Fréttablaðið - 26.09.2001, Side 15
MIÐVIKUDAGUR 26. september 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
15
Eiður Smári og félagar:
Dýrkeypt drykkjulæti
knattspyrna Samningur enska úr-
valsdeildarliðsins Chelsea við
United Emirates flugfélagið gæti
verið í hættu eftir að fjórir leik-
menn liðsins voru staðnir að
drykkjulátum á hóteli nálægt He-
athrow flugvellinum í London
daginn eftir hryðjuverkaárásina í
Bandaríkjunum.
Eiður Smári Guðjohnsen, Jody
Morris, John Terry og Frank
Lampard voru allir sektaðir fyrir
að vera drukknir og með dólgs-
læti við Bandaríkjamenn sem
gistu á hótelinu. Málið hefur vak-
ið mikla reiði og er talið að stjórn
flugfélagsins vilji ekki láta bendla
sig við það. Flugfélagið auglýsir á
Gerard Houllier:
Hakan ekki
á leið til
Liverpool
knattspyrna Stjórn enska knatt-
spyrnufélagsins Liverpool neitar
þeim sögusögnum að liðið sé að
reyna fá tyrkneska sóknarmann-
inn Hakar Sukur að láni frá Inter
Milan til að fylla skarð Michael
Owen. Enski landsliðsframherjinn
meiddist í leik gegn Tottenham
Hotspur um síðustu helgi.
Gerard Houllier hefur oft lýst
því yfir að það sé liðinu nauðsyn-
legt að hafa fjóra framherja í
heimsklassa og ýtir það undir
sögusagnirnar. Á heimasíðu Suk-
urs segist leikmaðurinn vera eftir-
sóttur af enskum liðum.
„Fulham, Bolton Wanderes og
Liverpool hafa öll haft samband
við mig.
„Liverpool sýnir kænsku þegar
búningum félagsins og er talið að
þetta sé annar stærsti samningur
sem knattspyrnulið hefur gert en
hann er metinn á 24 milljónir
punda.
„Okkur er brugðið og við erum
mjög óánægð með hegðun leik-
mannanna," sagði Susan
MaMahon, talsmaður flugfélags-
ins.
„Við styðjum aðgerðir Chelsea
heilshugar, þ.e. ákvörðun liðsins
að sekta leikmennina og að pen-
ingarnir renni til ættingja fórnar-
lamba hryðjuverkanna.
„Það er alltaf ákveðin hætta
sem fylgir því að gera samning
við íþróttafélög." ■
HAKAN SUKUR
Hefur ekki verið i náðinni hjá Hector
Cuper, þjálfara Inter síðan hann var keypt-
ur frá Calatasary og var meðal annars ekki
í 25 manna hóp liðsins í Evrópukeppninni.
það segist vilja fá mig að láni en
Inter vill meiri pening. Ef liðin
komast að samkomulagi held ég að
Liverpool sé góður kostur fyrir
mig.“
Hann segir einnig að Bolton
hafi verið síðasta félagið til að hafa
samband við sig en hann segist
ekki hafa áhuga á að spila með
Guðna Bergssyni og félögum. ■
Þjálfaramál:
Logi semur
við Lillestrom
knattspyrna Logi Ólafsson, sem
þjálfaði FH-inga með góðum ár-
angri í sumar, er nú staddur hjá
Lillestrpm í Noregi.
Þegar Frétta-
blaðið hafði sam- j
band við Loga í gær-
dag var hann á leiðinni á
samningafund með forráða
mönnum félagsins. Búist er við
að Logi muni taka við stöðu að-
stoðarþjálfara á næstu leiktíð,
en þá mun Lars Tjærnás, núver-
andi aðstoðarþjálfari, taka við
aðalþjálfarastöðu L/F Hpne-
foss.
Arne Erlandsen, aðal-
þjálfari Lillestrpm, hefur náð
góðum árangri með liðið á
þessu keppnistímabili, en
það er sem stendur í 2.
sæti norsku deildarinn-
ar. Með liðinu leika með-
al annars Gylfi Einars-
son, sem var keyptur
þangað frá Fylki og
Indriði Sigurðsson,
sem lék með KR. ■
Roberto Baggio:
„Guðdómlega taglið“ að hætta?
ROBERTO BAGGIO
Hefur átt litríkan feril og brenndi meðal annars af vítaspyrnu í úrslitaleik heimsmeistara-
keppninnar i Bandarikjunum gegn Brasilíu.
knattspyrna Roberto Baggio hef-
ur gefið í skyn að hann ætli að
hætta knattspyrnuiðkun þegar
samningur hans við Brescia renn-
ur út eftir þetta tímabil.
„Það eru góðar líkur á að ég
hætti knattspyrnuiðkun eftir
þetta tímabil," sagði Baggio, sem
eitt sinn var valinn leikmaður
Evrópu. Hann vonast samt eftir
að verða valinn í landslið Ítalíu í
lokakeppni HM næsta ári. ítalir
þurfa aðeins eitt stig úr viðureign
sinni við Ungverja þann 6. októ-
ber, til að tryggja sæti sitt í loka-
keppninni.
Baggio hefur ekki spilað með
landsliðinu síðan í mars 1999 en
hefur verið fyrirliði liðsins í
þremur heimsmeistaramótum-
1990, 1994 og 1998.
Giovanni Trapattoni, landsliðs-
þjálfari, hefur hingað til ekki ósk-
að eftir kröftum leikmannsins en
segist muna fylgjast með honum.
Baggio, sem hefur verið kallað-
ur Hið guðdómlega tagl, byrjaði
feril sinn með Vicenza en sló í
gegn með Fiorentina. Hann hefur
spilað með AC Milan, Inter Milan
og Juventus en hann vann ítalska
titilinn með síðastnefnda liðinu
sem og í UEFA keppni. ■