjur með CD. Uppl. í síma 6930042. Högg- þungur og dularfullur Margir telja að hnefaleikamaðurinn Sonny Liston hafi verið á mála hjá mafíunni. Hann fannst látinn í Las Vegas árið 1971 með heroín sprautu og skammbyssu í fórum sínum og uppstoppaðan höggorm sér við hlið. hnefaleikar Einn höggþyngsti hnefaleikamaður sögunnar var gleymdur I mörg ár. Einkalíf hans var þyrnum stráð og margir litu á hann sem slæma manninn í hnefa- leikunum, svona líkt og litið er á Mike Tyson í dag, og vildu því lítið með hann hafa. I fyrra var svo nafn hans togað upp úr gröfinni með út- gáfu nýrrar bókar Night Train: The Sonny Liston Story eftir Nick Tosches, sem fjallar um ævi og fer- il gleymda mannsins - Sonny Liston. Með útgáfu bókarinnar vaknaði mikill áhugi á hinu dularfulla lífi Liston. BBC hefur gert heimildar- mynd um hann og kvikmyndafyrir- tæki í eigu leikarans Tom Cruise hyggst gera mynd um gleymda manninn og hefur verið rætt um að William Friedkin muni leikstýra myndinni, en hann gerði m.a. The French Connection og The Exorcist. Þá er ráðgert að leikarinn Ving Rhames, ser frægastur fyrir hlut- verk sín í Pulp Fiction og Mission lmpossible, leiki Liston. Charles Sonny Liston, eins og hann hét fullu nafni, var fæddur árið 1932. Hann ólst upp í fátækt ásamt 24 systkinum á þeim tíma sem kynþáttahatur grasseraði í bandarísku þjóðfélagi og þurfti því snemma að læra að bjarga sér sjálf- ur. Víst er að skólaganga piltsins hefur ekki verið löng því hann var ólæs. Hann leiddist því inn á braut FALLINN Eftir töpin gegn Ali náði Liston sér aldrei almennilega á strik og leiddist út í drykkju, eiturlyfjaneyslu og veðmál. glæpa og ofbeldis og þegar hann var unglingur var hann dæmdur í fangelsi fyrir vopnað rán. í fangels- inu lærði hann hnefaleika og þegar hann var látinn laus hóf hann að stunda þá af kappi. Hann gerðist síðan atvinnumaður árið 1953 og klifraði hratt upp metorðastigann. Stuttu eftir að hann hóf hnefa- leika fékk hann viðurnefnið „trommarinn," því hann var jafn- vígur á báðar hendur. Hann var frægur fyrir stungur sínar og gíf- urlegan höggþunga sem fékk marga andstæðinga hans til að „DRAUGAHOGG" Muhammed Ali sló Sonny Liston út f 1. lotu árið 1965, en margir telja að Liston hafi á þessum tíma verið kominn á mála hjá mafíunni og látið sig falla. skjálfa á beinunum áður en bardag- arnir hófust. Árið 1962 varð hann heims- meistari þegar hann rotaði Floyd Patterson í fyrstu lotu, en Patterson hafði haft nokkra yfirburði í íþrótt- inni fram að því þó hann hafi tapað fyrir Svíanum Johansson árið 1959. Árið 1963 mætti Liston síðan Patt- erson aftur í hringnum og varði titilinn á sama hátt - rot- högg í fyrstu lotu. Þeg- ar blaðamaður spurði Liston hvert leyndar- málið væri líkti hann höggþunga sínum við atómsprengjuna ..... þegar hún hittir spring- ur hún.“ Yfirburðir Liston á þessum tíma voru miklir og töldu margir að hinn rúmlega þrítugi hnefa- leikakappi væri ósigr- andi. Annað kom á dag- inn, því Cassius Clay, bet- ur þekktur sem Muhammed Ali, var á þessum árum að stíga sín fyrstu dansspor í hringnum. Árið 1964 rann stóra stundinn upp þegar Liston tók á móti Ali. Eftir sjöundu lotu sat Liston í horninu sínu og til- kynnti uppgjöf vegna meiðsla í öxl og þar með var orðrómurinn um ósigranleika hans kveðinn niður. Liston mætti Ali aftur ári síðar og þá sigraði Ali með rothöggi í fyrstu lotu. Sumir telja að um „drauga- högg“ hafi verið að ræða, þ.e. að Liston hafi verið kominn á mála hjá mafíunni og tapað bardaganum viljandi. Eftir töpin gegn Ali náði Liston sér aldrei al- mennilega á strik og leiddist hann út í drykkju, eiturlyfjaneyslu og veðmál. Ábyggilegt er að orðrómurinn um hugsanleg tengsl hans við mafíuna hafa eyðilagt mikið fyrir þessurn frábæra hnefa- leikamanni. Árið 1971 fannst hann látinn í Las Vegas með heroín sprautu og skamm- byssu í fórum sínum og þá fannst uppstoppaður högg- ormur við hliðina á líkinu. Opinber dánarorsök er of- neysla eiturlyfja. Liston var dáður af mörgum, en líklega hataður af fleirum, sérstaklega hvítum Banda- ríkjamönnum, sem margir hverjir litu á hann sem stóra, slæma negr- ann. Á legstein hans er ritað: „Charles ‘Sonny’ Liston 1932-1971. Maður.“ trausti@frettabladid.is : .ssspiru Nýliðarnir styrkja hópinn: Fjórði Frakkinn hjá Fulham knattspyrna Fulham, nýliðarnir í ensku úrvalsdeildinni, halda áfram að styrkja leikmannahóp sinn en þeir hafa keypt franska miðvallarleikmanninn Sylvain Legwinski frá Bordeaux fyrir 3,3 milljónir punda. Legwinski, sem er 27 ára gamall, stóðst læknis- skoðun í gærmorgun og skrifaði í kjölfarið undir fjögurra ára samn- ing. „Eg býð Sylvain hjartanlega velkominn í hópinn," sagði Jean Tigana, stjóri Fulham. „Ég hef fulla trú á honum sem leikmanni enda hef ég áður unnið með hon- um hjá Monaco. Hann er mikill styrkur fyrir leikmannahópinn og ég hlakka til að sjá hann spila.“ Legwinski spilaði undir stjórn Tigana þegar Monaco vann frans- ka meistartitilinn árið 1997. Hann hefur leikið 142 leiki í efstu deild í heimalandi sínu og skoraði 14 mörk. Hann er þar með fjórði franski leikmaðurinn sem gengur til liðs við Fulham en fyrir eru varnarmaðurinn Alain Goma, SYLVAIN LEGWINSKI Hann lék undir stjórn Tigana þegar Monaco vann franska meistaratitilinn. miðvallarleikmaðurinn Steed Malbranque og hinn skeinuhætti sóknarmaður Louis Saha. ■ NBA: Ovissa með Jordan KÖRFUKNATTLEIKUR Óvíst er hvoit hinn 38 ára gamli Michael Jordan muni taka fram skóna að nýju í haust, þar sem hann er enn að ná sér af meiðslum sem hann varð fyrir í júní. Jordan rifbeinsbrotn- aði á æfingu í Chicago og var frá æfingum í mánuð og segir Tim Grover, einkaþjálfarinn hans, að þar hafi hann misst úr dýrmætan tíma af undirbúningstímabilinu. „Ég yrði mjög hissa ef Jordan tæki fram skóna að nýju eftir þetta,“ sagði Grover. „Maður getur samt aldrei afskrifað besta og ósérhlífnasta leikmann í heimi.“ ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.