Fréttablaðið - 27.09.2001, Page 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
27. september 2001 FIIVMVITUPACUR
Borgarráð úthlutar úr
borgarsjóði:
Golfklúbbur
fær 80 milljónir
sveitarstjównir Borgarráð Reykja-
víkur hefur ákveðið að veita Golf-
klúbbi Reykjavíkur 80 milljóna
króna framkvæmdastyrk. Styrk-
urinn verður greiddur út á næstu
þremur árum en hann er ætlaður
til framkvæmda við æfingasvæði
á Korpúlfsstöðum og Grafar-
holtsvelli og til endurbóta á golf-
skálum og félagsaðstöðu.
Golf er sú íþróttagrein sem er í
hvað örustum vexti hérlendis. í
dag hefur golfið náð þeirri stöðu
að hafa næstflesta iðkendur allra
íþróttagreina - aðeins knattspyrna
er vinsælli. n
Frumvarp til raforkulaga:
Eftirlitsgjöld
51 milljón á ári
raforka í frumvarpi til laga um
ný raforkulög kemur m.a. fram að
kostnaður vegna eftirlitsgjalda er
áætlaður um 51 milljón króna á
ári. Það skiptist þannig að eftir-
litsgjöld flutn-
ingsfyrirtækis er
áætlað að verði
um 29 milljónir
króna á ári og
dreifiveitna um 22
milljónir króna. í
sameiginlegri um-
valgerður sögn Samtaka at-
sverrisdóttir vinnulífsins og
Forystusamtök at- Samtaka iðnaðar-
ins um frumvarp-
ið kemur fram að
mikilvægt sé að
umfang þessa eft-
sem þáð gerír'ráð irlits verði tak-
fyrir á raforku- markað eins Og
markaði kostur er, enda
greitt af neytendum. í því sam-
bandi er bent á að erlend reynsla
eins og t.d. frá Bretlandi hefur
sýnt að eftirlit með þessari at-
vinnugrein hefur vaxið með ótrú-
legum hraða.
Samkvæmt frumvarpinu verð-
ur eftirlit með einkasöluþættin-
um, þ.e. flutningi og dreifingu raf-
orku í höndum Orkustofnunar,
Samkeppnisstofnunar og Löggild-
ingarstofunnar. Samtökin telja að
þótt það kunni að vera flókið að
hafa svona margra eftirlitsaðila
sé það þó ugglaust hagkvæmara
en að setja á fót nýja eftirlits-
stofnun. ■
vinnulífsins hafa
lýst yfir ánægju
með frumvarp
ráðherrans og þá
virku samkeppni
REYKJAVIKURBORG
Borgarráð hefur samþykkt 16,6
milljóna króna aukafjárveit-
ingu vegna sumarvinnu skóla-
fólks til að mæta kostnaði um-
fram fjárveitingar. Féð færist á
kostnaðarstaðinn „ófyrirséð út-
gjöld".
Aliðinn „ófyrirséð útgjöld"
færist einnig 4,4 milljóna
fiárveiting vegna fasteignaskatta
Öryrkjabandalagsins.
Fundur Samfylkingarinnar á Kaffivagninum:
Fannst hann ömurlegur
fiskveiðar Erni Erlingssyni,
úgerðarmanni, fannst ekki mikið
til fundarins á Kaffivagninum
koma. „Mér fannst fundurinn öm-
urlegur því þessir menn höfðu
ekki hugmynd um hvað þeir voru
að tala um.“ Örn sagðist þó taka
undir hugmyndir um veiði-
leyfagjöld. „En ég held þeir geri
sér enga grein fyrir hvað þeir
vilja, því það segir sig sjálft að
öflugustu og bestu skipin muni
spjara sig og ná þessum heimild-
um til sín. Allt þetta spýtnabrak
og trilludót myndi, hins vegar,
leggjast af um allt land og það er
hið besta mál,“ áréttaði hann.
Örn segir útgerðarmenn hafa
þurft að greiða fyrir kvóta sinn.
„Allt tal um gjafakvóta er djöfuls-
ins kjaftæði, það vita þeir sem
vilja vita. Þegar kvótakerfið var
sett á voru veiðiheimildir skertar
stórkostlega vegna þess að talið
var að um ofveiði væri að ræða,“
sagði hann og tók dæmi af sínum
eigin bát sem farið hafi úr 6 - 800
tonna þorskveiðum niður í heim-
ild upp á 100 tonn. „Síðan þá hafa
menn verið að kaupa til sín veiði-
heimildir til að styrkja stöðu
sína.“ ■
ÖRN ERLINGSSON
Allt tal um gjafakvóta er djöfulsins
kjaftæði, það vita þeir sem vilja vita
Borgarráð veitir fé í
frostaskjólið:
KR fær 50
milljónir
sveitarstjórnarmál Knattspyrnu-
félag Reykjavíkur mun fá 50
milljónir króna úr borgarsjóði á
næstu þremur árum. Um er að
ræða styrk sem borgarráð hefur
samþykkt að veita KR vegna
framkvæmda við mannvirki og
svæði og lokauppgjör vegna lóðar
og byggingar íþróttahúss.
Þess má geta að borgaryfirvöld
ætla að taka upp frekari viðræður
við Knattspyrnufélagið Val urn
skipulagsmál og framkvæmdir á
félagssvæði Vals við Hlíðarenda í
Öskjuhlíð. ■
Mesta ranglæti
Islcindssögunnar
A morgunfundi Samfylkingarinnar á Kaffivagninum í Reykjavík kom fram hörð gagnrýni á nið-
urstöður meirihluta endurskoðunarnefndar fiskveiðistjórnunarlaga.
AF MORGUNFUNDI f KAFFIVAGNINUM
Össur Skarphéðinsson, Jóhann Ársælsson og Svanfríður Jónasdóttir höfðu framsögu á fundinum. Svanfríður sagði t.a.m. fráleitt að flytja
kvóta á fiskvinnsluhús, enda yrði það til að auka brottkast þegar sjómönnum yrði enn frekar gert að veiða eftir forskrift.
fiskveiðar Hart var deilt á niður-
stöðu nefndar um endurskoðun
fiskveiðistjórnunarlaga á Kaffi-
vagninum á
Grandagarði í
Reykjavík í gær-
morgun. Samfylk-
ingin boðaði til
fundarins og sagði
Össur Skarphéð-
insson, formaður
flokksins, fundar-
staðinn við hæfi
því ekki væru
teknar neinar
raunverulegar ákvarðanir í sjávar-
útvegi án þess að þær áður hafi
verið ræddar þar. „Kaffivagninn
er þannig raunverulegt sjávarút-
vegsráðuneyti þjóðarinnar," sagði
hann.
Auk Össurar tóku til máls Jó-
hann Ársælsson, fulltrúi Samfylk-
ingarinnar í endurskoðunarnefnd-
inni, og Svanfríður Jónasdóttir, en
hún á sæti í sjávarútvegsnefnd
þingsins. Þá fékk einnig að taka til
máls Guðjón A. Kristjánsson, for-
maður þingflokks Frjálslynda
flokksins, en hann var meðal fund-
argesta.
„Gjafakvótinn er mesta rang-
læti Islandssögunnar. Milljarða-
tugir hafa verið teknir úr sjávarút-
veginum og færðir í vasa manna
sem hafa fengið að valsa með þjóð-
arauðlindina,“ sagði össur og taldi
að endurskoðunarnefndin hefði
engu skilað, enda í tillögum hennar
ekki tekið eitt einasta skref til að
afnema gjafakvóta. Hann ítrekaði
að skoðun Samfylkingarinnar væri
að á hverju ári ætti að innkalla 5 til
10 prósent veiðiheimildanna og ná
þannig aftur stjórn á auðlindinni.
Jóhann Ársælsson átti sæti í
endurskoðunarnefnd og skilaði
sér áliti sem kvað á um innköllun
veiðiheimilda. Hann sagði að ætl-
uðu menn sér að hafa kvóta áfram
fylgdi honum alltaf verð. „Kvót-
anum verður alltaf úthlutað með
markaðslögmálum, öðruvísi mun
úthlutuninni ekki fylgja neitt rétt-
læti,“ sagði hann. í svari við fyrir-
spurn um hvort færeyska leiðin
væri ekki fær hér sagði Jóhann að
fyrst þyrfti að vinna slaginn um
eignarhald auðlindarinnar. „Fyrr
getur ekki farið fram vitraen um-
ræða um önnur úrræði í sjávarút-
vegsmálum,“ sagði hann og taldi
að útgerðarmenn gætu orðið góð-
ir bandamenn í þeirri vinnu þegar
tekinn hafi verið undan þeim
„gullfóturinn" sem væri gjafa-
kvótinn.
oli@frettabladid.is
---♦--
Áður en skoð-
uð eru önnur
úrræði í fisk-
veiðistjórnun
þarf að vinna
slaginn um
eignarhald
auðlindarinn-
ar.
—♦—
^ Fundur Samfylkingar á Kaffivagninum:
Ut í hafsauga med kerfið
fiskveiðar Halldór Halldórsson,
fyrrverandi skipstjóri, lét í veðri
vaka á fundi Samfylkingarinnar á
Kaffivagninum í gærmorgun að
kvótakerfið ætti að leggja niður
og því væri best komið úti í hafs-
auga. Hann vildi skoða þá leið að
taka upp sóknarstýringu í staðinn
líkt og Færeyingar hafa gert. I
viðtali við blaðamann sagði hann
að niðurstaða endurskoðunar-
nefndarinnar væri fyrir neðan all-
ar hellur og ótrúlegt að menn
væru enn „jafn vitlausir" eftir að
hafa haft kvótakerfið í þetta mörg
ár. „Mér finnst vanta að málin séu
skoðuð í samhengi við veiðarnar
sjálfar. T.a.m. er engin hagræðing
í að nota frystitogara því þeir fá
helmingi lægra verð fyrir fiskinn
heldur en netabátar þar sem sett
er í salt,“ sagði hann og bætti við
að við ættum að hafa vit á að læra
af reynslu Kanadamanna, en
Mér finnst vanta að málin séu skoðuð í samhengi við veiðarnar sjálfar.
fiskistofnar þeirra hafi hrunið
vegna ofveiða. „Komið hefur
fram að þar var um að kenna sam-
bandsleysi fiskveiðiflotans og
fiskifræðinganna." Halldór sagði
eðlilegt að allur fiskur færi á
markað og svo mætti leggja virð-
isaukaskatt á markaðsverðið. ■