Fréttablaðið - 23.08.2001, Síða 16
16
FRÉTTABLAÐIÐ
23. ágúst 2001 FIMIVITUDAGUR
AOTíZrJ
[tillsammans
BRIDCET JONES'S DIARY
kl. 10.30
ALFABAKKA 8, SIMI 587 8900
www.samfilm.is
BESTA PLATAN
EDDA BJÖRCVINSDÓTTIR
leikkona
Dásamlegur diskur
„Ég hef verið að hlusta á Hedwig
kynningardiskinn. Ég fékk hann í
hendurnar í fyrradag og hann inni-
heldur fjögur dásamleg lög. Ég er voða
lukkuleg með hann, og þó ég sé dálít-
ið tengd honum fuilyrði ég að þetta er
algjör englasöngur" ■
HÁSKÓLABÍÓ
LAFÐI DÍANA
Lögfræðingar hafa ráðlagt Þjóðverjunum
að halda Karlí og Camillu frá sviðinu því
það geti verið móðgun við bresku kon-
ungsfjölskylduna. Allir leikararnir eru þó
breskir þótt sungið sé á þýsku.
Söngleikur um Díönu
prinsessu:
Móðgar
konungsfjöl-
skylduna
sÖngleikur Hópur Þjóðverja ætl-
ar að búa til söngleik um líf
Díönu prinsessu. Söngleikurinn
mun bera nafnið Lady Di: Diana,
A Smile That Enchanted The
World sem útleggst nokkurn veg-
inn Lafði Díana: Díana, bros sem
heillaði heiminn.
Söngleikurinn fjallar um líf
hennar, ævintýrið sem hið kon-
unglega brúðkaup var og allt til
dauða hennar. Aðstandendur sýn-
ingarinnar segjast ekki ætla að
fara með hana til Bretlands og
þeim hefur verið ráðlagt af lög-
fræðingum að halda Karli prins
og ástkonu hans, Camillu Parker-
Bowles, fyrir utan hana og forð-
ast þannig að móðga konungsf jöl-
skylduna.
Hlutverkin verða öll í höndum
breskra leikara og söngvara, en
textinn og flest lögin verða flutt á
þýsku. Með aðalhlutverkið fer
hin 28 ára gamla Karen Gilling-
ham, en hún æfir nú á fullu þýska
framburðinn sinn. „Ég þurfti að
leggja höfuðið í bleyti. Þetta var
erfið ákvörðun en svo ákvað ég
að slá til. Ég lít svo á að ég sé að
votta henni samúð mína,“ sagði
Gillingham um hlutverkið. „Það
verður gaman að takast á við
þetta. Hún var ung stúlka sem
giftist prinsi en þið þekkið jú sög-
una.“
Díana og Karl giftu sig þann
29. júlí árið 1981, athöfn sem dró
að sér fjöldann allan af sjón-
varpsáhorfendum víðsvegar að
úr heiminum, en talið er að rúm-
lega milljarður manna hafi fylgst
með. Brúðkaupsveislan fór fram
í Buckingham höllinni. ■
Er eitthvaö
að safanum?
Söngkonan Courtney Love hefur
veitt rithöfundi aðgang að dag-
bókum Kurt Cobain . Cobain, sem
er fyrrum eigin-
maður hennar og
gítarleikari og
söngvari hljóm-
sveitarinnar Nir-
vana framdi sjálfs-
morð árið 1994, á
hátindi feril síns.
Rithöfundurinn,
Charles R. Cross,
ætlar að nota dagbókina í heimild-
arvinnu fyrir nýja bók um líf
söngvarans. Bókin mun bera nafnið
„Heavier Than Heaven: Lífshlaup
Kurt Cobain." Dagbækurnar eru 28
talsins og skrifaði Cobain þá fyrstu
þegar hann var unglingur og allt til
dauðadags. Cross þessi hefur þegar
lagt talsverða vinnu í rannsóknar-
störf fyrir bókina sína og komst
m.a. yfir fyrstu upptökuna af
Cobain, þar sem hann syngur í
samkvæmi með félögum sínum.
„Ég trúði ekki að þetta væri segul-
bandið. Þetta hefur svo sögulega
merkingu og það skiptir ekki máli
hvaða hljómsveit það er Bítlarnir,
Rolling Stones eða Nirvana, þetta
er frábært." Bókin verður gefin út
þegar tíu ár verða liðinn frá útgáfu
breiðskífunnar Never Mind.
Islandsvinurinn Angelina Jolie er
nýjasti sendiherra Sameinuðu
þjóðanna. Hún tók við góðgerðis-
sendiherraembætt-
inu í formlegri at-
höfn í Genf s.l.
mánudag. Að sögn
Kris Janowski,
talsmanns flótta-
mannahjálpar SÞ,
mun Jolie koma
„réttum“ skilaboð-
um til unglinga.
„Hún er mjög vinsæl meðal unga
fólksins. Hún mun hjálpa til við að
koma skilaboðunum okkar til
skila,“ sagði Janowski. Jolie fer
með aðalhlutverkið í myndinni
Tomb Raider þar sem hún leikur
grafarræningjann Löru Croft. Upp-
tökur myndarinnar fóru m.a. fram
á íslandi og í Kambódíu og í kjöl-
farið fór hún á vegum SÞ til síðar
nefnda landsins sem og Sierra Leo-
ne, Fílabeinsstrandarinnar og
Tansaníu. Hún er þar með komin í
hóp með ekki ómerkara fólki en
Muhammad Ali, Michael Douglas,
Roger Moore, Geri Halliwell og
Zinedine Zidane.
NABBI
Ég get olveg eins sleikt sláttuvélina
hans Ögmundar í næsta húsi!
Sýnd m/ ensku tali kl. 4, 6, 8 og 10 vrr 258
Sýnd m/ íslensku tali kl. 4 og 6 vrr 265
jSHREK m/íslensku tali kl. 4 ogelKI
jSHREK m/ensku tali kl. 4, 6, 8 Og 101 [249!
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 vit 257
JURASSIC PARK III kl. 4, 6, 8 og 10 aéoj
jBRIDGET JONES DIARIES kl.8ogl0[ra
jPEARL HARBOR M.8iga
ÓÚTREIKNANLEC
Björk Cuðmundsdóttir heillaði Frakkana upp úr skónum á tónleikunum I Crand Rex lelkhúsinu. Hún heldur líklega tónleika hér á
landi I lok ársins.
T ónlistarsköpun
af bestu gerð
Björk Guðmundsdóttir hélt fyrstu tónleikana í Vespertine tónleika-
röðinni í Frakklandi og vakti að vanda mikla lukku. Le Monde fjall-
aði ítarlega um tónleikana ásamt hinu virta tónlistartímariti NME.
tónlist Erlendir fjölmiðlar fara
fögrum orðum um Björk eftir
tónleika hennar í Grand Rex
leikhúsinu í Montmatre í Frakk-
landi á þriðjudaginn. Þetta voru
fyrstu tónleikarnir í tónleika-
ferðalagi hennar í tilefni af nýju
breiðskífu hennar er ber nafnið
Vespertine.
Frakkarnir tóku henni opnum
örmum og var troðið út úr dyr-
um í leikhúsinu, rúmlega 2500
manns. Á vefsvæði tónlistar-
tímaritsins NME er farið fögrum
orðum um Björk. Þar segir m.a.
að Björk sé frá íslandi, hafi
fundið sína skapandi rödd í Bret-
landi, sé búsett í Ameríku en
njóti mestu vinsældanna í
Frakklandi. Hún er sögð fara
ótroðnar slóðir í listsköpun sinni
en hún byrjaði tónleikana á því
að koma fram í svörtum sokka-
buxum og í páfuglsbúningi og
flutti lagið All is Full of Love.
Fleiri lög af nýju plötunni fylgdu
í kjölfarið en eftir hlé flutti hún
eldra efni, lög á borð við Human
Behaviour, Joga, Hyperballad og
Venus As A Boy, klædd eldrauð-
um fjaðurskrúða.
Greinarhöfundur NME fer
fögrum orðum um Björk og seg-
ir m.a. „Þetta var tónlistarsköp-
un af bestu gerð, ólíkum efnum
var fléttað saman í eitt, á þann
hátt sem engum öðrum dytti í
hug að reyna.“
I franska dagblaðinu Le
Monde eru tvær greinar tileink-
aðar Björk. Þar er sagt að kvöld-
ið á Grand Rex hafi verið milli
frosts og funa og hún hafi hrifið
áhorfendur svo með sér að þegar
hún spilaði á lágu nótunum hafi
ekki heyrst minnsti kliður. Hún
er sögð óútreiknanleg, sé skap-
andi listamaður sem er óhrædd
við að prófa eitthvað nýtt en fari
svo víða í tónlist sinni, með því
að blanda saman rokki, strengj-
um, elektrónískri tónlist, djazzi
og fleiru, að tónlistin verði að-
gengileg fyrir alla. Með Björk
spilar 60 manna sinfóníuhljóm-
sveit og kór skipaður fimmtán
stúlkum frá Grænlandi.
Tónleikaferðalagið mun taka
fjóra mánuði og mun Björk að
öllum líkindum spila hér á landi
ásamt Sinfóníuhljómsveit ís-
lands í lok ársins.
kristjan@frettabladid.is
HAGATORGI, SIMI 530 1919
Sam Neiíl WiUwm H, Macy Téa leotti
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
Þar sem allir salir eru stórir
Sýnd m/ ensku tali kl. 4,6, 8 og 10
Sýnd m/ íslensku tali kl. 4 og 6
CRADLE WILL ROCK
BLINKANDE LYGTER
kl. 5.45 og 10 j
THE VIRGIN SUICIDE