Fréttablaðið - 26.09.2001, Page 18

Fréttablaðið - 26.09.2001, Page 18
FR’É'TTÁBLAÐW 26. séptember 2001' MIÐVIKUPACIJR' A HVAÐA TÍMUM LIFUM VIÐ? Ingvi Hrafn Óskarsson, formaður SUS. Við lifum á góðum tímum, tímum tæknifram- fara og velmegunar. Því má ekki gleyma þó að hörmungarnar í Bandaríkjunum setji eðlilega ugg að fólki um þessar mundir. Heilsa T Kæri viðskiptavinur Þakka þér kærlega fyrir það traust sem þú hefur sýnt okkur í gegnum árin. Við reynum okkar besta til að endurgjalda traust þitt með 1. Lágu lyfjaverði 2. Frium heimsendingum 3. Faglegri þjónustu Nýir viðskiptavinir velkomnir Með vinsemd og virðingu Skipholts Apótek - Heiisuapótekið Skipholti 50B • S. 551 7234 Neera hreinsikúrinn /VáUúrufejj /cif fií nt'! úreima /ífinndn Góð hreinsun og endurnýjun fyrir haustið. Þú finnur endurnærandi áhrif kúrsins innan nokkura daga auk þess sem flestir léttast um 2-5 kíló á meðan kúrnum stendur. Komdu og fáðu bækling HEILSUBÚEDIN Gócð heilsa gulli betn Nljálsgötu 1 s:5B1 -5250 alladaga milti kl.11 og 12 HREYSTI Fæðubótarefni - Æfingafatnaður - Rafþjálfunartæki Bílar AB -VARAHIJLrHRhf Bildshbído 18*110 > S 567 Í020 * Fax 567 6012 ABvarahl@simnet.is www.ABvarahl.is Almennir varahlutir Boddíhlutir og Ijós Ö'- o Varohlulii ■ belri mn ■ belro veri Bílapartasalan v/Rauða- vatn, s: 587 7659 Bilapartar.is Erum eingöngu m/Toyota. Toyota Corolla '85-00, Avensis '00, Yaris '00, Carina '85-96, Touring '89-96, Tercel '83-'88, Camry '88, Celica, Hilux '84-'98, Hiace, 4-Runner '87-'94, Rav 4 '93-'00, Land Cr. '81- 01. Kaupum Toyota biia. Opið 10-18 v.d. KORTASÖLUNNI ER AÐ LJÚKA! ► Stóra sviðið kl 20.00 ■ SYNGJANDI I RIGNiNGUNNI Fös. 28/9 uppselt, lau. 6/10 örfá sæti laus, fös. 12/10 örfá sæti laus, fös. 19/10, lau. 20/10. * MEÐ FULLA VASA AF GRJÓTI Lau. 29/9 uppselt, sun. 30/9 örfá sæti laus, fim. 4/10-90. sýning, mið. 10/10, lau. 13/10. ► Litla sviðið kl 20.00 ■ HVER ER HRÆDDUR VIÐ VIRGINÍU WOOLF? I kvöld fim. 27/9 örfá sætí laus, lau. 29/9 uppselt, sun. 30/9 nokkur sæti laus, fös. 5/10. ► Smíðaverkstæðið kl 20.00 ■ VILJI EMMU Lau. 29/9, fös. 5/10. Miðasölusími: 551 1200 Veffang: www.leikhusid.is Tryggðu þér sæti! Heimili -K- FATA V I ÐG E R Ð I R Rennilásaísetningar Stytta • síkka • þrengja • víkka breyta • bæta Fagleg og vönduð vinnubrögð fyrir einstaklinga og fyrirtæki Flókagata 3 • 220 Hafnarfjörður Sími: 84 746 84 Sprautun Gerðu gömlu innréttinguna sem nýja. Sprautun á MDF hurðum, og karmi kr. 11.827. Sprautun á yfirfeldum karmi og hurð kr. 10.582. Sprautun á MDF t.d 50x70 kr. 1.556. Einnig glærlökkun, bæsun á gömlum hurðum og innréttingum. Húsgagnasprautun Jóhannesar ■ Gjótuhraun 6 Sími 555 3759 • Fax 565 2739 Tiljsölu Bílskúrshurðaþjónustan Bílskúrs- og iðnaðarhurðir. Bjóðum viðhald og viðgerðir á öll- um gerðum hurða og mótora. ÖnnuiT's seiii i uu- -.'ógerðir og sölu. Halldór s: 892 '728B og 554 1510 Ýmislegt Palazzi gjefavórur og ijouakrónur 1C 40% afsláttur Palazzi Faxafeni 9 • S: 562 4040 Ný dögun - fræðsluerindi Fræðsluerindi sr. Gunnars R. Matthíassonar um sorg og sorgarviðbrögð í Safnaðarheimili Háteigskirkju 27 sept. kl. 20. Ný dögun - Kirkjugarðarnir - Reykjavíkurprófastsdæmi. Nýr geisladiskur: Kvartett um endalok tímans geislapiskur Út er kominn hjá Óma geisladiskurinn Um endalok tím- ans. Á honum er að finna upptöku frá tónleikum Kammermús- íkklúbbsins í Bústaðakirkju í október 2000. Þar léku Sigrún Eð- valdsdóttir fiðluleikari, Einar Jó- hannesson klarinettuleikari, Ric- hard Talkowsky sellóleikari og Folke Grásbeck píanóleikari. Á disknum eru flutt Kvartett um endalok tímans eftir Olivier Messiaen. Hann samdi kvartett- inn í fangabúðum Þjóðverja í Görlitz, og þar var hann frum- fluttur 15. janúar 1941. Hljóð- færaskipanin réðst af því hvaða hljóðfæraleikarar voru meðal samfanga hans. Yrkisefnið er heimur mannsins/tímans og til- vist Krists/ eilífðarinnar. Því næst er leikið afar sjald- heyrt tríó, Tríó nr. 1, í einum kafla fyrir píanó, selló og fiðlu eftir Dmitri Sjostakovitsj.Hann samdi verkið aðeins sextán ára gamall eða 1923 en hafði þó lok- ið við nokkur verk fyrir þann tíma þrátt fyrir ungan aldur. Verkið var ekki gefið út fyrr en að höfundinum látnum. Hann er líklega sá höfundur sem hefur lagt kammertónlistinni mest til af mikilvægu efni á 20. öld, en hann samdi m.a. fimmtán strengjakvartetta. ■ Sigrún Eðvaldsdóttir Einar Jóhannesson Richard Talkou/sky Folke Qrdsbeck FANGABÚÐAKVARTETT Á disknum er fluttur Kvartett um endalok tímans eftir Olivier Messiaen, sem hann samdi í fangabúðum Þjóðverja. Skáldsögur Máls og menningar: Atburðir í nútíð og fortíð bækur Margir fremstu skáld- sagnahöfundar þjóðarinnar gefa út skáldsögu fyrir jólin hjá Máli og menningu. Hallgrímur Helga- son gefur út sögu sem hefur vinnuheitið Höfundur fslands og fjallar um mann sem vaknar einn daginn og kemst að því að hann er fastur í eigin ritverki. Hljómar spennandi en sennilega uggvæn- lega í eyrum margra skálda. Gyrðir Elíasson gefur út sjálf- stætt og síðbúið framhald Gang- andi íkorna og sömuleiðis kemur út sjálfstætt framhald bókar Sjón, Augu þín sáu mig. Ingibjörg Hjartardóttir gefur út skáldsög- una Upp til sigurhæða. Eftir Steinunni Sigurðardóttur kemur út sagan Jöklaleikhúsið, í þeirri bók er fylgst með uppfærslu áhugamannaleikfélags úti á landi á Kirsuberjagarðinum eftir Tsjekov. Bók Sveinbjörns I. Bald- vinssonar fjallar um íslenskan mann sem búsettur hefur verið í Bandaríkjunum og kemur til ís- lands vegna þess að hann erfir jörð. Skáldsögur sem gerast á fyrri tímum eru talsvert áberandi á út- gáfulista Máls og menningar. Eft- ir Einar Kárason kemur út skáldsagan Óvinafagnaður sem gerist á Sturlungaöld. Álfrún Gunnlaugsdóttir gefur út skáld- söguna Yfir Ebru fljót en hún fjallar um íslending sem tekur þátt í borgarastríðinu á Spáni og rnun vera stuðst við raunveru- lega atburði í henni. Önnur skáld- saga byggð á raunverulegum at- burðum er skáldsaga Steinunnar Jóhannesdóttur um reisu Guðríð- ar Símonardóttur, sem rænt var í Tyrkjaráninu en sneri aftur til ís- lands og giftist Hallgrími Péturs- syni. A ritunartíma sögunnar mun Steinunn hafa ferðast á slóð- um Guðríðar og stúderað heim- ildir um Guðríði og tímabil Tyrkjaránsins. ■ HALLGRÍMUR HELGASON Er á meðal þeirre höfunda sem gefa út bók fyrir jólin og ber hún vínnuheitið Höfundur islands. MIÐVIKUDAGURINN 26. SEPTEMBER FYRIRLESTUR_______________________ 12.00 Fyrsta málstofa sálfræðiskorar á haustönn. Marius Peersen, Cand. Psych., sálfræðingur hjá Fangelsis- málastofnun rfkisins, flytur erind- ið: Forspá um endurtekin afbrot íslenskra fanga í Odda stofu 201. Málstofan stendur til 13.00 og er öllum opin. 16.15 Kristin Indriðadóttir, framkvæmda- stjóri Menntasmiðju Kennarahá- skóla íslands, heldur kynningu á vegum Rannsóknarstofnunar KHÍ á erlendum gagnasöfnum og rafrænum tímaritum á sviði uppeldis og menntunar. Kynn- ingin er haldin í sal Sjómanna- skóla íslands við Háteigsveg og er öllum opin. 20.00 Vináttufélag íslands og Kanada kynnir: Dr. Finnbogi Guðmunds- son, fyrrum Landsbókavörður, flytur þátt um för Stephans G. Stephanssonar vestur að Kyrra- hafi árið 1913, í Lögbergi stofu 102. TUNGUMÁLADAGURINN 10.00 Nemendur í erlendum tungu- málum við H.í. lesa Ijóð á ýmsum tungum fyrir utan Aðalbyggingu á heila timanum til kl. 14.00 í til- efni af tungumáladeginum 15.00 Dagskrá í hátíðasal H.í. í aðal- byggingu í tilefni af tungumála- degínum. Fram koma Guðbergur Bergsson rithöfundur, Fríða Björk Ingvarsdóttir bókmennta- fræðingur og Gauti Kristmanns- son þýðingafræðingur. Guðbjörn Guðbjörnsson tenór syngur víð undirleik. Á milli atriða fara er- lendir nemendur í H.i. með spak- mæli úr móðurmáli sinu. FUNDIR____________________________ 15.00 Vaka - félag lýðræðissinnaðra stúdenta stendur fyrir ráðstefnu um lesblindu í stofu 101 í Lög- bergi. Ýmsir sérfræðingar og áhugamenn um málefni les- ' biindra verða með framsögu en að því loknu verða pallborðsum- ræður. Háskólanemar sem og aðrii áhugasamir eru hvattir til að mæta. SÝNINGAR_________ Síðastliðinn föstudag opnaði Kristin Helga Káradóttir, myndlistarnemi i Listaháskóla íslands, sýningu a flöskuskúlptúr i Gallerí Nema hvað, Skólavörðustíg 22c. Sýningin er opin 22.- 27.september frá 14-18. Handritasýning í Stofnun Árna Magnús- sonar, Árnagarði við Suðurgötu. Sýningin er opin kl. 14 til 16 þriðjudaga til föstu- daga til 15. maí. í Byggðasafni Hafnarfjarðar standa yfir sýningarnar Blóðug vígaferli og Götulíf víkinganna i York . Um er að ræða tvær sýningar, annars vegar endurgerð á götu í víkingaþorpi og hins vegar sýn- ingu þar'seir má sjá beinagrind og hauskúpur vikinga sem téllu i bardög- um. Sýmngarnar eru opnar alla daga fiá 13 til 17 og standa tíl 1. október. Á ferð um tandið með Toyota er yfir- skrift sýníngar Fókuss, Ijósmyndaklúbbur áhugamjnna. Sýningin er í salarkynnum nýrra bíla Toyota við Nýbýlaveg í Kópa- vogi. Ljósmyndir á sýningunni voru tekn- ar á ferð klúbbsins um Suðurlandshá- lendið, í Þjórsárdal, Veiðivötnum, Dóma- dal, Landmannalaugum, Fjallabaksleið og víðar. Sýningin er opin á opnunar- tíma söludeildar Toyota. MYNDLIST___________________ Jón Valgaio jörgensen opnaði á iaugar- dag sína fimmtu myndlistarsýningu í Fé- iagsstarfi Gerðubergs. Sýndar eru lands- lagsmyndii, fantasíur, portrait teikriingai og dýramyndir Sýningin stendur til 9. nóvember Opnunaitímar sýningarinnar: mán. fös. kl. 10-17 og um helgar kl. 13-16. Linda Oddsdóttir opnaði í gær sína fyrstu einkasýningu á Cafe Presto Hlíða- smára 15. Á sýningunni eru eingöngu olíumálverk sem eru unnin á þessu ári. Myndefnið er aðalega sótt í náttúru landsins. Opnunartímar virka daga frá 10 til 23 og um helgar frá 12 til 18. Sýn- ingin sternlur til 19 október. Gelber verðlaunin: Ævisaga Keynes vann bókmenntir Robert Skidelsky lá- varður hefur unniö hin mikilvægu Gelber bókmenntaverðlaun. Þau eru afhend fyrir bókmenntaverk sem ekki teljast skáldsögur en bók Skidelsky er ævisaga hag- fræðingsins John Maynard Key- nes. Að launum fær Skidelsky af- henda ávísun upp á 50 þúsund pund. Hugmyndir Keynes settu sitt mark á aðferðafræði fjár- málaheimsins fyrir seinni heims- styrjöldina og eru margar greinar hagfræðinnar skírðar eftir hon- um. Hann átti afar athyglisverða ævi og þar af leiðandi þykir bókin afar góð lesning. Hann giftist rússneskri ballerínu. Hann var ásamt Virginiu Wolf, EM Forster og Bertrand Russell meðlimur í Bloomsbury hópnum, en það var hópur gáfumanna sem komu sam- an til þess að ræða málin. Hann starfaði m.a. sem gjaldkeri fyrir Cambridge háskólann og þénaði vel. Robert Skidelsky lávarður kennir við Warwick háskólann. Af öðrum Gelber vinningshöfum má nefna Michael Ignatieff fyrir bók- ina „Blood & Belonging" og Adam Hochschild fyrir „King Leopold’s Ghost“. ■ JOHN MAYNARD KEYNES Skaust inn á sjónarsviðið 1919 þegar hann skrifaði The Economic Consequences of the Peace.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.