Fréttablaðið - 15.11.2001, Síða 12

Fréttablaðið - 15.11.2001, Síða 12
12 FRÉTTABLAÐIÐ 15. nóvember 2001 FIMMTUDAGUR dna imaginetheshoes.com k r i n gl a n * s: 5 3 3 5 I 5 0 Converse 9.990,- Svart/drapp 9.990,- Str. 36-41 7.990,- Str. 36-41 FACE ADIDAS CAMPER BASE DKNY BUFFALO Ekta pelsar stuttir með og án hettu 3 snið Hattar, húfur. Sláið saman í gooa joiagjor K<#HW5IÐ Mörkinni 6, sími 588 5518 Bílastæði við búðarvegginn N°7 Frí kennsla, afsláttur og kaupaukar á föstudag Grafarvogsapótek kl. 14-18 Pétur Blöndal segist hafa skert málfrelsi: Líð aftur og aftur fyrir að vera í stórum flokki alþinci Pétur Blöndal gerði at- hugasemd við stjórn þingforseta á utandagskrárumræðum um brott- kast en vegna reglna sem farið hefur verið eftir við slíkar um- ræður komst hann ekki að og sagði það ekki vera í fyrsta skipti sem slíkt gerist. „Þetta gerist aft- ur og aftur við utandagskrárum- ræður vegna þess að ég líð fyrir það að vera í stórum flokki", sagði Pétur og hvatti til breytinga. Svanfríður Jónasdóttir undrað- ist athugasemd Péturs og sagði þetta vera gert til þess að tryggja öllum flokkum tækifæri á að koma stefnumálum sínum á fram- færi. Pétur sagði ræðu Svanfríðar undarlega og sagði að ef sjálf- stæðismenn hegðuðu sér eins og vinstrimenn og klofnuðu sífellt fengju helmingi fleiri þeirra að tala. Lúðvík Bergvinsson sagði það hlægilegt að menn skyldu koma upp og væla undan þessu til- tekna máli því oftast væri frekar undan því að kvarta að sjálfstæð- ismenn tækju of lítinn þátt í um- ræðum á Alþingi, en slíkt ætti reyndar ekki við um Pétur. ■ PÉTUR BLÖNDAL Furðulegt að eini þingmaðurinn sem hefur lagt fram mótaðar hugmyndir komist ekki að. Næsti höfuverkur rétt Skjótur árangur Norðurbandalagsins í Afganistan kom mörgui Undirbúningur að næstu stjórn landsins skammt á veg kominn. Talib; STRÍÐIÐ í afganistan Óljóst er enn með öllu hvort stríðinu í Afganist- an lýkur á næstu dögum. Taliban- ar segjast sjálfir hafa yfirgefið helstu borgir landsins vegna þess að þeir sjái sér hag í að breyta um hernaðaraðferð. í staðinn fyrir að reyna að halda sem stærstum hluta landsins segjast þeir ætla að stunda skæruhernað sem gafst vel í stríðinu gegn Sovétríkjunum á sínum tíma. Það stríð gæti verið rétt að hefjast. Búast má við að talibanar njóti áfram stuðnings meðal margra pastúna, sem búa í suðurhluta Afganistans og austurhluta Pakistans, og geti falist þar, enda eru talibanar sjálfir að mestu pas- túnar. í stríðinu gegn Sovétríkjun- um nutu Afganir hins vegar öfl- ugs utanaðkomandi stuðnings, m.a. frá Bandaríkjunum, Pakistan og Sádi-Arabíu. Sá stuðningur verður ekki fyrir hendi að þessu sinni. Margir óttast engu að síður að Afganir geti lengi áfram haldið að berjast sín á milli og erfiðlega gangi að setja saman stjórn með þátttöku allra þeirra ættflokka sem búa í landinu. Hinn skjóti ár- angur Norðurbandalagsins virðist hafa komið heldur fyrr en reiknað var með, og mikið vantar upp á að undirbúningur að framtíðarstjórn landsins sé kominn vel á veg. Sameinuðu þjóðirnar kynntu samt á þriðjudaginn hugmyndir sínar um bráðabirgðastjórn í Afganistan. Hugmynd þeirra er sú, að Sameinuðu þjóðirnar byrji á að kalla saman fulltrúa Norður- bandalagsins svonefnda og full- trúa fleiri ættflokka og hópa í Afganistan á fund þar sem sam- þykktar verði meginlínur fyrir bráðabirgðaferlið. Á þessum fundi verði stofnað bráðabirgða- ráð, sem væri fjölmennt fulltrúa- ráð sem flestra afganskra þjóð- ernishópa og í forsæti verði ein- staklingur, sem ráðið geti sætt sig við sem eins konar einingartákn. Þetta ráð á síðan að koma með til- lögur að bráðabirgðastjórn fyrir landið, sem sitji ekki lengur en tvö ár. Að því loknu verði kallað saman neyðarþing afganskra höfðingja, svonefnt Loya Jirga, sem verður að samþykkja tillögur ráðsins og heimila bráðabirgða- stjórninni að leggja drög að stjórnarskrá. Loks verði kallað saman annað höfðingjaþing, sem Landbúnaðarráðuneyti og Bændasamtökin: Opinbert verðsam- ráð sagt vera löglegt LANDBúnaður Svo virðist sem verð- samráð um verðlagningu landbún- aðarafurða á heildsölustigi í opin- berri nefnd sé ekki andstæð sam- —é— keppnislögum eins og t.d. á mjólkur- drykkjarvörum og ostum. Af þeim sökum hefur land- búnaðarráðuneytið og Bændasamtökin samið um að verð- lagsnefnd skuli starfa áfram til júlí árið 2004, þótt samið hefði verið Eftir nokkra umhugsun hefðu menn komist að þeirri niður- stöðu að betra væri að halda í gamla kerfið. —♦— um það í búvörusamningi árið 1997 að frjáls verðlagning ætti að hefj- ast á þessu ári. Ari Teitsspn for- maður Bændasamtaka íslands segist ekki hafa fengið neinar at- hugasemdir vegna breytinga á þessu ákvæði búvörusamningsins. Samtök verslunar og þjónustu eru hins vegar ekki sammála og segist Sigurður Jónsson framkvæmda- SIGURÐUR JÓNSSON Telur að óheimilt sé að hafa samráð um verðlagningu. ARI TEITSSON Ef verðsamráð væri bannað mundi það setja mjólkuriðnað- inn í uppnám. stjóri þeirra gera ráð fyrir því að samtökin muni óska eftir áliti Sam- keppnisstofnunar á þessu fyrir- komulagi. Hann segir að nýlega hafi verð- lagsnefndin ákveðið að hækka verð á mjólkurvörum um 5% um komandi áramót. Hann segir að samtökin telji að verðlagning af þessu tagi brjóti í bága við sam- keppnislög þar sem kveðið sé á um að óheimilt sé að hafa samráð um verðlagningu. Með núgildandi samningi sínum hafi ráðuneytið og Bændasamtökin fest þennan opin- bera samráðsvettvang í sessi enn um sinn og því sé fróðlegt að vita hvaða augum Samkeppnisstofnun lítur á þennan gjörning. Ari Teitsson formaður Bænda- samtaka íslands bendir á að nokkru eftir gerð búvörusamn- ingsins árið 1997 hefðu verið sett ný samkeppnislög sem ná yfir alla verðmyndun á mjólk. Þar með hefði öll verðtilfærsla á milli af- urða og framleiðslustýring verið óheimil. Það hefði sett mjólkuriðn- aðinn í uppnám sem og alla verð- lagningu á einstökum vörum. Eftir nokkra umhugsun hefðu menn hins vegar komist að þeirri niður- stöðu að það væri skárri kostur að halda áfram í gamla kerfinu í stað þess að framboð á þessum land- búnaðarafurðum yrði í uppnámi og einnig verð á þeim. grh@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.