Fréttablaðið - 15.11.2001, Side 11
FIMMTUDAGUR 15. nóvember 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
11
Eftirsótt að starfa í íslensku fríðargæslunni:
250 manns
vilja gæta friðar
RÚSTIR WORLD TRADE CENTER í NEW YORK
Kjami friðargæslunnar er fólk sem sent er út I 6 til 12 mánuði i senn, en einnig er stefnt
að þvi að koma á legg hópum sem gætu farið i skammtímaverkefni með litlum fyrin/ara,
t.a.m. í rústabjörgun.
friðarcæsla Alls bárust ríflega 250
umsóknir um störf í íslensku frið-
argæslunni sem stofnuð var í byrj-
un september. Auðunn Atlason,
umsjónarmaður íslensku friðar-
gæslunnar, sem heyrir undir al-
þjóðaskrifstofu utanríkisráðuneyt-
isins, segir að auglýst hafi verið
eftir fólki 11. september, daginn
sem hryðjuverkaárásin á Banda-
ríkin átti sér stað, og gefinn var 10
daga umsóknarfrestur. „Ríkis-
stjórnin hefur ákveðið að fjölga
friðargæsluliðum í nokkrum
skrefum, úr 10, eins og var í fyrra,
upp í 25 árið 2003.“ Til að þetta
gengi eftir sagði Auðunn að koma
þyrfti upp skrá allt að 100 borgara-
legra sérfræðinga, sem hefðu ver-
ið sérstaklega valdir og fengið
ákveðna grunnþjálfun. „Svo verð-
ur valið úr þessum hópi til að stan-
da að fjölguninni á hverjum tíma,“
sagði hann og taldi viðbrögðin við
auglýsingunni mjög góð. „Af hópn-
um sem um sótti voru um 90
manns boðaðir í viðtal, og þeim er
nýlokið. Við vonumst til að 1. des-
ember n.k. verði fyrsti 100 manna
hópurinn klár. Það þýðir að í frið-
argæslunni eru annars vegar þeir
sem eru á skrá hér heima og hins
vegar þeir sem eru úti að störfum,
en á þessu ári hafa það verið allt að
15 manns og verða 20 á næsta ári.“
Auðunn segir að flestir umsækj-
enda hafi uppfyllt skilyrðin sem
sett voru og þeir sem ekki hafi ver-
ið valdir í fyrstu umferð kunni að
verða valdir síðar, en umsóknir
sem sendar hafi verið inn gildi
áfram. ■
ALÞJÓÐAMÁL [
AWTO fundinum sem lauk í
gær var samþykkt að hef ja
viðræður um lækkun tolla á iðnað-
arvörum, þ. m. t. sjávarafurðum.
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, lagði í máli
sínu áherslu á mikilvægi fríversl-
unar í þessu sambandi. Eins á að
taka sérstaklega á ríkisstyrkjum í
sjávarútvegi. Setja á reglur um
beitingu þeirra og stuðla að af-
námi þeirra.
--4—
Samningaviðræður WTO hefjast
í ársbyrjun 2002 og fjalla um
öll viðfangsefni samtímis, en gert
er ráð fyrir að samningum teljist
ekki lokið fyrr en samkomulag
liggur fyrir á öllum sviðum.
Samningum á að ljúka á þremur
árum.
HELGI PÉTURS-
SON BORGAR-
FULLTRÚI
Segir gagnrýni sjálf-
stæðismanna bera
vott um lágkúruleg
vinnubrögð
KJARTAN MAGN-
ÚSSON BORGAR-
FULLTRÚI
Segir R-listann nota
borgarsjóð til að
greiða kosningabar-
áttu sína
Samgöngunefnd
Reykjavíkur:
Deilt um
meinta
misnotkun á
almannafé
bæklingur Fulltrúar R-lista og
sjálfstæðismanna í samgöngu-
nefnd eru komnir í hár saman
vegna deilna um meinta pólitíska
misnotkun á almannafé vegna út-
gáfu á litprentuðum bæklingi um
bílastæðamál í miðborginni. I bók-
un sjálfstæðismanna í nefndinni
kemur m.a. fram að í bæklingnum
sé löngu máli eytt til að réttlæta
allt að 200% gjaldskrárhækkanir
bílastæðasjóðs og stefnu R-listans
án þess að fjallað sé um önnur sjón-
armið eins og t.d. sjálfstæðis-
manna í því máli. Kjartan Magnús-
son borgarfulltrúi segir að þessi
vinnubrögð séu dæmi um það
hvernig R-listinn misnoti borgar-
sjóð til að greiða fyrir kosninga-
baráttu sína. Talið er að bæklingur-
inn, sem dreift hefur verið í öll hús
í borginni, hafi kostað vel á aðra
milljón króna en samtals mun yfir-
standandi kynningarátak vegna
bílastæðamála kosta um 5 - 6 millj-
ónir króna.
Helgi Pétursson formaður sam-
göngunefndar vísar þessari gagn-
rýni sjálfstæðismanna á bug. I bók-
un fulltrúa R-lista í nefndinni kem-
ur fram að taugaveiklun sjálfstæð-
ismanna í aðdraganda borgar-
stjórnarkosninga sé komin upp á
yfirborðið. í þeim efnum sé m.a.
ráðist smánarlega og ósmekklega
að embættismönnum borgarinnar
sem hafa unnið að kostgæfni vand-
að verk til upplýsinga fyrir borgar-
búa. í bókuninni kemur einnig
fram að sú hugsun sé óhugnanleg
að sjálfstæðismenn muni ekki
skirrast við að ritskoða texta af
þessu tagi komist þeir einhvern
tíma til valda. ■
| ALPJÓÐAMÁL 1
Igær lauk raðherrastefnu 144
aðildarríkja Alþjóðaviðskipta-
stofnunarinnar (WTO), sem hald-
in var í Doha í Katar við
Persaflóa. Aðalsamþykkt ráð-
stefnunnar gekk út á að hefja
nýjar samningaviðræður urn al-
þjóðaviðskipti, í því skyni að
draga enn frekar úr viðskipta-
hömlum og fella fleiri svið við-
skipta undir alþjóðlegar reglur.
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, fór fyrir is-
lensku sendinefndinni.
fyrir hörðu pökkunum
Verðfall á æfingafatnaði og fæðubótarefnum
Verðdæmi Verð áður Verð nú
Fóðraðar nylonbuxur 5.990.- 1.995.-
Skór 6.990.- 3.990.-
Þunnar flíspeysur 5.990.- 3.990.-
Þunnar flísbuxur 4.990.- 3.990.-
Toppar 1.990.- 995.-
Vandaðir bolir verð frá 995.-
frábærum
Verðdæmi verð
num
Tilboðsverð
MET-RX 20 bréf 7. 990,- 4.995.-
Perfect Carbs 1.952,- 1.495.-
Nitrotech 907 g 6.544,- 4.995.-
Nitrotech 1814 g 1 1.824,- 8.995.-
Designer Whey protein 5.280,- 3.995.-
Myoplex Lite 42 b,éf 12.770,- 10.995.-
Labrada Low Carb For her 6.824,- 5.995.-
Komdu og gerðu hraustleg kaup!
Opið
alla virka daga 10-18
Laugardaga 10-14
HREYSTI
[IEdo&SuBDÍ
Fæðubótarefni - Æfingafatnaður - Rafþjálfunartæki