Fréttablaðið - 25.09.2001, Side 4

Fréttablaðið - 25.09.2001, Side 4
SVONA ERUM VIÐ LÍTILL SPARNAÐUR ÍSLENDINGA i samfélagi þjóðanna er ísland aftarlega á merinni sé sparnaður sem hlutfall af landsframleiðslu skoðaður. Samanburður- inn er birtur á vefsíðu Ágústs Einarssonar, háskólaprófessors. Þar kemur fram að mikill viðskiptahalli [slands skýrist meðal annars af hlutfallslega litlum sparnaði. (N O 2 a 1 5 £ # J 1 S s' £ g Í 1 •§ 5 5 3 ? " I I § CO 5i E CB 2 2 5 ui rír PERES Shimon Peres, utanríkisráðherra Israels, heldur raeðu á hóteli í Jerúsalem. Lítt hefur þokast áleiðis í friðan/iðræðum fyrir botni Miðjarðarhafs. Líkur á friðarviðræðum dvína: ar- Israelsk kona skotin tilbana JERÚSALEM.flP Palestfnskir byssu- menn skutu ísraelska konu til bana á Vesturbakkanum í gær. Þar með hefur enn dregið úr líkum á því að fyrirhugaðar friðarviðræður á milli Shimon Peres, utanríkisráð- herra ísraels, og Yasser Arafat, leiðtoga Palestínumanna, fari fram á næstunni. George W. Bush, Bandaríkjaforseti, hefur undan- farið lagt mikla áherslu á að við- ræðurnar fari fram, en þeim var frestað á sunnudaginn af Ariel Sharon, forsætisráðherra ísraels. Sagði hann að friðarviðræður yrðu ekki haldnar nema alger ró komist á fyrir botni Miðjarðarhafs. ■ Faraldur í Ástralíu: Banvænir eldmaurar valda usla BRlSBflNE.flSTRflLÍu.AP Ráðamenn í Ástralíu hafa óskað eftir stuðningi almennings við að útrýma hættuleg- um eldmaurum frá Suður-Ameríku sem valdið hafa miklum usla í Queensland-ríki í norðurhluta lands- ins. 350 manna sérsveit hóf í gær um 6 milljarða króna herferð til að gera út af við maurana, sem sáust fyrst í Brisbane, höfuðborg Queens- land, i februar a þessu an. iaiio er að maurarnir hafi komið til Ástralíu með suður-amerísku skipi og hafa síðan dreifst á um 730 mismunandi staði í Ástralíu. Maurarnir er afar líkir venjulegum maurum í útliti, en þeir geta hins vegar dregið fólk til dauða sem er með ofnæmi fyrir biti þeirra. Eldmaurarnir eru skæðir og eyðileggja þeir m.a. uppskerur og dýralíf. Skemmdir af þeirra völdum í Bandaríkjunum eru taldar nema um 100 milljörðum króna á ári. Hagfræðingar í Ástralíu spá því að nái maurarnir að dreifa sér fyrir alvöru í landinu muni skemmdir af völdum þeirra kosta ástralska ríkið um 330 milljarða króna á næstu 30 árum. ■ FRÉTTABLAÐIÐ 25. september 2001 PRIÐJUPAGUR Samgönguráðherra um sölu Símans: Vanir að sigla gegn- um brimgarðinn hlutafjárútboð Samgönguráðherra er bjartsýnn á að vel gangi að selja Símann þegar fram í sækir enda sé fyrirtækið öflugt. Sturla segir Símann standa vel í samanburði við önnur fyrirtæki í Evrópu. „Hann er mjög sterkur og með hátt eiginfjárhlutfall. Þá hefur hann ekki lamast eins og sum símafyrir- tæki úti í Evrópu, sem keypt hafa rekstrarleyfi þriðju kynslóðar far- síma á uppsprengdu verði.“ Hann segir að þoka verði sölunni áfram og láta sér ekki bregða þótt eitt- hvað bjáti á. „Við íslendingar erum vanir því að sigla í gegnum brimgarðinn öðru hvoru og það er ekki alltaf logn,“ sagði ráðherra, en bætti við að ekki hafi fengist ákveðin niðurstaða í hvað varð þess valdandi að ekki gekk betur en raun bar vitni í fyrstu umferð sölunnar. „Það eru vafalaust marg- ir samverkandi þættir, bæði gagn- vart almenningi og svo gagnvart stóru fjárfestunum. Umræðan sem fór fram um verðlagningu og markaðinn og þróun mála, hefur STURLA BÖÐVARSSON Þegar kemur að næstu áföngum í sölu Símans segir ráðherra að menn hljóti að hafa farið yfir málin og lært af fenginni reynslu. sjálfsagt ekki farið vel í fólk. Hvað stærri fjárfestana varðar þá eru það, aftur á móti, einhverjar dýpri forsendur sem hafa leitt til að líf- eyrissjóðirnir og stærri fjárfestar hafa ekki komið inn.“ Sturla segir að farið verði yfir málin og reynt að átta sig á þeim og svo reynt að koma til móts við markaðinn með upplýsingum um stöðu fyrirtækis- ins og frekari rökstuðningi fyrir verðlagningunni. ■ Miklu mun- ar á ráðu- neytum Utgjöld sjávarútvegs- og umhverfisráðuneyta á síðasta ári innan við 80% af endanlegum Qár- heimildum. Heilbrigðis- og tryggingaráðu- neytið fór mest fram úr fjárheimildum í krón- um talið en samgönguráðuneytið var nær milljarði innan heimilda. Staðan allt önnur ef mið er tekið af upphaflegum fjárlögum. fjárútlát rikisins Miklu munaði á því hversu vel ráðuneytum tókst að halda sig innan heimilda fjár- laga og fjáraukaheimilda á síðasta ári. Sjávarútvegsráðuneyti og um- hverfisráðuneyti skiluðu rúmlega fimmtungi fjárheimilda sinna í rekstrarafgang og fjárútlát tvegg- ja ráðuneyta til viðbótar, utanrík- isráðuneytis og iðnaðarráðuneytis voru nær tólf prósent innan heim- ilda. Landbúnaðarráðuneytið fór hins vegar mest umfram heimildir í prósentum talið eða um 4,3%. Það voru hins vegar heilbrigð- is- og tryggingaráðuneyti annars vegar og samgönguráðuneytið hins vegar sem voru fjærst áætl- aðri útgjaldaþörf í krónum talið þegar ríkisreikningur var gerður upp. Heilbrigðis- og trygginga- ráðuneytið fór 584 milljónir króna fram úr heimildum sem þó nemur innan við einu prósenti af heimild- um ráðuneytisins. Samgönguráðu- neytið var nær milljarði innan fjárheimilda og er það um 200 milljónum króna meira en það ráðuneyti sem næst kemur. Stóran hluta þessarar fjárhæðar, eða 800 milljónir, má rekja til þess að verk- efnum Vegagerðar var frestað. Staðan er hins vegar allt önnur FJÁRLÖG LOKAFJÁRLÖG OG ENDANLEC ÚTKOMA RÁÐUNEYTI FJÁRLÖG LOKAFJÁRLÖG RÍKISREIKNINGUR Félagsmálaráðuneyti 11.201.800.000. 11.242.558.000. 11.266.292.000. Umhverfisráðuneyti 2.767.600.000. 3.621.857.000. 2.841.767.000. Sjávarútvegsráðuneyti 2.453.200.000. 3.245.375.000. 2.508.409.000. Menntamálaráðuneyti 21.699.200.000. 22.984.355.000. 22.459.236.000. Iðnaðarráðuneyti 2.465.900.000. 2.979.487.000. 2.630.725.000. Samgönguráðuneyti 12.513.400.000. 14.287.131.000. 13.315.294.000. Dóms- og kirkjumálaráðuneyti 10.891.500.000. 11.701.970.000. 11.573.779.000. Landbúnaðarráðuneyti 8.971.400.000. 9.106.639.000. 9.502.476.000. Heilbrigðis- og tryggingaráðuneyti 73.667.100.000. 77.894.647.000. 78.479.090.000. Æðsta stjórn ríkisins 1.996.800.000. 2.196.541.000. 2.149.409.000. Viðskiptaráðuneyti 1.259.500.000. 1.482.741.000. 1.404.321.000. Hagstofa íslands 336.700.000. 369.934.000. 378.387.000. Forsætisráðuneyti 1.223.200.000. 1.541.293.000. 1.458.527.000. Utanríkisráðuneyti 3.778.000.000. 5.451.623.000. 4.807.020.000. Fjármálaráðuneyti 24.533.400.000. 49.754.448.000. 48.981.311.000. umhverfisráðuneyti Rekstur umhverfisráðuneytisins á síðasta ári var rúm 20% innan þeirra fjárheimilda sem því var ætlað í lokafjárlögum. ef miðað er við fjárlög síðasta árs eins og þau voru samþykkt á Al- þingi í árslok 1999. Samkvæmt þeim fóru einstök ráðuneyti allt að 49,1% fram úr fjárlögum á síðasta ári. Mestu munar hjá fjármála- í’áðuneyti sem var úthlutað 24,5 milljörðum króna á fjárlögum en endaði árið með útgjöld upp á 49,8 milljarða króna. Það er að mestu tilkomið vegna lífeyrisskuldbind- inga upp á 17,5 milljarða og af- skrifaðar skattakröfur upp á 7,4 milljarða sem tekið var tillit til þegar ráðuneytinu var úthlutað rúmum 25 milljörðum króna á fjáraukalögum og frumvarpi til lokafjárlaga sem þýddu að fjár- málaráðuneytið var innan heim- ilda. Félagsmálaráðuneytið var næst fjárlögum en útgjöld þess 2000 voru 0,6% umfram fjárlög. ■ Smáralind: Fimm daga opnunarhátíð viðskipti. ViO opnun Smáralindar er gert ráð fyrir fimm daga opnunai’- hátíð og sagði Þorvaldur Þorláksson, markaðsstjóri Smáralindar, að búast mætti við að einhver til- boð yrðu í gangi fyrir al- menning. Framkvæmdir ganga eftir áætlun og er ekki að sjá annað en að opnun verslunarmiðstöðv- arinnar verði á áætlun, 10. október næstkomandi. Hugmyndin að Smára- lind kviknaði fyrir sex ;;— —XF~ % • ly, . • íwhhNHBéú* " ÉÉÍN ÍBiMlM SSp’Jiii VETRARGARÐURINN Gólfflötur í Vetrargarðinum er á við gólfið í Laugardalshöllinni. árum síðan og hefur mikið vatn runnið til sjávar til dagsins í dag. Smáralind er 63.000 fermetrar að stærð, leigurými er 40.000 fer- metrar, þar af verslunarrými um 33.000 fermetrar. Afþreyingar- miðstöó Smáralindar er um 9.000 fermetrar og þar af er Vetrargarður- inn 1.750 fermetrar með 900 fermetra sýningar- svæði sem býður upp á mikla möguleika. Að sögn Þorvaldar er gert %$£&&& ráð fyrir að þar verði boðið upp á lifandi tón- list, listsýningar og aðr- ar óvæntar uppákomur, einkum um helgai’. í af- þreyingarmiðstöðinni verða veitingastaðir auk kvikmyndahúsa en fimm salir verða í gangi sem hægt er að nýta sem ráðstefnu- sali. ■ [lögreglufréttirI Mikil gleði ríkti á Akranesi á sunnudagskvöldið þegar menn fögnuðu íslandsmeist- aratitli IA í knattspyrnu. Að sögn lögreglunnar safnaðist fólk saman í mióbænum og hyilti íþróttakappana þegar þeir komu heim með bikarinn. Taldi við- mælandi Fréttablaðsins að hátt í tvö þúsund manns hafa verið samankomin. Allt hafi farið frið- samlega fram og þjóðhátíðar- stemming ríkt. Lögregian á Höfn hafði í nógu að snúast á föstudagskvöldið vegna ölvunaróláta. Hafa þurfti afskipti af ungu fólki sem ekki hafði aldur til að drekka áfengi, heimiliserjur voru tíðar og al- menn ólæti. Á laugardagskvöld- inu var aftur á móti mjög rólegt í bænum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.