Fréttablaðið - 15.11.2001, Síða 10
10
FRETTABLAÐIÐ
15. nóvember 2001 FIMMTUDAGUR
FRETTABLAÐÍÐ
Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilssson
Fréttastjórar: Pétur Gunnarsson
Sigurjón M. Egilssson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Plötugerð: ÍP-prentþjónustan ehf.
Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf,
Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is
Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf-
uðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn
greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins f stafrænu 'formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Islensk umferð-
Það leiðinlegasta af öllu
Fátt veit ég leiðinlegra en þras-
ið milli meirihluta og minni-
hluta í borgarstjórn Reykjavíkur.
Það er með ólíkindum hversu illa
sjálfstæðismönnum gengur að
koma sókn á meirihlutann. Það
getur bara ekki
—4— annað verið en að
Hinn almenni þau sem hafa
borgari hlust- stjórnað borginni í
ar ekki til bráðum átta ár eigi
lengdar. erfitt með varnir í
il einhverjum mál-
um. Svo virðist
samt ekki vera og þeir litlu sókn-
artilburðir sem sjálfstæðismenn
hafa haft í frammi eru kæfðir nær
samstundis.
Svo virtist sem minnihlutinn
væri að ná vopnum sínum og
þrengdi að meirihlutanum með
Línu.neti. Mörgum að óvörum átti
höfuðpaurinn í því máli, Alfreð
Þorsteinsson, ótrúlegt tromp í
erminni. Útspil hans er það eina
jákvæða og það eina sem hægt
hefur verið að hafa gaman af. Að
selja Perluna. Sjálfstæðismenn
eiga svo skemmtilega erfitt með
að verjast þessari hugmynd að
broslegt er. Þeir keppast um að
vera á móti einkavæðingu.
Því miður er ekki frekari afrek
að sjá og okkar bíður heill vetur
þar sem þrasað verður fram og
aftur um bókfærslu, um stöðu-
mælagjöld, um akstur eftir Hafn-
arstræti og annað sem fáir hafa
áhuga á.
Það eilífa þras sem er í gangi
MáLmanna
Sigurjón M. Egilsson
skrifar um þras
varðandi tekjur, gjöld og skuldir
borgarsjóðs og fyrirtækja borgar-
innar er svo leiðinlegt og svo
margtuggið að ekkert bragð er
þar eftir. Sjálfstæðismönnum hef-
ur ekki tekist að glæða þá um-
ræðu neinu lífi og þess vegna hef-
ur meirihlutinn átt einstaklega
gott með að verjast í málinu. Það
hefur ekki þurft mikið til. Hinn al-
menni borgari hlustar ekki til
lengdar.
Pólitísk átök verða að vera með
þeim hætti að hægt sé að hafa
gaman af. Það verður að fara sam-
an grín og alvara. Hvað það segir
um aðra borgarfulltrúa veit ég
ekki, en sá sem hefur stolið sen-
unni er Alfreð Þorsteinsson og
með sínu útspili mun hann ekki
eiga í neinum vandræðum með að
koma í veg fyrir óþægileg átök
um Línu.net né nokkuð annað.
Sjálfstæðismenn virðast vera
heimaskítsmát. ■
Misnotkunin vandamálið
armenmng
iárngerður Grétarsdóttir skrifar
umferð Islensk umferðarmenning
hefur mikið verið í umfjöllun und-
anfarið af dapurlegum örsökum og
ýmsar hugsanlegar ástæður taldar
upp um hvers vegna umferðin er
eins og hún er.
Ég er nýflutt aftur til íslands
eftir að hafa búið erlendis um
skeið og upplifi að „glöggt er
gests augað“. Frá mínum bæjar-
dyrum séð er vandamálið í ís-
lenskri umferðarmenningu ekki
ökukennslan eða lágur aldur fólks
þegar það fær bílpróf heldur ein-
faldlega agaleysi og stress. Á fjór-
um vikum hér heima hef ég séð
jafn mörg umferðarlagabrot og á
fjórum árum erlendis. Það er al-
veg ótrúlegt að upplifa þennan
mun á umferðarmenningunni.
Hér einkennist hún af því að eng-
inn sýnir tillitsemi, það er keyrt
fyrir aftan mann með hálfs metra
bili á milli bíla en það versta er
hraðinn. Hraðinn innanbæjar á
Reykjavíkursvæðinu er svo mikill
að ekkert má út af bera til að slys
verði, enda eru þau daglegt brauð
þegar einhvað amar að færð eða
veðri. Á vegum um landið er keyrt
af þvílíkum ofsa að hárin rísa í
hnakkanum. Ég finn satt best að
segja til léttis hvert sinn er ég
heyri af fólkinu mínu komnu heilu
og höldnu úr ferðalagi um vegi
landsins, og þegar ég heyri í eða
sé sjúkrabíl á ferð um borgina
hugsa ég með mér hvort fórnar-
lambið hafi í þetta sinn verið ein-
hver mér nákominn. Ég tek það
ekki lengur sem sjálfsagt að allt
gangi vel.
Eg þekki orðið það mörg dæmi
um slys og ég hef lesið það marg-
ar frásagnir af afleiðingum slysa
að ég tel hættuna á bílslysi mestu
hættuna sem steðjar að mér og
mínum í hinu daglega lífi. Alvar-
legum sjúkdómum er maður varn-
arlaus gagnvart en það er þó hægt
að gera einhvað til að bæta um-
ferðarmenninguna. Það eina sem
þarf til er hugarfarsbreyting. ■
en ekki kerfið sjálft
Frjálsa framsalið er einn af kostum kvótakerfisins segir Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra.
Mörg markmiða kerfisins náðst þó ekki hafi allt gengið eftir. Það sem eftir stendur þarf þó ekki
að vera kvótakerfinu að kenna heldur kunna að hafa verið gerð mistök annars staðar. Brottkastið
yrði mest ef fyrningarleiðin yrði farin.
ÁRNI MATHIESEN
Ef við lítum yfir heildina hefur
sjávarútvegurinn verið burða-
rás í þjóðfélagi sem hefur ver-
ið að batna og sifellt að
skila meiru á þessu
tímabili. Það er því
Ijóst að við höf-
um gert fleira
rétt heldur
en rangt.
Þegar kvótakerfið var sett á
var talað um að efla ætti fiski-
stofna og fækka skipum. Nú hef-
ur afli dregist saman, skipum
f jölgað og sóknargetan aukist. Er
ekki óhætt að segja að markmið
kerfisins hafi ekki náðst?
Ég held að það sé alveg klárt að
megnið af markmiðunum hefur
náðst. Þó er erfitt að greina það
með óyggjandi hætti frá öðrum
breytingum sem hafa verið gerðar
á umhverfi atvinnugreinarinnar á
þessum sama tíma. Þetta á sérstak-
lega við hagrænu þættina. Hvað
varðar uppbyggingu fiskistofna þá
var upptaka kvótakerfisins engin
ávísun á að við gerðum allt annað
rétt. Við getum hafa tekið rangar
ákvarðanir um heildaraflamarkið
og þar af leiðandi hafa þau mark-
mið sem við stefndum að um upp-
byggingu fiskistofnana ekki náðst.
Það er þá algjörlega ótengt kvóta-
kerfinu. Síðan má segja að það er
ekki sama hvernig kvótakerfið er
útfært hvað varðar ýmsa aðra
þætti. Þar af leiðir er hvorki hægt
að gera kvótakerfið ábyrgt fyrir
öllu því jákvæða eða öllu því nei-
kvæða sem hefur gerst í sambandi
við sjávarútveg og fiskveiðar á
þessu tímabili.
Þú minnist á að kannski hafi
verið teknar rangar ákvarðanir
um kvótastærð. Hefur Hafró
brugðist eins og haldið hefur
verið fram og er breytinga að
vænta?
Við erum að gera úttekt á
þessu einmitt núna. Menn verða
síðan að gæta sín á að gera grein-
armun á því hvort menn hafi gert
einhverja hluti rangt eða hvort
skekkjumörk niðurstaðanna hafi
verið víðari en menn höfðu al-
mennt gert sér grein fyrir.
Frjálsa framsalið hefur senni-
lega verið umdeildasti hlutinn í
kvótakerfinu. Afli hefur minnkað
frá því það var tekið upp og nú
mælast bæði útvegsmenn og sjó-
menn til þess að það verði tak-
markað. Megum við vænta breyt-
ingar á því?
I mínum huga er frjálsa fram-
salið mjög jákvætt. Það sem er
vandamálið er misnotkun á
frjálsa framsalinu. Annars
vegar þegar brotið er gegn
lögum með því að láta sjómenn
taka þátt í kvótakaupum eða
kvótaleigu. Hins vegar þegar
menn beinlínis byggja útgerð
sína á því að leigja til sín kvóta
dýru verði og telja sig ekki geta
gert út á þessum grundvelli án
þess að brjóta lög með því að
henda fiski í sjóinn sem ekki er
nægjanlega verðmætur til að
standa undir leiguverðinu. Það er
misnotkunin sem er vandamálið
en ekki frjálsa framsalið í sjálfu
sér. Það er ekki hægt að gagn-
rýna kerfi fyrir vandamál sem
koma upp þegar brotið er gegn
reglum kerfisins.
Margir segja að brottkast hafi
aukist og breyst með kvótakerf-
inu. Er hægt að taka á því án
stórtækra kerfisbreytinga?
Ég held að við getum gert heil-
mikið í þessum efnum. Við höfum
verið að gera það, erum að gera
það og eigum eftir að gera
meira í þeim efnum. Eins og
flestir segja hefur alltaf verið
brottkast. Það hefur örugglega
verið mismunandi eftir tímabilum
og aðstæðum. Við sjáum það á
okkar athugunum og fyrri athug-
unum eins og Kristins Pétursson-
ar. Könnun Kristins var gerð fyrir
tíma frjálsa framsalsins. Hún sýn-
ir í grundvallaratriðum svipað
brottkast og okkar könnun, reynd-
ar heldur meira. Hvað síðan ger-
ist í millitíðinni
er dálítið
erfitt
að
átta sig á. Ég held að brottkast
geti verið vandamál í öllum kerf-
um þar sem er takmarkað hversu
mikið er hægt að koma með að
landi. Ef það er takmarkað hvað
má koma með að landi og hægt að
velja að einhverju leyti úr er bara
komið með það allra verðmætasta
að landi þá er hætta á brottkasti.
Ef menn sjá lausnina sem þá að
breyta um kerfi þá getum við al-
veg eins gert breytingar á því
kerfi sem við erum með. Ég held
að hvað varðar brottkastið þá
eru kringumstæður í frjáls-
um veiðum sem hafa leitt
til brottkasts, það eru
kringumstæður í sóknar-
kerfi sem hafa leitt til
brottkasts. Ég held að í
fyrningarkerfi með
uppboði þar sem allir
eru leiguliðar hjá rík-
inu og verðið spennt
upp á við yrði mesta
brottkastið ef ekki
yrði gripið í tau-
mana.
binni@frettabladid.is
Loksins
Loksins
Sandy Aubuchon listmálarakennari
er komin til landsins. Verðum með
sýnikennslu í dag. Sjón er sögu ríkari,
örfá sæti laus á námskeiðið hjá
Sandy um helgina.
Koffortið
Strandgata 21, Hafnarfirði, sími 555 0220