Fréttablaðið - 15.11.2001, Síða 16
VI-
16
■ .i:#l.!APIAOH)
15. nóvember 2001. FiMMfuDAGUR
rnne iumiimihr. ri—qon'cmtTEVnvu^—
HÁSKÓLABÍÓ
HACATORCI, SIMI 530 1919
Þar sem allir saiir eru stórir
Sýnd ki. 5.45, 8 og 10.15
K VIK MYN PAHÁTÍP
CRADLE WILL ROCK kl. 10.15
‘í ÁLf AftAKK AN
"muús?-
kl. 4. 6, 8 og 10.10
Sýnd kl. 5.30 og 10.15
AMERICAN PIE2 kL 8 og 10.10 | |V,T|
[5 SEXY BEAST kL8 |
[THE OTHER5 kL 5.50,8 og lÖTls][%%[ 3000 MILESTO CRACEL- kl. lO.TolPTj
SKÓLALÍF m/ ísl. tal kL 4 og 61 Pj |RLÍCART5 IN FARIS m/ísl. tali kl. 3.501 ["'T;
kL545.8ogl0.151|j"'ti ÍSHREK m/lsLtali kL 41 [Y"j
IPRINŒSSDIAR.
ÍOSMOSISJONES
~ÍT6og8Ín [CATS & DÓCS m/IsLtaB kL3J0 jplf|
KVIKMYNDAHATIÐ
í REYKJAVÍK -
FIMMTUDAGUR
laugarAsbíó
Monsoon wedding ,' ,
Segir frá brúðkaupi ( Nýju Delhi. Litadýrð og
fjölbreyttír fulltrúar stétta indversks samfélags.
Sýnd kl. 20 og 22.15
Pollock
Ed Harris fléttar saman ferli, frægð, frama og
skuggahliðum einkalífs listmálarans Pollock.
Sýnd kl. 22
HÁSKÓLABÍÓ
Pane é Tulipani
Camanmynd um húsmóður, sem gleymist á
bensínstöð á ferðalagi með fjölskyldunni og
ákveður að láta sig hverfa til Feneyja.
Sýnd kl. 20 og 22
Bread & Roses
Ken Loach tekur á lífsbaráttu spænskættaðra
farandverkamanna i Los Angeles.
Sýnd kl. 20
Cradle WtlS Rock
Sannsöguleg frásögn af hópi listamanna á
fjórða áratugnum. Tim Robbins leikstýrir.
Sýnd kl. 22.15
BÍÓBORGIN
Requtem for a dream
Leikstýrt af Darren Aronofsky. Fjallar um líf og
drauma fikla sem eiga sér ekki viðreisnar von.
Sýndkl. 16, 18, 20 og 22
ShadoW Of The Vampire
Skyggnst bak við tjöldin þegar frægasta blóð-
suga kvikmyndasögunnar, Nosferatu, var fest
á filmu. Willem Dafoe og John Malkovich.
Sýnd kl. 16
Harry, un ami qui vous veut u bie
Franskur sálfræðitryllir í anda Hitchcock.
Sýndkl. 17.45, 20 og 22.15
REGNBOGINN
The Deep End
Tilda Swinton leikur móðir, sem reynir að
koma í veg fyrir að grunur falli á son hennar
þegar lík ástmanns hans finnst.
Sýnd kl. 18
Last orders
Fjallar um slátrara í London og ferðalag hans
til hinsta hvíldarstaðar. Micheal Caine, Bob
Hoskins, Helen Mirren og Ray Winstone.
Sýnd kl. 18
Die Stilie nach dem Schuss
Volker Schlöndroff segir söguna um Ritu, sem
gengur til liðs við hóp hryðjuverkamanna í
Vestur-þýskalandi.
Sýnd kl. 20
StoryteUmg
Eftir Todd Solondz. Um menntaskólakrakka
og reynslu þeirra og upplífun i nútíð og þátíð.
Sýndkl.22
Twin Falis Idaho
Bandarísk mynd eftir Michael Polish. Segir
óvenjulega ástarsögu um líf síamstvíbura og
samband þeirra við unga gleðikonu.
Sýnd kl. 22
FRÉTTIR AF FÓLKI
Hin tvítuga R og B snót,
Alicia Keys fékk 5 tilnefn-
ingar til bandarísku tónlistar-
verðlaunanna á
dögunum. Popp-
lagasmíðar Aiiciu
þykja vel yfir
meðallagi, og
ekki skemmir
fyrir ímynd
hennar að hún er
þrælmyndarleg
og hefur lært á
píanó frá barnsaldri. Fyrsta
breiðskífa hennar, Songs in A
Minor er m.a. tilnefnd sem besta
plata, ásamt plötum Janet
Jackson og Aaliyuh. Platan hefur
selst gríðarlega vel í
Bandaríkjunum og var meðal
annars á toppi sölulistans um
skeið.
Prúði Bítillinn Paul McCartney
leynir greinilega á sér. Hann
viðurkenndi nýlega að hafa orðið
háður kókaíni á
tímabili. Hann
segir Lindu
McCartney hafa
hjálpað honum að
taka sig saman í
andlitinu og sigr-
ast á fíkninni.
Hún hafi bent
honum á að hann
ætti sér líf og að honum þætti al-
mennt gaman að lifa því frekar
en að eyða því í vitleysp.
Nýútkomin safnplata Pink
Floyd er mjög hugsanlega
svanasöngur sveitarinnar. Dave
Gilmour, gítar-
leikari og söngv-
ari, segist ekki
sakna þess að
vinna með hinum
liðsmönnum
| sveitarinnar og
það að fara í tón-
leikaferðalag sé
aðeins fyrir unga
menn. Hann er orðinn 55 ára
gamall og hefur lítinn áhuga á
slíku í dag. Aðspurður hvort
honum finnist Radiohead eitt-
hvað líkjast Pink Floyd svaraði
hann neitandi. Hann sagðist ein-
nig ímynda sér að slíkar samlík-
ingar færu mikið í taugarnar á
Thom og félögum, þeir ættu ekki
að vera „hina nýja Pink Floyd“
heldur bara einfaldlega Radi-
ohead.
LOW
Stofnuð inn f stofu hjónanna Mimi Parker og Alan Sparhawk, þar sem öll lögin eru samin. Verða þau í jólaskapi í kvöld?
Hjóna-bandið Low
Hljómsveitin Low hélt afbragðs tónleika í Háskólabíó ásamt Sigur
Rós fyrir tveimur árum. I kvöld heldur Hljómalind tónleika með
Low á Nasa ásamt íslensku sveitunum Náttfara og Lúnu.
tónleikar Með það að leiðarljósi
að Low sé samstarfsverkefni
þeirra hjóna hlýtur maður að
spyrja sig að því hvernig þeirri
ákvörðun að ráða inn þriðja að-
ilann í „hjóna-bandið“, bassa-
leikárann Zak Sally, hafi verið
tekið? „Mjög varlega," segir
Mimi Parker trommuleikari og
söngvari Low. „Ég held að sam-
starf okkar við Zak sé búið að
vera rnjög gott. Það er náttúru-
lega ekki hægt að halda hjóna-
bandinu fyrir utan hljómsveit-
ina þar sem við Alan tölum nátt-
úrulega mikið saman þegar Zak
er ekki til staðar. En þegar það
kemur að ákvörðunum erum við
mjög diplómatísk, það er full-
komið lýðræði í sveitinni." Zak
og Alan eiga saman eina dóttur,
sem er tæplega tveggja ára.
Hún kemur að sjálfsögðu með á
tónleikaferðalagið og hver veit
nema að hún birtist óvænt upp á
sviði með foreldrum sínum.
„Hún kom í fyrsta skiptið fram
með hljómsveitinni um daginn
á tónleikum í Seatle. Það var
slys og var mjög truflandi fyrir
mig. Hún skemmti sér þó vel,
henni fannst þetta bara eðlilegt
að dilla sér með tónlistinni á
meðan við spiluðum enda gerir
hún mikið af því heima. Henni
finnst gaman að vera í sviðs-
ljósinu." Það er því hægt að
gera ráð fyrir því að rokk og
rugl líferni sé afar fjarlægð
liðsmönnum sveitarinnar á tón-
leikaferðalögum. „Það snýst
bara allt um það að gefa henni
að borða á réttum tíma og koma
henni í háttinn." Mimi segir
sveitina ætla að aðallega að
taka lög af nýjustu breiðskífu
sveitarinnar, „Things We Lost
In The Fire“, sem kom út í jan-
úar en einnig ætli þau að prufu-
keyra nýtt efni. Fyrir tveimur
árum síðan gaf Low út jólaplötu
sem innihélt aðallega frumsam-
in lög. Á plötunni færðu þau
einnig í sinn búning lagið
„Little Drummer Boy“ sem þau
fengu töluverða athygli út á.
M.a. var lagið notað í galla-
buxnaauglýsingu fyrir Gap. Nú
nálgast jólin óðfluga og því við
hæfi að spyrja hvort þau ætli
sér að lauma inn einu eða
tveimur jólalögum á tónleikun-
um í kvöld? „Ég er alveg í jóla-
skapi og alveg til í að spila jóla-
lög, en mig grunar að Zak vilji
það ekki. Ef það verður snjór
fer hann í jólaskap og þá neyð-
umst við til þess.“ Forsala miða
er í Hljómalind, rniðinn kostar
2000 kr. Tónleikarnir hefjast kl.
21.
biggi@frettabladid.is
t!