Fréttablaðið - 18.09.2001, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 18.09.2001, Blaðsíða 6
SPURNING DAGSINS Myndir þú gegna herþjónustu? „Nei ég myndi ekki gegna herþjónustu. Ég tel að styrjöld leysi ekki vandann." Rósa Sigrún Jónsdóttir myndlistarmaður FRÁ slysstað Fimm létust í hörðum árekstri skólabíls og timburflutningabíls í Svíþjóð í gær Skólabíll í hörðum árekstri: Fimm látnir og 40 slasaðir svíþíóð Fimm létust og 40 eru slas- aðir, þar af 18 alvarlega eftir árekstur skólabíls og timburflutn- ingabíls fyrir utan Sundsvall í Sví- þjóð í gærmorgun. Bílarnir voru að koma úr gagnstæðri átt, þegar þeir skullu saman. Bílstjóri skóla- bílsins lést og fjórir nemendur sem voru farþegar í bílnum. Svo virðist sem sprungið hafi á timb- urflutningabílnum með þeim af- leiðingum að hann fór yfir á öfug- an vegarhelming og lenti á skóla- bílnum. Nemendurnir voru á aldr- inum 13 -16 ára. ■ Kennari stefnir ísafjarðarbæ: Vill dagpeninga fyrir ferðalagið dómsiviál Mál grunnskólakennara á Isafirði sem stefndi bæjarfélag- inu til greiðslu dagpeninga í skólaferðalagi er komið til Hæsta- réttar. Kennarinn, sem er 31 árs göm- ul kona, fór ásamt einum öðrum kennara við Grunnskóla ísafjarð- ar, með nemendur úr tíunda bekk skólans í útskriftarferð til Dan- merkur í maí 1999. Konan og sam- kennari hennar töldu sig eiga rétt á dagpeningum vegna ferðarinnar en því var ísafjarðarkaupstaður ósammála og endaði málið fyrir héraðsdómi Vestfjarða. Þar var dæmt bæjarfélaginu í vil og lét þá samkennarinn málið niður falla. Konan leitaði hins vegar til Hæstaréttar sem hefur fallist á að taka málið fyrir. ■ [lögreglufréttirI Bíll fór út af við Grófargil síð- astliðið laugardagskvöld og lenti í ræsismuna. Ökumaður slasaðist og var fluttur á sjúkra- húsið á Akureyri. Bíllinn er tal- inn gjörónýtur. Að sögn lögregl- unnar á Sauðárkróki er talið að ökumaður hafi sofnað undir stýri. Þá varð annað umferðaróhapp um svipað leyti á Vatnsskarði þegar bifreið keyrði út af vegin- um. Sagði talsmaður lögreglunn- ar ökumann hafa misst stjórn á bifreiðinni vegna ísingar. Okumaður missti stjórn á bif- reið sinni í beygju við Sóma- staði í Reyðarfirði síðastliðinn föstudag. Er talið að hann hafi ekið of hratt miðað við aðstæður. FRÉTTABLAÐIÐ 18. september 2001 ÞRIÐIUPAGUR Grunsamleg viðskipti á verðbréfamörkuðum: Var reynt að græða á hryðjuverkunum? FRANKFURT. ÞÝSKALANDI. AP Verð- bréfaeftirlitið í Þýskalandi er að kanna fullyrðingar um að grun- samleg viðskipti hafi átt sér stað á fjármálamarkaði þar í landi skömmu fyrir árásir hryðju- verkamanna á New York og Was- hington í síðustu viku. Verðbréfa- eftirlitið skýrði frá þessu í gær, en orðrómur hefur verið um að Osama bin Laden hafi reynt að græða á viðskiptum með verðbréf fyrir árásirnar. Athyglin er sögð beinast að við- skiptum með hlutabréf í þremur endurtryggingarfyrirtækjum, þýska fyrirtækinu Munich Re, svissneska fyrirtækinu Swiss Re og franska fyrirtækinu Axa. Þá mun athygli bandaríska fjármála- eftirlitsins einnig hafa beinst að viðskiptum með þessi hlutabréf í þessum þremur fyrirtækjum. Verð hlutabréfa í þeim öllum lækkaði um 4 til 5 prósent í vik- unni fyrir árásirnar og síðan um 16 prósent árásardaginn sjálfan. Talsmaður þýska verðbréfaeft- irlitsins tók þó fram að of snemmt væri að segja neitt til um hvort KAUPHÖLLIN I FRANKFURT Tveir verðbréfamiðlarar fylgdust grannt með þróun viðskipta þar í gær. rannsóknin myndi leiða eitthvað óeðlilegt í ljós. ■ Sögulegur reitur við Aðalstræti I sumar voru grafnar upp minjar um bæ sem líklegt er talið að hafi ver- ið fyrsti bústaður Ingólfs Arnarsonar landnámsmanns. Ekki virðast þó áætlanir vera uppi um að breyta áformum um að byggja hótel og bíla- stæðakjallara á þessum stað. fornminjar Undanfarnar vikur hefur þeim farið fjölgandi sem lýst hafa þeirri skoðun að varð- ___+— veita beri land- námsbæinn sem fundist hefur við Aðalstræti. Fáar þjóðir munu geta státað af því að eiga minjar um mannvirki sem lík- ur má leiða að, að séu fyrsti bústað- ur þess manns sem talinn er hafa verið fyrstur til að nema land. Þau sjónarmið eru Það ætti að efna til hug- myndasam- keppni um hvernig ganga mætti frá þessu svæði þannig að fólk geti skoðað minjarnar um landnámsbæ- inn —♦— sterk að nauðsynlegt sé að varð- veita bæinn við Aðalstræti með þeim hætti að menningararfinum sé sýnd tilhlýðileg virðing. Al- menningur, og ekki síður ferða- menn, verði að hafa greiðan að- gang að fornminj- unum sem ekki sé gert með því að glerja hann í hót- elkjallara. Þórhallur Vil- mundarson pró- fessor er einn þeirra sem hefur skoðun á málinu. Hann segist vera því andvígur að reisa hótelbygg- ingu þar sem fornminjarnar eru. „Það ætti að efna til hug- myndasamkeppni um hvernig ganga MINJAR f KVOSINNI Margir eru á þeirri skoðun að fundur leifanna af bæ Ingólfs Arnarsonar og Hallgerðar Fróðadóttur, fyrstu landnámsmanna Islands, sé kjörið tækifæri til að koma á fót minning- arreit. LÍTIÐ UM FORNMINJAR Þórhaliur Vil- mundarson pró- fessor telur fund- ur landnámsbæj- arins við Aðal- stræti vera tæki- færi sem ekki eigi að láta sér úr greipum ganga. mætti frá þessu svæði þannig að fólk geti skoðað minjarnar um landnámsbæinn," segir Þórhallur. „Þar kæmi einnig til greina að reisa tilgátubæ ofar í brekkunni." Þórhallur stingur upp á að tengja svæðið við Innréttingar Skúla Magnússonar og tekur fram að honum finnist ekki ná nokkurri átt að í þeim hluta Innréttinganna sem varðveittur er, einu elsta húsi í Reykjavík, sé rekið veit- ingahús. „Fremur ætti að færa húsið í upprunalegt horf eins og gert hefur verið við Húsið á Eyr- arbakka.“ Að mati Þórhalls hefur því ver- ið gefinn of lítill gaumur í höfuð- borginni að varðveita sögulegar minjar. Sem dæmi nefnir hann að meðan Akureyringar varðveiti þrjú skáldahús og heiðri með því minningu látinna skálda, eigi Reykvíkingar ekkert slíkt hús. Að mati Þórhalls og margra annarra er fundur landnámsbæj- arins við Aðalstræti kjörið tæki- færi til að koma á fót verðugum minningarreit um sögu byggðar í Reykjavík og á landinu öllu. Þetta vegi nógu þungt til að breyta áætl- unum um byggingu hótels og bíla- stæðakjallara, einmitt á þessum stað við Aðalstræti. steínunn@frettabladid.is Sænsk rannsókn: Kynlíf eykur líkur á hjartaáfalli heilsa Sænskir vísindamenn hafa nú fundið sannanir fyrir því að kynlíf geti valdið hjartaáföllum. Á þetta sérstaklega við um þá sem þegar hafa verið veilir fyrir hjar- ta. í rannsókninni voru 650 ein- staklingar, sem fluttir voru á sjúkrahús í fyrsta sinn af völdurn hjartaáfalls á árunum 1993 til 1994, rannsakaðir. Skömmu eftir að þeir höfðu jafnað sig eftir hjartaáfallið voru þeir spurðir út í hvað hefði ná- kvæmlega hrjáð þá og hvað þeir hefðu verið að gera þá fjóra daga sem liðu áður en þeir fengu áfall- ið. Að því er segir á fréttavef BBC kom í ljós að þeir sem höfðu stundað kynlíf voru helmingi lík- legri en aðrir til að hafa fengið hjartaáfall klukkutíma síðar. Þeir sem stunduðu litla sem enga lík- amsrækt voru auk þess fjórum sinnum líklegri til að fá hjartaá- fall klukkutíma síðar. Samt sem áður kom fram í rannsókninni að heildarlíkurnar á að fá hjartaáfall eftir að hafa stundað kynlíf voru afar litlar. Rannsóknin birtist i tímaritinu Heart. ■ KYNLÍF Samkvæmt rannsókninni voru þeir sem stunduðu litla sem enga Uk- amsrækt fjórum sinnum liklegri en aðrir til að fá hjartaáfall eftir að hafa stundað kynlíf. Alþjóðabankinn og Gjaldeyrissjóðurinn: Fresta árs- fundum washington. ap Alþjóðabankinn og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn tóku í gær ákvörðun um að fresta ársfundum sínum, sem halda átti dagana 29. til 30. september. Ástæðan var sögð sú, að gefa þurfti starfsmönnum öryggis- þjónustu rúm til þess að sinna nauðsynlegum verkefnum vegna hryðjuverkanna í Bandaríkjunum í síðustu viku. í sameiginiegri yf- irlýsingu sögðu yfirmenn þessara alþjóðastofnana, að venjubundin starfsemi þeirra verði fyrir eng- um truflunum. ■ Pétur Blöndal: Tekjur ríkis og sveitarfé- laga hækka fasteignamat „Hækkun fasteigna- mats hefur haft í för með sér að tekjur sveitarfélaga af fasteign- um vegna fasteignagjalda og tekj- ur ríkisins af eignasköttum hafa hækkað um- talsvert,“ segir Pétur Blöndal þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, sem á sæti í fé- lagsmálanefnd. Hann telur að, í stöðu sem þessari, þurfi að lækka prósentur af eignaskatti og fasteignagjöldum. Að sögn Péturs var ekki rætt á þingi, hvernig veðmat fasteigna er háð brunabóta- mati, áður en lög- unum um breytingarnar voru greidd atkvæði. Þingmenn hafi ekki áttað sig á þeirri hlið máls- ins, og það sýni hversu flókið kerfið sé, og veiti litla yfirsýn. „Það er einnig stór spurning hvort brunabóta- og fasteignamatið eigi að vera andlag opinberra gjalda, sem ekki eru tryggingaiðgjöld," segir Pétur. „Að nota brunabóta- mat sem mat á veðsetningu er út í hött, því brunabótamat á aðeins að mæla hvað það kostar að endur- byggja viðkomandi hús og hefur ekkert með verðmæti þess á markaði að gera.“ ■ PÉTUR BLÖNDAL Fasteignagjöld hafa i flestum til- fellum hækkað. Það mun valda því að tekjur ríkis og sveitarfélaga munu því hækka umtalsvert I kjöl- far breytinga á fasteignamati. Ögmundur Jónasson: SÞ komi að málum utanríkismál ögmundur Jónasson, varamaður Vinstri-grænna í utan- ríkisnefnd, segir Sameinuðu þjóð- irnar þurfa að koma að aðgerð- um vegna árásar- innar á Bandarík- in. Hann segir all- ar aðstæður opnar til túlkunar. „Bandaríkjamenn hafa að sönnu orð- ið fyrir árás, en ekki vopnaðri árás erlends ríkis. Á þeirri hugsun er 5. greinin grund- völluð," sagði hann og áréttaði að ekki væri vitað ÖGMUNDUR JÓNASSON ögmundur er varamaður Vinstri-grænna í utanrlkisnefnd, en aðalmaðurinn, Steingrímur J. Sig- fússon, er staddur f útlöndum. hver hafi staðið að árásinni. „Því er eðlilegt að mál- inu verði vísað inn á vettvang Sameinuðu þjóðanna. Það er mjög mikilvægt að virtar séu alþjóðleg- ar reglur; bæði stofnsáttmáli Sameinuðu þjóðanna og mannrétt- indasáttmálar," sagði hann og áréttaði að þessar alþjóðlegu skuldbindingar stæðu stofnsátt- mála NATO. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.