Fréttablaðið - 09.10.2001, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 09.10.2001, Blaðsíða 4
4 FRÉTTABLAÐIÐ 9. október 2001 ÞRIÐJUDAGUR SVONA ERUM VIÐ VELTA A VERÐBRÉFAÞINGI fSLANDS Árið 2001 er þegar orðið veltumesta ár frá upphafi á Verðbréfaþingi íslands. Það sem af er árinu hafa verðbréf fyrir 537 milljarða skipt um hendur, samanborið við 535 milljarða allt árið i fyrra, sem var metár. Samsetningin hefur þó breyst þar sem hlutabréf vega nú aðeins 18% af heildarveltu, pa en skuldabréf 54%. USkuldabréf 1140 □ Húsbréf 1 Hlutabréf T7Ö1 1998 4801 IMHMllO 280] |l 999 4951 200 320| 12000_____________ 535 í 1100 I 3201 2001 _______________ 537 Hækkun tryggingagjalds: 200 milljóna útgjöld fyrir sjávarútveg siávarótvecur Arnar Sigurmunds- son formaður Samtaka fiskvinnslu- stöðva áætlar að áform ríkisstjórn- ar um hækkun tryggingagjalds muni auka útgjöld sjávarútvegsins um 200 milljónir króna á ársgrund- velli árið 2003. Það skiptist þannig að útgerðin þarf að greiða um 140 milljónir og fiskvinnslan um 60 milljónir króna. Á móti koma síðan áhrifin af áformuðum breytingum á skattkerfinu. Viðbúið er að skatta- málin verði ofarlega á baugi á aðal- fundi Samtaka fiskvinnslustöðva í dag. Hann segir að skattabreyting- arnar muni hafa jákvæð áhrif á sjávarútveginn í heild sinni. Aftur á móti hefur hækkun trygginga- gjaldsins í för með sér ný útgjöld fyrir atvinnugreinina. Hann segir að fljótt á litið munu áhrif skatta- breytinga ásamt með breytingum á reikniskilavenjum og fleiru vega þyngra en það. Hins vegar sé mjög æskilegt að fallið verði að ein- hverju leyti frá fyrirhuguðum hækkunum á tryggingagjaldi, enda kemur það gjald mjög misjafnlega niður á atvinnugreinum. ■ —♦— Aburðarverksmiðj an í Gufunesi: Rannsókn ekki lokid sprencing „Rannsókn er ekki lokið en verið er að skoða ýmsa þætti í kringum atburðinn," sagði Svanur Elísson hjá tæknideild lögreglunn- ar í Reykjavík, um sprenginguna sem varð í Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi 1. október sl. Svanur sagðist ekki vita hvenær rannsókn myndi ljúka en fyrst þyrfti að tæma húsnæðið þar sem sprenging- in varð en það yrði ekki gert fyrr en vinnusvæðið væri orðið tryggt. Efnaframleiðslu hefur verið hætt í Áburðarverksmiðjunni í kjölfar sprengingarinnar og er ráð- gert að flytja verksmiðjuna af svæðinu á næstu tveimur árum. ■ 1lögreglufréttir| Bandarísk kona féll 50 metra þegar hún var í göngu í Þver- árgili í Þórsmörk í hádeginu á sunnudag. Konan slasaðist tals- vert og var talið líklegt að hún hafi fótbrotnað. Hún var flutt með sjúkrabifreið á Landspítala- háskólasjúkrahús. Konan er bú- sett í varnarstöðinni í Keflavík. ——♦— Eldur kviknaði í eldhúsi í fjöl- býlishúsi við Bláhamra í Grafarvogi á sunnudagaskvöld. Kona, sem var inni í íbúðinni, var flutt á sjúkrahús með reykeitrun en hún hafði komist út af sjálfs- dáðun. Rýma varð stigaganginn. Vel gekk að slökkva eldinn en miklar skemmdir urðu á íbúðinni vegna elds og reyks. Skattabreytingar ríkisstjórnarinnar: Láglaunafólk í eigin húsnæði fær minnst skattar Boðaðar skattabreytingar ríkisstjórnarinnar hafa óveruleg áhrif á venjulegt launafólk. Lækkun skattaprósentu um 0,33 prósentu- stig breytir litlu fyrir venjulegt launafólk. Ráðstöfunartekjur ein- staklings sem á nettóeign undir skattleysismörkum, aukast einung- is um 380 krónur á mánuði. Hækkun frítekjumarka hátekjuskatts og eignaskatts, auk lækkunar eigna- skattsprósentu úr 1,2% í 0,6% þýða að einstaklingur sem hefur 320 þús- und í mánaðarlaun og á 8 milljónir í hreinni eign, eykur ráðstöfunar- tekjur sínar um 6.768 krónur á mán- uði. Leigendur fá nokkra leiðréttingu sinna mála. Einstaklingur í leigu- húsnæði með tvö börn á framfæri og 120 þúsund í mánaðarlaun eykur ráðstöfunartekjur sínar um 5.894 krónur vegna afnáms skatta á húsa- leigubætur og 380 krónur vegna breytinga á skattaprósentu. Breyt- ingar á skattaprósentu þýða meiri aukningu eftir því sem tekjur hækka en hækkun persónuafsláttar myndi þýða sömu upphæð fyrir alla sem fara yfir skattleysismörk. ■ BREYTINGAR Á RÁÐSTÖFUNARTEKJUM VEGNA SKATTBREYTINGA Heildarlaun á mánuði Nettóeignir Einstaklingur í leiguhúsnæði 120.000 500.000 Einstaklingur eigin húsnæði 320.000 8.000.000 Einstaklingur ■ litilli íbúð 120.000 2.000.000 Útborgað eftir breytingu Útboreað fvrir brevtineu 95.888 95.508 214.851 213.387 95.888 95.508 mismunur 380 1.464 380 Húsaleigubætur fyrir eftir 10.106 16.000 mismunur Eienaskattur á mánuði 5.894 fyrir eftir 4.257 1.754 mismunur Hátekjuskattur fyrir eftir 2.503 2.801 O mismunur Aukning ráðstöfunartekna á mánuði 6.274 2.801 6.768 380 Safha þarf liði og höggva skóginn Pétur M. Jónasson, sem hlaut heidursdoktorsnafnbót á Háskólahátíð á föstudaginn, hefur áhyggjur af framtíð Þingvalla vegna barrskógarins sem fer um þjóðgarðinn eins og eldur í sinu. háskólahátíð Pétur M. Jónasson fyrrverandi prófessor i vatnalíf- fræði við Kaupmannahafnarhá- skóla hefur, ásamt stórum rann- sóknarhópi, gert rannsóknir á líf- ___4___ ríki Þingvalla- vatns. Pétur var einn þeirra sex sem hlutu heiðurs- doktorsnafnbót á háskólahátíð á föstudaginn. Hann flutti ræðu á hátíð- inni þar sem hann gagnrýndi ræktun „Haldið þið að Kjarval hefði getað málað hraunið ef það hefði ver- ið þakið barr- skógi?" —♦— barrtrjáa í þjóðgarðinum á Þing- völlum. „Ég var bara að vekja at- hygli íslendinga á því hvernig far- ið er með þjóðgarðinn,“ segir Pét- ur. Pétur segir að þó að á Þingvöll- um sé þjóðagarður íslendinga þá hafi hann ekki alþjóðlega viður- kenningu sem slíkur, einmitt vegna barrtrjánna sem þar eru. „Það er búið að gróðursetja þarna níu mismunandi tegundir af barr- trjám, allt innfluttar tegundir. Það er örugglega ein milljón barrtrjáa í þjóðgarðinum í dag vegna þess að það sáir sér sjálft." Barrskóg- arnir kæfa ekki bara birkið, sem var eina trjátegundin á Þingvöll- um, heldur einnig blómagróður. í þriðja lagi menga barrskógarnir Þingvallavatn. Pétur útskýrir hvernig köfnunarefni eykst um 50% í jarðveginum þegar barrnál- arnar falla til jarðar. Köfnunar- efnið fer beint út í vatnið og nær- ir þörungana sem þar lifa þannig að með tímanum hættir Þingvalla- vatn að vera blátt og tært, sem hefur verið megineinkenni þess, heldur fær á sig græna slikju vegna þörunganna. Pétur deilir þeirri skoðun með mörgum að mikil sjónmengun sé af barrskóginum á Þingvöllum og í lok ávarps síns á Háskólahátíð- inni spurði hann: „Haldið þið að Kjarval hefði getað málað hraunið ef það hefði verið þakið barr- HEFUR ÁHYGGJUR AF FRAMTÍÐ ÞINGVALLA Pétur M. Jónasson er nú 81 árs. Hann seg- ist ætla að vera við 100 ára afmæli Há- skólans eftir 10 ár og sjá hver staðan verð- ur þá með barrskóginn á Þingvöllum. ] HEIÐURSDOKTORAR~| Nýir heiðursdoktorar á Háskólahátfð 2001: Gísli Guðjónsson Prófessor í réttarssálfræði við geð- lækningastofnun Lundúnaháskóla. Karl Tryggvason Prófessor í læknisfræðilegri lífefna- fræði við Karolinska Institutet f Stokkhólmi. Ámi Vilhjálmsson Fyrrverandi prófessor við Hf og þar áður meðal annars starfsmaður Al- þjóðabankans. Jonna Lois-Jensen Sérfræðingur við Árnastofnun f Kaup- mannahöfn og prófessor f íslensku máli og bókmenntum við Kaup- mannahafnarháskóla. Preben Meulengracht Sörensen Prófessor í norrænum bókmenntum við Árósaháskóla. Pétur M. Jónasson Fyrrverandi prófessor í vatnalfffræði við Kaupmannahafnarháskóla. skógi?“ Salurinn fagnaði þessum orðum með hressilegu lófataki. „Það er ekkert annað að gera en að safna liði og höggva þetta allt,“ segir Pétur og bendir á að lýsing Ara fróða á Þingvöllum sé vanvirt með barrskógaræktinni. „Aðalat- riðið er þó að það verður að friða þetta svæði því það er framtíðar- vatnsból þeirra 75% þjóðarinnar sem á heima á suðvesturhorni landsins.“ steinunn@frettabladid.is Umboðsmaður Alþingis: Samgönguráðuneyti bar að úrskurða úrskurðarmál Samgönguráðu- neytið fór ekki að lögum þegar það vísaði frá stjórnsýslukæru Félags hópferðaleyfishafa. Þetta er niðurstaða umboðsmanns Al- þingis. Félag hópferðaleyfishafa kærði í mars 2000 til Vegagerðar- innar meinta misnotkun tiltek- inna leyfishafa á sérleyfum. Eftir að hafa kannað málið, m.a. með samskiptum við umrædda leyfis- hafa, taldi Vegagerðin ekki ástæðu til frekari afskipta af mál- inu. Vegagerðinni hefur með lög- um verið falin útgáfa sérleyfa til hópferða. Félag hópferðaleyfishafa kærði ákvörðun Vegagerðarinnar til samgönguráðuneytisins en stjórnsýslukærunni var vísað frá ráðuneytinu. Andstætt samgönguráðuneyt- inu segir umboðsmaður ákvörðun Vegagerðarinnar hafa verið stjórnvaldsákvörðun sem falið hafi í sér efnisleg málalok og hafi því verið kæranleg til ráðuneytis- ins. Umboðsmaður Alþingis hefur beint þeim tilmælum til sam- gönguráðuneytisins að það taki mál Félags hópferðaleyfishafa til endurskoðunar, óski félagið þess, og taki þá mið af niðurstöðum umboðsmanns.H UMFERÐARMIÐSTÖÐIN f REYKJAVÍK Félag hópferðaleyfishafa taldi sérleyfi vera misnotuð en Vegagerðin sem gefur leyfin út taldi svo ekki vera. Samgönguráðneytið taldi sig ekki eiga að úrskurða f málinu en umboðsmaður Alþingis segir það hins veg- ar einmitt hafa verið skyldu ráðuneytisins. HARALDUR LÍNDAL HARALDSSON Sveitarstjóri Dalabyggðar segir að ekki sé haft samstarf við kaupfélögin um rekstur sláturhúss Búðardals. Slátrun í sláturhúsinu Búðardal: Samið við Ferskar af- urðir LANDBÚNAÐUR Dalabyggð tekur ekki þátt í samstarfi fjögurra kaupfélaga um leigu á sex slátur- húsum Kjötumboðsins hf., sem áður hét Goði. hf. Gerður hefur verið samningur við Ferskar Af- urðir ehf. um leigu á sláturhúsinu í Búðardal. „Það er mikið að gera í slátruninni, „ sagði Haraldur Líndal Haraldsson, sveitarstjóri Dalabyggðar. „Ferskar afurðir ehf. annast slátrunina og gera ráð fyrir að slátra að minnsta kosti um 40 þúsund fjár, samanborið við um 33 þúsund í fyrra. Við þetta starfa um 55 manns, allt ís- lendingar, en þetta er fækkun um 10-15 manns frá því í fyrra. Það er góður gangur í slátruninni, það er verið að slátra 13-1400 dilkum á dag og verkunin kemur mjög vel út,“ sagði hann og var ánægður með gang mála. Haraldur segir að Ferskar afurðir sé sjálfstætt einkahlutafélag í eigu aðila á Hvammstanga og Akureyri. „Kaupfélögin koma ekkert nálægt þessu nema að samvinna er um út- flutningsslátrun sem þau sinna fyrir okkur,“ bætti hann við. ■ —♦— Bandarískir unglingar: Þriðjungi færri byrja að reykja washington.ap Dregið hefur úr þeim fjölda bandarískra unglinga sem byrja að reykja um briðjung á aðeins tveimur árum. Árið 1997 hófu rúmlega 3000 unglingar að reykja og var það nýtt met í land- inu og vakti mikla athygli. Árið 1999 hafði fjöldinn hins vegar fallið um 33%. Hélst hann síðan stöðugur á síðasta ári. Sérfræð- ingar segja að breyting í menn- ingarlífi landsins og hátt verð á sí- garettum séu líklegustu skýring- arnar fyrir dvínandi reyking- um. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.