Fréttablaðið - 18.09.2001, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 18.09.2001, Blaðsíða 18
18 Crl'lAJHA'P' FRÉTTABLAÐIÐ rOK i«drrsic92 8T 5I'iOPOU?í»lSS<f 18. september 2001 PRIÐJUDAGUR Pf HVER ER TILCANCUR LÍFSINS? Ása Richardsdóttir, verkefnisstjóri „Þekktu sjálfan þig," sagði Sókrates, ég veit ekki til þess að nokkur hafi svarað þessari spurningu betur. Aukakílóin burt! • Ertu að leita að mér? • Vantar þig vörur? • Otrulegur árangur! • Ég missti 11 kg á 9 vikum! Alma Hafsteinsdóttir Sjálfst. Herbalife dreif. S: 694-9595 www.heilsulif.is www.heilsulif.is Svœðameðferð Kvöldnámskeið í Reykjavík 3.-21. október Fullt nám sem allir geta lœrt Kennari: Sigurður Gtiðleifsson Upplýsingar og skráning í síma 587 1164 GSM 895 8972 (MÖMMUh ATHUGIÐ ef bamið pissar undir. Undraverður árangur með óhefðbundnum að- ferðum. Kennari: Sigurðw Guðleifsson Upplýsingar og skráning í símu 5871164 GSM 895 8972 Er skammturinn búinn? Haföu samband viö mig ef þig vantar vörur. Sjálfstæöur Herbalife dreifingaraöili simi 897 2099 Flugslysið Skerjafirði. Söfnunarsímar Ef hringt er í eftirtalin númer gjaldfærist af reikningi símans, sem hringt er úr, sem hér segir: Sími 907 2007 - 1.000,- kr Sími 907 2008 - 2.500,- kr Sími 907 2009 - 5.000,- kr Bankar. erno. 1175-05-409940 Píanótónleikar í Salnum: Beethoven og Gershwin á efnisskránni tónleikar Píanóleikarinn Roman Rudnytsky heldur tónleika í Salnum í Kópavogi í kvöld klukkan 20:00. Á efnisskrá eru verk eftir Bach-Busoni, Beet- hoven, Copland, Gershwin, Ra- vel, Chopin, Rudnytsky, Wagner, Liszt og Moszkowski. Roman Rudnytsky hefur hlot- iö mikla viðurkenningu gagn- rýnenda um heim allan. Hann hefur ferðast víða um heim og haldið tónleika á hefðbundnum sem óhefðbundnum stöðum. Rudnytsky er af úkraínskum uppruna en fæddur í New York. Hann útskrifaðist úr hinum þekkta Juilliard skóla í New York og hlaut frekari framhalds- menntun í Peabody tónlistar- skólanum í Baltimore. Hann hef- ur fengið fjölda verðlauna og má þar nefna verðlaun hinnar al- þjóðlegu Leventritt keppni í New York og J. S. Bach keppn- innar í Washington, en auk þess vann hann til verðlauna í „F. Bu- soni“ keppninni og „A. Casa- grande“ alþjóðlegu píanókeppn- inni á Ítalíu. Hann hefur leikið inn á marg- ar upptökur í Póllandi, Ástralíu og Bandaríkjunum. Auk þess að halda fjölda tón- leika hefur Rudnytsky komið fram sem einleikari með fjöl- mörgum hljómsveitum víða um heim. Roman Rudnytsky hefur starfað við Dana School of Music við Youngstown háskól- ann í Ohio í Bandaríkjunum síð- an árið 1972 og verið sæmdur viðurkenningu skólans fyrir störf sín. ■ ROMAN RUDNYTSKY Hefur haldið tónleika 1 yfir 75 löndum og er liklega sá píanóleikari sem hefur komið hvað víðast fram ÞRIÐJUPACURINN 18. SEPTEMBER TÓNLEIKAR___________________________ 20.00 Roman Rudnitsky pianóleikari flytur verk eftir Bach Busoni, Lv. Beethoven, A. Copland, G. Gers- hwin, M. Ravel, F. Chopin, A. Rudnitsky, R. Wagner, F. Liszt og Moszkowski 1 Saínum í Kópa- vogi. FUNPIR______________________________ 20.00 Arás á Bandaríkin - ástæður og afleiðingar! Opinn umræðufund- ur Félags stjórnmálafræðinga 1 samstarfi við Borgarleikhúsið og vefritið Kistan.is á þriðju hæð Borgarleikhússins. Frummæl- endur eru: Jón Ólafsson, heim- spekingur, Brynhildur Ólafsdóttir, fréttamaður á Stöð 2, Magnús Stefánsson, alþingismaður og Þórunn Sveinbjarnardóttir, alþing- ismaður. Að auki taka þátt 1 um- ræðunum Baldur Þórhallsson, lektor við Háskóla íslands, og Jón Ormur Halldórsson, dósent við Háskólann 1 Reykjavík. SÝNINCAR____________________________ I anddyri Þjóðarbókhlöðu stendur sýn- ingin Stefnumót við íslenska sagna- hefð. Sýningunni lýkur 22. september. Forn tré i Eistlandi er yfirskrift sýning- ar á Ijósmyndum sem eistneski Ijós- myndarinn Hendrik Relve hefur tekið. í Norræna húsinu éru 18 Ijósmyndir til sýnis 1 anddyri hússins. Sýningin er sett upp 1 tengslum við Menningarhá- tíð Eystrasaltsríkjanna á Norðurlöndum sem stendur yfir frá 1. september til 1. nóvember 2001. Sýningin er opin dag- lega kl. 9 til 17, nema sunnudaga kl. 12 til 17. Sýningin stendur til 23. sept- ember. í Byggðasafni Hafnarfjarðar standa yfir sýningarnar Blóðug vígaferii og Götulíf víkinganna í York . Um er að ræða tvær sýningar, annars vegar endurgerð á götu 1 víkingaþorpi og hins vegar sýn- ingu þar sem má sjá beinagrind og hauskúpur víkinga sem féllu 1 bardög- um. Sýningarnar eru opnar alla daga frá 13 til 17 og standa til 1. október. Á ferð um landið með Toyota er yfir- skrift sýningar Fókuss, Ijósmyndaklúbbur áhugamanna. Sýningin er 1 salarkynnum nýrra bíla Toyota við Nýbýlaveg 1 Kópa- vogi. Ljósmyndir á sýningunni voru tekn- ar á ferð klúbbsins um Suðurlandshá- lendið, í Þjórsárdal, Veiðivötnum, Dóma- dal, Landmannalaugum, Fjallabaksleið og víðar. Sýningin er opin á opnunar- tíma söludeildar Toyota. Sex sýningar: Ondvegis- konur á svid leikhús Leikrit Werners Schwab, Öndvegiskonur, hefur verið tekið aftur til sýninga á litla sviði Borg- arleikhússins. Sýningin og leikkonurnar hlutu einróma lof gagnrýnenda á síðasta leikári. í leikritinu segir af þeim vin- konunum Grétu og Maju sem eru samankomnar í eldhúsi Ernu til þess að fagna nýju loðhúfunni hennar. Fögnuðurinn snýst upp í ótrúlega uppákomu þegar draum- ar þeirra um ástina og betra líf fara úr böndunum. Með hlutverk kvennanna fara þær Hanna María Karlsdóttir, Margrét Helga Jóhannsdóttir og Sigrún Edda Björnsdóttir, leik- stjóri er Viðars Eggertsson. Snorri Freyr Flilmarsson hannaði leikmyndina, en Þorgeir Þorgeirs- son íslenskaði verkið. Aðeins verða 6 sýningar á Öndvegiskon- um nú í haust. ■ Leikrit í takt við tímann Leikhússtjóri Leikfélags íslands segir efnisskrá komandi vetrar vera íjölbreytta. Meðal nýjunga eru Höfundasmiðja og samstarf við Reykjavíkurakademíuna. Niðursveifla í efnahagslífi gerir reksturinn erfiðari. leikhús „Leikárið hjá Leikfélagi Islands er mjög fjölbreytt, við tökum upp óvenju margar sýn- ingar frá síðasta leikári en frum- sýnum tvö ný verk fyrir jólin,“ segir Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri Leikfélags íslands. „Hér má nefna leikritið Eldað með Elvis sem verður frumsýnt 29. desember. Þetta er glænýtt leikrit, mjög spennandi, ögrandi og drepfyndið, létt á yfirborðinu en undir býr þungur og áleitinn tónn. Þess má geta að höfundur þess er Lee Hall en hann skrifaði handrit kvikmyndarinar Billy Elliot og hlaut Óskarsútnefningu fyrir.“ Magnús segir að meðal nýj- unga hjá Leikfélaginu í ár séu Höfundasmiðja sem stendur til að hleypa af stokkunum í upp- hafi vetrar. Átta höfundum verð- ur gefið tækifæri til að prófa sig áfram við leikritaskrif. Leikritin verða svo lesin undir vor og nokkur tekin til sýninga í Hádeg- isleikhúsinu. „Við munum aug- lýsa eftir umsóknum og gerum ráð fyrir að fá þarna inn höfunda sem hafa verið að skrifa fyrir aðra miðla. Það er nokkuð áhyggjuefni hvað ung skáld hafa lítið verið að skrifa fyrir leik- hús.“ Önnur nýjung í starfi Leikfé- lagsins eru fyrirlestrar í sam- starfi við Reykjavíkurakademí- una. „Þetta verða fyrirlestrar á léttum nótum um menningar- tengd málefni sem haldnir verða fyrsta laugardag hvers mánaðar. Boðið verður upp á „brunch“ á meðan á fyrirlestri stendur." Meðal leikrita sem tekin verða til sýninga frá síðasta leik- MAGNÚS GEIR ÞÓRÐARSON „Verkin sem við setjum upp eiga það sameiginlegt og sammerkt að þau eru ný eða ný- leg," segir Magnús. ári eru Sniglaveislan, Á sama tíma ári síðar, Hedwig og Sjeik- spír segir Magnús. Fyrir jól verður einnig frumsýnt leikritið Upptekin eftir Becky Mode. Það verður sýnt í Iðnó á meðan á borðhaldi gesta stendur. „Þetta er leikrit sem fær gesti til að brosa út í annað svo ekki sé meira sagt. Bjarni Haukur leik- ur öll 40 hlutverk leikritsins sem fjallar um nýútskrifaðan leikara sem vinnur á veitingastað sem þotulið bæjarins stundar. Það hefur verið staðfært að íslensk- um aðstæðum og munu áhorf- endur koma til með að kannast við margar persónur verksins, eins og kvikmyndaframleiðand- ann Barrabas Kornelíus og kaup- manninn Jóhannes í Mínus.“ Magnús segir veturinn í heild leggjast vel í hann. Magnús segir að þó að einkarekið leikfélag komist ekki hjá því að finna fyrir samdrætti í efnahagslífinu en Leikfélag íslands hefur á undan- förnum árum átt í samstarfi við fjölda fyrirtækja. „Ég hef hins vegar ekki orðið var við að áhorf- endur fækki leikhúsferðum." sigridur@frettabladid.is METSÖLULISTI MESTSELDU SKÁLDSÖGURNAR HJÁ EYMUNDSSON ■ ■ Helen Fielding DACBÓK BRIDCET JONES \ Marianne Fredriksson ANNA, HANNA & JÓHANNA I Halldór Laxness ÍSLANDSKLUKKAN o © © © o © © Böðvar Guðmundsson HÍBÝLI VINDANNA Leif Davidsen FEST Á FILMU Kristín Marja Baldursdóttir KULAR AF DEGI J.R.R. Tolkien HRINCADRÓTTINSSACA Fjodor Dostojevskí CLÆPUR OC REFSINC Amaldur Indriðason NAPÓLEONSSKJÖLIN Patricia Cornwell RÉTTARKRUFNING Metsölulistinn: Hitað upp fyrir Hringadróttinssögu bækur Greinilegt er að kvik- myndaunnendur eru farnir að hita upp fyrir stórmyndina um Hringadróttinssögu og er skáldsagan nú í 7. sæti listans. Líklegt má telja að vinsældirnar muni aukast enn frekar á næstu vikum. Myndin verður frum- sýnd á íslandi rétt fyrir jól, 21. desember. Önnur skáldsaga, sem búið er að kvikmynda og er í efsta sæti list- ans, er Dagbók Bridget Jones eftir Helen Fielding. Myndin hefur að sama skapi notið mik- illa vinsælda í kvikmyndahús- um. ■ LESIÐ Á MEÐAN BEÐIÐ ER Leikarinn Elijah Wood í hlutverki sínu sem Fróði Baggason 1 væntanlegri mynd um Hringadróttinssögu.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.