Fréttablaðið - 14.09.2001, Page 8

Fréttablaðið - 14.09.2001, Page 8
1 i Seðlabankar víða um 1 heim: Heita fjár- hagsaðstoð árás Á AMERÍKU Seðlabankar víða um heim, meðal annars í Japan og Sviss, hafa boðið fram fjárhagsað- stoð við Bandaríkin til að koma í veg fyrir efnahagslegan óstöðug- leika í kjölfar hryðjuverka á þess- um stærsta markaði heims. Bandaríski Seðlabankinn var fyrstur til að lýsa því yfir að reynt yrði með öllum ráðum að koma í veg fyrir bankakreppu í landinu. Seðlabankastjórar vilja koma í veg fyrir að viðskiptabankar haldi að sér höndum í lánamálum í kjöl- far hryðjuverkanna. ■ Reiðir Bandaríkjamenn: Flykkjast í herinn árás Á ameríku Fjöldinn allur af reiðum Bandaríkjamönnum hefur haft samband við skrifstofur sem skrá fólk í herinn. Sumir láta nægja að hringja og spyrja hvern- ig þeir geti orðið að liði, en aðrir mæta á staðinn og vilja ólmir og uppvægir fara að berja á hryðju- verkamönnum. Herforingi í Flórída talaði um að „bylgja föðurlandsástar" hafi riðið yfir landið og sagði fyrstu viðbrögð margra við hryllingnum í New Yorlc og Washington hafi verið að skrá sig í herinn til þess að verja landið sitt. ■ —«— Framkvæmdastjórí Sólstöðu: Skattsvikin kosta 22,2 milljónir dómsmál Framkvæmdastjóri fyrir- tækisins Sólstöðu, sem úrskurðað var gjaldþrota 18. maí 1999, var á miðvikudag í héraðsdómi Reykja- nes dæmd til greiðslu 22,2 milljóna króna sektar og í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ekki staðið skil á virðisauka- skatti og opinberum gjöldum sem hún hélt eftir af launum starfs- manna. Samtals var um að ræða ríflega 11 milljón króna skattsvik á árunum 1997,1998 og 1999. Framkvæmdastjórinn, sem er 41 árs gömul kona, játaði brot sín. Hún fór fram á vægustu refsingu og benti m.a. á að hún væri eigna- laus og að meðeigandi hennar og félagi í stjórn Sólstöðu væri ekki ákærð í málinu þrátt fyrir að hafa átt jafna þátttöku í ákvörðunum um fjármálastjórn félagsins. Dóm- ari tók ekki undir þetta en sagði að líta bæri til þess að konan hefði ját- að brot sitt hreinskilnislega og að hún hafi ekki áður sætt refsingu. Framkvæmdastjórinn fyrrver- andi hefur fengið fjögurra vikna frest til að greiða umrædda 22,2 milljóna króna sekt eða verða gert að sæta fangelsi í tíu mánuði. ■ |stutt[ Fulltrúaráðsfundur lífeyris- þega í Starfsmannafélagi Reykjavíkur varar við því að líf- eyrissjóðum landsmanna verði i stefnt í tvísýnu í þágu stóriðjuá- i forma á Austurlandi. Fundurinn l skorar á stjórnir lífeyrissjóða í landinu að láta ekki beita sig i þrýstingi til að gefa skuldbind- i ingar um fjármögnun þessara stóriðju sem sé bæði umdeild og hvílir auk þess á mjög ótraustum fjárhagslegum grunni. —♦— Félag íslenskra flugumferðar- stjóra hefur kært til lögreglu- stjórans í Reykjavík meint brot á lögum um leynd og vernd fjar- skipta og brot á lögum um per- sónuvernd. Kært er vegna þess „þegar birt var í fjölmiðlum ítar- legt afrit fjarskipta i tengslum við flugslys í Skerjafirði 7. ágúst 2000“. FRÉTTABLAÐIÐ 14. september 2001 FÖSTUDAGUR Lögreglumaður í Reykjavík: Fékk greiddar skaðabætur dómsmÁl Lögreglumanni í Reykja- vík voru dæmdar skaðabætur frá ríkissjóði vegna áverka sem hann hlaut við skyldustörf sín. Voru rök ríkissjóðs þau að ekki ætti að greiða manninum bætur þar sem ekki lægi fyrir að áverkar lög- reglumannsins hafi verið til þess fallnir að gera hann óvinnufæran. Maðurinn hafði verið sleginn í andlitið með þeim afleiðingum að hann varð allur blár og bólginn og segir í niðurstöðum dómsins að hann hafi þótt óvinnufær því ekki sé við hæfi að lögreglumaður sé að störfum með slíka áverka. Maðurinn hafði farið fram á tæp- ar 112.000 kr. ásamt dráttarvöxt- um en samkvæmt dómsúrskurði þóttu hæfilegar þjáningarbætur 60.000 kr. ■ Reykur frá Tvíburaturnum: Veldur lungnasjúkdómum árás Á amerÍku Reykur, sandur og agnir sem bárust um Manhattan- eyju eftir að ráðist var á World Tra- de Center geta valdið astma-köst- um, lungnaþembu og öðrum lungnasjúkdómum, á næstu dög- um. Jafnvel fólk sem ekki var í grennd við byggingarnar gæti fengið slæm köst, ef það er haldið sjúkdómum nú þegar. Agnir í loftinu geta líka skaðað þá sem eru með hjartasjúkdóma. Þeir sem voru á slysstað gætu einnig fengið einkenni lungnabólgu eða astma á næsta sólarhring. Þau geta verið lífshættuleg eða valdið fólki varanlegum óþægindum. E.Neil Schachter, læknir á sjúkrahúsi í New York sagði að jafnvel hlífðarbúningar dygðu ekki í öllum tilfellum. Hann sagði að þegar væri búið að leggja fólk inn af völdum reykeitrunar og skemm- da á lungum. Fólkið þjáðist af and- nauð, hósta og brjóstverkjum. ■ Á SLYSSTAÐ Slökkviliðsmenn og aðrir sem eru á slys- stað eiga á hættu að fá einkenni astma á næsta sólarhring. Margir húseigendur uggandi: EFTIR OSKUSTORA/IINN „Allt umhverfið þarna niður frá er hulið í fínu ryki, rétt eins og einhver hefði stráð úr hveitipoka," segir Hrafn Óli Sigurðsson. Við honum blasti eyðilegging árásarinnar. Það var ekkert að segja Hrafn Óli Sigurðsson fékk vegna starfs síns að fara inn á lokaða svæðið á Manhattan. Aska, ryk og eyðilegging blasti hvarvetna við. „Við gengum heim í þögn, það var ekkert að segja.“ árás Á ameríku „Það var gífurlega óhugnanlegt að standa nú í raun- veruleikanum og horfa augliti til auglitis á eitthvað sem maður gat áður bara ímyndað sér að væri at- riði úr kvikmynd," segir Hrafn Óli Sigurðsson, hjúkrunarfræðingur í New York. Hann býr við 15. stræti á Manhattan, en svæðinu frá 14. stræti hefur verið lokað. „Við vor- um beðnir að fara að Pace Uni- versity sem er í 900 metra fjarlægð frá World Trade Center. Við fengum aðeins að fara í gegn þar sem við vorum hjúkrunarkennarar í háskól- anum, en bara þrír kennarar búa á Manhattan. Við gegnum Þegar við komum nær hversu yfirgnæfandi eyðileggingin er: allt umhverfið þarna niður frá er hulið í fínu ryki, rétt eins og einhver hefði stráð úr hveiti- poka. Fyrir framan há- skólann er um það bil 3 sentimetra þykkt lag af ryki og inn um alla byggingu er ryk.“ Hrafn Óli segir að nemendur hafi verið fluttir burt, en þeir ver- niður eftir. sáum við HRAFN ÓLl SIGURÐSSON Hann starfar sem hjúkrunar- fræðingur í New York ið á staðnum þegar árásin var gerð. „Sem betur fer voru nemendurnir allir heilir á húfi en þau höfðu náttúrlega orðið vitni að þessu öllu og öskustorminum sem myndaðist þegar trun- arnir hrundu.“ Hann segir að flutn- ingar nemenda burt af svæðinu hafi gengið vel og skipulega. Raf- magnslaust sé á svæð- inu og skólinn verði ekki opnaður fyrr en í fyrsta lagi á miðviku- dag. „Bráðamóttaka hafði verið sett upp á fyrstu hæð skólans í gær og búið var að rýma kjallarann til að búa til pláss fyrir bráðabirgðalík- hús. Bílar sem voru brunnir og þaktir í ösku höfðu verið fluttir í hliðargötur við skólann til að rýma fyrir þungavinnuvélum og flutn- ingabílum sem voru byrjaðir að fly- tja rústirnar burt. Reykur lá stund- um yfir en brunalyktin var allsstað- ar. Þegar nemendurnir voru farnir gengum við heim í þögn, það var ekkert að segja." haflidi@frettabladid.is Allslaus ef húsið brennur brunabótamat „Þetta er dauðdóm- ur fyrir mig,“ segir Anna Þórey Sigurðardóttir. „Brunabótamatið lækkar um tólf milljónir." Sam- kvæmt brunabótamati rýrnar eignin um 42 prósent. Matið var rúmlega 27 milljónir, en eftir breytingarnar verður það fimmt- án milljónir. Heimili Önnu er tvær hæðir og ris í húsi í gömlu húsi við Tryggvagötu. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á húsinu, bæði að innan og utan. „Lánin sem hvíla á eigninni eru um tólf milljónir," segir Anna. „Brenni húsið stend ég uppi nær allslaus.“ Anna segir að það sé ekki eingöngu sú staðreynd að hún hafi ekki fjármagn til að endurbyggja heimilið ef það brenni, sem valdi henni áhyggj- um. Veðhlutfall eignarinnar er, í einni svipan, orðið áttatíupró- sent af brunabótamatinu. í stað 44 prósent áður. „Fjárhagsáætl- leika á að taka lífeyrissjóðslán,“ anir mínar hafa hrunið," segir segir Anna. „Það hef ég ekki hún. „Ég vissi að ég hefði mögu- lengur.“ ■ VIRÐl HÚSSINS AÐEINS HLUTI AF ÞVÍ SEM VAR Margar húseigendur munu ekki geta endurbyggt heimili sín ef þau brenna.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.