Fréttablaðið - 15.11.2001, Side 24

Fréttablaðið - 15.11.2001, Side 24
FRETTABLAÐIÐ SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20 VlÐ SEGJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á V'ÍSÍI'.ÍS Fyrstur með fréttirnar Ný lína Compaq Evo AcoTæknival Vatnsmýrarvégi 25 • Sími: 565 1055 Vantar bOa vegna gífulegrar sölu! Háskólinn i Reyk|avik veitir þér fcœkifæn fcii aö ná lengra Haskólanám með vinnu í tölvunarfræðí IMemendur í háskólanámi með vinnu geta lokið: - Kerfisfræðiprófi HR (60 ein.) á rúmlega tveimur árum - BS prófi á rúmlega þremur árum Umsóknarfrestur er til 26. nóvember • Námið hefst í janúar 2002 Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu skólans í síma 510 6200 og á www.ru.is HAðKÓLIMN f REYKJAVÍK Bakþankar STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR Nóg pláss fyrir hótel Isumar sem leið fundust merkar fornminjar þegar verið var að grafa grunn undir hótel sem á að rísa á horni Aðalstrætis og Túngötu. Þetta eru einhverjar merkustu minjar okk- ar íslendinga, minjar sem ásamt handritunum eru verðmætustu minn- isvarðar okkar um tiltölulega stutta sögu þjóðarinnar. Einhvern veginn finnst mér eins og ýmsum hafi þótt heldur verra að þessar fornminjar fundust, eða að minnsta kosti óþægi- legra, vegna þess að þá rís upp ein- hver hópur kverúlanta sem finnst ástæða til að víkja frá fyrirhuguðum áætlunum um hótelbyggingu. Mér fannst hugmyndin um að byggja þarna hótel góð á sínum tíma, hlakk- aði til að fá aftur Fjalakött, þótt ekki væri nema framhliðin á húsinu. Það var reyndar auma ákvörðunin að rífa það hús á sínum tíma, en það er nú önnur saga! —>... EFTIR að landnámsbærinn fannst finnst mér hins vegar sem þessi ágæta hótelhugmynd sé fallin um sjálfa sig. Mér finnst ekki skipta höf- uðmáli hvort heimiii þeirra Ingólfs og Hallveigar stóð nákvæmlega í þeim bæ sem rústirnar eru af því einhverjir áttu að minnsta kosti heima í þessum bæ og þeir hljóta að hafa verið með fyrstu norrænu mönnum sem hér bjuggu. Það er því nauðsynlegt að þessum bæ sé gert hátt undir höfði. ' —#— FRAMKVÆMDUM hefur verið hnikað fyrir minna en einhvern merkasta, ef ekki almerkasta, forn- leifafund þjpðar. Og er ekki til nóg af húsum í mióborginni sem breyta má í hótel, eða lóðum sem byggja má á hótel, jafnvel með Fjalakattarfram- hlið. Það skiptir nefnilega máli að hafa hótel í miðborginni, það er engin spurning. Fólk vill gista í miðbæjum þegar það er í útlöndum. AÐGENGI og umhverfi bæjarins góða við Aðalstræti þarf hins vegar að vera veglegt. Þangað þurfum við að gera ráð fyrir að nánast hver ein- asti erlendur ferðamaður komi, fyrir nú utan okkur sjálf sem hér eigum heima. Þetta veglega umhverfi held ég að sé ekki hægt að fella saman við hótelbyggingu sem búið var að hanna áður en fornleifarnar fundust, jafnvel þótt hönnuninni sé breytt og hún löguð að minjunum. Fundur ein- hverra merkustu fornminja þjóðar- innar er nógu merkilegur til að hugsa dæmið algerlega upp á nýtt. ■ Einar Kárason Vígamenn og stórlátar konur Þórður kakali mætir fjendum sínurn eftir fall Sturlunga á Örlygsstöðum árið 1238. Spennandi og kostuleg lrásögn fneð íjölda litskniðugra persóna, sögð af þeirri sagnagleði sem einkennir verk Einars Kárasonar. „Frásagnarlist Einars Kárasonar nýtur sín einkar vel í sögulegri skáldsögu þár sem Þórður kakali er í forgrunni. Litskrúðugt persónugallerí. Sterk skáldsaga, spennandi og skemmtileg." Kolbrún Bergþórsdóttir, Kastljósi. Mál og menning

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.