Fréttablaðið - 09.10.2001, Page 7
ÞRIÐJUDAGUR 9. október 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
7
Hafnasambandið:
Vilja hækkanir líkt og aðrir
samcöngur Á nýafstöðnum
ársfundi Hafnasambands
sveitarfélaga var samþykkt
að leggja það til við sam-
gönguráðherra að gjald-
skrá hafna hækki um 8% og
að aflagjöld hækki úr
1,03% í 1,1% af aflaverð-
mæti. Gunnlaugur Júlíus-
son hagfræðingur Sam-
bands íslenskra sveitarfé-
laga segir að gert sé ráð
fyrir að þess hækkun afla-
gjalds muni gefa höfnum
HAFNARFJARÐARHÖFN
Mikil uppsveifla hefur verið f uppbyggingu hafnarinnar, enda er
hún orðin ein af stærstu höfnum landsins
landsins um 40 milljónir í auknar
tekjur og gjaldskrárhækkunin
um 140-150 milljónir króna á árs-
grundvelli. Hann segir að þótt
fallist verði á þessar hækkanir
þá muni þær ekki einar og sér
duga til að rétta við fjár-
hag þeirra hafna sem
glíma við taprekstur eða til
að fara í einhverjar veru-
legar fjárfestingar. Heilar-
tekjur hafna á síðasta ári
námu tæplega 2,5 milljörð-
um króna.
í rökstuðningi Hafna-
sambandsins með þessum
hækkunarbeiðnum er m.a.
bent á að afkoma hafna
hefur farið versnandi ár
eftir ár. Það sé því mikil-
vægt að hafnirnar fái hækkun á
gjaldskrám sínum til að kostnað-
arauka líkt og aðrir. ■
LANDSFUNDURINN 1999
Um þúsund manns eiga seturétt á landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem hefur stundum verið lýst sem stærstu stefnumótandi samkomu
Islenskra stjórnmála.
Sumu hreyft, öðru ekki
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins er stundum sagður stærsta stefnumót-
andi samkoma íslenskra stjórnmála. Fréttablaðið fór yfir ályktanir síð-
asta landsfundar í nokkrum málaflokkum og afdrif þeirra.
stjórnmál Landsfundur Sjálf-
stæðisflokksins er fjölmennasta
samkoman í íslenskum stjórnmál-
um og lætur sér fátt óviðkomandi
þegar kemur að því
♦ að álykta. Ályktan-
Ályktun um ir síðasta lands-
að hvalveiðar fundar, sem hald-
hæfust hér við inn var vorið 1999,
land eigi síðar báru titilinn Ár-
en árið 2000 angur fyrir alla og
hefur hins var þar kveðið á
vegarekki um ýmsar breyt-
gengið eftir. ingar.
. Landsfundurinn
lagði til miklar
breytingar í skattamálum. Lækka
átti tekjuskattshlutfall, semja við
útgerðir um yfirtöku eða sérstaka
fjármögnun sjómannaafsláttar,
afnema stimpilgjöld, einfalda
álagningu og framkvæmd fjár-
magnstekjuskatts auk þess sem
lækka ætti efra þrep virðisauka-
skattsins úr 24,5% í 14-16% í
áföngum. Að auki ætti að afnema
lagaákvæði um lágmarksútsvar.
Á þeim tveimur árum sem síðan
eru liðin hefur verið ákveðin
lækkun tekjuskattshlutfalls ein-
staklinga um eitt prósent en
sveitarfélögum veitt heimild til
hækkunar útsvars sem því nem-
ur. Frítekjumörk hátekjuskatts
hækka um 15%. Tekjuskattar fyr-
irtækja munu hækka úr 30% í
18% frá og með næstu áramótum
samkvæmt frumvarpi stjórn-
valda. Stimpilgjald verður lækk-
að 2003.
í ályktun fundarins um sjávar-
útvegsmál kom fram að seint
næðist algjör sátt um sjávarút-
vegsmál en áherslu bæri að legg-
ja á að áfram yrði byggt á kvóta-
kerfinu. Hefur það gengið eftir í
tillögum meirihluta endurskoðun-
arnefndar. Ályktun um að hval-
veiðar hæfust hér við land eigi
síðar en árið 2000 hefur hins veg-
ar ekki gengið eftir en endurinn-
gangan í Alþjóða hvalveiðiráðið
er hugsuð sem skref í þá átt að
hefja hvalveiðar á ný.
Ekki hefur mikið gengið í
breytingu á rekstri ýmissa ríkis-
stofnana sem hvatt var til breyt-
inga á. í samþykktum var þess
krafist að rekstrarformi Ríkisút-
varpsins yrði breytt auk þess sem
skylduáskrift yrði afnumin þegar
í stað. Þess var einnig krafist að
ÁTVR yrði lögð niður og eignir
hennar seldar þegar í stað, það
hefur ekki gengið eftir. Þá var því
lýst yfir að leggja ætti niður
Kvikmyndaeftirlit ríkisins en
frumvarp menntamálaráðherra
þess efnis náði ekki fram að
ganga í fyrra. Það verður lagt
fram aftur nú.
binni@frettabladid.is
£ZS
A.
OPPNU l\/l
A SKIBUM,
ií:
SKÍÐAVÖRUM
SKÍÐAFATNAÐI
GQNGUSKÍÐUM
OG SNJÓ BRETTABÚNAÐI
Takmarkað magn!
áður 7.99
(\
1.495-
/nts/\r3
Skíði og skíðaskór
Eingöngu carve skíði
Skíðaskórog blndingar
Skíðafatnaður
Bretti, skór og bindingar
i)fð»rf|i<M»M i
i MAOSHUS
Gönguskíði
li-fullorðins:
bindingum frá:
r tóppUrÍYUV i Útbviit
n
Bindingar
Fagleg ráðgjöf
Skeifunni 6 • 108 Reykjavík • Sími 533 4450
Viltu hætta að reykja?
Vikunámskeið
Heilsustofnun NLFÍ, sími 483 0300
Straumur
Kirkjusandi 2,155 Reykjavík, s. 560 8900
Mánudaginn 15. október 2001 verða hlutabréf í Fjárfest-
ingarfélaginu Straumi hf. tekin til rafrænnar skráningar hjá
Verðbréfaskráningu íslands hf. f samræmi við ákvörðun stjórn-
ar Fjárfestingarfélagsins Straums hf. þar að lútandi. Þar af
leiðandi verða engin viðskipti með hlutabréf félagsins þann
dag. Frá þeim tíma ógildast hin áþreifanlegu hlutabréf í fyrir-
tækinu í samræmi við ákvæði laga og reglugerðar um raf-
ræna eignarskráningu verðbréfa.
Nánar tilgreint verða öll hlutabréf f Fjárfestingarfélaginu
Straumi hf. tekin til rafrænnar skráningar. Þau eru gefin út á
nafn hluthafa og útgáfudags er getið á hverju bréfi.
Hér með er skorað á alla eigendur hlutabréfa í félaginu
sem telja nokkurn vafa leika á að eignarhald þeirra sé rétti-
lega fært í hlutaskrá Fjárfestingarfélagsins Straums hf. að
staðreyna skráninguna með fyrirspurn til hlutaskrár Fjár-
festingarfélagsins Straums hf., Kirkjusandi 2,155 Reykjavfk
eða f síma 560 8900. Komi í Ijós við slíka könnun að eig-
endaskipti hafi ekki verið skráð ber eigendum að færa sönn-
ur á þau gagnvart félaginu fyrir nefndan dag.
Enn fremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð rétt-
indi til ofangreindra hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að koma
þeim á framfæri við fullgilda reikningsstofnun, þ.e. banka,
verðbréfafyritæki eða sparisjóð sem gert hefur aðildar-
samning við Verðbréfaskráningu íslands hf., fyrir skrán-
ingardag.
Athygli hluthafa er vakin á að hin áþreifanlegu hlutabréf
félagsins verða ógild sjálfkrafa og því er ekki þörf á að skila
þeim til félagsins. Jafnframt er vakin athygli á að ferli raf-
rænnar skráningar hefur engin áhrif á möguleika hluthafa til
að eiga viðskipti með hluti sína í félaginu að undanskildum
sjálfum skráningardeginum.
Að lokinni rafrænni skráningu þurfa hluthafar að fela reikn-
ingsstofnun umsjón með eignarhlut sínum í félaginu til að
geta framselt hluti sina svo sem vegna sölu eða skipta. Reikn-
ingsstofnun mun í þessu skyni stofna VS-reikning í nafni við-
komandi hluthafa.
Stjórn Fjárfestingarfélagsins Straums hf.