Fréttablaðið - 18.09.2001, Blaðsíða 9
PRIÐJUDAGUR 18. september 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
9
Bandaríkin gegn hryðjuverkum:
Vilja rýmri heimildir
washington. ap Um helgina jókst
stuðningur meðal embættismanna
í Bandaríkjunum við að breyting-
ar verði gerðar á 25 ára gömlum
lögum sem banna bandarískum
stjórnvöldum að láta myrða ein-
staklinga án dóms og laga.
Þá sagði John Ashcroft, yfir-
maður dómsmálaráðuneytið, að
ráðuneytið myndi í vikunni fara
fram á rýmri heimildir til þess að
handtaka erlenda ríkisborgara,
hlera símtöl og rekja peninga-
þvætti.
Colin Powell utanríkisráð-
herra sagði að „allar“ lagaskorð-
ur verði endurskoðaðar, þar á
meðal ákvörðun frá 1976 um að
banna bandarískum leyniþjón-
ustumönnum að myrða erlenda
þjóðarleiðtoga.
„Þetta eru menn sem vinna sín
verk í myrkri, og við verðum að
fást við þá í myrkri,“ sagði Don-
ald Rumsfeld, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna í sjónvarps-
þætti á sunnudag. Hann sagði að
til þess að uppræta hryðjuverk,
eins og George W. Bush Banda-
ríkjaforseti hefur heitið að gera,
sé nauðsynlegt að beita ýmsum
óhefðbundnum hernaðaraðferð-
um.
Hann var meðal annars spurð-
ur hvort hann myndi útiloka að
kjarnorkuvopn verði notuð og
svaraði þeirri spurningu ekki af-
dráttarlaust neitandi. „Svarið er,
að við ættum að vera mjög stolt
af því afreki mannkynsins að
hafa ekki beitt þessum vopnum í
55 ár. Og við verðum að finna eins
margar leiðir og hægt er til þess
að fást við þetta alvarlega vanda-
mál, sem hryðjuverkin eru.“ ■
DONALD RUMSFELD
Segir að leita þurfi óhefðbundinna leiða í
hernaði til þess að berjast við
hryðjuverkamenn.
Norðurljós fyrstu íjóra
^ mánuði:
Askriftar-
tekjur drag-
ast saman
fyrirtæki Norðurljós töpuðu rúm-
lega 629 milljónum á fyrstu fjórum
mánuðum ársins. Á sama tímabili í
fyrra var tapið rúmlega 53 milljón-
ir. Rekstrartap félagsins er 150
milljónir króna en 24 milljón króna
hagnaður var af reglulegri starf-
semi i fyrra. Mestur munar um
42% hækkun vegna útsendingar á
erlendu sjónvarpsefni. Tekjur af
áskriftum drógust lítillega saman,
námu 729 milljónum á fyrstu fjór-
um mánuðum ársins en voru 732 á
sama tíma í fyrra. ■
ÁHRIFIN EKKI ORÐIN UÓS
Ljóst er að hryðjuverkin í Bandaríkjunum fyrir viku hafa áhrif á flug- og ferðaþjónustu um allan heim. Hjá Flugleiðum verður fylgst grannt
með þróun mála en ekki farið fram á opinbera aðstoð.
Ekki verður farið
fram á ríkisaðstoð
Flugleiðir töpuðu 100 milljónum króna vegna röskunar á flugi til
Bandaríkjanna. Forráðamenn fyrirtækisins gera ráð fyrir neikvæðum
langtímaáhrifum á alþjóðlegan flugmarkað.
Samgönguráðuneyti:
Mönnunar-
frumvarp
er í vinnslu
LflGflFRUMVflRP Ekki liggur fyrir
endanleg útgáfa frumvarps laga
um mönnun á fiskiskipum og ekki
hafa verið teknar ákvarðanir um
fækkun mannafla, að sögn Ragn-
hildar Hjaltadóttur, skrifstofu-
stjóra í samgönguráðuneytinu.
Hún segir frumvarpið vera til um-
fjöllunar í ráðuneytinu, en búið sé
að kalla eftir athugasemdum.
Ragnhildur, sem einnig er for-
maður Siglingaráðs, segir nokk-
urs misskilnings hafa gætt í máli
Helga Laxdal, formanns Vél-
stjórafélagsins, í blaðinu í gær. „Á
honum mátti skilja að frumvarpið
hafi verið lagt fram á fundi Sigl-
ingaráðs sem tillaga ráðherra, en
það var lagt þar fram óbreytt frá
því í fyrra til umræðu. Þetta var
ekki tillaga að frumvarpi sem leg-
gja átti fram í haust," sagði hún
og áréttaði að ekkert lægi fyrir
um hvernig ákvæði um fjölda
skipsstjórnar- og vélstjórnar-
manna yrðu. ■
-.♦..
ísólfur Gylfi:
Ahættulán,
ekki styrkur
leiðrétt Björn B. Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Suðurlandsskóga,
segir ekki rétt að ísólfur Gylfi
Pálmason, alþingismaður, hafi
fengið fjárstyrk í ár til plöntukaupa
á Uppsölum eins og haft var eftir
Birni í Fréttablaðinu í gær. Rétt sé
að þingmaðurinn hafi fengið vilyrði
um áhættulán vegna stofnkostnað-
ar við skógrækt. Það lán sé bundið
kvöð um ráðstöfun 20% tekna af
skógrækt á jörðinni um ókomna
framtíð. Það var því ályktun blaða-
manns að um atvinnustyrk væri að
ræða. ■
flugmál í vikunni sem leið var
frumvarp um fjárhagsaðstoð við
flugfélög í kjölfar árásarinnar á
Ameríku, lagt fyrir bandaríska
þingið. Frurn-
varpið var að vísu
fellt en Ijóst er að
málinu er ekki
lokið.
Óhjákvæmi-
legt er að velta
fyrir sér stöðu
Flugleiða í Atl-
antshafsfluginu
ef kemur til opin-
berrar aðstoðar
Við samkeppnis-
aðila vestanhafs.
Forráðamenn Flugleiða segja þó
að ekki muni koma til þess að
farið verði fram á opinbera að-
stoð í framhaldi af hryðjuverk-
unum í Bandaríkjunum.
I fréttatilkynningu frá Flug-
leiðum segir að almennt geri flug-
félög ráð fyrir töluverðum nei-
kvæðum áhrifum á flugrekstur og
ferðamarkað af atburðum liðinn-
ar viku. Gert er ráð fyrir mestum
samdrætti í innanlandsflugi í
Bandaríkjunum en einnig nei-
kvæðum áhrifum í flugi milli
Bandaríkjanna og Evrópu og
Bandaríkjanna og Asíu. Enn er
ekki ljóst hvernig þessar hrær-
ingar á markaðnum koma fram og
hvort lítil félög og lítil lönd njóta í
einhverju fjarlægðar og smæðar.
Nú stendur yfir heildarúttekt á
rekstri Flugleiða og tekið verður
sérstakt tillit til atburða liðinnar
viku í þeirri vinnu. Gert er ráð
fyrir að hraða mjög vinnu við
þetta endurmat. Segja má að fé-
lagið horfi nú til þróunar fjögurra
megináhrifaþátta í rekstrinum,
aðstæður á markaði, gengi alþjóð-
legra gjaldmiðla, eldsneytisverð
og vaxtastig á alþjóðlegum mark-
aði.
Liðlega 40% alls flugs í heimin-
um mun vera innan Bandaríkj-
anna og yfirgnæfandi starfsemi
bandarískra flugfélaga er í innan-
landsflugi. Þróunin á markaðinum
innanlands í Bandaríkjunum hef-
ur mikil áhrif á stöðu bandarísku
flugfélaganna þannig að ljóst er
að staða þeirra er allt önnur en
staða evrópsku flugfélaganna,
ekki síst í ljósi þess að mörg
bandarísk flugfélög horfðu fyrir
fram á versnandi afkomu. ■
FLYGILL
Forsvarsmenn Félags tónlistarkennara
segja félagsmönnum vera stórlega mis-
boðið vegna gangs samningaviðræðna og
tilboða samninganefndarinnar í launadeilu
þeirra við sveitarfélögin.
T ónlistarkennarar:
Stefnir í
verkfall í
október
KJARflMÁL Undir vikulokin verða
tónlistarkennurum sendir kjör-
seðlar og greiða þeir atkvæði um
hvort boðað verði til verkfalls, að
sögn Sigrúnar Grendal Jóhannes-
dóttur, formaður Félags tónlist-
arkennara. Hún segist búast við
að talningu atkvæða ljúki 4. októ-
ber og verkfall gæti því hafist
upp úr miðjum október. Um 200
manns sátu fundinn i Rauðagerði,
að sögn Sigrúnar. „Það er gríðar-
legur einhugur meðal tónlistar-
kennara og þeim er stórlega mis-
boðið,“ sagði hún og áréttaði að
niðurstaða fundahaldanna væri
að tónlistarkennarar væru ekki
tilbúnir til að sætta sig við það
sem þeim væri boðið af hálfu
launanefndar sveitarfélaganna
og var á henni að skila að stefndi
í verkfall að óbreyttu. „Kennarar
spyrja sig hvort það sé virkilega
stefna ráðamanna að leggja
hreinlega niður tónlistarskóla og
tónlistarkennslu í landinu," sagði
Sigrún. ■
—.......
Nú stendur
yfir heildarút-
tekt á rekstri
Flugleiða og
tekið verður
sérstakt tillit til
atburða lið-
innar viku í
þeirri vinnu.
...♦...
Freistandi ferðatilboð á
flugfelag.is
einfalt
hratt
hagkvæmt
FLUGFÉLAG ISLANDS
.. .fljúgðu frekar
websales@airiceland.is
sími 570 30 30 - fax: 570 3001