Fréttablaðið - 14.09.2001, Side 22

Fréttablaðið - 14.09.2001, Side 22
HRAÐSOÐiÐ , ,*mm» »»»-»■ • ?* FKÉT^A*Bt7*Щ * ' ’ i* r * * .w/!fW<*f*i,Wí,{ViWpwt,» **<*<* i*t * íVíWM^ 4 BALDUR ÞÓRHALLSSON Stjórnmálafræðingur Island hefur neitunarvald HVAÐ þýðir að NATO bregðist við á grundvelli 5. greinar sáttmálans? Það þýðir að NATO-ríkin líta ekki á þessa hryðjuverkaárás eingöngu sem árás á Bandaríkin heldur á þau öll, þar á meðal ísland. SKIPTIR máli að ekkert ríki stendur á bak við árásirnar svo vitað sé? Hingað til hafa menn túlkað 5. grein- ina þannig, að ef ríki eða ríkjabanda- lög ráðast á eitt aðildarríki NATO, þá sé það árás á þau öll. Undir þessum breyttu kringumstæðum þá er það túlkað í víðara skilningi. Það þýðir að ef stórfelld hryðjuverkaárás yrði gerð á ísland myndi NATO líklega bregðast við á svipaðan hátt. Það væri árás á NATO-ríkin í heild sinni frekar en ísland eingöngu. tK þessi endurskilgreining afleiðing breyttrar heimsmyndar? Já, þetta er eðlilegt vegna breyttrar heimsmyndar, að NATO túlki þetta svona. Áherslan á síðustu 10 árum hefur verið að berjast gegn því að svona atburðir gætu átt sér stað. Það hefur verið minna í forgrunni að NATO óttist árás eins ríkis eða ríkja- bandalags. ÆTTI þetta ekki frekar vera á höndum lögreglu? Sú spuming hlýtur að vakna hvað Sameinuðu þjóðirnar geti gert. í dag eru Sameinuðu þjóðirnar það veik- burða að þær geta ekki tekið á svona málum. Það hefur komið upp sú krafa áður að hafa alheimslögreglu á vegum SÞ. Það er mjög eðlilegt að velta þeirri spurningu upp, en um leið og það myndi gerast væru Bandaríkjamenn að vissu leyti að gefa öðrum ríkjum betra tækifæri til að stjórna þeirra málum. Bandaríkin hafa mestu hernaðarlegu getu til að bregðast við svona árásum. ER hægt að bregðast við ef eitthvert riki NATO í fastaráðí þess neitar? Formlega séð hefur hvert og eitt að- ildarríki neitunarvald, þar á meðal ísland. Öll ríkin hafa því verið sam- mála um að túlka þessa árás á Bandaríkin sem árás á öll ríki NATO. ERU árásirnar afleiðing utanríkisstefnu Bandaríkjanna? Bandaríkjamönnum hefur mistekist að miðla málum í Miðausturlöndum. Það er samt ekki hægt að segja, að stefnubreyting Bush í utanríkismál- um hafi verið kveikjan að þessum árásum. Hins vegar hljóta Bandarík- in að þurfa að endurmeta samskipti sín við arabaþjóðirnar og tryggja tengslanet inn í öll ríkin. Þannig geta þau að minnsta kosti aflað sér upp- lýsinga ef eitthvað svona er í bígerð. Margir arabar líta á ísrael og Bandaríkin sem eitt. Því sjá þeir það þannig að Vesturlöndin, sér í lagi Bandaríkin, styðji í rauninni aftökur ísraelsmana á Palestínumönnum. Þetta er vandinn sem Vesturlönd og Bandaríkjamenn standa frammi fyr- ir í dag. ■ 100. tölublað Fréttablaðsins: Blaðið áhugavert °g fréttablaðið „Mér hefur fundist blaðið vera mjög áhugavert og fjöl- breytt," segir Lúðvík Geirsson, framkvæmdastjóri Blaðamannafé- lags íslands, en Fréttáblaðið fagn- aði í gær útgáfu á 100. tölublaðinu. Lúðvík segir þáð hafa tekið hann tíma að læra að lesa blaðið, en sagði þrátt fyrir það vel hafa tekist til. „Það er gott yfirlit og yfirgrip inn- lendra og erlendra frétta í blaðinu og hefur það náð að marka sig með því að taka á málum sem kannski er ekki verið að fjalla um annars stað- ar.“ Lúðvik fagnar allri grósku og fjölgun fjölmiðla á íslandi og segist hafa heyrt það á viðbrögðum ann- arra að menn kynnu að meta þessa víðbót í íslenskri útgáfu. „Það hefur verið útþensla í ljósvakamiðlunum en menn hafa saknað þess að hafa ekki þá fjölbreytni í blaðautgáfu sem var hér í gamla daga. Þrátt fyr- ir að sú fjölbreytni hafi einkennst af flokksblaðaútgáfu var hún samt sem áður ákveðið krydd í tilver- unni,“ segir Lúðvík sem finnst Fréttablaðið hafa verið viðbót sem þörf var í blaðaútgáfu á íslandi. ■ LÚÐVÍK GEIRSSON Lúðvík telur gott yfirlit og yfirgríp innlenda og erlendra frétta I Fréttablaðinu og segir það hafa náð að marka sig með því að taka á málum sem ekki sé verið að fjalla um á öðrum vettvangi. FRÉTTIR AF FÓLKI Von er á fyrstu skáldsögu Þor- valds Þorsteinssonar í haust. Það er að segja fyrstu skáldsögu fyrir fullorðna, en bækur Þor- valds um Blfðfinn hafa slegið í gegn á íslandi. Skáldsagan fjallar um tvöfalt líf Haraldar Har- aldsson kennara og glímu hans við þá flóku tilveru sem tvöfalt líferni skapar. Sam- kvæmt fréttatilkynningu útgef- anda mun skáldsagan eflaust hreppa titilinn „djarfasta skáld- saga vertíðarinnar." Bókin mun einnig vera „fyndin, óvænt, skemmtileg og frumleg.“ Spenn- andi verður að sjá hvað^r þarna á ferð. Þorvaldur gefur einnig út hreinræktaða barnabók, bók ætlaða ungum les- endum, sem heitir Vettlingarnarnir hans afa. Það mun vera hugljúf jóla- saga - falleg og notaleg. Það mun vera fyrsta bókin í nýjum barna- bókaflokki Bjarts sem kallast Litlir bókaormar. Þorvaldur verð- ur áberandi í vetur því auk bókanna tveggja verða frumsýnd tvö leikverk í Borgarleikhúsinu á þessu leikári. Leikgerð eftir Blíð- finnssögu og leikritið And of course Björk sem sýnt verður eftir áramót. Hinn umdeildi fyrrverandi að- alstjórnandi Sinfóníuhljóm- sveitar Islands, Rico Saccani, átti samkvæmt auglýstri vetrardags- skrá að stýra hljómsveitinni á tónleikum 5. októ- ber. Nú berast þær fregnir að Saccani hafi for- fallast og muni ekki koma til landsins. Sam- kvæmt upplýsing- um Sinfóníunnar fylgdu engar skýringar forföllun- um. Saccani yfirgaf stjórnunar- stól hljómsveitarinnar með mikl- um látum í vor og spurningin er hvor að hann hafi ekki getaðy hugsað sér að snúa aftur til ís- lands þegar allt kom til alls. Stjórnendur Sinfóníunnar leita nú að stjórnanda til að fylla skarð Saccanis á tónleikunum en fiðlu- konsert og sinfónía eftir Tsja- jkovskíj eru á efnisskránni um- rætt kvöld. Magnús Scheving og fleiri starfsmenn Latabæjar voru staddir í Washington í viðskipta- erindum þegar árásin á Pentagon og World Trade Center átti sér stað. „Fundinum sem við áttum að vera á, á þriðju- dag, var frestað,“ sagði Ágúst Ingv- arsson samstarfsmaður Magnús- Velt vöngum yfír samábyrgð fólks Málþing um þróunarsamvinnu og mannréttindi í Ráðhúsinu á morg- un. Islenskt dagsverk 2001 fyrirhugað í október. Peningunum varið í að styrkja ungmenni til iðnnáms á Indlandi. FRAIMKVÆMDASTJÓRI (SLENSKS DAGSVERKS „Fólk sem bundið er á klafa brauðstritsins veit allt of lítið um réttindi sín," segir Anna tára Steindal. Hún segir að með íslensku dagsverki sé ætlunin að vekja fólk til umhugs- unar um þessi mál en ágóðanum af söfnuninni verður varið í að kosta fólk í skóla. ÞRÓUNARAÐSTOÐ Á morgun verður haldið málþing um þróunarsam- vinnu og mannréttindi í Ráðhúsi Reykjavíkur. Að umræðunum koma forsvarsmenn allra helstu hjálparsamtaka á íslandi og er forseti íslands, hr. Ólafur Ragn- ar Grímsson, sérstakur gestur þingsins auk þess sem hann flyt- ur ávarp við upphaf þess. Flutt verða níu erindi þar sem meðal annars verður velt vöngum yfir samábyrgð einstaklinga, ríkis- valds og fjölmiðla gagnvart ríkj- um og þjóðfélagshópum sem eiga um sárt að binda. Anna Lára Steindal, al- þjóðasiðfræðingur og fram- kvæmdastjóri fslensks dags- verks, mun flytja erindi á ráð- stefnunni en til stendur að hley- pa íslensku dagsverki af stokk- unum 24. október n.k. þar sem framhaldsskólanemendur um land allt yfirgefa skólastofurnar og vinna eða taka þátt í öðrum fjáröflunarverkefnum. Upphæð- in verður notuð til að byggja upp iðnnám í tveimur héruðum á Ind- landi. íslenskt dagsverk var síðast árið 1997 og söfnuðust þá um 5 milljónir sem voru notaðar til uppbyggingar á Indlandi. Anna Lára segir framhaldsskólanema hafa tekið að sér öll möguleg og ómöguleg störf í þeirri söfnun og á von á svipað verði uppi á ten- ingnum í ár. „Krakkarnir hafa verið mjög dugleg að búa sér til verkefni. Til að mynda í Menntaskólanum og Verkmenntaskólanum á Akur- eyri þar sem nemendur settu upp bílaþvottastöð þar sem bæjarbú- ar gátu fengið bílaþvott. Þá settu nemendur í Hússtjórnarskólan- um á Hallormsstað upp ind- verskt veitingahús,“ segir Anna Lára. Að hennar sögn er íslenskt dagsverk gott dæmi um starf sem skilar árangri. Peningunum sé vel varið og þeir nýttir í hag- nýta menntun fyrir einstaklinga á aldrinum 15 - 20 ára, sem hafa stundað lítið eða ekkert bóknám. „Þannig að í stað þess að krakkarnir séu að setjast aftur á skólabekk með grunnskólanem- um læra þau einhverja iðn. Stúlkurnar læra til að mynda mikið að sauma og þegar þær út- skrifast eru þeim gefnar saum- vélar. Þar með hafa þær öðlast forsendu til að sjá fyrir sér sjálf- ar.“ kristjangeir@frettabladid.is ar í samtali við Fréttablaðið. Hann sagði fólk vera í losti í Was- hington. Á þriðjudag hefði enginn sést á ferli en daginn eftir hefðu hjólin aðeins verið farin að snú- ast aftur. Latabæjarhópurinn flaug frá New York til Was- hington seinni partinn á mánudag og prísaði sig sælan að hafa ekki átt bókað flug á þriðjudag. Hótelið sem þau dveljast á er í sjónlínu við Pentagon. „Skömmu eftir árásina á Penta- gon horfðum við á flugvél sem stefndi beint á Pentagon og þá var eins og orustuflugvélar kæmu og bægðu henni frá,“ sagði Ágúst. Hann sagði þó að or- ustuflugvélar hefðu verið þarna á sveimi og verið gæti að hin vélin hefði verið að koma inn til lend- ingar en engu að síður hefði þetta verið óhugnanleg sjón.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.