Fréttablaðið - 18.09.2001, Side 2

Fréttablaðið - 18.09.2001, Side 2
FRÉTTABLAÐIÐ KJÖRKASSINN 18. september 2001 ÞRIDJUPACUR JAFNTEFLI Kjósendur á visi.is skiptast f tvo jafna hópa f afstöðunni til þess hvort árásin á Ameríku hafi verið árás á ísland. Ertu sammála því að líta á árásina á Ameríku sem árás á ísland? Niðurstöður gærdagsins á www.visir.is Já Nei Spurning dagsins í dag: Á að ógilda ákvarðanir um breytingu á fasteignamati og brunabótamati? Farðu inn á vísi.is og segðu I þfna skoðun I ____________ djjTC* STYKKISHÓLMUR Um mánaðamótin verður aðsetur Rann- sóknarnefndar sjóslysa flutt frá Reykjavik til Stykkishólms. Nefndin heyrir undir Sam- gönguráðuneytið. Rannsóknarnefnd sjó- slysa flutt út á land í flugstöð í heimabæ ráðherra BYCCÐASTEFNA Fyrsta næsta mán- aðar flytur Rannsóknarnefnd sjó- slysa úr Hafnarhúsinu við TVyggvagötu í Reykjavík í Flug- stöðina á Stykkishólmi. Ragnhild- ur Hjaltadóttir, skrifstofustjóri í samgönguráðuneytinu, segir flutninginn vera lið í flutningi stofnana út á land í samræmi við byggðastefnu ríkisstjórnarinnar. „Starfsvettvangur nefndarinnar er vitanlega landið allt, ekki bara Reykjavíkurhöfn. Af þeim sökum þótti hún kjörin stofnun til flutn- ings,“ sagði hún. Ragnhildur segir að undirbún- ingur flutningsins hafi staðið um skeið því flutningurinn hafi verið ákveðinn með nokkrum fyrirvara og bendir í því sambandi á reglu- gerð um rannsókn sjóslysa frá því í janúar á þessu ári. í fjórðu grein reglugerðarinnar segir: „Nefndin hefur aðsetur í Stykkishólmi." At- hygli vekur að Stykkishólmur er heimabær Sturlu Böðvarssonar, samgönguráðherra. ■ Hlutabréfamarkaðir: Hækkun hjá framleiðend- um hergagna markaðir Dow Jones lækkaði í við- skiptum gærdagsins á Wall Street um 7,1% og Nasdaq um 6,8% þrátt fyrir vaxtalækkun Bandaríska Seðlabankans. Á meðan gengi hlutabréfa í flestum geirum fór nið- ur á við var mikill uppgangur í hernaðargeiranum og hækkuðu hlutabréf í fyrirtækjunum Nort- hrop Grumman, Raytheon og Lock- heed Martin sem öll framleiða her- flugvélar að meðaltali um 20%. Gengi flugfélaga og fyrirtækja sem framleiða farþegaflugvélar féll hinsvegar gríðarlega og átti það stærstan þátt í að draga niður helstu vísitölur. Móðurfélag United Airlines, sem átti tvær af þeim flugvélum sem notaðar voru í hryðjuverkaárásinni 'sl. þriðjudag, féll t.a.m. um rúm 40%. ■ •Nýjar reglur um fasteignamat: Fasteignamat lóðar hefur fjórfaldast FASTEICNAMAT „Fasteignamat lóð- arinnar hefur hækkað um 253 prósent eftir að breytingar á fasteigna- og brunabótamati tóku gildi,“ segir Reynir Gunnarsson húseigandi við Álfaskeið. Hann segir að sér hafi að vonum brugð- ið þegar að hann sá hækkunina og kannað hvort að aðrir húseig- endur í nágrenninu hefðu sömu sögu að segja. Komið hefði á dag- inn að fasteignamat lóðar hefði hækkað hjá fleirum en honum og væri hækkunin á bilinu 200 til 250 prósent. „Fyrir breytingar var lóðin metin á um 1,2 milljón- ir, en eftir hækkunina er hún metin á um 4,2 milljónir. Það eru engar forsendur fyrir því að verðmæti lóðarinnar hafi aukist svona mikið á einni nóttu,“ segir Reynir. Hann segir að fasteigna- mat húseignarinnar hafi hækkað mun minna. Hann geti ekki betur séð en að verið sé að nota fast- eignamat lóða til að setja viðbót- arálögur á fólk og auka þannig tekjur sveitarfélagsins. „Þetta er hrein eignaupptaka hjá fólki,“ segir Reynir. ■ LÓÐARMATIÐ HEFUR FJÓRFALDAST „Engar forsendur eru fyrif þessari miklu hækkun. Þetta er hrein eignaupptaka," segir Reynir Gunnarsson, íbúi við Álfaskeið. Tilræðismenn vildu beita flugvélum 1993 Gömul hugmynd hryðjuverkamanns að ræna flugvélum skoðuð á ný í rannsókn árásarinnar á Ameríku. A.m.k. eitt nafn á listanum yfir hina 19 grunuðu er falsað. Maðurinn er sprelllifandi og var aldrei um borð. VfSBENDINCA LEITAÐ Bandaríska alríkislögreglan FBI hefur unnið að rannsókn hryðjuverkanna. Þarna sjást lög- reglumenn grandskoða svæðið þar sem ein flugvélanna fjögurra hrapaði f Pennsylvaníu. árás Á amerIku Ramzi Ahmed Yusef er maðurinn sem skipu- lagði sprengjuárásina á World Trade Center í New York árið 1993. Upphaflega hugmyndin hans var hins vegar að ræna far- þegaflugvélum og fljúga þeim á tvíburaturnana. Yusef er rúmlega fertugur Pakistani sem setið hefur í fang- elsi í Bandaríkjunum frá því 1998, og er hann að afplána alls 240 ára fangelsisdóm. Þegar hann var handtekinn fundust í fórum hans áætlanir um sjálfs- morðsárásir nauðalíkar þeim sem framkvæmdar voru í Bandaríkj- unum í síðustu viku. Sú áætlun var aldrei fram- kvæmd vegna þess að hryðju- verkahópur hans réði ekki yfir því sem til þurfti. Rannsókn bandarískra lögreglumanna bein- ist nú m.a. að því hvort hugmynd- ir Yusefs hafi verið notaðar í hryðjuverkaárásunum núna. Bandaríska alríkislögreglan FBI hefur handtekið 49 manns í tengslum við rannsóknina á hryðjuverkunum í Bandaríkjun- um í síðustu viku. Henni hafa borist símleiðis meira en 7.700 ábendingar, sem gætu komið að gagni við rannsóknina, og um 47.000 ábendingar á Internetinu. Hins vegar er nú komið í ljós að einn þeirra 19 manna, sem grunaðir eru um að hafa rænt flugvélunum fjórum, er bráðlif- andi og var aldrei um borð í nein- ni þessara véla. Þetta kom fram í breska blaðinu Independent í gær. Maðurinn gaf sig fram við bandaríska sendiráðið í Beirút og krafðist þess að nafn hans verði hreinsað af öllum grun. Árið 1995 hafði hann tilkynnt lögregluyfir- völdum í Bandaríkjunum að vega- bréfi sínu hafi verið stolið. Sú staðreynd, að einn flugræn- ingjanna hefur augljóslega villt á sér heimildir, leiðir óhjákvæmi- lega til þeirrar ályktunar að það geti átt við um fleiri. Ekki Iiggur Ijóst fyrir, hvernig FBI fór að því að þrengja hringinn niður í þessi 19 nöfn, né heldur hvaða rök lágu þar að baki. Það eina sem gefið hefur verið upp, er að nöfnin hafi verið á farþegalistum vélanna, og séu af arabískum toga. Ekkert hefur verið gefið upp um það, hvað það er sem tengir þessi nöfn við hryðjuverkasamtök að öðru leyti. gudsteinn@frettabladid.is Staða Hafnarfjarðarbæjar vegna hækkunar fasteigna- og lóðamats: Lóðatekjur bæjarins tvö- íaldast verði álagning óbreytt fasteignamat í Hafnarfjarðarbæ hækkar fasteignamat lóða að meðaltali um 91 prósent, þótt dæmi séu um fjórföldun eins og í fréttinni efst á síðunni. Fast- eignamat lóða er einn af tekju- stofnum sveitarfélagsins. Miðað sömu álagsprósentu og í fyrra munu því tekjur Hafnarfjarð- arbæjar af lóðagjöldum, tvöfald- ast á næsta ári. „Ef fasteignamat lóða hefur hækkað um 91 pró- sent, þá hlýtur það að segja sig sjálft að tekjur sveitarfélagsins hljóta að aukast sem því nemur,“ segir Magnús Gunnarsson, bæj- arstjóri Hafnarfjarðar. Að sögn Magnúsar er það sveitarfélag- anna að ræða það, hvort þau telji sig þurfa á þessum tekjustofni að halda eða hvort að honum verði breytt í ljósi þessara staðreynda. Ekki hefur verið tekin afstaða til þessa máls, hjá Ilafnarfjarðar- bæ, þar sem að umræður um HAFNARFJORÐUR Tvöföldun á fasteignamati lóða mun hækka tekjur bæjarins af lóðagjöldum. MAGNÚS GUNNARSSON Sveitarfélaganna að ræða það hvort þau þurfi á tekjustofninum að halda. fjárhagsáætlanir næsta árs eru ekki hafnar. Magnús segir að skoða þurfi nauðsyn þess að tekjustofnarnir standi undir þeim gjöldum sem sveitarfélagið þurfi að bera kostnað af, út frá tekjustofnum sveitarfélagsins og þeirri þróun sem þar hefur orðið. Magnús sagðist, á þessu stigi málsins, ekki tilbúinn til taka af- stöðu til þess hvort álag vegna lóðargjalda verði lækkað. Málið verði skoðað áður en að ákvörðun verði tekin. ■ INNLENT Heildarskuldir Norðurljósa hf. nema um 9 milljörðum króna samkvæmt árshlutareikn- ingi fyrir fyrstu 4 mánuði árs- ins. Hagnaður samstæðunnar allt síðasta ár var ríflega 700.000 krónur. RÚV greindi frá. Lögreglan á Blönduósi gerði í gærkvöldi leit á heimili í bænum vegna rannsóknar á fíkniefnamáli. Húsleitin var í gangi þegar blaðið fór í prentun um kl. 22 í gærkvöldi. Fyrir þann tíma fengust ekki upplýs- ingar um umfang málsins; hverjir tengdust því og hvort lagt hefði verið hald á efni við leitina. Rask á flugi Flugleiða vegna árása á Ameríku: Tapið um 100 milljónir flucmál Flugleiðir áætla að tap vegna röskunar á flugi eftir at- burðina í Bandaríkjunum nemi um 100 milljónum króna. Alls þurfti félagið að aflýsa 26 flug- um dagana 11. til 14. september og til viðbótar varð röskun á 7 ferðum. Um 4.000 farþegar áttu bókuð sæti í þessum ferðum. Auk þess fellur á Flugleiðir ýmis kostnaður, svo sem vegna hót- elgistingar og langferðabifreiða fyrir farþega sem urðu fyrir löngum töfum vegna atburð- anna. Laugardag, sunnudag og mánudag, eftir að flug hófst samkvæmt áætlun á ný, hefur sætanýting verið góð hjá Flug- leiðum, ekki minni en meðaltöl- ur fyrir september. Það er þó ekki marktækt því að hluta er um að ræða fai’þega sem áttu bókað far á þeim tíma sem lokað var. Ljóst er að margir farþegar hafa breytt og munu breyta ferðaáætlunum sínum en bókan- ir hjá Flugleiðum hafa haldist lítið breyttar á næstu vikum. ■ — Samkeppnisráð ávítar Kringluna: Jarlinn var beittur órétti úrskurðarmál Samkeppnisráð segir Þyrpingu hf. hafa brotið gegn góðum viðskiptaháttum með því að svíkja veitingastað- inn Jarlinn um húsnæði undir hamborgarasölu í Kringlunni. Samkeppnisi’áð telur ljóst að Þyrping hafi á árinu 1997 gefið Jarlinum vilyrði fyrir tilteknu rými við hið nýja Stjörnutorg skyndibitastaða sem sett var á fót við stækkun Kringlunnar. Jarlinn, sem hafði verið með skyndibitasölu á svokölluðu Kvikk-torgi í eldri hluta Kringl- unnar, hafi undirbúið sig undir flutning á nýja staðinn en verið tilkynnt haustið 1998 að viðkom- andi aðstöðu, svokölluðu ham- borgaplássi, hefði verið ráðstaf- að til McDonalds. Jai’linn þáði annað rými en var bannað að selja þar hamborgara sent þó hafði verið meginstoðin í rekstr- inum. „Er það mat samkeppnisráðs að sú hegðun Þyrpingar að banna síðan Jarlinum að selja hamborgai’a og ganga til samn- inga við annan veitingastað um það rými sem Jarlinum var á sínum tíma lofað hafi falið í sér óréttmæta viðskiptahætti," seg- ir Samkeppnisráð og bætir við því við að Þyrpingu hafi mátt vera ljóst að um umtalsvei’ða viðskiptahagsmuni Jarlsins væri ræða, „og að góðir við- skiptahættir hlytu að felast í því að aðvai’a fyrirtæki sem allt frá árinu 1987 hefur selt hamborg- ara í Kringlunni að til stæði að banna því að selja þá vöru.“ ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.