Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.11.2001, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 15.11.2001, Qupperneq 14
FRETTABLAÐIÐ 15. nóvember 2001 FIMMTUDACUR Ódýrustu skórnir í bænum Jólaskór á börnin 500 Barnamoonboots 500 Barnakuldaskór 1000 Heilsuinniskór, dömu- og herra 1500 Mikið úrval af dömu- og herraskóm á ótrúlegu verði i Nýjar vörur með i [ 40% afslætti \ | Skólagerinn ! I Skemmuvegi 32 (beint á móti B/ko) g I Opið virka daga frá 13-18 I — «1 — — — — — ji Hótel Nesbúð Nesjavöllum Þarftu að halda fund stóran sem smáann? Höfum fundarsali fyrir allt að 120 manns. Ert þú að fara halda veislu? Gerum tilboð í mat og gistingu fyrir hópa og einstaklinga. Heitir pottar á staðnum, einnig frábærar gönguleiðir í kringum Nesbúð. Endilega hafðu samband í síma 482-3415 Netfang nesbud@nesbud.is Frábær árangur hjá mínu fólki fyrstu vikuna Þú borðar fimm léttar máltíðir og kvöldmat daglega Þú léttist um 2-4 kg á einni viku! Nú er tækifærið að laga línurnar fyrir jólin Hringdu núna í síma 896 2300 Afhending frítt á stór Reykjavíkursvæðinu m mamffl l E kr. 7.900- Undankeppni HM 2002: Tékkar úr leik knattspyrna Tékkar eru úr leik í Heimsmeistarakeppninni í knatt- spyrnu eftir 1-0 tap gegn Belgíu á heimavelli í gærkvöldi. Belgía sigraði 1-0 í fyrri leiknum og því samanlagt 2-0. Leikurinn í gær var einn af fjórum sem fóru fram í um- spili um fjögur laus sæti í loka- keppni HM sem fer fram í Japan og Suður Kóreu 2002. Auk Belgíu tryggðu Þýskaland, Slóvenía og Tyrkland sér sæti í lokakeppninni. Þjóðverjar, sem gerðu 1-1 jafn- tefli við Úkraínu á útivelli í síðustu viku, afgreiddu Úkraínumenn á fyrsta stundarfjórðungi leiksins í gær. Eftir aðeins 14 mínútur voru þeir komir í 3-0 og þegar flautað var til leiksloka var 4-1 sigur stað- reynd. Samanlagt sigruðu Þjóð- verjar 5-2. Slóvenía gerð sér lítið fyrir og sló Rúmeníu út með því að gera 1- 1 jafntefli á útivelli. Fyrri leiknum lauk með 2-1 sigri Slóvena og þeir sigra því samanlagt 3-2. Þetta er í fyrsta skiptið sem Slóvenía tekur UMSPIL UM 4 LAUS SÆTI Tyrkland - Austurríki 5-0 (6-0) Rúmenía - Slóvenía 1-1 (2-3) Þýskaland - Úkraina 4-1 (5-2) Tékkland - Belgía O-l (0-2) ÞJÓÐVERJAR Á HM Marko Rehmer fagnar 4-1 sigri á Úkrainu. þátt í lokakeppninni, en í fyrsta skiptið síðan 1986, sem Rúmenar verða ekki með. Tyrkir komust auðveldlega áfram eftir 5-0 sigur á Austuríkis- mönnum í Istanbúl. Tyrkir sigruðu samanlagt 6-0. ■ Fara í sama þrekpróf og norska landsliðið íslenska kvennalandslidið í handbolta mun leika fimm landsleiki í Hollandi og Belgíu. Enginn úr Haukaliðinu fer í þrekprófið á Laugar- vatni. Þrjátíu landsleikir á næstu tveimur árum. hanpknattleikur Stefán Arnarsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðs- ins, hefur valið 21 manna hóp sem fer á Laugarvatn í þrekpróf um helgina. Á fimmtudaginn fer síðan 16 manna hópur í vikuæfingaferð til Hollands og Belgíu. HÓPURINN SEM FER Á LAUGARVATN I Markmenn: Berglind Hansdóttir Val Helga Torfadóttir Víkingi Þóra Hlíf Jónsdóttir Gróttu-KR Vinstra horn: Dagný Skúladóttir ÍBV Elfa B. Hreggviðsdóttir Val Guðbjörg Guðmannsdóttir Víkingi Hægra horn: Ásdís Sigurðardóttir KA Guðrún D. Hólmgeirsdóttir Víkingi Harpa Vífilsdóttir FH Útileikmenn: Ágústa Edda Björnsdóttir Gróttu-KR Drífa Skúladóttir Val Dröfn Sæmundsdóttir FH Guðmunda Ósk KristjánsdóttirVíkingi Hafdís Hinriksdóttir FH Heiða Valgeirsdóttir Gróttu-KR Helga Birna Brynjólfsdóttir Víkingi Hrafnhildur Skúladóttir Val Jóna M. Ragnarsdóttir Stjörnunni Línumenn: Eivor Pála Blöndal Val Hafrún Kristjánsdóttir Val Sigrún Gilsdóttir FH LANDSLIÐSKONA Hrafnhildur Skúladóttir, fyrn/erandi leikmaður FH og núverandi leikmaður Vals, er í lands- liðshópnum ásamt systrum sínum, þeim Drífu og Dagnýju. Haukar taka þátt í fjögurra liða móti í Grikklandi um helgina og því eru engir leikmenn úr því með landsliðinu á Laugarvatni. Stefán sagði að upphaflega hefðu sex leik- menn úr liðinu verið valdir í hópinn og að einhverjir þeirra myndu væntanlega verða í 16 manna hópn- um sem færi til Hollands og Belgíu. Á Laugarvatni munu íslensku handboltakonurnar gangast undir í þol-, kraft- og hraðapróf líkt og norska landsliðið gerir. Stefán sagði að prófið yrði alveg eins og það norska og að eftir það gæti hann séð hvar íslensku leikmenn- irnir stæðu samanborið við heims- meistarana. Hann væri með tölur yfir árangur norsku leikmannanna í prófinu. í Hollandi og Belgíu, mun ís- lenska liðið leika fimm leiki. Tvo við hollenska landsliðið, sem Stef- án sagði að væri mjög sterkt, tvo við belgíska landsliðið, sem hann sagðist halda að væri svipað og það íslenska og að lokum verður leik- inn einn leikur við hollenskt félags- lið. Að sögn Stefáns er þetta aðeins upphafið að uppbyggingu íslenska kvennalandsliðsins, en stefnt er að því að leika 30 leiki á næstu tveim- ur árum. Hann sagði að ekki væri ráðgert að taka þátt í neinum stór- mótum á þessum tíma. Skynsam- legra væri að byggja liðið fyrst upp og sjá síðan hvar það stæði eftir tvö ár. Hann sagði að hópurinn myndi hittast aftur um jólin og að í febrúar yrði annað þrekpróf. Síðan yrðu nokkuð stífar æfingar í maí og júní, eftir að íslandsmótinu væri lokið. trausti@frettabladid.is Sven-Göran Eriksson: SS-bikar kvenna: Viðurkenning að vera orðaður við Man. Utd. knattspyrna Svíinn Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Eng- lands, segir það vera viðurkenn- ingu að vera nefndur sem eftirmað- ur Alex Ferguson, framkvæmda- stjóra Man. Utd. Hann sagði hins vegar að forráðamenn Man. Utd. hefðu ekki haft samband við sig, en starfið verður laust næsta vor þeg- ar Ferguson hættir. Enska knattspyrnusambandið er ekki reiðubúið að láta Eriksson lausan, enda er hann samnings- bundinn því til ársins 2006. Adam Crozier, framkæmdastjóri Enska knattspyrnusambandsins, sagði að ef Eriksson myndi leiða England til sigurs á HM 2002 myndi hann ein- faldlega biðja Svíann að endurtaka leikinn í Þýskalandi 2006. Crozier sagði að Enska knattspyrnusam- bandið væri að sjálfsögðu mjög ánægt með árangur Eriksson, síðan hann hefði tekið við liðinu af Kevin Keegan. Þá sagði hann að Eriksson hefði sagst vera mjög ánægður í ERIKSSON Svíinn er samningsbundinn Enska knatt- spyrnusambandinu til ársins 2006. landsliðsþjálfarastarfinu. Fjöl- margir hafa verið orðaðir við fram- kvæmdastjórastöðuna hjá Man. Utd. t.d. Fabio Capello, Ottmar Hitzfeld, Martin O’Neill, Arsene Wenger og David O’Leary. ■ Stjarnan kominí undanúrslit handknattleikur Stjarnan sigraði KA/Þór örugglega í fjórðungsúr- slitum SS-bikarkeppninnar í gær- kvöldi. Leiknum, sem fór fram á Akureyri, lauk með 33-22 sigri Stjörnunnar og var Anna Blöndal atkvæðamest með 8 mörk. Jelena Jovanovic stóð sig vel á milli stanganna fyrir Stjörnuna og varði 16 skot. Elsa Birgisdóttir var markahæst í liði heimamanna með 8 mörk. Auk Stjörnunnar eru Haukar, Grótta KR og ÍBV komin í undanúrslit keppninnar. Haukar sigruðu FH-inga með átta marka mun, Grótta KR sigraði Fylki með 10 mörkum og ÍBV sigraði Val einnig með 10 mörkum. ■ 8-LIÐA ÚRSLIT: Haukar-FH 26-18 Fylkir-Grótta KR 16-28 (BV-Valur 28-16 KA/Þór-Stjarnan 22-33

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.